Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996
9
Ö
>
>
I
)
I
Utlönd
Díana fær loks
tilboö frá Karli
Díana prinsessa skoðar nú tilboð
Karls prins um skilnaðarsáttmála
sem henni var gert í gærkvöld. „Við
gerum nú ráð fyrir skjótum enda á
hjónabandinu," sagði heimildar-
maður í nánum tengslum við
prinsessuna við breska blaðið Daily
Express.
Lögmenn Karls afhentu lögmönn-
um Diönu tilboðið í gærkvöld og
binda þar með enda á tíu vikna
langa baráttu. Ef Díana gengur að
tilboðinu, sem sagt er að hljóði upp
á sem samsvarar um 2 milljörðum
íslenskra króna, gæti skilnaður að
lögum náð fram að ganga fyrir 15
ára hjúskaparafmæli Díönu og
Karls þann 29. júlí næstkomandi.
Skiptar skoðanir eru um hversu
langan tíma prinsessan og lögmenn
hennar taka sér til þess að skoða til-
boðið. „Ef það er ekki nógu gott
reyna þau að semja, þau munu ekki
gefast upp,“ hafði blaðið Daily Mail
eftir heimildarmanni sem þekkir
prinsessuna.
Díana fékk í gærkvöld tilboð um
skilnaðarsáttmála frá Karli.
Símamynd Reuter
Vist er þó talið að Elísabet drottn-
ing og John Major forsætisráðherra
muni þrýsta á Ðiönu en þeim er í
mun að kveða niður sögurnar sem
lengi hafa verið á forsíðum dagblað-
anna í Bretlandi.
Þó svo að Karl Bretaprins sé rík-
ur maður getur hann ekki greitt
Díönu tvo milljarða án þess að leita
til móður sinnar eða taka bankalán.
Nokkrir fjölmiðlar hafa fullyrt að
Díana fái að halda titlinum hennar
konunglega hátign en áður hafði
verið talið mögulegt að hún kynni
að missa titilinn eins og hertogaynj-
an af Jórvík. Víst er talið að í tilboð-
inu um skilnaðarsáttmálanum sé
ákvæði um jafnan umgengnisrétt
foreldranna við synina tvo, Vil-
hjálm og Harry. Díana hefur óskað
eftir því að fá að gegna hlutverki
nokkurs konar farandsendiherra en
sumir stjómmálamenn hafa lýst sig
andvíga þeirri hugmynd.
Reuter
Bill Clinton Bandaríkjaforseti var í gær, á þjóðhátfðardegi Bandaríkjanna, viðstaddur er skallaerni var sleppt. Örninn
hafði verið í gæslu f eitt ár vegna meiðsla. Símamynd Reuter
Móöursamtök Grænfriöunga líða ekki andóf:
Danskir félagar barðir
til hlýðni í sandsílamálinu
DV, Kaupmannahöfn:
Danskir Grænfriðungai hafa
þurft að beygja sig í duftið fyrir
móðursamtökunum í Amsterdam.
Þeir mega reyndar hafa sínar skoð-
anir á málunum en enginn má vita
af þeim opinberlega. Þetta var nið-
urstaðan eftir fimm tíma neyðar-
fund í Kaupmannahöfn á miðviku-
dag þar sem tveir valdamestu menn
móðursamtakanna fengu vilja sín-
um framgengt.
Að undanfomu hafa Grænfrið-
ungar barist gegn veiðum á sandsíl-
um. Þeir telja að allt of þéttriðin net
séu notuð við veiðamar og eru það
einkum danskir sjómenn i Norður-
sjó sem hafa orðið fyrir barðinu á
aðgerðunum.
Klaus Iversen var aðgerðastjóri
Dana og hefur hann gagnrýnt aðfar-
imar harkalega. Hann naut stuðn-
ings stjómarinnar sem rak fram-
kvæmdastjórann, Mats Abrahams-
son, vegna málsins. Eftir fundinn
var Iversen rekinn úr stöðu sinni og
á sama tíma urðu dönsku samtökin
að lofa því að allar gagnrýniraddir
gegn móöursamtökunum yrðu í
framtíðinni eingöngu innanbúðar.
Það þýðir að opinberlega standa
Danirnir að aðgerðunum sem þeir
hafa gagnrýnt svo harkalega.
„Gagnrýnin er enn fyrir hendi en
ég er félagi í alþjóðlegum samtökum
sem þola ekki að aðgerðimar séu
gagnrýndar opinberlega. Því hef ég
samþykkt að gagnrýnin skuli fram-
vegis haldast innanbúðar," segir
stjómarformaðurinn í Danmörku,
Nils Bredsdorff.
Þessi sami maður sagði á mánu-
dag að ef Klaus Iversen yrði látinn
víkja, yrðu danskir Grænfriðungar
aö „aðhlátursefni" og að opinbert
ósætti væri „betra en sjálfsmorð".
I Berlingske Tidende í gær segir
að Dönum hafi einfaldlega verið
hótað brottrekstri úr samtökunum
og nafnamissi ef þeir hlýddu ekki.
-Pj
FRAMTIÐAR
MARKAÐURINN
\ IVIÐSKIPTANETIÐ HF.
FllSlllt VOIUt ií HACT ADIREICA MFG VN
Faxateni 10 • Sími: 533 2 533
OPID ALLA DAGA
Món-Fim 12:00-18:00 • Föstud. 12:00-19:00
Laugard. 11:00-17:00 • Sunnud. 13:00-17:00