Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1996, Síða 32
Tvöftúdur 1. vinningur Vertu vtðbúin(n) vinningi mamMz) KIN > C3 O FRÉTTASKOTIÐ cc —, L-U SÍMINN SEM ALDREI SEFUR S CZD S IX) Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. c/o (~) 1— LX3 1— '>- LXD 550 5555 Frjalst, ohað dagblað FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ1996 1 rra—i Helgarblað DV: Lífiðí fótboltanum í helgarblaði DV á morgun er opnuviðtal við knattspymufeðga af Akranesi, hinn þekkta þjálfara Guð- jón Þórðarson og son hans, um lífið í fótboltanum. í blaðinu hefur göngu sína ný Int- ernetsíða þar sem fjallað er um ýmis forvitnileg efni á veraldarvefn- um og ábendingar gefnar. í blaðinu eru að sjálfsögðu einnig viðtöl, fréttaskýringar og ýmis ann- ar fróðleikur. -GHS Grænmetið hækk- ar en svínakjötið lækkar enn Grænmetið hækkaði í gær og er nú komið í nánast sama verð og fyr- ir viku. Kílóverð á tómötum og gúrkum var það sama í mörgum verslunum, kr. 389 og kr. 289. Verð á rauðri papriku var lægst í Nóa- túni, kr. 489. í kjölfar lækkunar Hagkaups á svínakjöti í gær lækkuðu Nóatúns- verslanirnar enn frekar sitt kíló- verð, em nokkrum krónum lægri en Hagkaup. Þó er búist við að lága kjötverðið haldist ekki nema út helgina. -saa Sjá nánar bls. 6. Slasaður eftir sláttuvél Karlmaður slasaðist illa á fæti þegar hann var að vinna með sláttu- vél. Maðurinn féll aftur fyrir sig og greip þá um sláttuvélina með þeim afleiðingum að hún lenti ofan á fæti hans. Hann var fluttur á Sjúkrahús Reykjavíkur og lá á gjörgæsludeild í nótt. Að sögn lækna þar mun mað- urinn líklega missa eina tá, auk þess sem hann er aðra alvarlega áverka á öðrum fætinum. -RR ÞETTA HEFUR VERIÐ SANNKALLAÐ BRENNI-VÍN! Kona fæddi stúlkubarn á stigagangi í Breiðholti í morgun: Æðisleg tilfinning - sagði faðirinn sem tók á móti fjórtán og hálfrar merkur stúlkubarni „Þetta gerðist allt svo snöggt. Við vöknuðum eftir klukkan 5 og konan min sagði að tími væri kominn til að fara á fæðingardeild- ina. Við vorum á leiðinni niður stigann þegar hún byrjaði skyndi- lega að fæða,“ sagði Alexander Guðmundsson, stoltur faðir, við DV en hann tók á móti barni stnu í blokk í Breiðholti um sexleytið í morgun. Kona hans, Brynja Dögg Ingólfsdóttir, eignaðist 14 og hálfr- ar merkur stúlkubarn við þessar sérstöku aðstæður í morgun. „Við rukum aftur upp í íbúð og þar tók ég á móti barninu. Ég man bara að það var æðisleg tilfinning að taka á móti litlu fótunum. Vin- kona okkar var á staðnum og að- stoðaði okkur við þetta allt saman. Þetta gekk ótrúlega vel og læknir sagði að fæðingin hefði í alla staði verið eðlileg. Það er spurning hvort maður á að leggja ljósmóð- urstarfið fyrir sig,“ sagði Alexand- er. Tveir sjúkrabílar komu á stað- inn skömmu eftir fæðinguna og fluttu Brynju Dögg á fæðingar- deildina þar sem hún dvelur. „Þau stóðu sig mjög vel og allt var í besta lagi þegar við komum á staðinn. Fæðingin var með eðlileg- asta móti,“ sagði læknir á sjúkra- bílnum sem kom fyrstur að í morgun. „Þetta verður ógleymanlegur morgunn og það er ekki á hverjum degi sem maður lendir í svona nokkru," sagði Alexander en þau Brynja Dögg eiga fyrir eins og hálfs árs stúlku. -RR Hamingjusamir foreldrar eftir ævintýri morgunsins. Þau Brynja Dögg Ingólfsdóttir og Alexander Guömundsson ásamt nýfæddu barninu, sjást hér á fæðingardeildinni í morgun en barnið fæddist í blokk í Breiðholtinu um sexleyt- ið í morgun. DV-mynd S Veðrið á morgun: Bjartviðri um mest- allt land Á morgun verður hæg breyti- leg átt eða hafgola og bjartviðri um mestallt land en sums stað- ar síðdegisskúrir sunnanlands. Hiti verður á bilinu 9 til 15 stig. Veðrið í dag er á bls. 36 Þyrlan sótti litháskan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gærkvöld litháskan sjómann sem misst hafði annan fótinn við hné er hann lenti i fiskvinnsluvél um borð í togara sem staddur var 200 mílur suðvestur af landinu. Að sögn lækna mátti ekki tæpara standa því maðurinn hafði misst mjög mikið blóð. Hann var á gjörgæslu í nótt en mun vera úr lífshættu. -RR Njarðvík: Bruni og brugg Bruni varð í Njarðvík í gærkvöldi þegar kviknaði í íbúð þar í bæ. Slökkvilið kom fljótlega á staðinn, slökkti eldinn og reyklosaði íbúð- ina. Töluverðar skemmdir urðu á íbúðinni vegna elds, reyks og vatns. Að sögn lögreglunnar í Keflavík eru eldsupptök talin vera út af stand- lampa sem var í svefnherbergi. Að sögn lögrelgu fannst mikið af bruggtækjum og nokkrir lítrar af gambra sem lögreglan lagði hald á. Tveir menn voru í íbúðinni og játaði annar þeirra að eiga brugg- tækin og gambran. -RR Guörún Agnarsdóttir: Tómarúm gefur svigrúm „Mér finnst fólk vilja aðrar áherslur í samfélaginu, aðra for- gangsröðun verkefna. Það vill meira jarðsamband stjórnmála- manna og það vill aukna áherslu á mannlega þáttinn í þjóðfélaginu. Fólk er að leita og ég held að það sem stuðningsfólk mitt er að tala um sé í þessa veru og það vill vinna að málinu," segir Guðrún Agnars- dóttir í samtali við DV, en hún hef- ur átt fund með stuðningsmönnum sínum sem hvetja hana til dáða á pólítískum vettvangi. „Það ríkir greinilega ákveðið tómarúm í þjóðfélaginu og það gefur ákveðið svigrúm. Það er gerjun í gangi en hvort það verður eitthvað meira veit maður ekki um enn þá,“ sagði Guðrún Agnarsdóttir. í DV á morgun er ítarleg frétta- skýring um sameiningarmál félags- hyggjuflokkanna. -S.dór Opel flstra Station kr. 1.299.000.- Bílheimar ehf. Sœvarhöfba 2a Sími: 525 9000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.