Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Blaðsíða 56
/ I
Vertu viðbúinfn) vinningi
tst2Q<®@@
@@@
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
BS55Ö 5555
Frjálst,6háð dagblað
LAUGARDAGUR 13. JULI 1996
Neskaupstaður:
Tveir krakkar
fundu þrjá
poka af þýfi
Tveir krakkar í Neskaupstað, þau
Sigurgeir Bárðarson 8 ára og Jenný
Heimisdóttir 11 ára, fundu þýfi í
skógræktinni þar í vikunni.
„Við vorum að labba í skógrækt-
inni og leita okkur að leynistað. Þá
fundum við tösku með alls konar
dóti í og ákváðum að fara strax með
hana til lögreglunnar," sagði Jenný.
Þýfið var í leðurpokum og var
það falið undir tré og greinar lagðar
yfir. Fyrst fannst einn poki en síðan
tveir aðrir þegar farið var að leita
betur. í pokunum, sem voru hluti af
þýfinu, voru myndavélar, vasa-
diskó, leikföng og mikið af skart-
gripum frá innbroti i bókabúð
Binna. Þýftð er komið í hendur
réttra eigenda, þökk sé hinum athu-
gulu krökkum. -SF
Hvalfjarðargöngin:
Afturkippur
- segir Snær Karlsson
„Nei, ég held að það sé nú ofsagt
að slitnað hafi upp úr samningavið-
ræðum. Það kom hins vegar nokkur
afturkippur í málið um leið og farið
var að ræða launaliðinn. Það kom
mér að minnsta kosti ekki svo mjög
' á óvart því launaliðurinn er alltaf
viðkvæmastur. Ákveðið var að
fresta samningaviðræðum fram yfir
helgi. Ég trúi ekki öðru en að samn-
ingaviðræðumar hefjist strax eða
iljótlega eftir helgina og menn ljúki
þessum samningum,“ sagði Snær
Karlsson hjá Verkmannasamband-
inu um kjarasamningana í Hval-
fjarðargöngunum.
Sumir samningamenn eru mjög
svartsýnir og telja að slitnað hafi
upp úr um leið og farið var að ræða
launaliðina. Snær telur hins vegar
að það beri ekki meira í milli en svo
að hægt sé að ljúka samningum í
næstu viku. -S.dór
Ertu búinn að panta?
& 20 &
dagar
til Þjóðhátíðar
FLUCLEIÐIR
Innanlandssími 50 - 50 - 200
SeMDIEítLAlSTröí
1
533 -10OO
7
LANDIP ER BARA
ALLT SAMAN ÞÝFT!
^ Meintur tryggingasvikari í viðtali við DV:
Eg barði sjálfan mig
í hálsinn með hamri
„Það var ekkert mál. Við fórum
fyrst í smáslagsmál. Svo strengd-
um við kaðal yfir bringuna á mér
og nudduðum vel til að fá mar eins
og eftir öryggisbelti. Svo var ég
með hamar sem ég barði með í
hálsinn á mér og hafði púða á
milli. Þetta gerði ég líka alltaf þeg-
ar ég fór til læknis. Þá barði ég
svona létt í hálsinn á mér með
hamri með púða á hamarshausn-
um þvi að ef maður ber of fast
verður maður rauður og marinn
sem ekki má gerast.“
Þetta eru orö ungs manns, hins
meinta tryggingasvikara sem svið-
setti ásamt félögum sínum bílslys í
Hvalfirði á öðrum degi jóla 1984, en
DV ræddi við manninn í gær um
hvernig hann veitti sér áverkana
og hélt þeim við í þeim tilgangi að
afla sér læknisvottorða.
Mönnunum fjórum sem um er
að ræða hefur verið birt ákæra í
málum sínum og verða þau dóm-
tekin í september nk. Annars veg-
ar er um að ræða mann sem svið-
setti útafkeyrslu á Grindavíkur-
vegi og hins vegar mál þriggja
ungra manna sem sviðsettu tvö
slys i Hvalfirði. Þremenningamir
tóku upp kunningjasamband við
fyrstnefnda manninn og fengu
fræðslu hjá honum um aðferðir við
að sviðsetja slys, veita sjálfum sér
trúverðuga áverka og leika síðan
blekkingaleiki fyrir lækna í því
skyni að svíkja út trygginga- og
sjúkrabætur.
„Maður harðnar allur upp og
verður stífur við hamarshöggin;
allir vöðvarnir bregðast við þannig
að þeir stífna upp. Svo lét maður
líða svona tvo tíma og fór til lækn-
is ,“ segir maðurinn um hvernig
hann hélt „slysaáverkunum" við
og aflaði sér læknisvottorða eftir
þörfum.
Sömu aðferð beitti ungi maður-
inn meðan hann dvaldi á spítala
eftir „slysið" og á endurhæfmgar-
deild Borgarspítalans. „Þá barði
maður aðeins fastar svo maður var
svolítið rauður og marinn,“ segir
maðurinn. Hann vill ekki koma
fram undir nafni þar sem hann
kveðst vilja hlífa fjölskyldu sinni
og unnustu.
Hann er óánægður með þátt
tryggingalæknisins Jóns K. Jónas-
sonar sem tók hann af sjúkradag-
peningum. Læknirinn var, að hans
sögn „ . . . ömurlega leiðinlegur.
Hann skoðaði mig ekkert, gerði
ekki neitt. Ég var alveg stífur og
gat varla hreyft mig en hann sagði
mér bara að fá mér létta vinnu,“
segir hann sem kveðst hafa verið
búinn að meðhöndla sig með hamr-
inum fyrir heimsóknina.
Samanlögð krafa á hendur unga
manninum og félögum hans er
rúmar 13 milljónir samkvæmt
ákærunni. Viðmælandi DV segir
kröfur á hendur sér vera um 4,5
milljónir króna og hann hafi þegar
leitað eins konar nauðasamninga
um greiðslu þeirra og að hve stór-
um hluta þær verði greiddar. „Það
var ömurlegt að maður skyldi hafa
látið tilleiðast aö fara út í þetta,“
segir hann.
-SÁ
Þessir tveir höfðu í nógu að snúast í rigningunni í gær við að setja upp tækin sem tilheyra tívolíinu á Miðbæjarbakk-
anum en það verður opið um helgina með tilheyrandi hlátrasköllum og hræðsluópum. DV-mynd JAK
Stakk stjúpa sinn í augun:
Gæsluvarð-
hald yfir
geðfötluð-
um manni
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði 36 ára gamlan mann, sem
réðst hrottalega á aldraðan fóstur-
fóður sinn að Kleppsvegi 6 í fyrr-
inótt, í gæsluvarðhald fram til 9.
ágúst nk. Þá mun maðurinn þurfa
að sæta geðrannsókn.
Maðurinn veitti stjúpa sínum
áverka á báðum augum með
Árásarmaðurinn hefur verið í
langvarandi meðferð vegna geðfótl-
unar. Hann hefur oft áður ráðist á
stjúpföður sinn og lamið hann og
veitt honum áverka.
Líðan gamla mannsins, sem er 82
ára, er slæm en hann hlaut alvarleg
sár á báðum augum, en að sögn
lækna mun hann líklega halda sjón
þó hún hafi skaddast. -RR
L O K I
10® sL sL
iior\F\ Cf & ^ ii- 12® vP (
> V ii- > ^4»
12° & 12® w
12® 'T? 12°
Sunnudagur J3 Mánudagur
Veðrið á sunnudag:
Suðvestanátt
og skýjað
Á sunnudag er spáð breytilegri átt um allt land og golu eða kalda.
Skýjað verður með köflum og hitinn á bilinu 10-15 stig. Bjartast verð-
ur á Suðaustur- og Austurlandi.
Veðrið á mánudag:
Gola eða kaldi
Á mánudag er spáð mjög svipuðu veðri og á sunnudag. Breytileg
átt og gola eða kaldi verður um allt land. Minnstrar sólar nýtur á
Vestfjörðum en á Suðaustur- og Austurlandi verður sólríkast. hitinn
verður 10-15 stig.
Veðrið í dag er á bls. 57