Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EVJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aóstoöarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaöaafgreiósla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. ÁskriftL 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Slátrarinn frá Tbílísí Þrátt fyrir margfræg veikindi hins endurkjörna for- seta Rússlands, sem höföu m.a. í för með sér skyndileg- ar breytingar á dagskrá heimsóknar varaforseta Banda- ríkjanna, hefur Boris Jeltsín náð að koma Rússum sem og Vesturlandabúum á óvart með vali sínu á mönnum í sum lykilembætti í rússneskri stjómsýslu. Fyrir nokkrum dögum var tilkynnt að einn helsti for- göngumaður einkavæðingar síðustu fimm árin, Anatólí Sjúbaís, yrði starfsmannastjóri Jeltsíns og um leið einn nánasti ráðgjafi á sviði innanríkismála. Þessu var afar vel tekið á Vesturlöndum, og meðal frjálslyndari afla í Rússlandi sjálfu, en þar er Sjúbaís ýmist dáður eða hataður fyrir framkvæmd einkavæðingar ríkisfyrir- tækja sem hann stýrði á vegum fyrri ríkisstjórnar. Skip- an hans í slíka áhrifastöðu er af sumum talin staðfesting þess að áfram verði haldið á braut aukins frjálsræðis og samkeppni í atvinnulífmu, þótt Sjúbaís hafi tekið skýrt fram að stjóm efnahagsmálanna verði ekki á sínu valdsviði. Sjúbaís, sem er aðeins ríflega fertugur, er einn fárra forystumanna úr hópi frjálslyndra umbótamanna síð- ustu ára sem fá tækifæri til að gegna mikilvægum hlut- verkum á nýju kjörtímabili Jeltsíns. Forsetinn rak hann reyndar úr embætti fyrir aðeins nokkrum mánuðum og sakaði hann m.a. um að hafa nánast gefið sum ríkisfyr- irtæki. Þegar harðnaði á dalnum í kosningabaráttunni þurfti Jeltsín hins vegar mjög á skipulagshæfileikum Sjúbaís að halda til að ná endurkjöri sem forseti. Sú þörf er ekki síður brýn nú þegar forsetinn er meira og minna frá vegna veikinda sinna. Vestrænir stjómmálamenn voru rétt búnir að fagna skipun Sjúbaís í embætti starfsmannastjóra þegar Jeltsín tilkynnti að einn alræmdasti hershöföingi Rúss- lands myndi taka við embætti vamarmálaráðherra. Igor Rodionov er að vísu virtur innan rússneska hersins, en annars staðar gengur hann gjarnan undir nafninu „slátrarinn frá Tbílísí“ vegna þeirra hryðjuverka sem sovéskír hermenn undir hans stjóm frömdu í Georgíu á síðustu tímum Sovétríkjanna. Þann 9. apríl árið 1989 gekk almenningur, sem krafðist sjálfstæðis þessa sov- étlýðveldis, fýlktu liði í höfuðborginni Tbílísí. Hermenn Rodionovs réðust að þessari friðsömu mótmælagöngu vopnaðir skóflum sem þeir létu dynja á saklausum borg- urum þar til um tuttugu þeirra lágu í valnum. í Georg- íu, sem fékk sjálfstæði tveimur árum síðar, er þessa dags alltaf minnst með hryllingi, og sömuleiðis „slátrarans“ sem nú verður vamarmálaráðherra Rússlands að kröfu hins nýja öryggisstjóra Jeltsíns, Alexanders Lebeds, en hann virðist stöðugt treysta sig í sessi. Ljóst þykir af atburðum síðustu daga að Borís Jeltsín er að safna í kringum sig nokkrum sterkum og metnað- arfullum mönnum sem koma úr mjög ólíkum áttum stjórnmálalega séð. Vart er hægt að ímynda sér meiri andstæður en Lebed og Sjúbaís, og á milli þeirra stend- ur svo Tsjernomyrdin forsætisráðherra. Hin daglega stjórn Rússlands næstu misserin mun fyrst og fremst mæða á þessum mönnum, ef að líkum lætur, þar sem Jeltsín virðist sjálfur lítt fær um að gegna því hlutverki. Stjórnmálaskýrendur virðast eiga erfitt með að átta sig á því hvert valdabarátta þessara manna kann að leiða, eða hver þeirra sé liklegastur til að sýna þann slæga refskap og þrautseigju sem þarf til að fýlla tómið að baki hins sjúka forseta. Það getur ráðið úrslitum um hvert Rússland stefnir næstu árin og skiptir því alla máli. Elías Snæland Jónsson „Fræg af endemum varö Uxahátíöin svokallaða. Amfetamín- og E-pilluballiö hélt svo áfram á skemmtistööun- um í Reykjavík um haustiö." Hættuleg versl- unarmannahelgi hundruð ungmenna hluta af sumartekjum sínum til að kaupa sér í fyrsta sinn E-pillu eða amfetamín. Mest urðu brögð að þessu um verslunarmannahelg- ina og fræg af endem- um varð Uxahátíðin svokallaða. Amfetamín- og E-pilluballið hélt svo áfram á skemmtistöð- unum í Reykjavík um haustið. Við þetta breyttust ung- lingar og ungmenni sem áður voru röskir skemmtanadrykkju- menn og -konur í fikna amfetamínneytendur. Um haustið flosnaði margt af þessu fólki „Stór hópur ungs fólks mun leita nýrra ævintýra nú um verslunar- mannahelgina. Með haustinu sæk- ir það svo í fyrsta skipti skemmti- staðina í Reykjavik. Mikið er í húfi að ekki fari á sömu leið og í fyrra.“ Kiallarinn Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á sjúkrahúsinu Vogi og formaður SAA Eitt viðamesta forvarnarstarf sem unnið er í landinu er í því fólgið að koma í veg fyrir að drukkið fólk og fólk undir áhrifum ólög- legra vímuefna fari sjálfu sér og öðrum að voða. Venjulega er þetta starf að mestu unnið í mið- borg Reykjavíkur. Á sumrin, einkum um verslunar- mannahelgina, verður að vinna þessi störf á svokölluðum útihá- tíðum. Unglingar og ungmenni safn- ast þá saman fjarri foreldrum sínum beinlínís til þess að nota vímuefni. Á slíkum hátíðum verður óbætanleg- ur skaði ár hvert. Unglingar og ung- menni slasast, verða fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi og margir verða fyrir óbætanlegu tjóni eða láta jafn- vel lífið. En þetta eru auðvitað engar nýjar fréttir. Nýju fréttirnar Nýju fréttirnar eru þær að stór- aukið framboð af amfetamíni, sem nú er aðgengilegt yngra fólki en dæmi eru um áður, kemur þessum vanda á nýtt og mun hættulegra stig. Um þetta leyti í fyrra notuðu upp úr vinnu og skóla og leitaði sér meðferðar í fyrsta sinn hjá SÁÁ. Ekki er enn séð fyrir endann á þessum vanda og þrátt fyrir góð- an ásetning og vilja sitja ung- menni hundruðum saman í klóm amfetamínsins. Þeir sem sprauta sig með amfetamíni í æð um helg- ar hafa aldrei verið fleiri. Mun hættulegra en áður Stór hópur ungs fólks mun leita nýrra ævintýra nú um verslunar- mannahelgina. Með haustinu sæk- ir það svo í fyrsta skipti skemmti- staðina í Reykjavík. Mikið er í húfi að ekki fari á sömu leið og í fyrra. Full ástæða er til að allir geri sér grein fyrir því að það er mun hættulegra en áður að unglingar og ungmenni séu ein að þvælast á vafasömum útihátíðum 1 sumar. Það er ekki bara áfengi sem þau bragða þar í fyrsta skipti heldur einnig amfetamín, E-pilla og önn- ur ólögleg vímuefni. Þar eru ung- mennin jafnframt að sprauta sig í æð í fyrsta skipti. Með lögreglunni Það verður að snúast til varnar og benda má á margt sem hægt er að gera. Kalla verður þá sem leyfa, skipuleggja og halda útihátíðir til frekari ábyrgðar og ætlast til að betur fari nú en áður. Til þess þarf að halda uppi leit að vímuefnum og gera þau upptæk áður en fólki er hleypt inn á útivistarsvæðin. Áfengi verður síðan að taka af þeim sem ekki hafa aldur til þess að nota það hvar sem í það næst og aka þeim ölvuðu heim til sín í snatri. Almenningur verður að leggjast á eitt með lögreglunni til að af- stýra stórslysum á borð við Húna- vershátíðir og Uxahátíð. Foreldrar mega ekki leyfa ungmennum að þvælast eftirlitslausum um helgar og alls ekki nú um næstu verslun- armannahelgi, því það er þá sem vímuefhanna verður neytt. Þórarinn Tyrfingsson Skoðanir annarra I þágu Islendinga „Á þriðja þúsund hermanna frá ríkjum Friðar- samstarfsins munu æfa viðbrögð við öflugum og mannskæðum jarðskjálfta á íslandi. Slíkar náttúru- hamfarir geta dunið yfir á íslandi þegar minnst var- ir, eins og reynsla fyrri alda sýnir. Ef slikt gerist - sem við vonum auðvitað að verði ekki - er nánast óhjákvæmilegt að alþjóðleg aðstoð verður að koma til . . . Með æfingunni leggur ísland þannig sitt af mörkum til Friðarsamstarfsins og tryggingar friði og stöðugleika . . .“ Úr forystugrein Morgunblaðsins 18. júlí Forðumst forgangsröðun „Það er hættuleg hugsun að telja að við verðum að setja upp nýtt forgangsröðunarkerfi einfaldlega vegna þess að nú þegar búum við við forgangsröðun sem bærileg sátt er um . . . Við eigum að forðast að byggja upp kerfi í kringum jafn flókna hluti og for- gangsröðun. Það ómennskasta sem við getum gert er að reyna að búa til mælistikur byggðar á kerfisbund- inni rökhugusn sem eiga að leiða okkur að einni og óumdeildri niðurstöðu.“ Sigurður Már Jónsson í Viðskiptablaðinu 17. júlí. Fáránleiki laganna „í Alþýðublaðinu á þriðjudag birtist auglýsing frá Budweiserumboðinu á Islandi þar sem neytendur eru hvattir til að sýna hagsýni og enda dæmið „með réttri útkomu“. Sama auglýsing hefur birst oftar en einu sinni í Morgunblaðinu. Innflytjendur áfengis hafa einatt auglýst vöru sína með svipuðum hætti, og farið þannig að ystu mörkum hins opinbera aug- lýsingabanns sem gildir um áfenga drykki. Með þessu eru umboðsmenn áfengis náttúrlega fyrst og fremst að afhjúpa fáránleik laganna og þann tví- skinnung sem í þeim felst.“ Úr forystugrein Alþýðublaðsins 18. júlí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.