Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Page 16
36
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996
íþróttir
DV
Guömundur Benediktsson hefur þótt líklegur marka-
kóngur f 1. deildinni í sumar en nú er hæpið aö sá titill falli
honum í skaut.
Mikiö áfall fyrir KR:
Gummi
missir af
9 leikjum
Ljóst er aö Guðmundur Benediktsson, marka-
hæsti leikmaður 1. deildarinnar í knattspyrnu, leik-
ur ekki með KR-ingum fyrr en í fyrsta lagi í byrjun
september. Hann meiddist á hné í leiknum við ÍA á
sunnudaginn og þarf að gangast undir aðgerð á
þriðjudaginn.
„Ég á að fara í speglun á þriðjudag og þá ætti að
koma í ljós hvort liðþófinn er skemmdur eða hvort
krossbandið hefur skaddast. Það bendir flest til
þess að krossbandið sé jafn stöðugt og það var og
það eru góðar fréttir. Hins vegar er á hreinu að þótt
þetta sé liðþófinn get ég ekki spilað næsta mánuð-
inn. Ef þetta er krossbandið spila ég ekki meira í
ár,“ sagði Guðmundur við DV í gærkvöld.
Fram til ágústloka leika KR-ingar fimm leiki í 1.
deildinni og Evrópuleikina tvo gegn Mozyr frá
Hvíta-Rússlandi. Þá mæta þeir ÍBV í bikamum á
sunnudag og vinnist hann er allt útlit fyrir að þeir
leiki tU úrslita án Guðmundar. Það virðist því fátt
geta komið í veg fyrir að KR-ingar verði án þessa
snjalla leikmanns í næstu 8-9 leikjum. -VS
Framarar steinlágu
- FH skoraði fimm mörk gegn slöku Framliði
Lantana fékk
leyfi til Eyja
Eistnesku meistararnir FC
Lantana komu tU Vestmanna-
eyja I gær en þar mæta þeir ÍBV
í dag í UEFA-bikamum klukkan
18. Lantana vann fyrri leikinn,
2-1.
Flestir leikmanna Lantana eru
landlausir Rússar, með rúss-
neskt vegabréf til bráðabirgða.
Að sögn lögreglu hefði verið
hægt að meina þeim inngöngu í
landið en þar sem um íþróttavið-
burð var aö ræða og staðfesting
hafði fengist frá útlendingaeftir-
litinu í Eistlandi um að þeim
yrði hleypt inn í landið á
ný.fengu þeir að lenda í Eyjum
án athugasemda.
Skagamenn era komnir tU
Makedóníu þar sem þeir freista
þess í dag að verja 2-0 forskot sitt
gegn FK SUeks. -ÞoGu/VS
Fylkir-Breiöablik
Tíunda umferð 1. deUdarinnar
í knattspyrnu hefst í kvöld með
leik Fylkis og Breiðabliks klukk-
an 20. í 2. deUd leika Víkingur og
Þróttur R. og í 1. deUd kvenna
IBA-ÍA, Breiðablik-ÍBV, KR—
Valur og Afturelding-Stjarnan.
Stjarnan missir tvo
sterka í leikbann
Valdimar Kristófersson og
Goran Kristófer Micic úr Stjörn-
unni vora úrskurðaðir í eins
leiks bann í gær og verða ekki
með liðinu í næsta leik í 1. deild-
inni, gegn Fylki. Þrír Þórsarar
verða í banni í bikarleik liðsins
gegn ÍA á sunnudag, Zoran Zik-
ic, Þorsteinn Sveinsson og Birgir
•Þór Karlsson. Sindri Grétarsson,
Skallagrími, og Ásgeir Baldurs,
Völsungi, fengu einnig eins leiks
bann. -VS
2. deild
Fram 9 5 3 1 26-12 18
Skallagr. 9 5 3 1 17-6 18
Þór A. 943 2 11-17 15
Þróttur R. 8 3 4 1 20-15 13
FH 9 3 3 3 14-11 12
KA 9 3 3 3 16-16 12
Víkingur R. 8 2 3 3 12-10 9
ÍR 9 3 0 6 10-22 9
Völsungur 9 2 2 5 12-17 8
Leiknir R. 9 1 2 6 9-21 5
4. deild
B-riöill:
TBR-Haukar 0-7
Víkingur Ó.-Bruni .. 4-1
C-riðill:
Kormákur-Tindastóll. 04
D-riðill:
Leiknir F.-Huginn . .. 3-0
KVA-Sindri 1-1
0-1 Hörður Magnússon (2.)
0-2 Ólafur Björn Stephensen (26.)
0-3 Guðmundur V. Sigurðsson (42.)
0-4 Halldór Hilmisson (46.)
0-5 Guðmundur V. Sigurðsson (55.)
1-5 Ágúst Ólafsson (70.)
FH-ingar sýndu vígtennurnar í
leiknum gegn efsta liði 2. deildar,
Fram, á Valbjarnarvelli í gærkvöld.
Það var ekki að sjá á leik liðanna að
þarna léku efsta liðið og lið sem er í
botnbaráttu. -Framarar fengu að
kenna á frískum FH-ingum sem
voru mættir til leiks til að berjast
en Framarar ekki. Framarar voru
að vísu meira með boltann en
FH-ingar nýttu sínar skyndisóknir
vel. Vörn Framara var hriplek í
leiknum og saknaði liðið þeirra Ás-
geirs Halldórssonar og Sævars Guð-
jónssonar. Það breytti því ekki að
FH-ingar börðust vel og voru vel að
þessum sigri komnir. Þessi sigur
hlýtur að gefa mönnum byr í seglin
fyrir komandi leiki. Framarar töp-
uðu sínum fyrsta leik i deildinni.
Leikur þeirra olli vonbrigðum og
þeir verða að gera betur en þetta
ætli þeir sér að halda toppsætinu
áfram í sumar.
„Liðið sýndi baráttu en á henni
er hægt að fleyta sér langt. Við
vorum minnimáttar fyrir leikinn en
menn höfðu trú á þessu og voru
ákveðnir í að selja sig dýrt. Við
erum í fallbaráttu en við ætlum
okkur út úr henni hið fyrsta,” sagði
Helgi Ragnarsson, þjálfari FH, eftir
leikinn.
Maður leiksins: Guðmundur
Valur Sigurðsson, FH.
-JKS
Landsmótið í golíi:
Jóhann lék
frábærlega
í gær
DV, Eyjum
Keppni í 1. flokki hófst á
landsmótinu i Eyjum i gær. Jó-
hann Kristinsson, GR, lék frá-
bærlega og kom inn á 71 höggi.
Enn lék veðurblíða við mótsgesti
sem lofa hinn frábæra völl Eyja-
manna og umgjörö mótsins sem
þykir sú glæsilegasta sem um
getur á landsmóti.
Fjórir flokkar kepptu í gær og
staða efstu manna er þessi:
1. flokkur karla, 1. dagur:
Jöhann Kristinsson, GR ...........71
Ottó Sigurðsson, GKG..............74
Sigþór Óskarsson, GV..............74
Sváfnir Hreiðarsson, GK...........74
2. flokkur karla, 2. dagur:
Andri Geir Viðarsson, GHD ... 156
Halldór Karl Ragnarsson, GS . .. 160
Sveinbjöm Jóhannesson, GO . .. 162
Guöjón Grétarsson, GV............163
Egill Þ. Sigmundsson, GÍ........163
Björn Halldórsson, GKG ..........163
3. flokkur karla, 2. dagur:
Ölafur Jónsson, GR...............172
Valur B. Sigurðsson, GR.........172
Hjörleifur Þóröarson, GV ........173
Kjartan S. Kristjánsson, GKG . . 173
Gunnar Þórarinsson, GS...........174
1. flokkur kvenna, 1. dagur:
Lilja G. Karlsdóttir, GK .........82
Halldóra Halldórsdóttir, GF .... 83
Jakobína Guðlaugsdóttir, GV ... 85
Erla Adolfsdóttir, GA ............87
Guðfinna Sigurþórsdóttir, GS ... 92
2. flokkur kvenna
Hildur Rós Simonardóttir, GA .. 190
Sigrún R.. Sigurðardóttir, GG .. 192
Kristín Guðmundsdóttir, GR . . . 194
Sigrún Gunnarsdóttir, GR........197
Kristín Magnúsdóttir, GR ........203
Hola í höggi
Jónas Heiðar Baldursson, GR,
sem leikur í 2. flokki, gerði sér
lítið fyrir og fór holu í höggi í
gær. Þetta gerðist á holu 3, sem
er 146 metrar, og Jónas notaði
járn nr. 3. „Ég var ekkert ánægð-
ur með höggið sjálft í byrjun.
Kúlan lenti í hól, hoppaði til
hægri og rúllaði ofan í holuna.
Þetta reddaði deginum því ég
spilaði ekki vel,“ sagði Jónas við
DV.
-ÞoGu
McAllister til Coventry
Gary McAllister, fyrirliði
Leeds í ensku knattspymunni,
er á forarn til Coventry fyrir 300
milljónir króna.
Nielsen til Tottenham
Danski miðvörðurinn Allan
Nielsen er á leið frá Bröndby til
Tottenham fyrir 165 milljónir
króna.
ÍR-ingar úr fallsæti
í fyrsta skipti
1- 0 Guðjón Þorvarðarson (50.)
2- 0 Ian Ashbee (51.
ÍR-ingar unnu í gærkvöldi sinn þriðja sigur I fjór-
um leikjum í 2. deildinni og eru komnir úr fallsæti í
fyrsta skipti í sumar.
Eftir jafnræði í fyrri hálfleik skoraði KA tvö mörk
á innan við mínútu. Eftir það komst KA ekki inn í
leikinn fyrr en undir lokin en þá var það orðið of
seint. Englendingarnir Ian Ashbee og Will Davies
léku sinn fyrsta leik með ÍR og stóðu sig mjög vel.
Þeir eiga eftir að styrkja liðið verulega í sumar. Dean
Martin, landi þeirra hjá KA, fékk að líta rauða
spjaldið fyrir erjur við mótherja undir lok leiksins.
Maður leiksins: Guðjón Þorvarðarson, ÍR.
-JGG
Tvö mörk Hreins
og Þórsarar þriðju
1- 0 Hreinn Hringsson (3.)
2- 0 Hreinn Hringsson (57.)
2-1 Heiðar Ómarsson (63.)
Þórsarar eru komnir í þriðja sæti 2. deildarinnar
eftir sigur á botnliði Leiknis, 2-1, á Akureyrarvelli í
gærkvöld.
Þórsarar voru mun betri allan tímann en voru þó
ekki að leika sannfærandi knattspyrnu. Hreinn
Hringsson skoraði bæði mörkin og hefur því gert sex
af ellefu mörkum Þórsara í deildinni i sumar. Þegar
um hálftími var liðinn varði Guðmundur Þorvalds-
son, markvörður Leiknis, vítaspyrnu frá Davíð Garð-
arssyni á glæsilegan hátt.
Maður leiksins: Páll Pálsson, Þór.
-HÞ/gk
ÞRIR AUKAVINNINGAR
ÞRI'R AÐRIR ÞÁTT-
TAKENDUR —~*a>
MÖGULEIKA
ÁADVINNA ^
GLÆSILEG TEFAL
RAFMA6NSGRILL
CQp
VERTU MEO í SPENNANDI
ÓLYMPÍULEIK DV OG
BRÆD RANNA ORMSSON
ÞAD EINA SEM ÞÚ ÞARFTAÐ
GERA ER AÐ SVARA ÞREMUR
LAUFLÉTTUM SPURNINGUM OG
SENDA 5VARSEÐILINN TIL DV.
ÞÁ ERTU KOMINN í POTTINN
OG GETUR ÁTT MÖGULEIKA Á
AÐ VINNA GLÆSILEGA
VINNINGA.
BDcmnBom
GLÆSILEGIR VINNINGAR í BOÐI FYRIR ÞÁ
HEPÞNUFRÁ SHARP OC TEFAL
DREGIÐ VERÐUR ÚR INNSENDUM SEÐLUM
í LOK ÓLYMPÍULEIKANNA OG HLÝTUR
VINNINGSHAFINN GLÆSILEGT SHARP29'
SJÓNVARPSTÆKI AÐ VERÐMÆTI KR. 149.900.
ÞAÐ ER MEÐ 100 RIDA (HZ) DIGITAL SCAN
TÆKNI SEM GEFUR GLAMPAFRÍA MYND ÁN
TITRINGS. HÆGT ER AÐ HORFAÁTVO ÞÆTTI í
EINU ÞAR SEMMINNI MYND BIRTIST
HUÓÐTÆKNIN ER DIGI TURBO SOUND.
EIGA
A AÐ
TILAÐ NOTA INNI AD
VERDMÆTI KR.9Á50 FRÁ
BRÆÐRUNUM ORMSSON.
HVAR VORU SÍÐUSTU ÓLYMPÍULEIKARNIR HALDNIR (1992)? _
í HVADA ÍÞRÓTTAGREIN KEPPIR EYDÍS KONRÁÐSDÓTTIR Á ÓL? _
HVAD KEPPA MAR6IR ÍÞRÓTTAMENN FYRIR ÍSLANDS HÖND Á ÓL?
BRÆOURNIR
Sendlst tll DV merkt: Ólympíulelkur DV,
Þverholtl 11,105 Reykjavik.
Skllafrestur er tll 6. ágúst.
HEIMILI:
PÓSTNR.: