Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Blaðsíða 14
14 Iþróttir Shaquille tll Lakers - 8 milljarða króna samningur Kristinn frá í 2-3 vikur Nú er ljóst að Kristinn Lárus- son, knattspyrnumaður úr Stjömunni, er með slitin liðbönd í ökkla en hann meiddist í leik gegn KR á dögunum. Hann verð- ur ekki með í næstu leikjum Garðbæinga. Þeir verða líka án Baldurs Bjamasonar og Rúnars Páls Sigmundssonar þegar þeir mæta Blikum í 1. deildinni á sunnudagskvöldið en þeir taka þá báðir út leikbann. -VS Capobianco keppir Fjögurra ára banni yfir sprett- hlauparanum Dean Capobianco hefur verið lyft og getur hann því keppt í Atlanta. Capobianco var settur í bann eftir að hann mældist jákvæöur fyrir steralyf- inu stanozolol eftir mót í hol- lenska bænum Hengelo 27. maí en áfrýjunardómstóll vísaði mál- inu frá. Prófið var gallað sökum möguleika á að einhver hefði komið lyfinu fyrir. Aðalritari Al- þjóölega áhugamannaíþrótta- sambandsins, Istvan Gyulai, sagði hins vegar að þeir gætu enn þá komið í veg fyrir að Capobianco keppti. „Við getum stöðvað hann og verðum að líta á grandvöllinn fyrir ákvörðun þeirra,“ sagði Istvan. Kaupæði á Spáni Nú styttist í að spænska knatt- spyman hefjist og til að undir- búa sig fyrir komandi vetur hafa spænsku félögin slegið öll met í leikmannakaupum. Þau hafa keypt leikmenn fyrir 300 milljón- ir marka þó að skuldir þeirra séu 230 milljónir marka. Spænska stórliðið Barcelona hef- ur keypt Baia frá Porto, Stoichkov frá Parma, Ronaldo frá PSV, Blanc, Enrique og Pizzi. Real Madrid keypti þá Davon Sukar, Roberto Carlos, Secret- ario, Mijatovic og dýrasta þjálf- ara I heimi, Fabio Cappello. Akureyrarmaraþon um helgina Á morgun verður haldið á Ak- ureyri, á vegum Ungmennafé- lags Akureyrar, Akureyrarmara- þon sem er jafnframt íslands- meistaramót í hálfmaraþoni. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem Akureyrarmaraþon er Is- landsmeistaramót í þessari keppnisgrein. Keppt verður í tveimur öðrum flokkum, þ.e. skemmtiskokki (ca. þrír kíló- metrar) og tíu kílómetra hlaupi. Allir ættu því að geta tekið þátt, óháð þreki og þjálfun. Þátttaka í ár virðist ætla að verða með besta móti, enda eru nú þegar tæplegar 200 þátttakendur búnir að skrá sig fyrir fram en skrán- ingu lýkur á Akureyrarvelli klukkan 11.00 á morgun. Þá tek- ur við upphitun kl. 11.15 en keppendur eru ræstir frá Akur- eyrarvelli kl. 12 á hádegi og eru allir flokkar ræstir samtímis. Að loknu hlaupi fá allir verðlauna- pening. Ármann með tólf Úrslit í 4. deildinni í knatt- spymu í gærkvöldi: B-riðtll: Skautafélag R.-Ármann.........1-12 V-riölll: Reynir, Hnífsdal-BÍ............0-8 C-riðUl: KS-Kormákur....................7-0 D-riöiU: Huginn-Einherji................2-0 Selfoss vann Fjölni Selfoss sigraði Fjölni, 2-1, í 3. deild í gærkvöldi. Sævar Gísla- son og Þorsteinn Pálsson skor- uðu fyrir Selfoss en Ólafur Sig- urjónsson fyrir Ejölni. Tveir Sel- fyssingar fengu að líta rauða spjaldið hjá rögg'sömum dómara leiksins. Selfoss komst með sigr- inum í fimmta sætið en Fjölnir situr á botninum. Körfuboltastjaman Shaquille O'Neal er búin að skrifa undir sjö ára samning við Los Angeles Lakers sem hljóðar upp á 8 milljarða króna. Talsmaður Lakers staðfesti þetta í gær en Shaquille er nú við æfingar með Draumaliði 3 í Atlanta. Þessi rúmlega tveggja metra miðherji var valinn fyrstur úr NBA nýliðavalinu árið 1992 og leiddi hann Orlando Magic til úrslita gegn Houston í fyrra og í und- anúrslitin í ár. Þegar samningur hans við Orlando rann út ekki alls fyrir löngu hófst til- Keppendalistinn í sundinu á Ólympíuleikunum í Atlanta VcU- birtur í gær. Þrír íslenskir sundmenn era þar á meðal keppenda en keppnin í sundi hefst á þriðjudaginn kemur. Þegar keppendalistinn er skoðaður kemur ýmislegt í ljós. Logi Jes Kristjánsson, sem keppir í 100 metra baksundi, er með 37. besta timann af 52 keppendum. Logi er eini kepppandinn frá Norðurlöndum í þessari grein fyrir utan Finnann Jani Sivenen sem á heimsmetið í 200 metra boðsstríðið hjá NBA-liðunum í þennan 150 kílóa leikmann sem er frægur fyrir frábærar troðslur sinar og nú síðast fyr- ir rappsöng og kvikmyndaleik, sannar- lega fjölhæfur persónuleiki. Nýjasta kvikmynd hans, „Kasaam", þar sem hann leikur anda, var frumsýnd í Bandaríkjunum á miðvikudaginn. O'Neal neitaði að svara spumingum fréttamanna í Atlanta en boðaði frétta- mannafund sem haldinn var seint í gær- kvöldi. -JGG fjórsundi. Logi er hæsti keppandinn í greininni ásamt Rússanum Alexander Popov en þeir eru 1,97 metrar á hæð. Eydís Konráðsdóttir er með 31. besta tímann af 44 keppendum í 100 metra flugsundi. Fjórir Norðurlandabúar eru fyrir framan hana hvað tíma snertir. Besta tímann á japanska stúlkan Ayori Aoyama en hún er jafnframt minnsti keppandinn, aðeins 1,52 metrar og 42 kg. Elin Sigurðardóttir er með 37. besta tímann í 50 metra skriðsundi af 56 keppendum sem skráðir eru til keppni. -MT __ Ofund út í íslendingana DV, Atlanta: Fullyrt er af mörgum að að- búnaður íslensku keppendanna í Atlanta sé frábær og hann gerist vart betri. Aðrir keppendur frá ýmsum þjóðum líta öfundaraug- um til hýsa Islendinganna. Auk aðbúnaðarins fylgja íslenska hópnum þrír aðstoðarmenn og tveir bilstjórar era aldrei langt undan. Annar bílanna er BMW af nýjustu gerð og hinn er 8 manna bíll. Selt áæfingar í fimleikum Mjög mikill áhugi virðist ætla að verða á fimleikakeppni ólympíuleikanna ef marka má aðsókn að æfingum keppenda undanfarna daga. 12 þúsund greiddu inn á æfingar í gær en höllin tekur um 27 þúsund í sæti. Fimleikafólkið iðar í skinn- inu að hefja keppni sem hefst á laugardag. Þar I hópi er Rúnar Alexandersson. -MT Þór (1)2 KA (0)1 1- 0 Hreinn Hringsson (37.) var á auðum sjó eftir slæm vamarmistök KA-manna og skoraði með góðu skoti frá vítateigslínu. 2- 0 Bjarni Sveinbjörnsson (64.) skoraði af öryggi eftir að Eggert Sig- mundsson halði varið vitaspyrnu Davíðs Garöarssonar. 2-1 Höskuldur Þórhallsson (75.) með góðum skalla eftir góða sendingu frá Dean Martin. Lið Þórs: Atli Már Rúnarsson - Páll Pálsson, Þorsteinn Sveinsson, Zoran Zikic (Amar Bill Gunnarsson 70.) - Árni Þór Ámason, Davíð Garð- arsson, Þórir Áskelsson, Birgir Þór Karlsson, Páll V. Gíslason - Bjami Sveinbjörnsson (Kristján Örnólfsson 88.), Hreinn Hringsson (Halldór Ás- kelsson 79.) Lið KA: Eggert Sigmundsson - Helgi Aðalsteinsson, Jón Hrannar Einarsson, Halldór Kristinsson - Dean Martin, Stefán Þórðarson, Bjami Jónsson, Ottó Karl Ottósson (Höskuldur Þórhallsson 66.), Steinn Gunnarsson - Logi Jónsson, Þorvald- ur Makan Sigbjömsson (Steingrimur Birgisson 88.) Gul spjöld: KA 2, Þór 3. Rauð spjöld: Engin. Dómari: Sæmundur Viglundsson, hafði góð tök á leiknum. Áhorfendur: 1.512. ^ Noröurlandamót unglinga í golfi: Island í þriðja sæti DV, Suðurnesjum: Island er í þriðja sæti í piltaflokki á Norðurlandamóti unglinga, sem nú stendur yfir á Hólmsvelli í Leira, en er hins vegar í neðsta sæti í stúlkna- flokki. Fyrri dagur mótsins var í gær og því lýkur í dag. Finnland er með 773 stig i pilta- flokki, Danmörk 786, Island 789, Noreg- ur 800 og Svíþjóð 810. Svíþjóð er með 487 stig í stúlknaflokki, Noregur 506, Finnland 518, Danmörk 522 og ísland 571. Ómar Halldórsson er fremstur pilt- anna og er í þriðja sæti með 151 högg. Kristín Elsa Erlendsdóttir er efst af ís- lensku stúlkunum með 185 högg en þær eru í fjórum neðstu sætunum. -ÆMK Athugasemd frá Ellert B. Schram, forseta ISI: Málið snýst um embætti en ekki persónu Við setningu Ólympíuleikanna í Atlanta era mættir af íslands hálfu, auk íþróttafólksins og fylgdarmanna þeirra, Júlíus Hafstein formaður og Ari Bergmann, ritari Ólympíunefnd- ar íslands, í boði Alþjóða Ólympíunefndarinnar, Bjöm Bjama-, son menntamálaráðherra og kona hans í boði Óí, Gísli Halldórsson heiðursforseti Óí og ÍSÍ í boði nor- rænu ólympíunefndanna. Mér skilst að það hafi vakið ein- hverja athygli innan íþróttahreyfing- arinnar að forseti ÍSÍ skuli ekki vera viðstaddur leikana þar sem fyrir ligg- ur að allt frá því að íslendingar sendu fyrst þátttakendur á ólympíuleika hefur forseti ÍSÍ verið þar mættur á vegum Óí að undanskildum leikun- um í Barcelona fyrir ijórum árum. Þá var undirrítaður boðinn í nafni Ólympíunefndar íslands en gat ekki þegið þaö boð vegna vinnu sinnar. Blaðamaður DV hafði samband við mig á miðvikudag og spurði hvort rétt væri að mér sem forseta ÍSI hefði ekki verið boðið að mæta til Atlanta. Ég játti því. Þegar blaðið biður for- mann Óí um skýringu bendir hann réttilega á að þetta mál snúist ekki um persónur heldur embætti. Samt sér hann ástæðu til, í þessu sama svari, að fjalla um mína persónu og kasta rýrð á mín störf fyrir íþrótta- hreyflnguna. Haft er m.a. eftir honum að undirritaður, sem jafnframt er varaformaður Óí, hafi ekki mátt vera að því að sinna ólympíumálum vegna tímaskorts. Af þessu tilefni þykir mér rétt að taka fram að undirritaður hefur mætt reglulega á framkvæmdastjórnar- fundi Óí með eðlilegum forfollum manns sem hefur einnig öðrum störf- um að gegna. Þar er ég varaformað- ur í krafti þess að vera fulltrúi heild- arsamtaka íþróttafólks. Samt hefur formaöur Ól aldrei beðið varafor- mann sinn um eitt né neitt í sam- bandi við Ólympíunefndina, aldrei séð ástæðu til að bera mál eða aðrar ákvarðanir undir álit mitt né yfirleitt falið mér störf fyrir Óí. Þannig að tímaskortur eða þreyta hefur ekki hrjáð mig á þeim vettvangi. Hitt er jafnframt rétt að taka fram að atbeini minn innan Óí er að sjálf- sögðu algjört aukaatriði í sambandi við það hvort forseta ÍSÍ sé sýndur sá sómi að bjóða honum að vera við- staddur ólympíuleika. Hvort ég mæti á ólympíuleika eöa ekki gildir einu fyrir mina persónu en það er auðvitað tímanna tákn um þann aöskilnað sem er að verða á milli íþróttahreyflngar og ólympíu- hreyflngar að forseti heildarsamtaka íþróttanna á íslandi er ekki talinn eiga erindi á þessa leika. „Það hefur aldrei staðiö til að forseta ÍSÍ væri boðið á leikana," segir formaður ÓL. Er þetta þróun sem íþróttahreyf- ingin telur æskilega? Og er það eitt- hvert innlegg í þessa umræðu að rakka niður mína persónu af því að það vill svo til að ég er forseti ÍSÍ? Ellert B. Schram forseti ÍSÍ Sundfólkið ánægt með aðstöðuna - keppendalistinn birtur í gær DV, Atlanta: FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996 27. i v> JÍ agatal élppíuleikanna í I Dýfingar Sund 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 1 __Opnunar hátíð I w v# -vr Listsund Ít-N M ! Vatnapóló ,j\ Bogfimi f M Frjálsar #!i M M ! . Badminton/hnit V ‘mm Hafnabolti * í líy. n : Körfubolti Hnefaleikar n v V Lókahátíð m \f \f \f \f \' 'f m \f \f‘i _^ W V kar í. Kajak Xj^ Hjólreiðar \f \t \f x' m ilsæs W>' Hestaíþróttir ^ Skylmingar W j , Fótbolti ' Fimleikar Handbolti Hokkí V? Júdó Blak Strandarblak t\. \f Lyftingar jj Glíma Siglingar ; Keppt til verðlauna Fjöldi greina Fimmtarþraut Ganga Róður Innanhúss hafnabolti Borðtennis 't. Tenms E B B g E B B3 B w B 55 Mjólkurbikarkeppni KSÍ: Þórsarar sigruðu erkifjendurna í KA - og eru komnir í undanúrslit keppninnar DV, Akureyri: „Ég er auövitað ánægður, leikur- inn var að vísu köflóttur en ég held að þetta hafi verið sanngjamt. I undanúrslitunum viljum við heima- leik, það er óskastaðan," sagði Nói Björnsson, þjálfari Þórs á Akureyri, sem tryggði sér í gærkvöldi rétt í undanúrslit Mjólkurbikarkeppni KSÍ á kostnað nágranna sinna í KA. Úrslitin, 2-1. „Þeir nýttu færin sín en við ekki og það munaði þvi,“ sagði Bjarni Jónsson, fyrirliði KA, eftir leikinn. Oftast gengiö meira á Oftast hefur gengið meira á I leikjum þessara erkiíjenda en nú var lítið um gróf brot, enda tók dómarinn þá stefnu að spjalda menn grimmt í upphafi og róaði mannskapinn. Fyrri hálfleikurinn var í jafnvægi en fyrsta mark leiks- ins kom á 37. mínútu þegar Hreinn Hringsson skoraði með góðu skoti frá vítateig þar sem hann var á auð- um sjó. I síðari hálfleik vora KA-menn ágengari en það voru þó Þórsarar sem komust í 2-0. Davíð Garðarsson átti snilldarsendingu inn í vítateig á Hrein Ilringsson sem var felldur. Vítaskot Davíðs var varið en Bjarni Sveinbjörnsson var fljótur í frákast- ið og negldi boltann í netið. Þórsarar hafa tak á KA Fimmtán mínútur fyrir leikslok minnkaði Höskuldur Þórhallsson muninn í 1-2 með góðum skalla eft- ir fyrirgjöf Dean Martins og eftir það bar fátt til tíðinda þótt KA- menn væra aðgangsharðari. Það er þvi óhætt að taka undir orð Bjama, fyrirliða KA, sem sagði að það skipti máli að nýta færin í jöfhum leikjum. Þaö hefur verið höfuðverk- ur beggja liðanna að undanfomu og þá aðallega KA-manna. Leikurinn sjálfur var ekkert augnakonfekt og gleymist fljótt. Mikið var um baráttu á miðjunni þar sem boltinn gekk því oft mótherja á milli. Þórsarar héldu glaðir til búningsklefa en KA-menn súrir í bragði. Atli Már Rúnarsson var betri maður Þórs, varði t.d. stórskostlega frá Dean Martin sem komst óvaldað- ur inn í teig og Páll Pálsson var góð- ur í vöm Þórs. Minnimáttarkennd? Hjá KA skar sig enginn úr og eru menn era vissulega famir að velta því fyrir sér hvort KA-menn hafi einhverja minnimáttarkennd gagn- vart Þórsurum því þeim hefúr geng- ið afleitlega að eiga við þá á síðustu áram. Sérstaklega þó í deildinni þar sem þeir hafa ekki sigrað þá í 16 ár. -gk Dregið í dag I dag verður dregið í undanúrslit og verða Akranes, ÍBV, KR cg Þór í mjólkurbrúsanum margfræga. Leik- irnir fara fram 28. júlí en sjálfur úr- slitaleikurinn verður á Laugardals- vellinum sunnudaginn 25. ágúst. íþróttir Bierhoff til Juve ítölsku liðin Tuttosport og Gazzetta della Sport greindu frá því í gær að klárt væri að þýski landsliðsmaðurinn Oliver Bier- hoff myndi ganga til liðs við Juventus fyrir næstu leiktíð frá Udinese. Kaupverðið er talið nema um 6,5 milljónum marka og fær Udi- nese auk þess Nicola Amuroso. Áfram hjá Liverpool Mike Thomas skrifaði í gær undir nýjan fjögurra ára samn- ing við Liverpool og er verðmæti hans um 110 milljónir. Thomas fær 800 þúsund krónur í viku- laun, mun meira en hann hafði áður. Hann hafnaði tilboðum frá Italíu eftir að Roy Evans hafði lýst yflr að hann vildi halda hon- um en Thomas var samnings- laus við Liverpool sl. vetur. Köpke til Marseille? Samkvæmt frétt franska blaðs- ins Le Equipe hefur Andreas Köpke, markvörður þýska lands- liðsins, skrifað undir tveggja ára samning við Marseille sem leik- ur í 1. deild í vetur. Forseti fé- lagsins vildi hins vegar ekki staöfesta þetta í gær. Kluviert vill fara Svo gæti farið að Patrick Kiui- vert yfirgæfi herbúðir Ajax mun fyrr en hann hafði ákveðið. Hann er þreyttur á fúkyrðum frá stuðningsmönnum félagsins vegna persónulegra mála hans. Þegar Roy Evans, stjóri Liver- pool, heyrði þetta sagði hann þetta góðar fréttir því hann hefði mikinn áhuga á að krækja i þennan snjalla leikmann. United efst á blaði Fátt virðist nú verða í vegi fyrir því að tékkneski landsliðs- maðurinn Karel Poborsky gangi í raðir Manchester United. Hann hefur hafnað því að gera samn- ing við Liverpool. Félag hans í Tékklandi, Slavia, sagði í gær útlit fyrir að Poborsky færi til United og jafnvel yrði skrifað undir fyrir vikulok. Bejbl til Atletico Tékkneskir landsliðsmenn eru mjög vinsælir eftir frammistöðu landsliðsins í Evrópukeppninni. Flestir leikmanna iiðsins, sem ekki voru fyrir á samningi hjá félögum í Evrópu, eru eftirsóttir. Miðjumaðurinn Radek Bejbl hef- ur þegar samþykkt að ganga í raðir spænsku meistaranna í At- letico Madrid. Riis enn fyrstur Daninn Bjarne Riis er enn efstur í Tour de France hjól- reiðakeppninni. Það var hins vegar Jan Ullrich frá Holiandi sem sigraði á 18. sérleiðinni í gær. Riis var ekki í hópi 20 efstu á sérleiðinni í gær en það kom ekki að sök því forysta hans er öragg. Riis er fjórum mínútum á undan Ullrich svo það lítur út fyrir að Daninn beri sigur úr býtum í einni erfíðustu Iþrótta- keppni sem keppt er í. Miguel Induarin frá Spáni, sem sigrað hefur fimm sinnum í röð, er núna í 11. sæti. Öryggið hert á ÓL Öi-yggið i kringum ólympíu- svæðið í Atlanta var hert til muna í gær í kjölfar flugslyssins við New York. Á flugvellinum gengu hlutir mun hægar fyrir sig en áður. Á götum var örygg- isvörður einnig hertur til muna. -JKS DV kynnir íslensku keppendurna á OL Vernharð Þorleifsson: „Tilbúinn að mæta hverj- um sem er“ Vernharð Þorleifsson náöi loks- ins að tryggja sér þátttöku á Ólympíuleikunum í Atlanta í enda Evrópumótsins eða 19. maí 1996. Hann var þá áttundi í sérstakri Evrópu-Ólympíu-niðurröðun þar sem níu efstu fengu þátttökurétt í Atlanta. Þátttökuréttur samanstóð af ár- angri á tíu A-mótum og Evrópu- móti frá desember 1995 til maí 1996 þar sem aðeins þrjár bestu niður- stöðurnar voru taldar með. Vem- harð keppti á sjö A-mótum og einnig á hinu gífurlega erfiða Evr- ópubikarmóti. Á heimsmeistara- mótinu í Japan 1995 unnu Evrópu- búar 66% sæta af efstu átta en þeir era ekki nema 35% af þeim sem keppa í júdó i Atlanta. Michal Vachun, landsliðsþjálf- ari íslands í júdó, hefur trú á sín- um manni enda um mjög sterkan fulltrúa íslands að ræða. Mikill kostur „Sl. 18 mánuði hefur Vemharð æft í mörgum æfinga- búðum um allan heim, t. d. Olympic Solidarity Center í Barcelona, evrópskum æf- ingabúöum í Frakklandi, Hollandi og Belgíu, búðum í Bandaríkjun- um, Japan og nú síðast í júní og júlí var hann í æfingabúðum í Þýskalandi og á Spáni,“ sagði Vachun. „Það var mikill kostur fyrir undirbúning Vernharös að Bjami Friðriksson ákvað sl. vetur að reyna að komast til Atlanta en þeir eru í sama flokki. Æfingamar efldust til muna og æfingafélagar þeirra, Sigurður Bergmann, Gísli Magnússon, Þorvaldur Blöndal, Ingibergur Sigurðsson, Guðlaugur Eyjólfsson og fleiri voru þeim ómetanlegir í daglegum æfingum hjá Ármanni. Frá janúarmánuði 1995 hefur Vemharð keppt á 18 alþjóðlegum mótum í hæsta gæðaflokki og einnig í fjölda móta á íslandi. I hefðbundnum júdóslag hefur Vernharð þróað með sér mikinn fjölbreytileika af köstum og býr hann yfir gífurlegu jafnvægi sem er ekki auðvelt að raska. Hann er ekki gjarn á að slást á gólfinu (ne-wasa) en hann hefur samt unnið mikilvægar keppnir þar og býr yfir ótrúlegum hæfileika til að sleppa undan þegar honum er haldið niöri, úr kyrkingartökum og í lás,“ bætti hann við. Vonast eftir hinu besta „Fyrir Ólympíuleikana í Atl- anta er Vernharð, á pappímum, meðal 36 sterkra keppenda í sín- um flokki. og er það mjög góö staða fyrir hans unga aldur. Þeir bestu eru heims- og Evr- ópu- meistar- inn Nas- tula (Pól- landi), Sergeiev (Rúss- landi) og Traineau (Frakklandi). Ólympíuleikar eru alltaf mjög spennandi og oft erfitt fyrir jafnvel reynda júdómenn að standast álag- ið. Óvæntir atburðir munu gerast og Vernharð er tilbúinn að gera það sem hann þarf en það verður ekki auðvelt. Hann lærði að það er ekkert auðvelt í þessu og engin auðveld leið í kringum erfiðleika í þessum flokki. Hann er tilbúinn að mæta hverjum sem er eða með hans eigin orðum: „Búast við hinu versta og reyna samt að vonast eft- ir hinu besta.“ -JGG Vernharð Þorleifsson Aldur: 23 ára Félag: KA Besti árangur: Sexfaldur íslandsmeistari, fjórfaldur Norðurlandameistari og vann einnig Opna Skandinavíumótið 1995. K I :

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.