Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996
3
Fréttir
Sjúkrahús Reykjavíkur í vanda:
Vantar 250 milljónir
inn í reksturinn
- Erum að komast í þrot, segir stjórnarformaðurinn
„Stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur
hefur falið framkvæmdastjórn að
móta tillögur fyrir næsta stjórnar-
fund um viðbrögð við fjárhagsstöðu
spítalans. Staðan er sú að okkur
vantar um það bil 250 milljónir í
rekstur spítalans," segir Kristín Á.
Ólafsdóttir, stjórnarformaður
Sjúkrahúss Reykjavíkur, í samtali
við DV.
Kristín segir að nýlegar spam-
aðaraðgerðir hafi leitt til um 150
milljóna kr. sparnaðar í árlegum
rekstrarútgjöldum en það dugi ekki
til. Sjúkrahús Reykjavíkur sé að
komast í þrot, m.a. varðandi launa-
greiðslur til starfsfólks og önnur út-
gjöld og ríkisvaldið svari engu um
það hvort spítalinn fái viðbótarfé.
Fáist það ekki sé eina leiðin að
bregðast við með frekari niður-
skurði.
Kristín segir að fáist ekki þetta
viðbótarfé verði ekki hægt að reka
áfram þá starfsemi sem nú er rekin
á vegum spítalans. Svo einfalt sé
það. Hún vill ekki svara því hvaða
deildir þá verði skomar af, né hvort
Grensásdeildinni verði lokað í nú-
verandi mynd, en segir: „Tillögur
um þessi efni era í mótun.“
Jóhannes Pálmason, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahúss Reykja-
víkur, vill heldur ekki tjá sig um
það til hvaða aðgerða verði gripið,
fáist ekki fé úr ríkissjóði til að
stoppa upp í 250 milljóna króna
rekstrargatið. Aðspurður hvort hag-
kvæmt væri að flytja sérhæfða deild
eins og Grensásdeildina niður i að-
albyggingu spítalans í Fossvogi
sagði Jóhannes að endurhæfing
hefði aukist annars staðar og áætl-
anir væru um að reisa endurhæf-
ingarmiðstöð á vegum ríkisins í
Kópavogi og umfangsmikil endur-
hæfingarstarfsemi væri á Reykja-
lundi.
Á Grensásdeild væri nú rekin
endurhæfingar- og taugadeild og
það gæti verið skynsamlegt að hafa
hluta starfseminnar í enn nánari
tengslum við það sem fram fer í að-
albyggingunni. „Þótt fjarlægðin sé
ekki mikil á milii er hún samt á
vissan hátt til trafala," sagði Jó-
hannes. Hann sagði að allir þeir
kostir sem stjórnendur spítalans
hefðu í hinni þröngu stöðu væra
slæmir. -SÁ
Grensásdeildin ekki hálfnýtt:
Aðeins 18 pláss opin
„ Grensásdeildin:
Odýr í rekstri og arösöm fyrir þjóðfélagið
- segir Ásgeir B. Ellertsson yfirlæknir
Ásgeir B. Ellertsson er yflrlæknir
Grensásdeildar. Hann segir að ekki
sé búið að ákveða að leggja Grensás-
deildina niður í núverandi mynd og
flytja hluta af starfseminni en um-
ræðan um það sé komin í gang á ný
um sömu tillögur og vora uppi um
síðustu áramót, en í þeim fólst að
Grensásdeild sem slík hætti að vera
to.
„Það sem við hryggjumst yfir er
það að þetta yrði verulegt högg á
endurhæflnguna hér hjá okkur,“
segir Ásgeir. Aðspurður hvort sí-
endurtekin vandamál í rekstri
sjúkrahúsanna í Reykjavík stafi að
stórum hluta af því að heildarstefnu
og heOdarskipulag þessara mála
skorti, svarar Ásgeir játandi.
„Ég held að aðalatriðið sé að tek-
in verði ákvörðun um annars vegar
hvort verði starfandi tveir sjálfstæð-
ir spítalar i Reykjavík, sem þá fái að
starfa sjálfstætt með ákveðinni
verkaskiptingu, eða þá hins vegar
að það skref verði tekið að ákveðið
verði að sameina þá. Eftir að
ákvörðun hefur verið tekin um ann-
an hvorn kostinn hljóta aOir sem að
málum koma að vinna að þeim af
heOindum. Mér finnst þetta vera
grundvaOarspurning sem stjórnvöld
verða að taka ákvörðun um.“ Ásgeir
segir að Grensásdeildin sé í raun og
vera ódýr deOd í rekstri en hins
vegar mjög arðbær. í grannlöndun-
um sé lögð rík áhersla á endurhæf-
inguna og að skerða hana ekki þar
sem að hún skili sér fljótt út í þjóð-
félagið og komi bæði því og viðkom-
andi einstaklingum til góða.
-SÁ
Grensásdeild, endurhæfingarl
deOd Sjúkrahúss Reykjavíkur, er i
tveggja hæða byggingu en aðeins
önnur hæðin er nú í notkun og vart
hægt að segja að hún sé fuOnýtt.
„Það má sjálfsagt deila um það
hvort það sé lokað vegna fjárskorts,
vegna skorts á hjúkranarfræðing-
um eða vegna þessa eða hins. Það er
hægt að skilgreina það mismunandi
en aOavega er lokað og á meðan bíð-
ur fólk eftir endurhæfingu, bæði
niðri á Landspítala og Borgarspít-
ala,“ segir Ásgeir B. EOertsson yfir-
læknir. Hann segir að nú í júlí og
ágúst sé aðeins hægt að hafa 18 end-
urhæfingarpláss opin og þegar ekki
sé hægt að taka við því fólki sem
þarfnast endurhæfíngar, þá muni
það leiða til þess að starfsemin
koðni niður smám saman.
„Helst vildum við hafa hér allt á
fullu og þjóna bæði Sjúkrahúsi
Reykjavíkur og Landspítalanum
eins og við mögulega getum,“ segir
Ásgeir. Það sé hins vegar þröngur
Qárhagur stofnunarinnar í heild
sem komi í veg fyrir að
Grensásdeildin geti starfað með
fuOum afköstúm. -SÁ
VESTURBÆR • HÖFÐABAKKI • KOPAVOG^
eitt símanúmer
18 tommu Pizza með 2 áleqqstequndum
16 tommu Pizza með 2 áleqqstequndum
12 tommu Pizza með 2 áleaasteaundum
OPIÐ
tii kl. 01:00
virka daga
og til kl. 05:00
um helgar
•Jjölskylda <ij tonuitrorum | p L
v V i s s k a 11 !
2 lítrar wM? W'ðca á aðeins 150 kr
Uin klakann/
^ón Bakan