Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Qupperneq 3
skerpti textavarp. MIÐVIKUDAGUR 24. JULI1996 Fréttir Undirbúningur fyrir komandi kjarasamninga hafinn hjá Verkamannasambandinu: Krafa um launahækkun hefur algeran forgang - segir Björn Grétar Sveinsson sem fór um landið og hélt þrjátíu fundi „Þaö sem við vorum að gera með þessari fundaferð var að fara yfir og kynna nýju lögin um stéttarfélög og vinnudeilur. Síðan voru rifjaðar upp hinar ýmsu stærðir sem gefnar höfðu verið út i fyrra eins og þegar kjaradómur færði ráðherrum og öðrum embættismönnum allt að sextíu þúsund króna launahækkun á mánuði. Ég fór einnig yfir skýrsl- una sem Útflutningsráð i samvinnu við iðnaðarráðuneytið gaf út í fyrra og sendi fjárfestum um allan heim. Þar segir að á íslandi sé ódýrasta vinnuafl í allri V-Evrópu og að laun og launatengd gjöld séu hér lægri en þekkist í nálægum löndum. Það er þvi alveg öruggt mál að bein launa- hækkun verður krafa númer eitt, tvo og þrjú í komandi kjarasamn- ingum. Ég benti líka á að fordæmið hafi komið í gegnum kjaradóm í september í fyrra,“ sagði Björn Grétar Sveinsson, formaður Verka- mannasambandsins, við DV. Hann sagðist líka hafa farið yfir tvær skýrslur, annars vegar þá sem Edda Rósa Karlsdóttir vann fyrir Verkamannasambandið um saman- burð launa hér og í Danmörku, hins vegar skýrslu sem forsætisráðherra lét vinna um sama efni og staðfesti skýrslu Eddu Rósu. í þessum tveim- ur skýrslum komi meðal annars fram að íslenskt verkafólk þurfi að vinna allt að þremur mánuðum meira á ári en danskt til að hafa sömu laun. „Við hófum þessa fundaferð skömmu eftir að þingi Alþýðusam- bandsins lauk. Hún stóð yfír í rúm- an mánuð og við héldum þrjátíu fundi með stjórnum og trúnaðar- Arásarmaður laus úr haldi Maðurinn sem barði konu og mann í höfuðið með hafnabolta- kylfu í húsi í Hafnarfirði aðfaranótt mánudags hefur verið látinn laus. Að sögn lögreglu mun maðurinn hafa komið aö húsinu og virtist eiga einhver mál óuppgerð við húsráö- endur. Hann sló í höfuð konu sem býr í húsinu og karlmanns sem þar var gestkomandi. Fólkið slapp með skrámur og skurði og lét maðurinn sig hverfa. Siðar um nóttina fréttist af honum á veitingahúsi í Reykja- vík og var hann handtekinn þar. Hann var í haldi lögreglunnar um hríð, en var látinn laus eftir yfir- heyrslur. Málið er upplýst. -sv Hjálmurinn brotnaði en bjargaði barninu Talið er fullvíst að reiðhjóla- hjólmur níu ára pilts muni hafa bjargað miklu þegar keyrt var á hann á Norðurlandsvegi við Akur- eyri í fyrradag. Pilturinn var að hjóla með pabba sínum, pabbinn á undan og strákur- inn á eftir, og er talið að strákur hafl sveigt inn á veg og fyrir bíl sem kom á eftir. Bíllinn skall aftan á hjólinu og strákurinn kastaðist upp á framrúðuna. Að sögn lögreglunn- ar er hann nokkuð mikið skrámað- ur og marinn en slapp við brot. Eins og áður segir brotnaði reiðhjóla- hjálmurinn við höggið. -sv mannaráðum félaga innan Verka- til skiptis formenn hinna ýmsu in muni koma vel undirbúin til bar- kjarasamningar hefjast," sagði mannasambandsins. Með mér voru deilda innan VMSÍ. Ég held að félög- áttunnar í haust eða vetur þegar Bjöm Grétar Sveinsson. -S.dór Húsgagnahöninnl vBndsh6tða 20 -112 Reykjavík - Sími 5871410y PHIUPS I tilefni Olympfuleikanna i Atlanta 1996: ■-:: PHILIPS 29" PT9131 PHILIPS 29" PT5321 ' Ofj H/ i. (Pro i.ogic) Svartur. flatur BlacK Matrix mynúlanip Si.; !« • cí. iPip5 >»etti getur Nicam stereo oq Tilboð _ I.! PHILIPS 29" PT828 PHILIPS 28" PT4521 Svattur riatur Black Ime Supet n .ndlampi sem qetu allt að 3í> . meiri Svartur, flatur BlacK Matrix myndlampi WfVJl! 1 ’ „-»V' - Nicam stereo sr.erpu . Ow hliodkerf Hraövirkt isl textavarp Tilbod i/ur> i ð jr stgr.: 132.P00 kr stgr.: WVl PHILIPS 29" PT702 SANYO 28" 28SN1 Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO Umboðsmenn um land allt. ALLT AÐ 38 TtL SA MANAOA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.