Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Page 22
22 sérstæðsakamál LAUGARDAGUR 13. JULI 1996 SÐAST SOPINN Wilford Cahill var f]örutíu og átta ára og átti stóra jörð, um þrjá- tíu kílómetra fyrir utan Edmonton i Alberta í Kanada. Hann var vana- fastur maður, og í hvert sinn sem hann kom utan af ökrunum á heit- um sumardögum drakk hann úr tveimur bjórflöskum. Hann tæmdi þá fyrri i nokkrum sopum, en þá síðari smám saman meðan kona hans, Laura, sem var þrjátíu og fjögurra ára, eldaði kvöldmatinn. En dag einn bar Laura honum síð- ustu bjórflöskuna sem hann tæmdi um ævina. Skömmu síðar hófst rannsókn morðmáls sem hefur ver- ið til umræðu öðru hverju i rúma hálfa öld. Örlagaríkt síðdegi Það var 6. maí 1935 sem Wilford drakk síðasta bjórinn. Laura sótti hann í kæliskápinn, og hellti í glas fyrir mann sinn. Og eins og venju- lega tæmdi hann það í einum sopa. „Hver fjárinn er þetta?“ sagði hann þegar hann lagði glasið frá sér. „Bjórinn var viðbjóðslegur á bragðið. Hefur flaskan staðið opin?“ Kona hans svaraði því einu til að svo hefði ekki verið. Hún sagðist sjálf hafa opnað flöskuna. Nokkrum mínútum síðar veikt- ist Wilford. Hann fékk mikla verki og kona hans varð að hjálpa honum í rúmið. Hún hringdi svo í Clive Friedle lækni, og hann hafði ekki verið lengi hjá sjúklingnum þegar hann komst að þeirri niðurstöðu að honum hefði verið byrlað sterkt eitur, líklega striknín. Friedle gerði það sem hann gat til að lina kvalir Wilfords, en var hins vegar ljóst að lífi hans yrði ekki bjargað. Skyndilega reis Wilford upp við dogg og sagði við konu sína: „Hvað var I bjórnum sem þú gafst mér, Laura?“ Svo féll höfuð hans á kodd- ann og hann var allur. Rannsóknin hefst Friedle læknir gerði lögreglunni aðvart. Wilbert Singletary hét full- trúinn sem var falin rannsókn málsins, og honum var ljóst að striknín var eitur sem flestir bænd- ur notuðu gegn skaðlegum skor- kvikindum. Kaupin á þvi voru því alveg lögleg, en oft hafði hins vegar borið á því að eitrið væri ekki geymt á öruggan hátt, og nokkrum mánuðum áður hafði vinnumaður á bæ dáið af því að drekka striknín- blöndu sem hann hélt vera áfengi. Singletary hafði hins vegar aldrei heyrt um að striknín hefði komist í bjór. Hann tók flöskuna og fann tappann, en sendi síðan hvort tveggja á rannsóknarstofu. Kom þar í ljós að striknín hafði verið í bjórflöskunni. Fannst það bæði í henni sjálfri og i tappanum. Krufning leiddi í ljós að Wilford Cahill hafði verið gefið svo mikið striknín að nægt hefði til að drepa tiu manns. Verið gat því að einhver hafði tekið tappann af bjórflösk- unni, hellt eitrinu í hana og sett tappann aftur á. Og síðar tókst tæknimönnum að sýna að tappinn hafði tvívegis verið tekinn af flösk- unni. En hver hafði gert það? Og hvers vegna? Ástarþríhyrningur Singletary tók á málum sínum á þann hátt að leita fyrst að ástæð- unni til glæpsins, því þá yrði létt- ara að finna lausnina. Og hann þurfti ekki að ræða við marga til að komast að því að Laura Cahill átti sér elskhuga, hinn þrjátíu og þriggja ára verkstjóra sem maður hennar hafði ráðið. Hann hét Denn- is Hartson. Flestum í sveitinni virt- ist ljóst að þau áttu í ástarsam- bandi, þótt svo virtist sem tvær manneskjur hefðu ekki haft um það hugmynd, Dorothy Hartson og hinn látni, Wilford Cahill. Laura Cahill og Dennis Hartson voru þegar í stað handtekin og gef- ið að sök að hafa myrt Wilford, en Hartson var látinn laus sama dag. Það var gert af ásetningi, og var nú fylgst með hverju fótmáli hans. Hartson hélt nánast rakleiðis að bæ Cahills, gekk að skattholi frú Cahill og tók úr því allmörg bréf. Var hann handtekinn á ný áður en hann gat komið þeim I lóg. Efni bréfanna varð til þess að Laura Cahill og Dennis Hartson voru ákærð fyrir morðið á Wilford. Bæði neituðu þau að vera sek þegar mál- ið kom fyrir rétt í nóvember 1935. En þau höfðu fátt sér til varnar. Laura hafði fært manni sínum bjórinn banvæna, og hún hafði ástæðu til að vilja ryðja honum úr vegi. Sú ástæða kom betur i ljós þegar saksóknarinn yfirheyrði Dennis. Hann viðurkenndi þá að vera ástfanginn af Lauru, og sagöi að þau hefðu rætt um að hlaupast á brott saman. Þau hefði aðeins skort fé. Dómurinn „Og hvaðan átti það fé að koma?“ spurði þá saksóknarinn. „Ef Cahill gamli hefði dáið,“ svaraði þá sakborningurinn, „hefði Laura erft jörðina. Ef hún hefði svo selt hana hefðum við haft nóg fé til að flytjast á brott.“ Dennis Hartson. „Og Cahill hefði getað flýtt fyrir framkvæmd þeirrar áætlunar með því að deyja,“ sagði saksóknarinn þá. „Við myrtum hann ekki,“ var svarið. En hvorki kviðdómendur né dómari trúðu á sakleysi Lauru og Dennis, og eftir tveggja tíma um- fjöllun á bak við luktar dyr var kveðinn upp sektarúrskurður, en á Wilford Cahill. Wilbert Singletary fulltrúi. þeim tíma kallaði slíkur úrskurður í morðmáli á líflátsdóm. En nú tók málið skyndilega óvænta stefnu. Morgun einn, um viku áður en aftakan skyldi fara fram, kom Dorothy Hartson, kona Dennis, á skrifstofu Singletarys og sagði: „Rangt fólk var sakfellt. Hvorki Laura né maðurinn minn myrtu Wilford Cahill. Ég gerði það. Ég vildi sjá þau bæði deyja vegna ástarsambandsins á milli þeirra, en nú þegar komið er að aftökunni, get ég ekki látið hana fara fram.“ En var Dorothy Hartson að segja satt? Þeirri spurningu veltu bæði rannsóknarlögreglumenn, saksókn- ari og dómari fyrir sér. Var hún ekki aðeins að reyna að bjarga lífi manns síns á síðustu stundu? Frekari rökstuðningur Dorothy Hartson lagði nú fram lykil sem hún sagði að gengi að skrá í útidyrum bæjar Cahills- hjóna. Hún sagðist hafa látið gera Dorothy Hartson með dóttur sinni. hann eftir lykli á kippu manns síns. Hún hefði vitað um samband hans og Lauru CahiU um nokkurn tíma og viljað koma fram hefndum. „Ég vissi hvað Laura gerði," sagði Dorothy, „því ég fylgdist með henni. Þrem dögum áður en maður- inn hennar dó var hún að heiman allan daginn. Ég fór þá á bæinn, sá fimm bjórflöskur í isskápnum og tók varlega tappann af einni. Siðan hellti ég dálitlu af bjórnum í vaskinn, en bætti striknínblöndu í bjórinn. Þá setti ég tappann á aftur og þurrkaði burt öll fingraför. Ég vissi að það liðu í mesta lagi fáein- ir dagar þar til Wilford drykki bjór- inn. Hann myndi deyja og böndin berast að Lauru og Dennis. Vafi á vafa ofan En var yfirlýsing Dorothy sann- leikanum samkvæm? Annars vegar mátti benda á að hún vissi um framhjáhald manns síns. Og það var rétt að fimm bjórflöskur höfðu verið í ísskápnum. Það hafði Singletary sjálfur getað gengið úr skugga um á fyrsta degi rannsókn- arinnar. Hins vegar bjó Dorothy Hartson fimm kílómetra frá bæ Cahills- hjóna og mátti því draga í efa að hún hefði getað fylgst svo vel með ferðum Lauru Cahill að hún hefði vitað hvenær hún færi að heima og hvenær hún sneri heim. í þrjá mánuði sat Dorothy í varðhaldi, meðan reynt var að ganga úr skugga um sannleiksgildi frásagnar hennar. Á þeim tíma var hún margoft yfirheyrð. Eftir níu- tíu og átta daga ákvað saksóknar- inn að hún yrði ekki sótt til saka. Næg sönnunargögn skorti til að fá hana dæmda. Mál Lauru Cahill og Dennis Hartson var lagt fyrir dómsmála- ráðherrann, og eftir að hafa kynnt sér málavexti ákvað hann að breyta dauðadómnum í ævilangan fangelsisdóm. Örlög málsaðila Tveimur sólarhringum eftir að Dorothy Hartson var látin laus tók hún saman föggur sínar og fluttist ásamt móður sinni til Hamilton í Ontario, þar sem enginn þekkti þær. Þar lést Dorothy árið 1969, en dóttir hennar og Dennis búa enn í Hamilton. Hún var aðeins tíu mán- aða þegar þessir atburðir gerðust og man ekki eftir þeim. Dennis Hartson, sem var ætíð talinn minna sekur en Laura Laura Cahill með dóttur sinni, Alice. Cahill, var látinn laus til reynslu árið 1943, en Laura fékk fyrst frels- ið árið 1948. Þau hurfu þá úr því litla samfélagi þar sem þau höfðu verið svo mjög til umræðu. Laura fór til Bresku Kólumbíu og Dennis til Toronto. Enginn hefur heyrt neitt um þau síðan. Skoðun Singletarys Myrti Laura Cahill mann sinn með eða án vitundar Dennis Hart- son? Sú spurning var lögð fyrir Singletary fulltrúa þegar hann fór á eftirlaun árið 1972. Hnan svaraði án þess að hika: „Ég held að þau hafi bæði verið saklaus, og Dorothy Hartson hafi verið sú seka. Það er staðreynd að enginn sem hefur drepið fólk með eitri hefur nokkru sinni verið náð- aöur í Kanada. Að þau fengu frels- ið sýnir að háttsettir aðilar hafa dregið sekt þeirra í efa. Ég minnist þess þegar ég ræddi við Dorothy Hartson að mér fannst hún mjög hatursfull og ég gat vel ímyndað mér að hún hefði myrt mann sem hún átti ekkert sökótt við til þess að koma manni sínum og viðhaldi hans í gálgann.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.