Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996
Fréttir
Framlag Islands til hjálpar og uppbyggingar í Bosníu og Hersegóvínu 110 milljónir:
Helmingur í fram-
leiðslu gervifóta
Gert er ráð fyrir að Össur hf. og Stoð hf. fái tæpan helming af því fé sem íslenska ríkisstjórnin ætlar að veita til upp-
byggingu í Bosníu og Hersegóvínu til þess að smíða gervifætur fyrir neðan hné. Fyrirtækið Össur hf. hefur hlotið
heimsfrægð fyrir framleiðslu á silíkonhulsu sem valdið hefur byltingu í smíði gervifóta. Hér má sjá þegar ein slík var
mátuð á Dennis Kovacevic á dögunum. DV-mynd GVA
Rlkisstjórnin hefur samþykkt til-
lögu nefndar þriggja ráöuneyta um
hvemig framlagi íslands til hjálpar
og uppbyggingar í Bosníu og Her-
segóvínu verði varið.
Ríkisstjórnin ákvað í mars síðast-
liðnum að framlag íslands yrði 110
milljónir króna. Var 10 milljónum
þegar varið til bráðabirgðaaðgerða
og voru þær lagðar í sjóð hjá Alþjóða-
bankanum til styrktar uppbyggingar-
starfmu.
Að sögn Hilmars Þ. Hilmarssonar,
aðstoðarmanns utanríkisráðherra
sem var formaður nefndarinnar,
leggur hún til að framlagi íslands
verði ráðstafað í samvinnu við Al-
þjóðabankann. Tillögur nefndarinnar
um ráðstöfun fjárins eru þríþættar.
í fyrsta lagi verði boðin aðstoð við
þau fómarlömb styrjaldarinnar sem
misst hafa fætur og fælist hún bæði í
búnaði og tækniaðstoð. Þessari að-
stoð er hægt að koma fljótt og vel á
framfæri og á þessu sviði skara ís-
lensk fyrirtæki fram úr. Lagt er til að
50 milljónir fari til þessa verkefnis.
Hér er fyrst og fremst verið að tala
um gervifætur fyrir neðan hné. Þar er
fyrirtækið Össur ráðandi í heiminum
vegna silíkonhulsunar sem fyrirtækið
er orðið heimsfrægt fyrir. Einnig yrði
leitað tækniaðstoðar hjá Stoð hf. sem
er samsetningarfyrirtæki fyrir gervi-
limi. Alþjóðabankinn hefiir mikinn
áhuga á þessu verkefni. Ekki hefur
verið ákveðið hvort íslendingar veita
allan gervifótinn eða bara hulsuna og
geri síðan það sem eftir er í samstarfl
við bankann. Það er hugsanlegt að
bankinn muni kaupa sjálfur það sem
er fyrir neðan silíkonhulsuna. Hvað
varðar Stoð hf. er verið að athuga
möguleika á að koma upp samsetning-
arverksmiðjum fyrir gervilimi í Bosn-
íu og Hersegóvínu í samstarfi við Al-
þjóðabankann.
Þá er lagt til að veittir verði styrk-
ir, allt að 1,5 milljóna hver. í fyrsta
lagi er það til Blindrafélags íslands.
Það hyggst heQa samvinnu við syst-
urfélög í Bosníu og Hersegóvínu um
söfnun sjóntækja hérlendis.
í öðru lagi er það Stúdentaráð Há-
skóla íslands til söfnunar og flutn-
ings á kennslugögnum til Bosníu og
Hersegóvínu. Þar er um að ræða
bækur, ritfóng, tölvubúnað og ljósrit-
unarvélar. Þetta er gert samkvæmt
ósk Samtaka háskóla í Evrópu um
aðstoð við uppbyggingu háskóla í
landinu.
í þriðja lagi er rætt um að Lyfja-
verslun íslands og Heilsufélagið geri
hagkvæmniathugun á byggingu
dreypilyfjaverksmiðju í Bosníu og Her-
segóvínu. Sú hagkvæmniathugun yrði
gerð í samvinnu við Alþjóöabankans.
Hér yrði um að ræða svipaða lyfjaverk-
smiðju og reist var í Litháen.
Þá er lögð til aðstoð, búnaður og
kennsla á sviði mæðravemdar og
ungbamaeftirlits. Einnig er lagt til
að veita aðstoð við skipulagningu og
framkvæmd ungbamaverndar og
mæðraeftirlits á ákveðnum stöðum í
landinu. Verkefnið yrði unnið í sam-
ráöi viö Banahjálp SÞ og Alþjóðaheil-
brigðisstofhunina. -S.dór
Súðavík:
Plantað fyr-
ir ofan nýja
þorpið
DV, ísafirði:
í kjölfar snjóflóðanna í Súða-
vík 1995 sendi skógræktarstjóri,
Jón Loftsson, bréf til Súðvík-
inga þar sem fram kom að
Skógrækt ríkisins og Skeljung-
ur hf. hefðu ákveðið að gefa
Súðvíkingum skógarplöntur og
veita faglega aðstoð við að
skipuleggja ræktunarstarfið og
ráðgjöf við gróðursetningu í
samráði við heimamenn.
Þann 19. júli fór fram í Súða-
vík afhending á gjöfinni, sjö
þúsund trjáplöntum. Plantað
verður í skógarreit fyrir ofan
nýja þorpið og að hluta í minn-
ingarreit í gamla þorpinu. Fór
athöfnin fram að viðstöddum
sveitarstjóra Súðavíkur, Ágústi
Kr. Bjömssyni, Sigríði Hrönn
Elíasdóttur oddvita, fulltrúum
skógræktarfélaga og Skógrækt-
ar ríkisins með skógræktar-
stjóra, Jón Loftsson, í broddi
fylkingar og fulltrúa Skeljungs,
Halldóri Má Þórissyni.
Gróðursettu fulltrúar gef-
anda og þiggjenda fyrstu plönt-
urnar í nýjan reit í litlum
hvammi við Eyrdalsá sem er
mitt á milli nýja og gamla
þorpsins. Þá bauðst Félag ís-
lenskra landslagsarkitekta til
að annast skipulagningu minn-
ingarreits á snjóflóðasvæðinu
og efndi til samkeppni á meðal
félagsmanna um það verkefni.
-HK
Varð undir
fótum hests
Kona var flutt á slysadeild eft-
ir að hafa lent undir fótum hests
sem hún var að járna í fyrra-
kvöld.
Slysið átti sér stað við bæinn
Útskálahamra í Kjós rétt fyrir
klukkan tíu. Hesturinn mun
hafa fælst með fyrrgreindum af-
leiðingum. Hún var flutt á
Sjúkrahús Reykjavíkur en fékk
að fara heima að myndatöku lok-
inni. Hún mun hafa sloppið með
mar á baki. -sv
Dagfari
Hver á Hveravelli?
Eftir að forsetakosningum lauk
hafa friðsamir íslendingar gert sér
vonir um að þjóðin gæti lifað í sátt
og samlyndi, þó ekki væri nema í
nokkrar vikur yfir hásumarið.
Margir eru í sumarleyfi og í út-
löndum og leggja þrætugimi sína
til hliðar um stundarsakir og láta
sér oftast fátt um finnast þótt þeir
séu ekki alltaf sammála öllu sem
sagt er.
Þessi friösemdarvon var borin
von. Ekki var forsetaslagnum fyrr
lokið en landinn fann sér nýtt
þrætuepli. Nú voru menn komnir
upp í óbyggöir og þrætur hófust
um það hver eigi Hveravelli og
hvað megi þar aðhafast. Eiginlega
snýst þessi deila um það hvort
reisa megi pylsusjoppu í Land-
mannalaugum og hefur þó enginn
beinlínis fyllyrt að hann hyggist
byggja pylsusjoppu. En ef ein-
hverjum skyldi detta það í hug þá
verður að koma í veg fyrir að fram-
kvæmdir hefjist og til að koma í
veg fyrir það verða menn að geta
gert tilkall til Hveravalla og eigin-
lega slá eign sinni á staðinn.
Ferðafélag íslands hefur lengst-
um haft aðstöðu á svæðinu og reist
þar skála og segist bera ábyrgö á
þessum vinsæla ferðamannastað.
Húnvetningar í Svínavatnsdal
og Torfulækjarhreppi hafa bent á
að Hveravellir tilheyri þeirra
hreppsfélögum. Húnvetningamir
hafa löngum haft áhyggjur af at-
höfnum Ferðafélagsins í Land-
mannalaugum, meðal annars bygg-
ingum á friðlýstu landi og hafa séð
ástæðu til að krefjast deiliskipu-
lags á svæðið, svo koma megi í veg
fyrir umhverfisslys á vegum Ferða-
félagsins.
Ferðafélagið hefúr líka talið sér
skylt að gera deiliskipulag af svæð-
inu og nú em fyrirliggjandi tvö
deiliskipulög, bæði í þeim tilgangi
að koma í veg fyrir umhverfisslys.
Ferðafélagið heldur því nefnilega
fram að noröanmenn beri enga
virðingu fyrir þessu ferðamanna-
landi og óttast umhverfisslys ef
Svínavatnshreppur fær að ráða
yfir því landi sem tilheyrir hreppn-
um.
Illt er til þess að vita ef Ferðafé-
lagið stefnir að því að eyðileggja
þessa náttúruauðlind á kostnað
heimamanna með því að slá einok-
unareign sinni á landið um aldur
og ævi og enn þá verra er ef heima-
menn ætla að slá í eign sinni á frið-
lýst landið til að byggja þar sjoppu.
Ef marka má fullyrðingar Ferða-
félagsins er ljóst að pylsusala á
staðunum mun gjörsamlega eyði-
leggja náttúrufar í Landmanna-
laugum og á hinn bóginn hefur
stórrekstur Ferðafélagsins í for
með sér gífúrleg náttúruspjöll að
mati noröanmanna. Talsmenn
beggja aðila eru valinkunnir sóma-
menn svo ekki er ástæða til að
bera brigður á sannleiksgildi full-
yrðinga þeirra um háskann sem
fylgir því að leyfa hvorum aðila að
hafa betur.
Hér er hver að verða síöastur að
bjarga Hveravöllum undan klóm
þessara aöila og nærtækast að rík-
isstjómin láti máliö til sín taka og
slái eign sinni á þetta friðlýsta land
með því að friðlýsa það fyrir Hún-
vetningum annars vegar og Ferða-
félaginu hins vegar. Maður fær
ekki betur séð en hér séu stór-
skaðamenn á ferð, sem eira engu
og bíða þess eins að fá full yfirráð
yfir Hveravöllum til að geta spillt
náttúrunni og náttúruauðlindum
óbyggðanna.
Hér er ekki um það að ræða að
ferðamenn geri neitt ljótt af sér eða
valdi umhverfisspjöllum. Enginn
hefur borið fram þær ásakanir,
heldur em það meintir og ímynd-
aðir eigendur og yfirráðamenn
svæðisins sem liggja undir rök-
studdum gmn um slíka eyðilegg-
ingu. Það er ekkert annað ráð í
stöðunni heldur en það eitt að frið-
lýsa Hveravelli fyrir Húnvetning-
um og Ferðafélagi íslands. Núver-
andi friðlýsing er með öðmm orð-
um ekki nægjanleg fyrr en búið er
að banna þessum aðilum að koma
á svæðið.
Dagfari