Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Síða 2
18 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 JLlV Spennanadi námskeið Photoshop myndvinnsla QuarkXPress umbrot FreeHand teiknun Macintosh grunnur Director margmi&íun Heimasí&ugerð Internet Litprentun Bókband og margt fleira. Hringið og bi&jið um námskeiðaskrá http://www.apple.is/prent/ Prenttæknistofnun Sími 562 0720 NUDDNÁM •• Kvöld- og helgarnám hefst þann 2. september næst- komandi Fáein pláss laus Einnig er hægt að sækja um nám sem hefst þann 6. janúar •■ Námiö tekur 11/2 ár •■ Útskriftarheiti: nuddfræðingur •- Námið er viðurkennt af Félagi íslenskra nuddtræðinga *- Nánari upplýsingar eftir hádegi virka daga Nuddskóli Guömundar Smiðshöföa 10, 112 R., s. 567-8921, s. 567-8922, farsími 897-2350, boðtæki 846-5015, fax 567-8923 Uppbyggileg námskeiö Alfa-námskeiðið Vinsælt námskeið um gnmdvallaratriði krislinnar trúar. Kennsla fer frani í fyrirlcstrum og umræðum. Sameiginlegar máltíðir og umræðuhópar. Leiðbeinandi; Ragnar Gunnarsson. Kristniboð ■ hvað, hvers vegna, hvernig? Leiðbeinandi; Séra Kjartan Jónsson. Á gömlum síöum Biblíunnar Leiðbeinandi: Skúli Svavarsson. Bænin í lífi mínu Laugardagsnámskeið - nokkrir flytjendur. Sönn ást bíður - eftir hverju? Umsjón: Séra Guðmundur Kad Brynjarsson. Á meðal barna og unglinga Einkum hugsað fyrir sjálfboðaliða í æskulýðsstarfi. Umsjón: Haila Jónsdótlir Fáid sent fréttabréf skólans | i Biblíuskólinn jj við Holtaveg Holtavegi 28 • S: 588 8899 Áskrifendur fó .?■ w% aukaafsláttof smeK.uBiy.tnoa, smáauglýsingum DV ^ I I / »25 / / skólar og námskeið Hjónabandsskóli hóf starfsemi í sumar: Kennir fólki aðferðir til að leysa ágreining - stuðlar að bættri sambúð og lengri hjónaböndum Hjón sem sóttu Hjónabandsskólann: Hættu við að skilja - lærðu ákveðna samskiptatækni sem virkaði „Markmið skólans er að kenna fölki í sambúð aðferðir til að leysa ágreining á farsælan hátt. Þetta eru aðferðir sem síðan er hægt að nota í miklu víðara samhengi, bæði inn- an fjölskyldunnar, t.d. við unglinga, og á vinnustað," sagði Dr. Halldór Júlíusson, sálfræðingiu- og fram- kvæmdastjóri Hjónabandsskólans. Halldór fer að útskrifa fyrstu nemendur sína fljótlega en hann kennir bara einu pari í einu. „Fólk kynnir sér ákveðið námsefni og ger- ir síðan æfingar undir minni leið- sögn. Aðferðirnar byggja ekki á neinni sérstakri sálfræðikenningu eða viðhorfum til þess hvernig hjónabönd eða samskipti eigi að vera. Þær eru fundnar með athug- unum á fólki sem býr í farsælli sambúð og þeim aðferðum sem þaö notar til að leysa ágreining borið saman við fólk sem er vansælt í sinni sambúð og þeim aðferðum sem það notar. Með þessum rann- sóknum hafa menn komist að því að það er ákveðin aðferðafræði sem nýtist vel til að leysa ágreining og þær aðferðir kenni ég,“ sagði Hall- dór. Kennsla, ekki meðferð Hann mælir með því að fólk komi tvisvar í viku í u.þ.b. 5 vikur, þ.e. 10-12 skipti. Hver kennslustund tekur l-lý2 klst. Hann leggur áherslu á að þetta sé ekki ráðgjöf eða meðferð heldur kennsla. „Ég læt fólk fyrst og fremst fá aðferðar- fræði og tækni til þess að leysa sín mál. í æfingunum tekur fólk fyrir ákveðið vandamál eða ákveðin efni úr sínu sambandi til þess að ræða og ég fylgist með því að það noti þessar aðferðir sem ég kenni svo samræðumar eða samskiptin fari ekki úr skorðum," sagði Halldór. Hann sagðist einna helst fá til sín fólk sem á erfitt með að leysa Dr. Halldór Júlíusson (t.h.) og Haukur Haraldsson reka fyrirtækið Mannheima ehf. sem rekur Hjónabandsskólann og býöur ennfremur upp á fjölbreytt námskeið. Haukur er framkvæmdastjóri fræðslusviðs Mannheima en Halldór er skólastjóri Hjónabandsskóians. DV-mynd Pjetur ágreining sín á milli en hefur jafn- framt mikinn áhuga á að láta sam- bandið ganga. Samskiptavandamál al- gengust „Fólk kvartar mest yfir sam- skiptamálum. Fólk hefur ekki vald á því að leiða ágreining sín á milli til farsællar lausnar. Karlar og kon- ur er t.a.m. ólík og bregðast ólíkt við. Við erum líka með ólíkar vænt- ingar sem við ræðum ekki og leiða til þess að ágreiningur er aldrei leiddur til lykta. Það kemur fram í því að fólki finnst það stöðugt vera að endurtaka sömu ágreiningsmál- in og þegar það er komið inn á ákveðið stig í samræðunum veit það nákvæmlega hvernig þær enda. Þetta bendir til þess að fólk sé með ólíkar væntingar og þurfi að ræða þær.“ Aðspurður hvort námið væri ekki! dýrt sagði hann hverja klukkustund kosta 3.418 krónur. „Hvað er dýrt og hvað er ekki dýrt? Þettá er spurning um það hvemig maðúr virðir sitt einkalíf og for- gangsraðar. Ekki þætti manni það dýrt að láta bílinn sinn í 30 þúsunu króha viðgerð." -ingo „Við vorum eiginlega búin að ákveða að skilja því samskiptin voru það erfið. Þá rákumst við á auglýsingu frá Hjónabandsskólan- um og hugsuðum sem svo að ef þetta gæti hjálpað okkur værum við bæði fús að reyna. Við vissum bæði að þaö þýddi ekkert að halda áfram eins og málin voru og höfð- um engu að tapa,“ sagði Bylgja Björk Guðjónsdóttir. Hún og eigin- maður hennar, Steinar Ólafsson, eru nýútskrifuö úr Hjónabands- skólanum en þangað leituðu þau eftir að hafa átt í stigvaxandi erfið- leikum í hjónabandinu í nokkur ár. Nú, einum og hálfum mánuði siðar, em þau hætt við að skilja. „Við byrjuðum saman sem ungl- ingar en höfum verið gift í 14 ár. Við eigum þrjú börn, tvo unglinga og eitt 8 ára, og okkur fannst við ekki geta boðið bömunum upp á heimilislífið eins og það var orðið. Við vorum alltaf að rifast og kunn- um enga leið út úr því,“ sagði Bylgja. „Það eina sem virkilega bjátaði á hjá okkur var að við kunnum ekki rétt samskipti. Við vorum hætt að hlusta hvort á annað og vorum far- in að túlka hlutina út frá okkar eig- in forsendum eins og viö héldum að þeir væru meintir en vorum e.t.v. ekki vakandi fyrir því hvað hinn aðilinn var raunverulega að segja. Við töldum okkur m.ö.ó. vera búin að reikna hvort annað út,“ sagði Bylgja. Að sögn Bylgju var þeim kennt að tala saman eftir ákveðinni tækni sem hægir á samræðunum þannig að þau hafi stjóm á þeim frá upphafi. „Við höfum talað tölu- vert saman síðan um hluti sem við vomm ósammála um og vorum hætt að ræða. Nú getum við rætt þessi mál og komist að málamiðlun án þess að rífast. Þessi samskipta- tækni hefur líka nýst mér gagnvart börnunum mínum jafnvel þó þau hafi ekki lært hana líka.“ „Mér finnst dapurlegt að hugsa til þess að hjón skilji einfaldlega af því að þau vita ekki hvar eða hvemig þau geta fengið hjálp til að leysa bara einn hluta af samskipt- ,unum, þ.e. tjáskiptin. Ég veit um tjölmörg hjón sem eru í svipuðum sporam og við voram. Þetta fólk þyrfti ekkert að skilja ef það fær réttu kennsluna." Aðspurð sagðist hún ekki sjá eft- ir peningunum. „Ég held að maður eyði í annað eins sér til gamans og ef þú getiu- keypt mun betri sam- skipti um ókomin ár þá er þetta ekki hátt verðlagt." -ingo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.