Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Síða 10
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996
10
fólk
4. ____
Skákdrottningin snjalla, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, er útskrifuð frá Harvard:
'N
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
skákdrottningin snjalla, sem vakti
mikla athygli fyrir afrek sín við
skákborðið og líkt var við Polgar-
systurnar pólsku fyrir nokkrum
árum, er búin að útskrifast úr
Harvard- háskólanum í Boston i
Bandaríkjunum, einum dýrasta og
virtasta háskóla í heimi, og er ný-
komin heim til íslands í sumarfrí
ásamt kærastanum sínum, Adam J.
Freudenheim, efnuðum Bandaríkja-
manni af þýskum gyðingaættum, en
faðir hans er yfirmaður Smithsoni-
an-stofnunarinnar í Bandaríkjun-
um. Fjölskylda hans flúði til Banda-
ríkjanna árið 1938.
„Við kynntumst strax á þriðja
degi fyrsta árið. Við þurftum bæði
að þreyta stöðupróf í þýsku áður en
skólinn byrjaði. Adam sat fyrir aft-
an mig og var alltaf að glotta því að
honum fannst þetta svo létt. Ég var
líka. hlæjandi í prófinu því að mér
fannst það svo erfitt. Við fórum að
spjalla saman eftir prófið og þannig
kynntumst við fyrst. Síðan þróaðist
sambandið seinna," segir Lilja um
um það hvernig hún kynntist kær-
astanum sínum.
Lilja fékk inngöngu í Harvard
fyrir fjórum árum, fyrst íslendinga
til að komast þar inn í fyrrihluta-
nám eftir því sem best er vitað þó
að nokkrir íslendingar hafi stundað
þar síðarihlutanám. Hún var ein af
1.500 nemendum, sem fengu inn-
göngu, en alls sóttu 16 þúsund um.
Lilja lauk BA- prófi í sagnfræði,
stjórnmálafræði og hagfræði á
óvenjuskömmum tíma, eða þremur
og hálfu ári, og Adam lauk prófi í
þýskum bókmenntum og sagnfræði
hálfu ári síðar. Þau útskrifuðust
bæði nú í júní.
Lítið við
skákborðið
Taflmennskan var eitt af aðalá-
hugamálum Lilju um tíu ára skeið.
Hún vann íslandsmeistaratitilinn í
skák árið 1992 en fór út þá um
haustið og tók sér þá langt frí frá
taflmennskunni og hefur lítið kom-
ið nálægt skákborðinu síðan. Hún
segist hafa teflt voðalega lítið und-
anfarin fimm til sex ár enda hafi
hún ákveðið að prófa eitthvað nýtt
meðan á dvölinni erlendis stóð. Hún
hafi leikið i leikritum og keppt fyr-
ir hönd heimavistarinnar sinnar í
róðri.
„Það voru nokkrir góðir skák-
menn í skólanum, meðal annars
Patrick Wolf, skákmeistari Banda-
ríkjanna, og við urðum góðir vinir.
Ég tefldi svolítið við hann og tapaði
oftast en vann hann einhvem tím-
ann í hraðskák. Það var rosalega
gaman enda er Harvard með nokk-
uð sterkt skáklið. Mig langar til að
fara að tefla aftur núna því að ég
sakna þess dálítið. Litli bróðir
minn, Helgi Áss Grétarsson, er mik-
iU skákmaður og ég fæ bakteríuna
af að vera í kringum hann. Kannski
ég fari að byrja á þessu aftur,“ segir
hún.
Lilja segist sakna tafhnennskunn-
ar þegar hún kemur heim til Islands
í frí og segist hafa farið á æfingu
með gömlu skákfélögum sínum, sig
langi til að tefla sér til gamans með-
an á dvölinni stendur enda sé hún
orðin voðalega ryðguð í skákinni.
Hún hefur ekki getað haldið sér við
með því að tefla við kærastann því
að hann segist litið kunna í skák.
Hann hafi teflt blindskák við Lilju
og hún hafi orðið að leiðrétta hann
reyna sig á ýmsum sviðum. Hún lék
í fjórum leikritum meðan á náminu
í Harvard stóð og var til að mynda í
einu af aðalhlutverkunum í leikriti
sem heitir „Wolves of
’s Street" en
er eftir
nemanda við
Harvard,
ætlar
verða
leikskáld
og vinnur
reyndar
sem
leik-
um nokkra leiki þó að hún hafi ver-
ið með bundið fyrir augun. Hún hafi
að sjálfsögðu borið sigur úr býtum.
„Skák er svo mikil jaðaríþrótt í
Bandaríkjunum. Það eru ekki svo
margir sem kunna að tefla,“ segir
hann.
Lék kaþólska
móður
Lilja er lifleg
kona með mörg
áhugamál og í
Bandaríkjunum
hefur hún meðal
annars snúið sér
að leiklist og
róðri enda lang-
Lilja kynntist kærastanum sínum, Adam Freudenheim, í Harvard. Hún segir
að samband þeirra sé mjög aivarlegt og fer hugsanlega á eftir honum til
Þýskalands í haust. DV-mynd Pjetur
stjóri núna.
„Ég lék aldraða móður tveggja ka-
þólskra stúlkna sem voru að villast
af vegi. Þetta var um mínar kvalir í
sambandi við breytingar í heimin-
um og stúlkurnar að breytast þvert
á mínar trúarskoðanir. Mér fannst
þetta óskaplega skemmtilegt og fékk
mikla útrás við að vera uppi á sviði.
Adam segir að ég sé mjög góð leik-
kona,“ segir hún en fer að hlæja og
útilokar alveg að hún ætli að leggja
leiklistina fyrir sig. Það sé skemmti-
legra að hafa hana sem áhugamál.
Tekur sér frí
Lilja er ákveðin í að taka sér frí
frá námi í eitt til tvö ár því að sér
hafi opnast ýmsir spennandi starfs-
möguleikar, meðal annars í New
York. Hún
fer aftur
utan í
ágúst og
segist því
hafa nógan
tíma til að
ákveða sig.
Það er
greinilegt
að kærast-
inn togar í
hana til
Þýskalands
því að þar
verður
hann á
ferðastyrk
frá
Harvard I
niu mán-
uði að taka
viðtöl við
fólk um
reynslu
þess við
sameiningu Þýskalands. Hann gefur
hugsanlega niðurstöður sínar út á
bók eða birtir þær í tímaritsgrein-
um.
„Það eru milljón möguleikar í
stöðunni en ég er að hugsa um að
fara til London í haust að vinna fyr-
ir útgáfufyrirtæki eða til Þýska-
lands því að Adam verður þar lika.
Þar verð ég þá að vinna hjá borgar-
skipuleggjanda við að ferðast um
Þýskaland og tek viðtöl við fólk um
það hvernig fólk tengist borginni og
stöðunum. Ég tek líka fullt af ljós-
myndum í opinbert Ijósmyndasafn.
Ég er ekki búin að fastákveða þetta.
Ég ætla að sjá aðeins til í nokkrar
vikur hvað ég ætla að gera,“ segir
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.
Alvarlegt samband
Spurð um það hvort að gifting sé
á næstu grösum segja þau: „ekki
strax“ og fara að hlæja. Það er
greinilegt að Lilja og Adam eru
mjög ástfangin og Lilja segir að
samband þeirra sé „mjög alvarlegt."
Þau vilji bara taka sér góðan tíma
og hugsa sig vel um áður en þau
storma í hjónaband. Adam segist
ekki getað hugsað sér að setjast að á
íslandi fyr-
ir fullt og
allt þó að
hann kunni
vel við sig
hér á sumr-
in. í fram-
tíðinni seg-
ist hann
gjarnan
vilja hafa
báða fætur
í Reykjavík
og New
York.
Spurð um
framtiðar-
hugleiðing-
amar segir
Lilja:
„Ég ætla
ekki að
eignast
nein börn
næstu átta
til tíu árin.
„Eg ætla bara að vera frjáls með
Adam, við ætlum að ferðast saman
og njóta lífsins. Það er ekkert barn
á leiðinni." Adam fer aftur utan í
júlílok en Lilja verður hér fram í
ágúst og vonast til að finna sér ein-
hverja „litla vinnu í einn mánuð
eða tvo. Ég er bara ekki farin að at-
huga neitt,“ segir skákdrottningin
að lokum.
-GHS
Skákdrottningin Guðfrfður Lilja Grétarsdóttir hefur tekið sér frí frá taflmennskunni undanfarin ár en hún hefur verið við nám í Harvard, einum dýrasta og
þekktasta háskóla í Bandaríkjunum. Hún útskrifaðist í júní og er nú komin heim í sumarfrí. Hún segist sakna taflmennskunnar og vonast til að geta gripið í
skákina í sumar DV-mynd BG