Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996
fééttir
Handverkssýningin Iðir í Laugardalshöll:
Karlamir safna vínarbrauðs-
bumbum og fólkið tekur ráðin
segir Rósa Ingólfsdóttir
Fáðu þér miða fyrir kl. 20.20 í kvöld
„Framtíð íslands liggur i smáiðn-
aði, hugviti og handverki. Fólkið
kemur til með að reisa ísland við og
taka ráðin í sínar hendur. Það kem-
ur ekkert af viti frá þessum körlum
sem þykjast vera að stjórna land-
inu. Þeir gera ekkert annað en
safna vínarbrauðsbumbum og
murra,“ segir Rósa Ingólfsóttir.
Rósa stóð fyrir mikilli handverks-
sýningu í Perlunni í fyrra. Til stóð
að á þeirri sýningu yrðu í kringum
40 básar. Þeir urðu í staðinn 180 og
þrengslin voru gífurleg. Dagana
18.-21. júií ætlar Rósa að endurtaka
leikinn og halda aðra handverks-
sýningu, að þessu sinni í Laugar-
dalshöli. Auk handverksins hefur
smáiðnaður og hugvit bæst við sýn-
inguna sem verður sú stærsta sinn-
ar tegundar á landinu. Rósa segir að
lítil fyrirtæki með engri yfirbygg-
ingu komi til með að ganga vel í
framtíðinni.
„Framtíð landsins og auður þess
liggur í þessu sem við erum að gera
á sýningunni, að vekja athygli á
handverkinu og smáiðnaðinum. Á
þessari sýningu færi ég út kvíamar
og bæti við smáiðnaði og hugviti.
Hugvitsmennimir sem bjuggu til
Markúsarnetið verða á sýningunni
en það er ein merkasta uppfinning
veraldarsögunnar og hefur bjargað
mörgu mannslífinu,“ segir Rósa.
Sprengja í handverki
Gróskan í handverki og smáiðn-
aði er gífurleg á Islandi og að sögn
Rósu hefur orðið sprenging undan-
farin ár. Að hennar mati hefur hug-
vitið orðið svolitið útundan hingað
til. Sýndir verða hlutir eftir ís-
lenska hugvitsmenn eins og baðker
með lyftibúnaði'fyrir fatlaða og raf-
magnsbíllinn sem innan tíðar verð-
ur gerður upp. Rðsa hefur keypt raf-
magnsbílinn með hjálp bílaumboð-
anna og ætlar eftir sýninguna að
færa Þjóðminjasafninu hann að
gjöf. Valgerður Jónsdóttir hannar
og saumar íslenska hatta af öllum
stærðum og gerðum fyrir börn og
fullorðna. Hún mun sýna það
nýjasta i hattatískunni.
Á sýningunni verður inni-
skóframleiðandi frá Skagaströnd.
Einn maður býr til öll lögreglustíg-
vélin á landinu og sýnir hann afurð
sina í Laugardalshöllinni. Auk þess
kona sem saumar íslenska fánann,
strákar sem búa til sportbíl, rokka,
aska og fleira. Heiðursgestur sýn-
ingarinnar er Sigrún Jónsdóttir,
batik listakona sem kemur gagngert
frá Svíþjóð til þess að sýna hjá okk-
Valgerður Jónsdóttir hannar og saumar hatta af öllum stærðum og gerðum
og sýnir það nýjasta í hattatískunni í Laugardalshöllinni.
íslendingar höfum haft fimmtíu ár
til þess að meðtaka nútímamenn-
ingu.
„Þessi stórmerkilega þjóð, sem
stökk úr sauðskinnsskónum yfir í
plastið, er með minnimáttarkennd.
Á þessum fimmtíu árum meðtókum
við alla nútímabyltinguna i einum
bita,“ segir Rósa.
Markaðssetjum fjósa-
fýluna
„Við höfum alltaf álitið sauð-
skinnsskóna og fjósafýluna púkaleg
en þetta er þjóðin í hnotskurn. Þetta
er auður okkar og við eigum að
markaðssetja fjósafýluna. Við eig-
um að leyfa ferðamanninum að
detta í kúamykjunni og skipuleggja
ferðir til að moka flórinn. Við eig-
um að sýna Djáknann á Myrká inni
í fjósi og púkann á fjósbitanum.
Við eigum að halda vel utan um
þjóðmenninguna og vera óhrædd
við að vera íslendingar. Útlending-
urinn vill koma hingað í fjósafýl-
una,“ segir Rósa.
Sýningin hefst 18. júlí og stendur
til 21. júlí og verður opin frá 10-22.
-em
Dóra Sigfúsdóttir hannar vörur úr ull og sýnir peysur og fleira á sýningunni
í Höllinni.
Þrefaldur
1. vinningur!
-vertu viðbúinav vinningi
Rósa Ingólfsdóttir var önnum kafin við að undirbúa handverkssýninguna
sem hefst á fimmtudaginn í næstu viku í Laugardalshöllinni.
ur.
„Ég er sjálf að framleiða tísku-
fatnað í íslensku sauðalitunum. Það
eru aðeins þrjár þjóðir sem eiga
sauðalitina eftir en það erum við,
Nígeríubúar og Færeyingar. Ég er
að gera tilraun til að blanda saman
ull og minkaskottum. Það er hand-
verkssprengja í gangi í þjóðfélaginu.
Nú þykir þetta ekki lengur púka-
legt. Áður var þetta meiri basar-
menning án þess þó að ég sé að
segja það í niðrandi meiningu.
Basarmenningin var barn síns
tíma. Núna er frumauðurinn eins
og tréútskurður að koma i auknum
mæli fram á sjónarsviðið. Auk þess
alls kyns útfærsla af ullinni, vefnað-
ur, leirvinnsla og keramik," segir
Rósa.
Að sögn Rósu hafa íslendingar
haft minnimáttarkennd vegna
smæðarinnar og verið svolitið ein-
angraðir hingað til. Hún bendir á að