Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 7 DV Sandkorn Barmahlíð Kirkjan og prestar lands- ins hafa sann- arlega fengið sinn skammt af gamansög- um eftir allt það sem geng- ið hefur á inn- an kirkjunnar og Prestafé- lagsins það sem af er ár- inu. Á prestastefnunni á dögunum þótti mönnum biskup með daufara móti og skyldi nú engan undra. Þeg- ar hann hafði greint frá því að hann ætlaði að láta af embætti eftir eitt og hálft ár var hann daufari i dálkinn en nokkru sinni. Einhver gárunginn, sem sá biskup í sjón- varpinu svona dapran á svip, sagði að nú yrði að gefa embættisbústað biskupsins nafn, það ætti að kalla hann Barmahlíð. Stækka heldur fangelsin mönnum er meinilla við hraðahindran- ir sem verið er að hrúga upp hér og þar í þéttbýli lands- ins. Steindór Sigurðsson, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, greindi frá því á bæjarstjórnarfundi á dögunum að borist hefðu 40 beiðnir um uppsetn- ingu hraðahindrana í bænum. Sum- ar hefðu verið framkvæmdar, aðrar í biðstöðu. Skoðun Steindórs á hraðahindrunum kom hins vegar vel fram í umræðunum. Hann sagði það sína skoðun að það ætti að banna þær en fjölga þess í stað í lögreglunni, stækka fangelsin og hækka sektir þeirra sem aka of hratt. Frá þessu er greint í Suður- nesjafréttum Afleiðing niður- skurðar Ýmis blöð hafa þann sið að segja frá og birta myndir af nýfæddum borgurum þessa lands. Þar í hópi er hið ágæta blað Borgfirðingur sem greinir frá þeim bömum sem fæðast á Sjúkrahúsi Akraness því ekki er sjúkrahús í Borgamesi. En nú er komiö babb í bátinn. Borgfírðingur greinir frá því að út- lit sé fyrir að ekki verði hægt að halda þættinum áfram. „Ástæðan er sú að ekki hefur tekist að fá upplýs- ingar frá Sjúkrahúsinu á Akranesi og mun það aðallega stafa af þvi að þar hefur starfsfólki verið fækkað og ekki gefst tími til að taka upplýs- ingar saman og senda blaðinu," seg- ir í frétt blaðsins. Ekki lítill niður- skurður þetta Hér er sniðugt höfuðból TU eru margar sögur af séra Sigurði Nor- land, sem var prestur í Hindisvik. Hann varð raunar þjóð- sagnapersóna i lifanda lifi og þá ekki síst fyrir sérvisku sína margs konar. Hann var snilldar hagyrðing- ur og varð meðal annars frægur fyrir að yrkja stökur á ensku. Hann orti líka margar tviræðar vísur, sumar raunar klámfengnar. í bók- inni Þeim varð á í messunni segir að hann hafi ort eftirfarandi vísu um ráðskonu sína: Ein er mærin munablíð, mér svo kær að neðan. Henni ærið oft ég ríð, annars færi hún héðan. Eitt sinn kom Jón Helgason bisk- up í heimsókn til Hindisvíkur og kastaði þá fram þessum fyrriparti. Hér er friður, hér er skjól. Hér er griðastaður. Séra Sigurður, sem var bæði hestamaður og kvensamur, botnaði að bragði. Hér er sniðugt höfuðból. Hér er riðið, maður Umsjón Sigurdór Sigurdorsson Fréttir Jóhanna Siguröardóttir, formaður Þjóðvaka, um sameiningu jafnaðarmanna: Við erum ekki á leið inn í Alþýðuflokkinn - hafa ekki svarað bréfinu mínu, segir Margrét Frímannsdóttir „Það er svo sem ekkert nýtt í þessum málum, hvað sem Jón Bald- vin er að segja. Menn hafa verið að tala óformlega saman alveg frá því í vetur. Það hefur enginn formlegur fundur verið haldinn en fólk hefur spjaUað mikið saman óformlega. Ég hef lagt á það áherslu að fá Alþýðu- bandalagið inn í þessar viðræður lika. Það má þvi segja að bréflð sem Margrét Frímannsdóttir ritaði for- mönnum félagshyggjuflokkanna sé það nýjasta í málinu. Ég vil að það komi fram að við tökum ekki þátt í neinum viðræðum nema að um sé að ræða sameiningu allra jafnaðar- manna. Ég legg áherslu á það að enginn okkar er á leið inn í Alþýðu- flokkinn, það vil ég að sé öÚum ljóst,“ sagði Jóhanna Sigurðardótt- ir, formaður Þjóðvaka, um samein- ingarmál jafnaðarmanna, sem aftur eru komin á fullt í umræðuna. „Við í Alþýðubandalaginu erum búin að hlusta árum saman á tal um samfylkingu vinstrimanna. Mér þótti umræðan um þessa samfylk- ingu ekki ná út fyrir þeirra eigin garð í Alþýðuflokki og Þjóðvaka. Þess vegna þótti mér ástæða til að skrifa þeim bréf á dögunum og reyna að fá fram umræður um sam- starf í haust á þingi og þá til hvers slíkt samstarf gæti leitt. Það hefur ekki verið farið fram á það formlega að hefja viðræður. Ég tel að það eigi ekki að vera formenn flokkanna sem verða í þessum viðræðum held- ur eigi flokkamir að tilnefna sína fulltrúa. Þessar viðræður eiga nefni- lega að snúast um málefni en ekki menn og þær eiga ekki að hefjast kortéri fyrir kjördag," sagði Mar- grét Frímannsdóttir, formaður Al- þýðubandalagsins. Það er greinilegt af samtölum við fólk í jafnaðarmannaflokkunum að enn vantar mikið upp á að einhver sameining sé í nánd. Það væri þá helst að alþýðuflokksfólkið í Þjóð- vaka færi aftur heim. -S.dór Sveinn Þormóðsson, Ijósmyndari á DV var sjötugur á dögunum og í tilefni af þvf afhenti lögreglustjórinn í Reykja- vík, Böðvar Bragason, honum veggskjöld sem þakklætisvott fyrir áratuga langt samstarf og samvinnu. Sveinn er landsþekktur í sínu fagi og hefur gjarnan flutt fréttir af störfum lögreglunnar, hvort sem þar er um að ræða bjartar eða slæmar hliðar mannlífsins. DV-mynd Hákon Þorskaflahámark krókabáta: Fá 160 krónur fyrir kílóið „Við erum búnir að selja á milli 150 og 200 tonn af þorskkvóta smá- báta með þorskaflahámarki. Verðið fyrir kvóta næsta fiskveiðiárs er 160 krónur fyrir kílóið af þorski en 170 krónur fyrir óveiddan þorsk á þessu flskveiðiári," sagði Jakob Jakobs- son hjá Skipasölunni Bátar og bún- aður, sem annast kvótamiðlun líka. Hann segir að mjög lítinn þorskk- vóta sé að fá um þessar mundir. Kunnugleg sjón. Vonandi er ekki langt þangað til að Rúnar verði til- búinn í slaginn. Þörfin sé hins vegar mikil hjá þeim sem eru að bjarga sér eftir að hafa farið eitthvað fram úr eigin kvóta. Þannig sé það alltaf þegar líður á fiskveiðiárið. Þeir smábátaeigendur sem selja þorskaflahámark sitt verða um leið að úrelda bát sinn. Þeir fá til þess opinberan styrk og mega síðan eiga bátinn en ekki veiða fisk á honum. Að sögn Jakobs er nokkuð um að Rúnar Júlíusson í góðum gír: Heim eftir hjarta- aðgerð á Land- spítalanum „Heilsan er ágæt en hefur þó oft verið betri. Mér skilst að aðgerðin hafi tekist ljómandi vel, nú tekur við endurhæfing ,“ sagði poppgoðið úr Keflavik, Rúnar Júlíusson, sem kom heim til sín fyrir tæpri viku eftir að skipt hafði verið um hjarta- loku í honum. Aðgerðin fór fram á Landspítalanum og tók tæpar fjórar klukkustundir. Rúnar segist ekki geta spilað í 2-3 mánuði en það er í fyrsta skipti sem það gerist á hans ferli. „Ég er ekki alveg stopp, ég er þegar byrjaður að semja lög og texta, því ég get hugs- að. Ég er að undirbúa útgáfu sem verður á markaðnum fyrir næstu jól. Ég spila hins vegar hvergi og það er erfitt aö sætta sig við það. Ég kem bara sterkari inn aftur þegar ég byrja á fullu.“ -ÆMK trillukarlar séu að selja þorskafla- hámark sitt og hætta trilluútgerð. Hann sagði líka að nokkuð væri um að þeir sem ættu bát og þor- skaflahámark keyptu annan bát með þorskaflahámarki, sameinuðu kvóta beggja og úreltu annan bátinn og fengju styrkinn. -S.dór 'mmmmm RENAULT HYUflDRI BÍLASÝNING: Laugardag 6. jútí: ísafirði frákl. 10-15 Flateyri frá kl. 15-17 Þingeyri frá kl. 17-20 Sunnudag 7. júlí: Bíldudal frákl. 10-14 Tálknafirði frá kl. 14-17 Patreksfirði frá kl. 17-21 SÝNT ER Á BENSÍNSTÖÐVUM Nonni Bolungarvík Orþunni Stór og bjartur fjögurra línu skjár fyrir tölur, tókn og bókstafi Innbyggður djktafónn 20 númera endurvalsminni Orkumælir fyrir rafhlöðu á skjá 230 g með rafhlöðu POSTUR OG SIMI Söludeild Ármúla 27, simi 550 7800 Þjónustumiðstöð Kringlunni, simi 550 6690 Þjónustumiðstöð í Kirkjustræti, simi 550 6670 og á póst og símstöðvum um land allt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.