Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 37 Sattarov Nú um helgina er seinasta sýningarhelgi á teikningum og olíumálverkum rússneska lista- mannsins Mansúrs Sattarovs. Sýningin er í sýningarsölum MÍR við Vatnsstíg. Mansúr Mannúrovits Satt- orov er fæddur árið 1948 í borg- inni Kazan við Volgu. Þetta er höfuðborg rússneska sjálfstjórn- arlýðveldisins Tatarstan. Satt- arov stundaði nám við mynd- listarskóla í borginni Úfa sem er I Úralhéraði. Hann lauk þaðan burtfararprófi en flutti svo til Moskvu og hefur verið búsettur þar seinustu tvo áratugina. Árið 1977 gerðist Sattarov fé- lagi í landssamtökum myndlist- armanna í þáverandi Ráðstjórn- arríkjum og frá árinu 1979 hefur hann haldið fjölda einkasýninga í Rússlandi, Þýskalandi, Svíþjcð og Finnlandi. Þá hefur hann átt verk á samsýningum í Túnis, Svíþjóð, Ungverjalandi og víðar. Myndlist Mansúr Sattarov er þekktur í heimalandi sínu fyrir landslags- myndir sem hann hefúr teiknað, einkum af norðlægum slóðum. Einnig hefur hann hlotið lof fyr- ir portrettmyndir sínar. Á sýningu Sattarovs í MÍR- salnum eru um tuttugu teikn- ingar og fimmtán olíumálverk. Þar má fmna landslagsmyndir, uppstillingar og portrettmyndir, meðal annars mynd af frú Vig- dísi Finnbogadóttur, forseta ís- lands. Aðgangur' að sýningunni er ókeypis. Úr uppsetningu Þjóðleikhússins á Taktu lagið, Lóa. . Taktu lagið, Lóa Þjóðleikhúsið sýnir á Egil- stöðurti í kvöld leikritið Taktu lagið, Lóa eftir Jim Cartwright. Sýningin hefst klukkan 20. Kanaríeyja- flakkarar Kanaríeyjaflakkarar, sem er hópur fólks sem kynnst hefur á ferðum sínum til Kanaríeyja, halda sumarhátíð sína að Lýsu- hóli á Snæfellsnesi um helgina. Margt verður til gamans gert, t. d. farið upp á jökul á morgun klukkan 12 í fylgd leiðsögu- manns. Allir eru velkommnir. Samkomur Yfir strikið Hljómsveitin Yfir strikið spil- ar á Gauki á Stöng í kvöld og annað kvöld. Yfir strikið spilar blöndu af sól, rokki og blues, sem og almenna danstónlist. Hljómsveitina skipa Ingvi Ingvason, Lárus Grímsson, Tómas Malmberg, Sigurður Guðmundsson og Ámi Björns- son. Heimildarmynd Heimildarmynd um ísland verður sýnd í Norræna húsinu í dag klukkan 17.30. Við Anana Gylfaflöt, austan gömlu ! Gufuneshauganna '3 O Miðhraun 20, á mörkum Garöabæjar j , og Hafnarfjaröar ——/í-— Kópavogur, viö Dalveg Breiðholt, í Seljahverfi sunnan Breiöholtsbrautar wmm r á höfuðborgarsvæðinu ov .^rrrrrJ...------- Mosfellsbær, nærri hesthúsabyggö Víða vegavinna Það er viða verið að leggja slitlag og vinna í vegavinnu núna í sumarblíðunni. Það má því búast við steinkasti á ýmsum vegum, t. d. á veginum frá Borgarnesi til Baulu, á Holta- vörðuheiði, frá Brú til Hvamms- tanga, frá Klaustri að Núpsstað, í Færð á vegum Fagradal og á Mývatnsöræfum. Vegavinna er einnig í gangi, t. d. á Hrafnseyrarheiði, á Skálholtsvegi og á veginum frá Botni að Súðavík. Skemmtanir Lundinn, Vestmannaeyjum: Eiríkur Hauksson og Endurvinnslan Það verður aldeilis stuð í Lund- anum í Vestmannaeyjum í kvöld. Hinn kraftmikli söngvari, Eirík- ur Hauksson, mun þá halda uppi fjörinu ásamt félögum sínum í Endurvinnslunni. Þeir félagar hafa að undan- fornu verið í hljómleikaferð um landið en Eiríkur Hauksson, sem hefur verið í átta ár í Noregi, er hér í tveggja mánaða heimsókn sem þaulnýtt verður til dans- leikja og tónleikahalds. Eirikur spilar á gítar auk þess að syngja. Félagar hans eru: Sig- urgeir Sigmunds sem spilar á gít- ar, Sigurður Reynisson, sem lem- ur trommumar, og Jón Ólafsson sem spilar á bassa. Þess má geta að þeir félagar voru saman í hljómsveitinni Drýsli fyrir um tíu ámm. Eiríkur Hauksson. Ástand vega m Hálka og snjór Sn fyrirstöðu Lokað 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir Q] Þungfært Fært fjallabílum \ Fyrsta barnið Þessi fallega stelpa fæddist á fæð- var 2580 grömm að þyngd þegar ingardeild Landspítalans þann 25. hún fæddist og 47 sm að lengd. For- júni síðastliðinn klukkan 2.34. Hún eldrar hennar eru Edda Gunnars- rlóttir ng Öm Smárasnn Þptta pr Barn dagsins fyrsta barn þeirra Úr myndinni Screamers. Drápsvélar Árið er 2078. Staðurinn er fjar- læg námupláneta sem er næst- um því komin í eyði vegna styrj- aldar. Vísindamenn hafa búið til nýtt vopn: kynstofn drápsvéla sem hafa aðeins einn tilgang. Að leita uppi og eyða óvinveittum lífsformum. En þetta nýjasta vopn mannsins lætur sér það ekki nægja. Það finnur það upp hjá sjálfu sér að eyða skuli öllu lífí, bæði vinveittu og óvinveittu. Laugarásbíó frumsýnir í dag framtíðarmyndina Screamers. Þessi spennandi mynd er byggð Kvikmyndir á vísindaskáldsögu eftir hin fræga rithöfund, Philip K. Dick. Með aðalhlutverk fer Peter Well- er. Hann leikur herforingja sem reynir að stilla til friðar en lend- ir í miklum háska þegar hann reynir að ná sambandi við and- stæðinginn. Ásamt aðstoðar- manni sínum, sem leikinn er af Andy Lauer, þarf hann að kljást við hinar ógurlegu drápsvélar sem hann hjálpaði til við að skapa. Leikstjóri myndarinnar er Christian Dugay. Hann er kanadískur en hefur að undnan- förnu vakið athygli í Bandaríkj- unum. Krossgátan Lárétt: 1 mánuður, 5 kaldi, 8 drykkur, 9 spil, 10 sálgaði, 12 gras, 13 karl- mannsnafn, 16 elskar, 17 mylja, 18 slöngu, 19 þakhæð, 21 hjara. Lóðrétt: 1 tröll, 2 rotinn, 3 ullarkassi, 4 klaki, 5 hryssur, 6 planta, 7 yfirsetu- kona, 11 vorkenni, 14 röskur, 15 virð- ing, 18 eins, 20 átt. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 bjöguð, 7 rás, 8 Anna, 10 ætl- un, 11 ál, 12 laufum, 14 arð, 15 ærin, 16 nautn, 19 nú, 20 blót, 21 auö. Lóðrétt: 1 bræla, 2 játar, 3 ösluðu, 4 - gauf, 5 unnur, 6 val, 9 náminu, 13 snúð, 15 ætt, 17 al, 18 na. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 135 05.07.1996 kl. 9.15 Eínínq Kaup Sala Tollqengi Dollar 67,020 67,360 67,300 Pund 104,380 104,910 104,220 Kan. dollar 49,250 49,560 49,330 Dönsk kr. 11,3960 11,4560 11,4770 Norsk kr 10,2970 10,3540 10,3630 Sænsk kr. 10,0620 10,1180 10,1240 Fi. mark 14,3800 14,4650 14,4950 Fra. franki 12,9930 13,0670 13,0780 Belg. franki 2,1326 2,1454 2,1504 Sviss. franki 53,2500 53,5400 53,7900 Holl. gyllini 39,1200 39,3500 39,4500 Þýskt mark 43,9300 44,1500 44,2300 ít. líra 0,04379 0,04407 0,04391 Aust. sch. 6,2350 6,2740 6,2890 Port. escudo 0,4274 0,4300 0,4299 Spá. peseti 0,5222 0,5254 0,5254 Jap. yen 0,60540 0,60910 0,61380 írskt pund 107,030 107,700 107,260 SDR 96,32000 96,90000 97,19000 ECU 83,2500 83,7500 83,89000 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.