Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Síða 36
Vinningstölur laugardaginn 15.6/96 2 6 22 32 37 Heildarvlnningsupphæð 3.879.106 Vi nningar Fjöldi vinninga Vinningsupphæð 1.5 a/5 tájsy o 2.027.846 27Tqr5+ 4 68.600 3. 4 af 5 38 12.450 473 0/5 1.512 73Q FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,6háð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ1996 Blur tekur upp á íslandi: Damon söng í miðbænum Það vakti mikla hrifningu útihá- tíðargesta í Reykjavík í nótt þegar Damon, söngvari Blur sté á svið ásamt Emiliönu Torrini og tók tvö lög. Tveir meðlimir hinnar heims- þekktu hljómsveitar Blur eru nú hér á landi, aðalsprautan Damon Al- barn og bassaleikarinn Alex James. „Þetta er langstærsta nafnið í tón- listarheiminum sem hefur komið til þess að vinna svona vinnu hér á landi. Blur er eins stórt nafn á markaðnum og þau verða yfirhöfuð í þessum bransa og við megum því bara vera stoltir af því að hljóðver á Islandi skuli verða fyrir valinu tii þess að vinna að plötunni," segir Tómas Þór Tómasson hjá Skífunni. -sv Veður á Faxaflóasvæði næstu viku ^ - samkv. tölum frá Veöurstofu íslands - ^ HÍtastíg- á 12 tíma bili 14 c° 4 2 miö. fim. fös. laug sun. Vindhraði 12stlg 10 8 6 4 VNV VNV JH. ssv NNéi miö. fim. f ös. laug sun. Úrkoma -á 12 tíma bin 18 mm 16 14 12 10 8 miö. fim. fös. laug sun. Lögreglan í Reykjavík barðist við æstan lýð í miðborginni í nótt: Óðu inn um dyr og glugga hjá lögreglunni - skemmtuninni lauk of snemma, segir Geir Jón Þórisson varðstjóri „Ástandið var verra en við höf- um átt að venjast í miðborginni um langan tíma. Um tíma átti lög- reglan fullt í fangi með að verjast og það varð á endanum að nota táragas," segir Geir Jón Þórisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, um ástandið í miðborg Reykjavíkur í nótt eftir að 17. júní skemmtuninni lauk. Um 30 unglingar voru handtekn- ir eftir að aðsúgur var gerður að lögreglunni. M.a. var ráðist á mið- bæjarlögreglustöðina og þar farið jafnt inn um glugga sem dyr án þess að lögreglumenn á staðnum næðu að stöðva lýðinn. Var flest lauslegt tekið úr stöðinni en skii- aði sér aftur síðar um nóttina. Geir Jón segir að lætin hafi byrj- að um klukkan tvö og staðið fram á fjórða tímann. Hann segir að skemmtanahaldi hafi lokið of snemma þannig að þeir sem vildu meiri skemmtun létu óánægju sína bitna á hverju sem fyrir varð. „Mér fannst undarlegt að hljóm- sveitirnar skyldu hætta að spila klukkan eitt meðan aflt er enn í fullu fjöri. Eftir það magnaðist óá- nægjan smátt og smátt. Það var hiti í fólkinu," segir Geir Jón. Fyrir utan árásina á lögreglu- stöðina var ástandið einna verst í Austurstrætinu þar sem unglingur var sóttur upp í auglýsingaskilti. Neitaði hann að hlýða boðum um að koma niður og var þá náð í körfubíl til að ná í hann. Við það æstust áhorfendur og veittust að lögreglunni. Táragasi var beitt og fóru nokkrir á slysadeild til að láta skola gas úr augunum. „Það slasaðist enginn þrátt fyrir pústrana en það var engin stjóm á fólkinu í meira en klukkutíma og engin leið að koma nokkrum til hjálpar ef þess hefði þurft með,“ segir Geir Jón. Mikill troðningur var fyrir fram- an tónleikapaflinn í Lækjargötu þar sem unglingahljómsveitirnar spiluðu. Þar tróðst 12 ára gömul stúlka nær undir þegar söngvari hljómsveitarinnar Blur birtist skyndilega. Henni var bjargað naumlega út úr þvögunni. Unglingar voru á reiki um mið- bæinn fram á morgun og klukkan farin að halla í sjö þegar síðustu nátthrafharnir fóru heim. -GK Mannfjöldi í miðbænum Mikill mannfjöldi var í nótt saman kominn í miðbæ Reykjavíkur og lauk skemmtuninni svo að slagsmál brutust út og átti lögreglan um tíma fullt í fangi með að hafa stjórn á lýðnum. Talið er að um 10 þúsund manns hafi verið í mið- bænum enda veður gott. Hljómsveitir léku á tveimur pöllum og var mikið fjör fram á nótt.. Miðbæjargestir eru sammála um að allt hafi farið vel fram lengi kvölds þótt uppúr syði um nóttina. DV-mynd S Grétar Þorsteinsson: Fagna hug- myndum um styttingu vinnutíma „Ég heyrði útdrátt úr ræðu for- sætisráðherra þar sem hann ræddi um styttingu vinnutímans. Ég fagna því að heyra þennan tón hjá honum. Enda er þarna um að ræða hluta af þeim áherslum sem við höfum verið með og síðast nú á Alþýðusam- bandsþingi. En það er rétt að tíunda það líka að það eru öll rök fyrir um- talsverðri kaupmáttaraukningu þess utan. Stytting vinnutímans með þeim hætti sem forsætisráð- herra ræddi um er bara sjálfstætt viðfangsefni. Menn leysa ekki málið með því einu,“ sagði Grétar Þor- steinsson, forseti Alþýðusambands- ins, um þann kafla ræðu Davíðs Oddssonar forsætisráðherra í gær, þar sem hann fjallaði um nauðsyn styttingu vinnutímans. Hann sagði að alþýðusambands- menn væru að tala um tilfærslur i þessum málum. „Þar er ég að tala um styttingu yfirvinnunnar og hækka dagvinnu- launin að minnsta kosti að sama skapi," sagði Grétar Þorsteinsson. -S.dór L O K I Veörið á morgun: Þurrt og léttskýjað Á morgun verður þurrt og all- víða léttskýjað, síst þó við sjávar- síðuna norðaustanlands og þar má jafnvel reikna með þokuslæð- ingi. Hiti verður á bilinu 10 til 20 stig yfir daginn, hlýjast suðaust- anlands. Veðrið í dag er á bls. 44 Bílheimar ehf. Sœvarhöföa 2a Sími: 525 9000 Opel VerO kr. 1.199.000.-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.