Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 27 x>v____________________ Cold Fever fær frábæra dóma í Bandaríkjunum - myndin gengur betur í hita, segir Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri Masatoshi Nagase í hlutverki sínu í Cold Fever. íslenska kvikmyndin Á köldum klaka eftir Friðrik Þór Friðriksson var frumsýnd í höfuðborg Banda- ríkjanna þann 7. júní sl. Viðtökur voru mjög góðar, enda hafa kvik- myndadómar um myndina verið mjög jákvæðir. Um 800 manns sáu myndina á fyrstu fimm dögunum í Washington D.C. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem íslensk kvikmynd er sýnd um öll Bandaríkin í kvikmyndahúsum. Sýningar á myndinni hófust í New York í apríl sl. og hefur hún auk þess verið sýnd í fjölda annarra stórborga, auk þess sem hún verður sýnd á næstunni í borgum víða um Bandaríkin. Dreifingarfyrirtækið upplýsir að heildsala myndarinnar sé komin yfir 200.000 dollara, eða rúmlega 13 milljónir íslenskra króna, og ráðgerir fyrirtækið að sú upphæð eigi eftir að tvöfaldast. Hátt í 30 þúsund manns hafa þegar séð myndina í Bandaríkjunum. Víötækt kynningarstarf Sendiráð íslands í Washington og skrifstofa Ferðamálaráðs í New York tóku þátt í kynningu myndar- innar, m.a. með því að dreifa upp- lýsingum um hana i pósti og á Inter- netinu. Móttaka var haldin i sendi- ráði Islands þann 10. júní fyrir ann- an framleiðandann, Bandaríkja- manninn Jim Stark, og fulltrúa fjöl- miðla. Bæði hann og sendiherra ís- lands, Einar Benediktsson, héldu ræður fyrir sýningu myndarinnar í Key Theater kvikmyndahúsinu í Washington um kvöldið þar sem hún var sýnd. Það verður ekki annað sagt en að dómarnir séu glimrandi góðir. Gagnrýnandi Washington Post segir að Cold Fever, eins og myndin er nefnd á ensku, sé hæverskasta og dulrænasta ánægja sem bjóðist kvikmyndaáhugamönnum þetta sumarið. Hér sé um að ræða „öðru- vísi“ og töluvert svalari vegamynd en gengur og gerist, segir gagnrýn- andinn og er yfir sig hrifinn af þeim skrautlegu persónum sem myndina skreyta. Hér sé um að ræða mynd sem fjallar um íslenska og japanska menningarheima á táknsögulegan og skemmtilegan hátt. Gagnrýnandi New York tekur í sama streng og kallar myndina dá- samlega furðulega gamanmynd. Hann segir myndina vera fulla af sjónrænum töfrum og er þá að vísa í hið mikilfenglega íslenska lands- lag sem sé eins og ofsjónakennd feg- urð í undralandi vísindaskáldsagna sem blandist saman við stór- skemmtilega persónusköpun. Fólk vill kæla sig niöur DV hafði samband við Friðrik Þór Friðriksson, leikstjóra myndar- innar, og sagðist hann að vonum vera ánægður með umsagnir. Hann sagði að vissulega hefðu slíkir dóm- ar áhrif á gang myndarinnar. „Dóm- ar í Washington Post og New York Times eru dómar sem allir aðrir apa eftir,“ sagði Friðrik. „Myndin hefur almennt fengið mjög góða dóma í Bandaríkjunum og í Qeiri enskumælandi löndum eins og Bret- landi.“ Kom aðsóknin í Bandaríkj- unum Friðriki á óvart? „Já, hún gerði það. Erlendar myndir eiga yf- irleitt erfitt uppdráttar í Bandaríkj- unum en í þessu tilfelli þekkir fólk aðalleikara myndarinnar, þau Lili Taylor, Fisher Stevens og Masatoshi Nagase. Það getur verið hluti skýr- ingarinnar en það er fremur óvenju- legt að íslenskar myndir gangi bet- ur í Bandaríkjunum en í Evrópu eins og er í þessu tilfelli." En Frið- rik er með fleiri athyglisverðar skýringar á gangi myndarinnar. „Myndin gengur vel þar sem er heitt, fólki finnst gott að koma inn úr hitanum og kæla sig niður. Myndin er að opna núna í fjórum borgum á Spáni og við búumst við að hún eigi eftir að ganga mjög vel þar. Aðsóknin er minni þar sem er kalt. Hér á landi var myndin t.d. sýnd í febrúar og gekk ekki mjög vel þrátt fyrir góða dóma, þannig að þetta hefur með veðurfarið að gera. Fólk getur ekki hugsað sér að koma inn úr kuldanum inn í þennan hríð- arbyl sem myndin er,“ sagði Friðrik að lokum. Nú í haust verður Djöflaeyjan frumsýnd í leikstjórn Friðriks og næsta verkefni hans þar á eftir verður mynd gerð eftir verðlauna- bók Einars Más Guðmundssonar en nú er verið aö ljúka við gerð hand- rits. -ggá Leiðrétting frá listahátíð Listahátíð í Reykjavík hefur beðið DV að birta niðurlag greinar Valde- mars Pálssonar um Eroica- sinóní- una er birtist í efnisskrá tónleika Þýsku sinfóníunnar í Berlín á lista- hátíð 29. júní sl. Meinlegar villur slæddust inn i setningu og biður listahátíð höfundinn velvirðingar á því. Niðurlag greinarinnar á að hljóma svona: Eroica-sinfónían op. 55 markar bæði tímamót í tónlistarsög- unni og ferli Beethovens. í henni má segja að felist eins konar uppgjör við klassíska tímann og að brautin til framtíðarinnar sé rudd. Hún er bæði lengri og viðameiri en fyrri verk þessarar tegundar og dramatísk tján- ing hennar á sér varla nokkum líka í tónlistarsögunni. Fyrsti kafli (Al- legro con brio) er mikill að vöxtum og þrunginn geysimikilli spennu. Annar kafli (Marcia funebre. Adagio assai) er harmþrunginn sorgarmars og magnaður í einfaldleik sinum. Þriðji kafli (Scherzo. Allegro vivace) er kraftmikill frekar en glettinn og hefur yfir sér óhugnanlegt yfirbragð þrátt fyrir glaðlegt tríó í kaflanum miðjum. Fjórði kafli (Finale. Allegro molto) er glæsilegur tilbrigðakafli sem byggir að verulegu leyti á Kontradansi nr. 7 WoO 14. Þessi dans er einnig notaður í Píanótilbrigðum op. 35 og er aðalstef lokakaflans í ballet Beethovens: Die.,Geschöpfe des Promotheus op. 43. Kanadíski píanóleikarinn David Tutt og Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari leika á sumartónleikum í Listasafni Sigur- jóns Ólafssonar á þriðjudag. m M Sumartónleikar í Listasafni Sigurjóns Eins og undanfarin ár gengst Listasafh Sigurjóns Ólafssonar fyrir vikulegum sumartónleikum í sal safnsins á Laugamesi á þriðjudagskvöldum kl. 20.30. Þetta er áttunda árið sem hinir vikulegu tónleikar eru haldnir og hófst tónleikaröðin 2. júlí með tónleikum Trio Nordica. Næstkomandi þriðjudag þann 9. júlí kl. 20.30 ætla Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari og kanadíski píanóleikarinn David Tutt aö halda tón- leika en samstarf þeirra hófst þegar þau vom bæði við nám í Listakólanum í Banff i Kanada. Á efnisskrá em eftirtalin verk: Sónatína í G-dúr opus 100 eftir Anton- in Dvorak og tvær sónötur eftir Beethoven, sónata í F- dúr opus 24, Vorsónatan, og sónata í A-dúr opus 47, Kreutzersónatan. -ggá __________Menning Sálmar Sigur- björns biskups 1 tilefni af 85 ára afmæli dr. Sigurbjörns Einarssonar bisk- ups hefur Friðrikskapella gefið út bókina Sálmar og ljóð Sigur- bjöms biskups. í bókinni em 87 sálmar, þýddir og frumortir. Sumir þessara sálma hafa birst áður en allmargir þeirra koma nú í fyrsta skipti fyrir almenn- ingssjónir. Þá era í bókinni þýð- ingar á nokkram ljóðum eftir sænska skáldið Hjalmar Gull- berg. Bolli Gústavsson víglubisk- up segir m.a.í formála: „Sálma- skáldið Sigurbjöm Einarsson á sér ekki langan feril þótt sýnt sé nú að með þýddum og frum- sömdum sálmum muni hann marka dýpst spor, jákvæð og tímabær, í sálmasögu íslendinga á ofanverðri 20. öld.“ Öðruvísi gallerí Galleríkeðjan Sýnirými hefur starfsemi sína laugardaginn 6. júlí kl. 15 á Vatnsstíg 3 með formlegri opnun þriggja útibúa. Gallerí Sýnibox er viðarkassi með plexigleri að frmanverðu, hangandi út á vegg við Vatns- stíginn, Gallerí barmur er lítill gúmmírammi með nælu aftan á sem tyllt er í barm sérstaks aðila sem ber verkið. Vegna smæðar sinnar er verkið farandgallerí. Að lokum er um að ræða Gallerí Hlust sem er símsvaragallerí sem spilar hljóðverk af snældu fyrir þann sem hringir í síma 551 4348. Þjóðsögur úr Kópavogi Út er komin bókin Þjóðsögur og sagnir í Kópvogi í samantekt Önnu Hedvig Þorsteinsdóttur og Ingu Þóru Þórisdóttur. Bókin hefur að geyma fjölda þjóðsagna og munnmæla af ýmsum toga úr Kópavogi, jafnt gamalla sem nýrra. í bókinni birtast fjölmarg- ar sögur af álfum, draugum og öðrum kynjaverum sem verið hafa á kreiki í Kópavogi. Sagt er frá merkilegum og dularfullum stöðum, undarlegum' atburðum og ýmsum fyrirbærum sem tor- velt hefur verið að skýra og koma ýmsar þekktar persónur við sögu. Þótt Kópavogur sé ungt bæjarfélag tengjast honum þó furðumargar þjóðsögur og sagn- ir sem fáar hafa komist á prent fyrr en nú. Skruggurnar og Ljósblá „Skruggurnar" ásamt Helgu Erlendsdóttur „Ljósblá" opna sýningu í Hornafírði í dag kl. 14. Skraggurnar eru þær Auðbjörg Bergsveinsdóttir, Guðbjörg Há- konardóttir, Guðný Hafsteins- dóttir og Guðrún B. ELíasdóttir og reka þær saman vinnustofur og gallerí í Hamraborg í Kópa- vogi. Sýningin ber yfirskriftina „Lúra undir Jökli“ og verða sýnd leirverk, málverk og pastel- myndir. Söngur í Minja- safnskirkju Á þriðjudags- og funmtudags- kvöldum í sumar fram til 20. ágúst er flutt söngvaka í Minja- safnskirkjunni kl. 21-22. Á Söngvöku er flutt sýnishom úr íslenskri tónlistarsögu og eru flytjendur þau Ragnheiður Ólafs- dóttir og Þórarinn Hjartarson. Miðaverð á Söngvöku er 600 kr. og er aðgangur að Minjasafninu innifalinn en það er opið sömu kvöld, kl. 20-23. Næstkomandi sunnudag, 7. júlí, verður boðið upp á gönguferð um Innbæinn og Fjörana undir leiðsögn. Lagt verður af stað frá Laxdalshúsi, Hafiiarstræti 11, kl. 14, og gengið um elsta hluta bæjarins. Þátt- taka í göngunni er fólki að kostnaðarlausu. i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.