Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Side 47
55
DV LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996
skák
Hallfríður Guðmundsdóttir
Hallfríður Guðmunds-
dóttir sjúkraliði, Skelja-
granda 7, Reykjavík, er
sextug í dag.
Starfsferill
Hallfríður fæddist í
Hafnarhólmi við Stein-
grímsfjörð en ólst upp á
Hólmavík. Hún flutti
með fjölskyldu sinni til
Reykjavíkur 1962 og hef-
ur átt þar heima síðan.
Hallfríður útskrifaðist
sem sjúkraliði frá Borg-
arspítalanum 1966. Hún var sjúkra-
liöi á Hvitabandinu 1966-67, við
Borgarspitalann 1971-72, Hrafnistu
í Reykjavík 1977-85 og við augn-
deild Landakotsspítala, Sjúkrahús
Reykjavíkur, frá 1985.
Fjölskylda
Maður Hallfriöar er Karl Jóseps-
son (Drago Vrh.) frá Opatija í Króa-
tíu, f. 10.5. 1935, verkamaður við
Kassagerð Reykjavíkur. Foreldrar
hans voru Josep og Marijá Vrh frá
Króatíu en þau eru bæði látin.
Sonur Hallfríðar frá því áður er
Björn Rúnar Sigurðsson, f. 20.2.
1958, starfsmaður hjá Skjaldborg. *
Börn Hallfríðar og Karls Jóseps-
sonar eru Davíð Vrh
Karlsson, f. 14.7. 1967, bú-
settur í Reykjavík; Mari-
já Kristína Vrh Karlsdótt-
ir, f. 24.6. 1968, búsett í
Reykjavík; Karl Davor
Vrh Karlsson, f. 21.8.
1974, búsettur í Reykja-
vík.
Börn Marijú Kristínar
Vrh Karlsdóttur eru Ari
Davor, f. 1.9.1992, og Hall-
fríður Svala, f. 23.8. 1995.
Systkini Hallfríðar eru
Sigurmunda Guðmunds-
dóttir, f. 11.7.1932, d. 21.1.
1993, húsmóðir á Drangsnesi;
Bjami M. Guðmundsson, f. 13.7.
1936, rafvirkjameistari í Keflavík;
Baldur J.S. Guðmundsson, f. 8.12.
1939, skrifvélavirki í Reykjavík;
Björg G. Guðmundsdóttir, f. 9.5.
1947, ljósmóðir og hjúkrunarfræð-
ingur í Reykjavík.
Foreldrar Hallfríðar: Guðmund-
ur Björgvin Bjamason, f. 4.7. 1912,
d. 2.2. 1987, rafvirki á Hólmavík og
síðar starfsmaður hjá Landssiman-
um í Reykjavík, og k.h, Guðrún
Björnsdóttir, f. 27.11. 1912, húsmóð-
ir 1 Reykjavík.
Hallfríður tekur á móti gestum
að heimili sínu í dag milli kl. 16.00
og 19.00.
Hallfríður Guð-
mundsdóttlr.
Arnbjörn Ólafsson
læknir, Ekrusmára
11, Kópavogi, er sjötug-
ur í dag.
Starfsferill
Ambjöm fæddist á
Ferjubakka í Öxarfirði
og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi frá
MA 1948 og embættis-
prófi í læknisfræði frá
HÍ 1955.
Arnbjörn var
námskandidat á Land-
spítalanum og Slysavarðstofu
Reykjavíkur 1955-56, var staðgeng-
ill héraðslæknis Víkurhéraðs 1953,
héraðslæknir í Hólmavíkurlæknis-
héraði 1956-58 og hefur verið lækn-
ir í Keflavík frá 1958. Hann var
læknir við sjúkrahúsið í Keflavík
1958-81 og oft staðgöngumaður yfir-
læknis, heilsugæslulæknir í Keflvík
frá 1979 og yflrlæknir Heilsugæslu-
stöðvar Suðurnesja 1981-84.
Arnbjöm var formaður heilbrigð-
isnefndar Hólmavíkurlæknishéraðs
1956-58 og sat í heilbrigðisnefnd
Keflavíkur frá 1961 og meðan hún
starfaði.
Börn Arnbjörns og Fjólu
eru Einar Ólafur, f. 27.8.
1950, dr. med., dósent við
háskólann í Lundi í Sví-
þjóð, en kona ’nans er
Runa Kerstin Ambjörns-
son hjúkrunarforstjóri og
em synir þéirra Ambjöm
Einarsson, f. 25.12. 1979 og
Einar Einarsson, f. 4.4.
1984; Arnbjörn Hjörleifur,
f. 8.1. 1952, sérfræðingur i
bæklunarlækningum, bú-
settur í Reykjavík, kvænt-
ur Guðlaugu Bergþóru
Karlsdóttur hjúkrunarfræðingi og
er dóttir þeirra Aðalheiður, f. 29.11.
1983; Aðalheiður Erla, f. 8.6. 1961,
stúdent í framhaldsnámi.
Systur Arnbjörns eru Birna
Ólafsdóttir, f. 12.5. 1917, búsett í
Reykjavík; Guðrún Jóhanna, f. 27.5.
1920, búsett í Reykjavik.
Foreldrar Arnbjörns vora Ólafur
Mikael Gamalíelsson, f. 30.4.1890, d.
14.6. 1976, bóndi á Ferjubakka í
Öxarfirði, og k.h., Aðalheiður
Björnsdóttir, f. 11.11. 1897, d. 3.7.
1977, húsfreyja.
Ætt
Arnbjörn Ótafsson.
Fjölskylda
Arnbjörn kvæntist 29.7. 1949
Fjólu Einarsdóttur, f. 25.7. 1926,
húsmóður. Hún er dóttir Einars
Einarssonar, útgerðarmanns á
Seyðisfirði, og k.h., Jakobínu Guð-
brandsdóttur húsmóður.
Ólafur var sonur Gamalíels Ein-
arssonar, b. á Sjávarlandi í Þistil-
firði, og Vígdísar Kristjánsdóttur
húsfreyju.
Aðalheiður var dóttir Björns
Guðmundssonar, b. á Hallgílsstöð-
um í Sauðaneshreppi, og k.h., Hall-
dóru Sigurðardóttur húsfreyju.
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Tekið er á móti
smáauglýsingum
til kl. 22 til birtingar
nœsta dag
Ath.
Smáauglýsing í
Helgarblað DV
þarf þó að berast
okkurfyrir ki. 17
á föstudag
a\\t mil/í hirnins
&,
X
Smáauglýsingar
EX3
550 5000
Einvígið í Elista:
Sigur Karpovs
var öruggur
- Viktor Kortsnoj einn efstur í Kaupmannahöfn
Eftir 80 leiki í átjándu einvígis-
skákinni í Elista í Kalmikíu varð
Gata Kamsky að sætta sig við jafn-
tefli og tilhugsunina um að heims-
meistaratitill í skák væri úr sög-
unni - í bili a.m.k.. Anatoly Karpov
stóð uppi sem sigurvegari, hlaut
10,5 vinninga gegn 7,5 vinningum
Kamskys. Karpov er þar með opin-
ber heimsmeistari FIDE í skák.
Garrí Kasparov er á hinn bóginn
einvörðungu heimsmeistari sinna
eigin samtaka þótt engum blandist
hugur um yfirburði hans umfram
sinn gamla keppinaut.
Nú er 21 ár síðan Anatoly Karpov
tók við heimsmeistaratign af Bobby
Fischer sem neitaði að verja titil-
inn sem hann hremmdi svo eftir-
minnilega úr höndum Spasskys í
Laugardalshöllinni. Karpov hefur
verið einn farsælasti mótaskákmað-
ur allra tíma og eins og sigur hans
nú gegn Kamsky sýnir er hann enn
við sama heygarðshornið. Hins veg-
ar er sá Karpov sem bar sigurorð af
Kamsky engan veginn sá Karpov
sem best teflir. Sannast sagna var
taflmennska hans gegn Kamsky
ærið gloppótt. Þremur skákum tap-
aði Karpov illa. Engu að síður var
sigur hans í einvíginu öruggur. Eft-
Umsjón
Jón L. Árnason
ir níu skákir var staðan orðin
6,5-2,5 Karpov í vil. Þá slakaði Kar-
pov nokkuð á klónni og niðurstað-
an úr átta síðustu skákunum var
Qórir vinningar gegn fjórum.
Ljóst var að Karpov reyndi að
stýra síðustu skákum einvígisins í
jafnteflishöfn. í 15. skákinni tefldi
hann varfæmislega gegn Benóní-
vöm Kamskys; í 17. skákinni varð
róleg Retí-byrjun uppi á teningnum
(Karpov hafði hvítt) - Kamsky bauð
upp á skiptan hlut eftir að skákin
hafði farið í bið. í 18. skákinni
tefldu kapparnir drottningarind-
verska vörn og aftur fór taflið í bið.
Það var svo ekki fyrr en eftir 80
leiki, eins og fyrr segir, að Kamsky
sættist á jafntefli.
En í 16. skákinni fór Karpov illa
að ráði sínu í margþvældu afbrigði.
Fyrsti „nýi leikurinn“ í skákinni
var drottningartilfærsla Karpovs í
23. leik. Karpov og aðstoðarmenn
hans höfðu kannað gildi leiksins
með því að tefla hraðskákir en
höfðu greinilega ekki skyggnst
nægilega djúpt í stöðuna. Kamsky
fann glompu í undirbúningnum og
vann peð með einfaldri fléttu. Sig-
urinn var þó langt í frá geflnn en
aftur gerði Karpov mistök og þá var
eftirleikurinn auðveldur.
16. einvígisskákin:
Hvítt: Gata Kamsky
Svart: Garrf Kasparov
Drottningarindversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3
Ba6 5. b3 Bb4+ 6. Bd2 Be7 7. Bg2
c6 8. Bc3 d5 9. Re5 Rfd7 10. Rxd7
Rxd7 11. Rd2 0-0 12. 0-0 Hc8 13.
e4 c5 14. exd5 exd5 15. dxc5 dxc4
16. c6 cxb3 17. Hel Bb5 18. axb3
Bxc6 19. Bxc6 Hxc6 20. Hxa7 Bf6
21. Rc4 Bxc3 22. Hxd7 Df6 23.
He4
Niðurstaðan úr fjölmörgum stór-
meistaraskákum í þessu afbrigði er
sú að svona sé best teflt á báða
bóga. í þessari stöðu hefur svartur
leikið 23. - He6 og sætt sig við örlít-
ið lakari stöðu. Karpov og menn
hans hafa fundið nýjan leik og nú
er látið á hann reyna:
23. - Df5? 24. Hf4 De6 25.
Hdxf7!
Svo virðist sem Karpov og að-
stoðarmannasveit hans hafi ekki
tekið þessa einföldu „leikfléttu"
með í reikninginn. Þar sem 25. -
Hxf7 strandar á 26. Dd8+ og mátar,
verður svartur að sætta sig við
peðstap. Karpov er ekki öfunds-
verður af því að sitja í þeirri stöðu
en skákin er þó ekki töpuð.
25. - He8 26. DÍ3 Bf6 27. Hb7 h6
28. Kg2 Kh8 29. h4 Kg8 30. Kh2
Kh8
Þetta sýnir úrræðaleysi svarts.
Hann getur einungis beðið átekta
og látið hvítan um að sýna fram á
vinning í stöðunni.
31. Dh5 Hd8 32. Hf7 Bd4 33.
Hf8+ Hxf8 34. Hxf8+ Kh7 35. Df3
Bc5 36. Hf5 Hc8 37. h5 Hd8 38.
He5 Dd7 39. De4+ Kh8 40. Kg2
Hf8 41. f4 Hd8 42. Df3 Bd4 43.
He2 b5 44. Rd2 Bb6 45. Re4 Ddl
46. Rf2 Dbl 47. Rg4 Df5
Kamsky hefur tekist að bæta
stöðu sína jafnt og þétt en hér var
47. - Dgl+ 48. Kh3 Bd4 e.t.v. betri til-
raun.
48. Re5
48. - Kg8? 49. Rc6!
Nú getur Karpov ekki forðað
hróknum og afstýrt um leið 50.
Re7+ og því gafst hann upp.
Kortsnoj
stal sigrinum
Gamli refurinn Viktor Kortsnoj
sýndi frægt baráttuþrekið enn á ný
með því að verða einn efstur á opna
mótinu í Kaupmannahöfn sem lauk
í síðustu viku. Fyrir siðustu um-
ferð mótsins voru sex skákmenn
efstir og jafnir. Öllum skákum
þeirra í síðustu umferðinni lauk
með jafntefli nema skák Kortsnojs
við Kogan. Kortsnoj hafði þar til-
tölulega auðveldan sigur og þar
með var efsta sætið orðið hans -
óskipt. Skammt er því stórra högga
á milli hjá Kortsnoj sem sigraði fyr-
ir skemmstu á sterku móti í Málm-
ey í Svíþjóð. Keppnisskapið er samt
við sig þótt árin færist yfir.
Kortsnoj er nú 65 ára gamall.
íslensku skákmeisturunum vegn-
aði ekki sem skyldi. Jóhann Hjart-
arson vann Sune Berg Hansen í síð-
ustu umferð og hlaut 7,5 vinninga
ásamt fleirum sem deildu 9.-20.
sæti. Margeir Pétursson lauk mót-
inu með jafntefli við Steffen Peder-
sen og deildi 21- 34. sæti með fleir-
um með 7 v. Héðinn Steingrímsson
tapaði fyrir stórmeistaranum
kunna, Vitaly Tseshkovsky, í
lokaumferðinni og hlaut 6 v. Bragi
Þorflnnsson fékk 5,5 v., Björn Þor-
finnsson 5 v. og Davíð Kjartansson
4,5 v. Keppendur vora liðlega 180
talsins.
Kortsnoj hlaut 8,5 vinninga.
Næstir komu Tiger Hillarp-Persson
frá Svíþjóð, sem kom mjög á óvart,
Julian Hodgson og Jonathan
Speelman, Englandi, Curt Hansen,
Danmörku, Edvard Rosentalis, Lit-
háen, og Eran Liss, ísrael, allir með
8 v.
Jóhann Hjartarson varð í 3. sæti
af Norðurlandabúum og krækir sér
þar í drjúg stig í norrænu VISA-
bikarkeppninni, sem verður fram
haldið síðar í mánuðinum, með
opna mótinu í Gausdal í Noregi.
Líklegt er að fjölmenn sveit íslend-
inga muni taka þar þátt.
Hraðskákkeppni
taflfálaga
Taflfélagið Hellir stóð fyrir hrað-
skákkeppni taflfélaga á Suðvestur-
landi sem var með útsláttarfyrir-
komulagi. Teflt var á sex borðum
þannig að hver liðsmaður tefldi tví-
vegis við alla liðsmenn andstæðing-
anna.
í úrslitaviðureigninni, sem fram
fór á þriðjudagskvöld, bar Hellir
sigurorð af Taflfélagi Kópavogs
með 41 vinningi gegn 31 vinningi
Kópavogsbúa. Bestum árangri í
sveit Hellis náðu Hannes Hlífar
Stefánsson (9,5 v. af 12), Ingvar Ás-
mundsson (7,5 v. af 11) og Andri
Áss Grétarsson (7,5 v. af 12) en í
sveit TK voru sterkastir Helgi
Ólafsson (9 v. af 12), Björgvin
Víglundsson (7 v. af 11) og Jón G.
Viðarsson (6,5 v. af 12).
í fyrra sigraði sveit Taflfélags
Reykjavíkur en nú bar svo við að
sveitin tapaði þegar í 1. umferð fyr-
ir Helli. Liðsflótti hefur verið mik-
ill úr Taflfélagi Reykjavíkur. Félag-
ið hefur löngum borið höfuð og
herðar yfir önnur taflfélög landsins
og haft á að skipa einni öflugustu
skáksveit Evrópu. Nú er svo komið
að flestir sterkustu skákmennirnir
hafa yfirgefið félagið eða íhuga úr-
sögn.