Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 45 DV William Morris lagði áherslu á vandað handverk eins má sjá á sýningunni. Spássíuskraut, flúradar titilsíd- ur og mynd- skreytingar Nú stendur yfir sýning á verkum breska skáldsins og ís- landsvinarins Williams Morris (1834-1896) í Landsbókasafni ís- lands - Háskólabókasafni. Morr- is var fjölhæfur og afkastamikill maður. Hann var þekktur sem skáld og þýðandi og átti litríkan feril sem listhönnuður og lagði mikla áherslu á vandað hand- verk. Morris kom tvisvar til íslands og hreifst af landi og þjóð. Áhrif af íslandsferðum hans má glögg- lega sjá í síðari tima skáldskap hans. Morris var áhrifamikill bókahönnuður. Hann teiknaði letur sem þykja falleg og læsileg og einnig eru bókaskreytingar hans víðfrægar. Hann lagði mik- ið kapp á að útlit bóka höfðaði Sýningar til fólks og má sjá sýnishom af því á sýningunni, forstöfun, spássíuskraut, flúraðar titilsíð- ur og myndskreytingar. Sýning- in stendur til 15. ágúst og er að- gangur ókeypis. Orgeltónleikar Á fimmtudögum eru hádegistón- leikar í Hallgrímskirkju. Þeir eru haldnir í tengslum við tónleikaröð- ina Sumarkvöld við orgelið sem haldin er í fjórða skipti í sumar. í hádeginu á morgun milli kl. 12 og 12.30 leikur Friðrik Vignir Stefáns- son, organisti Grundarfjarðar- kirkju, á orgelið. Fyrst leikur hann prelúdíu eftir Buxtehude, þá þijá Tónleikar sálmaforleiki eftir Bach og að lok- um gotneska svítu op. 25 eftir franska tónskáldið Leon Boelmann. Friðrik er Akureyringur og hóf nám í orgelleik hjá Hauki Guðlaugs- syni. Hann lauk prófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar og var Höröur Ás- kelsson orgelkennari hans. Löng ferð HÍN Löng ferð Hins íslenska nátt- úrfræðifélags er fjögurra daga ferð noröur á Strandir og um Inn-Djúp dagana 25. júlí til og með 28. júlí. Svo sem venja er ..... 9 ■— Utivera með þessa ferð verður reynt að leggja áherslu á allsherjar nátt- úruskoðun og gera ferðina sem fjölbreyttasta. Lagt verður af staö frá Umferðarmiðstööinni á morgun kl. 9.00. Ráðgert er að gista tvær nætur að Laugarhóli í Bjamarfírði. Síðustu nóttina verður gist að Reykjanesi. Leið- beinendur í ferðinni verða Hilmar Malmquist líffræðingur og Ómar Bjarki Smárason jarð- fræðingur, auk fleiri fræði- manna og staðkunnugra heima- manna sem vonir standa til að verði þátttakendur í ferðinni. Fararstjórar era Freysteinn Sig- urðsson og Guttormur Sigbjarn- arson. Öllum er heimil þátttaka í ferðinni. Hamarsvei Golfskáli HOLA 1 2 3 4 5 6 7 8 : | Gulir 376 133 302 518 283 344 176 251 346 2729 Bláir 347 133 261 450 318 318 171 204 33312420 Rauóir 309 133 261 450 308 308 171 204 323 2364 Par 4 3 4 5 4 4 3 4 4 I 35 HOLA 10 11 12 13 14 15 16 17 18 1 INN ÚT 1 Samt.l Gulir 300 363 146 360 122 264 458 138 44212593 27291 153221 |P£L 4 4 3 4 3 4 5 3 5 | 35 |35j 70 | Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum er vettvangur íslandsmótsins í golfi sem hófst síðastliðinn sunnudag. í dag má segja að mótið hefjist fyrir alvöru en þá hefst keppni í meistaraflokki karla og kvenria og eru allir sterkustu golfarar landsins með. Golfvöllur þeirra Vestmannaeyinga er 18 holu völlur og voru síðari níu holurnar teknar í notkun ffyrir þremur árum. Völlurinn býður upp á fjölbreytni fyrir golfara og er öllum erfiður sem ekki halda sig á braut. Scobie í Kaffi Reykjavík Kaffi Reykjavík er einn þeirra veit- ingastaða sem býður upp á lifandi tónlist á hverju kvöldi. Um helgar eru yfirleitt hljómsveitir sem leika fýrir dansi enda er Kaffi Reykjavík stór staður með dansgólfi og hefur verið einn vinsælasti skemmti- staðurinn í Reykjavík allt frá því hann var opnaður fyrir nokkram árum. Hinn kunni tónlistarmaður, söngvari og gítarleikaii, Richard Scobie, hefúr oft- ar en ekki troðið upp í Kaffi Reykjavík á Skemmtanir virkum dögum og hann skemmti gestum staðarins í gærkvöld og endurtekur hann leikinn i kvöld. Á dagskrá hans era þekkt lög sem flestir ættu að kannast við. Á finuntudagskvöld skemmtir hljómsveitin Spur, á föstudags- og laugardagskvöld er það hljómsveitin Hunang og á sunnudags- kvöld era það félagaranir Grétar Örvars- son og Bjami Arason sem skemmta í Kaffi Reykjavík. Richard Scobie syngur og leikur á gítar í Kaffi Reykjavík í kvöld. Varist steinkast á nýklæddum vegum Helstu þjóðvegir landsins eru vel færir en þó verður að taka tillit til þess að vegavinnuflokkar era víða að lagfæra vegi. Þar sem vinna við Færð á vegum vegi fer fram era yfirleitt hraðatak- markanir og ber bílstjórum að virða þær. Ný klæðing hefur verið sett á marga vegakafla og getur hún vald- ið steinkasti ef hratt er farið og steinkast þýðir einfaldlega skemmd- ir á lakki bílanna sem hægt er að losna við ef hægt er ekið. Hálendisvegir eru allflestir færir. m Hálka og snjór E Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir Q^nfynrstöðu Q] Þungfært (g) Fært fjallabílum Ástand vega Litli bróðir hennar Hebu \ Myndarlegi drengurinn á mynd- inni fæddist á fæðingardeild Land- spítalans 12. júli kl. 10.23. Hann var Barn dagsins við fæðingu 2905 grömm og mæld- ist 52 sentímetra langur. Foreldrar hans eru Sigrún Ólafsdóttir og Fjal- ar Kristjánsson. Eina systur á hann, Hebu, sem er tveggja og hálfs árs. 'iitiín Lauren Holly leikur eina kven- manninn um borð í kafbátnum. í bólakafi Regnboginn frumsýndi um siðustu helgi gamanmyndina í' bólakafi (Down Periscope). í að- alhlutverki er Kelsey Grammer en hann er íslendingum að góðu kunnur úr tveimur sjónvarpss- eríum, Staupasteini og Frasier. Grammer leikur sjóliðsforingj- ann Thomas Dodge sem hefur alltaf dreymt um að stýra full- komnum kjamorkukafbáti. Einn daginn virðist sem draumurinn sé aö rætast þegar hann er kall- aður til sem stjómandi kafbáts. Vonbrigðin verða hins vegar mikil þegar hann kemst að því að kafbáturinn, sem hann á að Kvikmyndir stjórna, er gamall dísilbátur úr seinni heimsstyrjöldinni og áhöfnin sem honum fylgir er samansafn af helstu ómögum sjóhersins. Auk Kelsey Grammer leika í myndinni Lauren Holly, Rob Scheider, Harry Dean Stanton, Bruce Dern og Rip Tom. Leik- stjóri er David S. Ward. Nýjar myndir Háskólabíó: Fargo Laugarásbíó: Persónur í nær- mynd Saga-bíó: í hæpnasta svaði Bíóhöllin: Algjör plága Bíóborgin: Kletturinn Regnboginn: í bólakafi Stjörnubíó: Algjör plága Krossgátan T~ 5“ V n r i- í s 10 77"" 1 Tsr n ir !S \ itt n IÉ 21 l zr 3 Lárétt: 1 helmingur, 6 matar- veisla, 7 tryllir, 8 mynnis, 10 seink- un, 12 fyrirhöfn, 14 hljóðfæri, 16 liða, 18 egg, 20 kyrrðin, 21 Qjótræði, 22 spil. Lóðrétt: 1 háskann, 2 þegar, 3 kirtill, 4 heiðarleg, 5 frístund, 6 hæð, 9 rusli, 11 blaðið, 15 fórnfær- ing, 17 planta, 19 oddi. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 bústnar, 8 eta, 9 eiði, 10 klukka, 11 kipp, 13 kló, 15 traust, 18 reikul, 21 disk, 22 mál. Lóðrétt: 1 bekkur, 2 útlit, 3 saup, 4 tek, 5 nikku, 6 aðal, 7 rif, 12 pakk, 14 ótal, 15 ris, 17 slá, 19 ei, 20 um. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 153 24.07.1996 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollnenqi Dollar 66,050 66,390 67,300 Pund 102,630 103,160 104,220 Kan. dollar 48,130 48,430 49,330 Dönsk kr. 11,5250 11,5860 11,4770 Norsk kr 10,3390 10,3960 10,3630 Sænsk kr. 10,0930 10,1490 10,1240 Fi. mark 14,6240 14,7100 14,4950 Fra. franki 13,1370 13,2120 13,0780 Belg. franki 2,1564 2,1694 2,1504 , Sviss. franki 54,6800 54,9800 53,7900 Holl. gyllini 39,5800 39,8200 39,4500 Þýskt mark 44,4600 44,6900 44,2300 it. líra 0,04371 0,04399 0,04391 Aust. sch. 6,3160 6,3560 6,2890 Port. escudo 0,4321 0,4347 0,4299 Spá. peseti 0,5249 0,5281 0,5254 Jap. yen 0,61270 0,61640 0,61380 irskt pund 106,660 107,320 107,260 SDR 96,22000 96,80000 97,19000 ECU 83,8300 84,3400 83,89000 Simsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.