Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Page 5
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 5 DV Áform um fjölgun álvera á íslandi: 30 þúsund tonna álver hliðarspor - segir Andrés Svanbjörnsson yfirverkfræðingur „Menn verða að athuga að 30 þús- und tonna verið er aðeins ein leið af mörgum sem við erum að reyna til þess að koma einhverju í gang héma. Þetta er hliðarspor við aðal- málið sem við erum að vinna að en það er að Columbia álfyrirtækið ákveði að koma með 60 þús. tonna álverið hingað til lands en fari ekki með það til Venesúela," segir Andr- és Svanbjömsson, yfirverkfræðing- ur hjá markaðsskrifstofu iðnaðar- ráðuneytisins og Landsvirkjunar. „Þetta hliðarspor okkar þjónaði aðallega þeim tilgangi að fá það full- reynt að það sé hægt að framleiða nægilega raforku fyrr en menn höfðu talið. Nú hefur verið gerð nægileg grein fyrir því og meira að segja búið að setja tvennt í gang, tvær virkjanir, í kjölfarið á því. Það er mjög gott mál og bætir okkar samkeppnisstöðu til muna.“ „Aðilamir frá Kína, sem eru að athuga með 30 þús. tonna verið, voru upphaflega að spá í bæði verin en misstu af 60 þúsund tonna ver- inu þegar Columbia keypti það. Minna verinu er hins vegar óráð- stafað ennþá.“ Að sögn Andrésar væri alls ekki fráleitt fyrir íslenska aðila að kaupa minna verið ef menn treystu sér á annað borð til þess að vera í for- svari fyrir svona álver. Þó væri það frekar stór biti að kyngja. „Hugmyndin hefur komið upp hjá okkur en það er erfitt að hreyfa við svona máli með jafn litlum fyrir- vara og um er að ræða. Þetta þarf að hafa miklu lengri aðdraganda. Svona miklir peningar em ekki á lausu og íjárfestar eru ekki reiðu- búnir til að snara þeim út í áhættu- viðskipti. Þá er aftur hin hugmyndin að at- huga hvort ríkið myndi treysta sér til þess að hafa um það forystu að leggja út fyrir þessu gegn því að selja síðar sinn hlut á innanlands- markaði. Það er verið að vinna í þessum málum en ekkert komið á rekspöl ennþá." Það er þýskt fyrirtæki, Vereinige Aluminium Werk eða VAW, sem á 30 þús. tonna verið. Fyrirtækið hef- ur þróað tæknina við framleiðsluna mikið svo að segja má að það hafi að hluta til smíðað verið. Verið er fyrst smíðað 1924 en síð- an er búið að breyta því mjög mik- ið, bæði innvolsinu, rafbúnaðinum og húsnæðinu. Segja má að húsnæð- ið sé elsti hlutinn. Þó búið sé að breyta því svo að það mæti nútíma- kröfum þá eru undirstöðumar hin- ar sömu og upphaflega. Sjálf ál- bræðslutæknin og allur framleiðslu- búnaður er alveg spánnýr. Hann var settur niður 1992 og er mjög nú- tímalegur. Það er sá hluti sem yrði fluttur. Þá er lofthreinsibúnaðurinn miklu betri en i 60 þúsund tonna ál- verinu. „Að mörgu leyti er þetta miklu fullkomnari búnaður en í hinu ál- verinu þó hann sé með svolítið annarri tækni. Hann er einnig hag- kvæmari í innkaupum en að sjálf- sögðu er aðalspumingin alltaf hag- kvæmni í rekstri. Það er mjög vandasamt að reka litlar einingar. Þá þarf að gera allt annað ódýrt, fasti kostnaðurinn verður þyngri en ella og einnig vinna alltaf hlutfalls- lega fleiri menn við svona litla verk- smiðjur. Það er sama stjórnunar- starfsliðið hvort sem álverið er 30 eða 60 þúsund tonn. Þar liggur visst óhagræði sem leiðir til þess að ál- verið verður hagkvæmara eftir því sem það er stærra," sagði Andrés. -SF Fréttir Byko til Njarðvikur DV, Suðurnesjum: Bykó hf. hefur fest kaup á'3.700 fermetra verksmiðjuhúsi við Fitj- ar í Njarðvík og stendur húsið við Reykjanesbraut. Samningar tókust á milli Bykó og eigenda fasteignarinnar, Einars Guðbergs og Sigurþórs Stefánssonar, í síð- ustu viku. Bykó keypti vélar og tæki af Ramma hf. fyrir 5 árum og hefur leigt fasteignina síðan. í húsinu framleiðir Bykó glugga og hurðir. Þessi sala þykir vera mikil tíðindi fyrir Suðurnesja- menn, að þarna sé kominn á rekstur til frambúðar sem skapar í dag 40 manns atvinnu. ÆMK 10-50% afsláttur Blaserjakkar Kápur - Sumarúlpur Heilsársúlpur Opnum kl. 8.00, nema laugardaga kl. 10.00. HW5IÐ Mörkinni 6, sími 588-5518 Reykjavík: Hagkaup. Byggt og Búiö Kringlunni, Magasín, Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi.Guðni E.Hallgrímsson, Grundarfirði.Blómsturvellir Hellissandi. Vestfiröir:. Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi,Rafverk,Bolungarvík.Straumur,ísafirði. Norðurland: Kf. Steingrímsfjaröar, Hólmavík. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúö.Sauðárkróki. KEA, tiyggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA Hrísalundi, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaups- staö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúðsfiröi. KASK, Höfn Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík. Fjarðarkaup, Hafnarfirði. VESTURBÆR • H0FÐABAKKI • K0PAV0G*' eitt símanúmer 18 tommu Pizza með 2 áleggstegundum 16 tommu Pizza með 2 áleaasteaundum 12 tommu Pizza með 2 áleaasteaundum OPIÐ til kl. 01:00 virka daga og til kl. 05:00 um helgar ■Jjalskylítu eif lómeitvöruiu LllCH. lulL • v i s s k a 11! sét uiti klakann/ 2 lítrar 71 á aðeins 150 kr ^ón Bakari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.