Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Blaðsíða 26
34 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 Veiðivon Langá á Mýrum: Besta júníopnun í manna minnum „Veiðiskapurinn gengur feikna- vel í Langá og núna eru komnir 311 laxar úr allri ánni. Það veiddust 150 laxar í júní sem er það besta í manna minnum," sagði Runólfur Ágústsson í gærdag er við spurðum um Langá á Mýrum. „í gær veiddi Spánverji stærsta Brynjar Björn Ingvarsson meö 15 punda maríulaxinn sinn sem hann veiddi á Gíslastöðum í Hvítá. DV-mynd Ingvar Elliðaárnar: Hundrað laxa múrinn rofinn Þrátt fyrir frekar lítið vatn í El- liðaánum gengur mikið af fiski inn í árnar. í gærkvöldi voru komnir 100 laxar úr ánni. Flugan verður sterkari með hverjum deginum og þá í smærri kantinum. Búðardalsá: 30-40 laxar í Arnarfossi „Við fórum þarna í mýflugumynd og reyndum stuttan tíma. Við feng- um tvo laxa og sáum helling í Arn- arfossi. Þar hafa líklega verið á milli 30 og 40 laxar,“ sagði Sigurður Sigurjónsson leikari en hann opn- aði Búðardalsá á Skarðsströnd við fjórða mann í vikunni. „Sonur Amar Árnasonar, Óskar, veiddi maríulaxinn sinn og var fisk- urinn 8 pund. Svavar Rúnar Ólafs- son veiddi líka 8 punda fisk og svo fengum við nokkra silunga. Þetta lofar góðu með áframhaldið hjá okk- ur en veiðimenn eru á fullu að renna þarna núna,“ sagði Sigurður í gærdag en allt var á fullu fyrir frumsýningu á leikritinu Á sama tíma að ári. Frumsýning er í kvöld og enginn veiðitúr strax. Svavar Rúnar Ólafsson með fyrsta laxinn úr Búöardalsá á þessu sumri, 8 punda lax sem hann veiddi á maök, en meö honum er Valdimar sonur hans. DV-mynd SS Á Stóra sviði Borgarleikhússins UPPSELT 2. syning sun. 14. júli kl.20 örla sæti 3. sýning fim. 18. julí kl. 20 öpfa sæti 4. sýning lös. 19. júlí kl. 20 örfa sæti 5. sýning lau. 20. julí kl. 20 Namu- 09 Gengisfélagar la 15% | y. \ K F; p | A( - afslatt a fyrstu 15 syningarnar. kl*./l.. :/„r cutvf'*' Namu-osGengislelagarla 15% mKITIAL i ________ alslalt a lyrstu 15 syningarnar. Forsala aögöngumiða er haf n • Miöapantanir í síma 568 80ÓÖ Allt í veiðiferðina SELJUM VEIÐILEYFII: ÞÓRISVATN BRYNJUDALSÁ og HRAUN í ÖLFUSI Laugavegi 178, símar551 6770 og 581 4455 Myndasögur laxinn 21 punds fisk í Krókadíl og fiskurinn fór alveg niður í sjó. Fisk- urinn tók maðk. Laxinum var land- að í fjöruborðinu. Það eru Spánverj- ar sem era við veiðar núna og þeir veiða bæði á maðk og flugu,“ sagði Runólfur i lokin. Gíslastaðir í Hvítá: 8 ára snáði fékk 15 punda lax „Þetta var meiri háttar. Sonur minn veiddi 15 punda lax á Gísla- stööum í Hvítá en hann er 8 ára. Gleðin var mikil þegar fiskurinn kom á land,“ sagði Ingvar Guð- mundsson. Brynjar Björn, sonur hans, veiddi fiskinn fyrir fáum dög- um og var þetta maríulaxinn hans. „Við höfðum fyrirfram gefið hon- um afmælisgjöf, nýja stöng og hjól, og hann setti í þennan 15 punda ný- ranna hæng meö nýja veiðidótinu. Baráttan stóð yfir í 25 mínútur og var pilturinn ansi þreyttur á eftir en stóð sig með prýði meðan á slagnum stóð. Agnið var svartur Tóbý,“ sagði Ingvar í lokin. -G.Bender U 3 P-H i—H 2 æ Ég var nú bara aðeins að mýkja hann upp/ Þetta er nú sá asnalegasti \ Þetta er samt þáttur sem ég hef nokkru j vinsælasti þátturinnj sinni séð! í sjónvarpinu! Og hvað segir það um sjónvarps — áhorfendur? /te fHVAÐ? \ Hann sem gengur með V SVUNTU! J Að þeir vilja horfa á asnalega þætti alveg eins og við tveiri! f Aðeins einn ( maður 1 þessu /hverfi notar svuntu V - og hann vinnur ( á kránni! Áin rann bara tvisvar í viku í gegnum þorpið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.