Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ1996 Fréttir Bullandi óánægja flugumferðarstjóra með vinnuaðstöðuna 1 nýja húsnæðinu: Frekar hugsað um tækin en heilsu starfsmanna - erum nýfluttir inn og margt ógert, segir Ásgeir Pálsson Nýtt húsnæöi flugmálastjórnar DV-mynd PÖK „Hér er allt boltað niður, vinnu- borðin heilsmíðuð þannig að þau er hvorki hægt að hækka né lækka. Tölvuskjánum er ekki hægt að breyta og það eitt er á skjön við allt sem verið er að leggja áherslu á í sambandi við vinnuaðstöðu fólks í dag. Hér vinna um 45 flug- umferðarstjórar, allir misstórir, og það segir sig sjálft að það getur ekki talist gott að þeir vinni allir við nákvæmlega sömu aðstæðurn- ar,“ segir flugumferðarstjóri í samtali við DV en bullandi óá- nægja ríkir meðal starfsmanna með aðbúnað í nýju húsnæði flug- málastjórnar. DV ræddi við nokkra flugumferðarstjóra en eng- um fannst þeir vera í réttri að- stöðu til þess að tala undir nafni. Maöurinn lifir lengur en tækin Skammt er síðan flugmálastjórn tók nýja húsið í notkun en það hef- ur verið í byggingu í um þrjú ár. Að sögn mannsins horfa menn gjarna til aðstöðunnar í Gufunesi til sam- anburðar en hún var tekin í notkun fyrir fjórum árum. Þar eru öll borð á vökvalyftum þar sem hver og einn stillir inn lykilorð sitt og borðið fer í þá stillingu sem búið er að ákveða fyrir hvern og einn. Samkvæmt upplýsiiigum DV ger- ir flugmálastjórn út á undanþágu sem byggist á því að hönnun búnað- arins hafi tekið sex ár. Borðin verða að vera lokuð til þess að geta þétt með fram öllum skjám. Með því næst yfirþrýstingur og þar með betri kæling á tækin. „Þetta finnst okkur alveg hlálegt því þarna er verið að taka tækin fram yfir heilsu starfsmanna. Tæk- in eru afskrifuð á átta til tíu árum á meðan flugumferðarstjóri starfar í 35 til 40 ár,“ segir maðurinn. Ekki í gallabuxum Auk þess að vera óánægðir með vinnuaðstöðuna þykir mönnum sem ekki sé nægilega vel hugsað um aðra aðstöðu fyrir starfsmennina, hvildaraðstöðu ekki síst. „Starfi flugumferðarstjóra fylgir álag og streita og því ætti vinnuum- hverfið að vera þannig að það vegi upp á móti álaginu. Það vantar öll notalegheit, hvort sem það er í vinnusalnum eða þar sem menn geta sest niður og tekið það rólega. Keypt hafa verið einhver nýmóðins húsgögn og það er engu líkara en maður sé á biðstofu læknis þegar sest er niður til þess að hvíla sig,“ segir hinn óánægði flugumferðar- stjóri. Heimildarmenn DV segja að nú sé mönnum gert að klæðast ein- kennisfatnaði við vinnu sína. Galla- buxur eru ekki leyfðar og mönnum finnst þetta einkennilegt og þving- andi. Þeir sjá ekki tilgang með ein- kennisfatnaðinum þar sem þeir koma ekki fram fyrir hönd stofnun- arinnar. Frágangi ekki lokiö „Við eru nýfluttir hingað inn og það er langt frá því að lokið sé við allt sem á að gera. Við munum leggja áherslu á að gera salinn hlý- legri og hingað á eftir að koma meira af húsgögnum. Við munum að sjálfsögðu skoða alla sanngjarna gagnrýni og breyta ef upp koma eðlilegar kröfur,“ segir Ásgeir Páls- son, framkvæmdastjóri flugumferð- arþjónustunnar. Ásgeir sagði varðandi klæðnað- inn að það mál væri ekki frágengið en eins og væri giltu þarna ákveðn- ar reglur, að fólk væri snyrtilegt í vinnunni. Eftir að flutt hefði verið í nýja húsnæðið hefði mönnum þótt ástæða til þess að skerpa á reglum sem fyrir voru en ekki verið farið eftir þeim fyrr en nú. „Það er ekki verið að tala um að menn þurfí að vera eitthvað sér- staklega fínir en okkur finnst ástæða til þess að halda hér ákveðn- um gæðastandard. Gallabuxurnar falla ekki innan þess ramma,“ segir Ásgeir Pálsson. -sv 100.000 tonn 90.000 86.896 80.000 - 70.000 60.000 50.000 40.000 30.000 20.000 10.000 0 9L192 laijajiniiilir - afli fiskveiðiáriö 1995/1996, bráóabirgðatölur - 70.670 62.455 63.000 52.606 56.139 4L968 32.620 26265 17.678 15.995 Þorskur Ysa Ufsi Karfi Grálúða Úthafs rækja U Uthlutaðar hemildir Afli tii kvóta Humar OV Bráöabirgöatölur frá Fiskistofu yfir úthlutaöar aflaheimildir og afla til kvóta. Allar tölur, nema um karfa, miöast viö slægöan fisk. Metafli á fiskveiöiárinu: Þakkaö auknum botnfiskafla og góðri loönuvertíð Frá áramótum er heildarafli landsmanna orðinn um 1.200 þús- und lestir og er það um 18 prósent- um meiri afli en á síðasta ári. Verð- mæti þessa afla upp úr sjó er um 28,1 milljarður króna og hefur auk- ist um tæp 5 prósent miðað við sama tíma í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélagsins. í heild er aflinn orðinn um 1.570 þúsund lestir á fiskveiðiárinu, það er september 1995 til júni 1996, og telst það mjög gott aflaár. Hefur afl- inn á fiskveiðiári aldrei verið svo mikill frá því farið var að skipta ár- inu í sérstök fiskveiðiár. Er það þakkað aukningu í botnfiskafla og mjög góöri loðnuvertíð. Þorskafli hefur aukist um rúm 8 prósent á fískveiðiárinu miðað viö sama tíma í fyrra, steinbeitur um 23 prósent, úthafskarfi hefur tvöfaldast og annar botnfiskur aukist um tæp 22 prósent. Hins vegar hefur ýsa dregist saman um tæp 18 prósent en ufsi um rúm 18 prósent. Karfi hefur dregist saman um rúm 9 prósent og grálúða um rúm 15 prósent. Botnfiskur í heild er um 408 þús- und lestir og eykst um tæp 4 prósent frá fyrra flskveiðiári, samkvæmt tölum frá Fiskifélaginu. Loðna eykst verulega frá fyrra fiskveiðiári eða um tæp 46 prósent en síldin dregst saman um 4 prósent. Varöskipiö Ægir hefur veriö í slipp á Akureyri aö undanförnu þar sem m.a. hefur veriö unniö aö botnhreinsun á skipinu auk ýmissa annarra lagfæringa. Myndin var tekin í gær en þá unnu starfsmenn stöðvarinnar baki brotnu viö aö mála skipiö aö nýju. DV-mynd gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.