Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Blaðsíða 28
Alla laugardaga Vertu viðbúin(n) vinningi! Vinningstölur 18.7/96 (MMís) 21) 24 25 KIN FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst.óháð dagblað FOSTUDAGUR 19. JULI 1996 Helgarblað DV: Stjarna og Ijósmyndari í Helgarblaði DV á morgun kenn- ir ýmissa grasa. Opnuviðtalið er við íslenskan ljósmyndara sem býr í Sádí-Arabíu ásamt eiginmanni og bömum auk viðtals við íslending, sem er nýjasta stjaman hjá tísku- hönnuðinum Calvin Klein. Rætt er við Norðmann, sem fang- aði risaskjaldböku á Húnaflóa, nýr íslenskur leikari í erlendri sjón- varpsþáttaröð er kynntur og sagt •frá ævintýraför bosnísks drengs niður Hvítá auk spurningakeppn- innar og fréttaskýringa af ýmsu tagi. -GHS Kartöflur á lægra verði I gær lækkaði verð á íslenskum kartöflum Verulega. Matthías Guð- mundsson hjá Ágæti, afurðasölu garðyrkjubænda, segir það vera vegna stórverðlækkunar eins bónda sem selur verslunarkeðjunni Þín verslun. Hann býst þó ekki við að verðlækkunin haldi nema í nokkra daga og „Nú þegar hafa kartöílu- —bændur hætt að senda inn til okkar afurðir því þeir neita aö selja á þessu verði.“ Matthías segir verðið hafa fallið úr um 250 kr./kg í um 100 kr./kg. Verðkönnun DV í gær leiddi í ljós að Bónus bauð lægsta kíló- verðið, 79 kr./kg. -saa Stálu tveim- ur tjöldum Lögreglan i Reykjavík gómaði tvo menn við JL-húsið laust eftir mið- nætti í nótt eftir að þeir höfðu stolið tveimur tjöldum frá Seglagerðinni Ægi. Ekki var vitað á hvaða ferð mennirnir voru en þeir gengust við verknaðinum og var síðan sleppt. -sv PAÐ HEFUR PA BARA VER\Ð TJALDAE) JIL EINNAR NÆTUR! Dekkjatilraunin stórhættuleg, segja hjólbarðaverkstæðin: Heilu fjölskyld urnar i haska a þjóðvegunum - tilrauninni er lokið, segir Vegagerðin „Þetta er bara bull og ekkert annað og að mínu mati alveg fár- ánlegt að opinber stofhun skuli vera að standa fyrir öðru eins. Bíl- stjórarnir á flutningabílunum setja sjálfa sig í stórhættu og um leið heilu fjölskyldurnar sem eru á ferð á vegunum. Vegagerðinni er fullkunnugt um þetta álit hjól- barðaframleiðenda. Hún bað um skriflega uppáskrift frá þeim en ég efast um að nokkur hafi svarað fyrirspuminni, hún var svo fárán- leg,“ segir Magnús Arnarson dekkjasérfræðingur í samtali viö DV um tilraun Vegargerðarinnar og flutningafyrirtækja á Vestfjörð- um um að minnka þrýsting í dekkjum bílanna til þess að minnka álag á vegunum. Magnús segir að allir bíleigend- ur finni það á eigin bíl að við ákveðinn þunga þurfi ákveðinn þrýsting. Ef lint sé í dekkjunum verði miklu meira álag á þeim, þau sjóðhitni og hætt sé við að þau springi. „Þetta var auðvitað bara tilraun og við lítum i raun svo á að henni sé nú lokið. Nú bíðum við bara eft- ir skýrslu frá bílstjórunum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við próf- um þessa hluti en það eru svo margir óvissuþættir í þessu að ég á erfitt með að fullyrða hvort hætta kunni að stafa af þeim. Vita- skuld mátti búast við að hún væri einhver," segir Sigurður Hauks- son, forstöðumaður rekstrardeild- ar Vegagerðarinnar. í DV í gær var haft eftir for- svarsmönnum flutningafyrirtækj- anna á Vestfjörðum að þeir hygð- ust auka þrýstinginn í dekkjunum að nýju og draga sig út úr þessari tilraun þar sem þeir óttuðust að af þessu gæti stafað nokkur hætta. Hvellsprungið hefur á framdekkj- um tveggja bíla með þeim afleið- ingum að annar valt en hinn ók út í sjó. Sigurður segir Vegagerðina hafa verið að prófa þetta á sínum bílum og sér sé ekki kunnugt um að svona nokkuð hafi gerst hjá þeim. Aðspurður hvort yfirhöfuð sé skynsamlegt að fara niður fýrir þann lágmarksþrýsting sem dekkjaframleiðendur mæla með segir Sigm-ður að mælingar fram- leiðendanna miðist við verstu skil- yrði í miklum hita á hraðbrautum út i heimi. Hér sé miklum mun kaldara og ekið sé hægar. Dekkin ættu því að þola minni þrýsting hér en ytra. -sv lönaöarmenn vinna nú höröum höndum viö aö gera hina nýju skrifstofu forseta íslands tilbúna í húsinu aö Sóleyj- argötu 1 sem ríkiö fésti kaup á nýlega. Ólafur Ragnar Grímsson mun þó fyrst um sinn sinna embættisstörfum sín- um í Stjórnarráöshúsinu því Ijóst er aö nýja skrifstofan mun ekki veröa tilbúin þann 1. ágúst þegar innsetning hans fer fram. DV-mynd Pjetur Veörið á morgun: Hlýjast austan- lands Á morgun lítur út fyrir hæga suðvestlæga eða breytilega átt. Suðvestan- og vestanlands verð- ur skýjað með köflum en víða bjartviðri í öðrum landshlut- um. Hiti verður á bilinu 10 til 18 stig, hlýjast austanlands. Veöriö í dag er á bls. 36. Fannst látinn undir bílalyftu Eldri maður fannst látinn undir bílalyftu á bifreiðaverkstæði á Ak- ureyri í gær. Talið var að maðurinn væri látinn þegar að var komið og er ekki talið að lyftan hafi verið völd að dauða hans. Að sögn lögregl- unnar á Akureyri siga lyftur af þessari gerð smám saman rólega niður. Málið er í rannsókn. -sv Esso á mat- vörumarkað Olíufélagið hefur að undanfomu verið að breyta hlutverki stærstu bensínstöðva sinna og feta sig að matvörumarkaðnum. Þessar bens- ínstöðvar hafa nú verið aðgreindar frá öðrum Esso-stöðvum með nafn- giftinni hraðbúðir Esso og verða fimm verslanir formlega opnaðar i dag í Reykjavík. Að sögn Þórólfs Ámasonar, framkvæmdastjóra markaðssviðs, er búðunum ekki ætlað að taka yfir heildarinnkaup heimilanna heldur verið að full- nægja þörfum þeirra sem vilji gera hagkvæm innkaup á skömmum tíma. „Við höfúm stundum þurft að slást við heilbrigðiseftirlitsreglur en með því að gera verslanirnar hreinni og betri höfum við fengið leyfi til að versla með olíu- og mat- vörur saman, likt og stærri mat- vöruverslanirnar geta verslað með olíuvörur,“ segir Þórólfur. Hvað vöruúrvalið varðar segir hann þó að þeir verði að vera með innpakk- aðar vörur. Ekkert er þó því til fyr- irstöðu að t.d. ferskt grænmeti verði til sölu. Þórólfur telur verslanimar vera vel samkeppnishæfar í verði enda séu þær aðilar að innkaupa- sambandi og njóta viðskiptakjara í krafti stærðar sinnar sem Esso- keðja um landið. -saa Sigrún Pálína: Rúmlega 200 bréf til presta „Ég segi í þessu bréfi mína sögu „Eg segi í þessu bréfi mina sögu nákvæmlega og hvað raunverulega gerðist, bæði fyrir 18 ámm og síðan þróun málsins eftir það. Þetta er ná- kvæm lýsing og persónulegar upp- lýsingar, m.a. hvar hann snerti mig,“ sagði Sigrún Pálína Ingvars- dóttir sem hefur nú sent út rúmlega 200 bréf til íslenskra presta, bæði hér heima og erlendis. Þar lýsir hún meintri kynferðislegri áreitni bisk- ups í smáatriðum. „Ég vil ekki segja meira frá inni- haldi bréfsins að svo stöddu því þetta er trúnaðarbréf. Ég hef fúndið á prestum að þeir vita ekki stað- reyndir málsins nema það sem hef- ur verið sagt í fjölmiðlum en í bréf- inu segi ég mun nákvæmar frá at- vikum í þessu máli,“ sagði Sigrún Pálina. -RR emoioIi a.sstOc 533-1000 Ertu búinn aö panta? 0 14>» dagar til Þjóðhátíðar FLUGLEIÐIR Innanlandssími 50 - 50 - 200 4 4 i i i i i i i i i i i i i 4 4 4 4 4 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.