Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 4 fréttir Þurfum vinnufriö, segir Ingunn Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóri á Sogni: Stöðugildi á Sogni færri en annars staðar „Þetta er afskaplega undarlegt mál og löng saga að segja frá. Þessi peningamál okkar eru tiltölulega lít- ið mál. Á síðasta ári kostaði rekst- urinn um það bil 78 milljónir í heildina en heimildin var 72 millj- ónir. 1994 fórum við 2,3 milljónir fram yfir en á árinu 1993 áttum við tæpar fjórar í afgang. Ef við tökum síðustu þrjú ár er rekstrarhallinn 4,5 milijónir sem er 1,5 milljónir á ári. Þessi resktrarhalli telst lítill miðað við flókið mótunarstarf sem væntanlega verður upphafið að víð- tækari þrótm meðferðar og rann- sókna á þessu vanrækta sviði hér á landi,“ sagði Ingunn Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóri á Sogni. 25 stöðugildi í heildina eru á Sogni, öryggisgæslumenn eru nítján. Faglærðir starfsmenn eru tjórir, úr þverfaglegum greinum geðheilbrigðisþjónustu, allir í hluta- störfum. „Til þess að geta endurhæft sjúkl- ingana og komið þeim til bata að nýju er það starfsfólkið sem er nauðsyn, meðal annars til þess að geta farið með sjúklingana út af stofnuninni, í ferðir út í samfélagið og unnið að tengslum við fjölskyld- ur, einnig að sinna umhverfisvinnu úti við. Ef við værum mjög fá yrði bara að læsa fólkið inni. Þá væri þetta bara geymslustaður. Héðan hafa fimm manns verið útskrifaðir en fylgst er með þeim reglubundið og þeir eru í framhaldsmeöferð. Stöðugildin hér, þó að þau virðist mörg, eru færri en annars staðar á Norðurlöndum. Við erum með 3,2 stöðugildi öryggisgæslumanna á hvern sjúkling, Norðmenn hafa 5, Danir tæp 4 og Svíar 3,5.“ Starfsemin á Sogni hefur fengið viðurkenningu fyrir góða faglega vinnu frá Geðlæknafélagi íslands, einnig erlendis frá, til dæmis frá nefnd sem kom hingað á vegum Evrópuráðsins fyrir tveimur árum. Ingunn benti á að 70 milljónirnar, sem fóru í það að greiða fyrir vistun þessara sjúklinga árlega erlendis áður en Sogn tók til starfa, komu ekki til baka. Með því að hafa starf- semina hér heima fá íslendingar vinnu og greiða sina skatta hér. Eins er mikil þjónusta við stofnun- ina. „Við erum mjög ósátt við að fá ekki að móta stofnunina í friði, það sem við þurfum er vinnufriður. Okkur finnst þetta einkennilegt. Það er eins og einhver annarleg sjónarmið búi að baki. Varðandi þjónustusamning, sem verið er að tala um að gera við Sjúkrahús Reykjavíkur, sem er undir því yfir- skini að ná fram spamaði, teljum við mjög ólíklegt að þau sjónarmið eigi við rök að styðjast. Fátt bendir til að slíkt myndi vera þróun réttar- geðlækninga á íslandi til framdrátt- ar. Það yrði eyðilegging á stofnun- inni.“ -ÞK Réttargeðdeifdin að Sogni er sérbúinn staður fyrir geðsjúka afbrotamenn. Grétar Sigurbergsson, yfirlæknir á Sogni: Stofnunin úr sögunni - ef Sjúkrahús Reykjavíkur tekur við ■»Ég var ráðinn bæði af stjóm Sogns og Sjúkrahúss Suðurlands. Uppsagnarbréfið kom frá skrifstofu Sjúkrahúss Suðurlands. Uppsögnin var sennilega ekki með vitund stjóma þessara stofnana, allavega ekki Sogns. Löfræðingar hafa sagt mér að ranglega sé að uppsögninni staðið,“ segir Grétar Sigurbergsson, yfirlæknir á réttargeðdeildinni á Sogni. „Ég var að hugsa hvort uppsögn á starfssamningi mínum væri gerð til að einfalda stjómsýsluna á þessum stofhunum en líklegra þykir mér nú aö ætlunin sé að semja upp á nýtt og ná niður laununum. Með því að færa Sogn undir stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur er Sogn úr sögunni, það verður engin réttargeðdeild. Ég verð heldur ekki, né trúi ég neitt af fagfólkinu á Sogni, til sanrn- inga um að vinna á Sogni áfram ef af því verður að stofnunin verði færð undir Sjúkrahús Reykjavík- ur.“ -ÞK Geðlæknafélag íslands: Sameina ekki öðrum deildum Geðlæknafélags íslands ályktaði um mál réttargeðdeildarinnar á Sogni 8. júlí síðastliðinn. Þar segir m.a: „Réttargeðdeildin að Sogni hefur nú starfað í tæp 4 ár og er starfsem- in þar enn á viðkvæmu mótunar- stigi. Stjórn Geðlæknafélagsins tel- ur að hlúa beri að þessum síðbúna vísi að þróun formlegrar réttargeð- læknisþjónustu hér á landi. Við telj- um eðlilegast að þetta sérhæfða svið geðheilbrigðismála verði ekki sam- einað eða sett undir aðrar geðdeild- ir eða stofnanir af einhverfu tagi, heldur geti rétargeðdeildin sjálf þró- aö sína starfshætti í samstarfi við aðila heilbrigöis- og dómskerfis, svo og hliðstæðar stofnanir erlendis." -ÞK ( i i i Verulegar breytingar framundan á Sogni: Sjúkrahús Reykjavíkur yfir- tekur reksturinn 1. október - þessi sparnaður næst ekki nema reksturinn heyri undir stærri stofnun, segir Sigfús Jónsson „Yfirlækninum á Sogni var ekki sagt upp, heldur var starfssamningi hans sagt upp, ekki ráðningarsamn- ingi. Starfssamningurinn var til þriggja mánaða. Það hefur farið fram mikil skoðun á rekstrinum, þetta er i rauninni bara liður í þeirri skoöun," sagði Kristján Er- lendsson, skrifstofustjóri í heil- brigðisráöuneytinu. Það var fyrir síöustu mánaðamót sem starfssamningi við yfirlækninn á réttargeðdeildinni á Sogni var sagt upp. Réttargeðdeildin er byggð fyrir sjö vistmenn en sex dvelja þar nú. „Þetta er deild sem er mjög sér- stök. Það þarf að taka góðan tíma í að tryggja faglegan standard. Þetta er fyrst og fremst spuming um rekstrarkostnað, eins og víða var farið fram úr. Það er verið að skoða hvað má gera án þess að skerða þá strafsemi sem þar fer fram,“ sagði Kristján. Kristján telur að á Sogni hafi ver- ið unnið faglega og þetta hafi geng- ið mjög vel en alltaf mætti bæta. „Það verður ekki gengið frá neinum breytingum nema tryggt sé að rekst- urinn skaðist á engan hátt,“ sagði Kristján. Sigfús Jónsson var skipaður til- sjónarmaður Sogns um síðustu ára- mót. „Tilbúinn er samningur til undir- rifimar milli heilbrigðisráðuneytis- ins og Sjúkrahúss Reykjavíkur. í honum felst að SR sem verktaki tek- ur að sér að veita alla þá þjónustu sem veitt er á Sogni þeim vistmön- um sem þar eru og þeim sem út- skrifast. Þeir taka þetta að sér fyrir upphæð sem nemur þeirri tölu sem er á fjárlögum," sagði Sigfús. - Verður starfsfólki fækkað á Sogni? „Það er eiginlega búið að því. Það er dálítið flókið að segja frá því. í þessari öryggisgæslu hafa verið fleiri hausar en störf. Fólk hefur verið í launalausu leyfi,“ sagði Sig- fús. Hann segist hafa átt fundi með formanni Starfsmannafélags ríkis- stofnana og trúnaðarmanni á Sogni. „Það er líklegt að þau mál leysist án uppsagna. Þeir sem eru í launa- lausu leyfi munu ekki koma aftur. Reyndar var einum sagt upp, svo- kölluðum leiðbeinanda. Það er ekki þannig að starfsmenn megi endilega eiga von á að fá uppsagnarbréf,“ sagði Sigfús. SR tekur, að sögn Sigfúsar, við rekstrinum 1. október næstkom- andi. „Rekstrarkostnaöurinn á þessu ári stefndi í 6 milljónir áður en ég hófst handa. Það skiptir engu máli hver hagnaðurinn var í fyrra eða hittifyrra, málið snýst ekkert um það, við þurfum að líta á framtíðina. Það er ekki hægt að ná þessum sparnaði nema þetta heyri undir stærri stofnun, til dæmis að lækka bakvaktakostnað. Læknir á bakvakt hefur alla tíð búið í Reykjavík, það verður engin breyting á því,“ sagði hann. j>K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.