Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Blaðsíða 9
JjV MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
25
skólar og námsfœið
Fullorðinsfræðslan er fyrir fólk á öllum aldri:
Skoðum einstaka hluti
út frá heildinni
- sárhæfing í að brúa skólamótin, einnig boðið upp á fjar- og fornám
Námskeið - skemmtileg fræðsla í fullri alvöru
Námskeið á naestunni:
• Stjómun - verkstjóm - 90 st. • Leiðbeinendur í gæðastjómun - 24 st.
• Samningatækni - 20 st. • Leiðbeinendur á námskeiðum - 20 st.
• Réttindanámskeið á vinnuvélar - 80 st.
Upplýsingar hjá Iðnæknistofnun,
símar 587 7000 og 587 7440.
Hafið endilega samband! Iðntæknistofnun
„Ég verð stundum var
við að fólk haldi að það
verði að vera a.m.k. ní-
rætt til að fá inngöngu í
skólann. Vissulega var
meira um eldra fólk i
byrjun en í dag höfum
við sérhæft okkur mest í
að kenna fyrstu fjóra
áfanga framhaldsskól-
anna í svonefhdum
kjamagreinum, þ.e.
skólamótin þar sem
barna- og framhaldsskól-
amir mætast. Næsti
þröskuldur er svo á milli
framhalds- og háskóla en
þá höfum við námskeið í
fyrstu árum framhalds-
skóla með t.d. erflðustu
áföngunum í stærðfræði
og efnafræði,“ sagði Örl-
ygur Antonsson, skóla-
stjóri Fullorðinsfræðsl-
unnar.
Hann sagði að eftir að
nýju framhaldsskólalög- Fullorölnsfræðslan býöur upp á fjölbreytt námskeiö fyrir
in tóku gildi þann 1. á öllum aldri og leggur áherslu á að tengja námsefnið
ágúst ættu nemendur heildina.
Fullorðinsfræðslunnar
að geta betur treyst því að fá námið
metið í öðrum skólum. „Þetta er í
fyrsta skipti sem sett hafa verið lög
um einkaskóla en við höfum verið
með sams konar kennslu og fram-
haldsskólarnir og sams konar
áfangalýsingar."
Krakkar sem féllu á samræmdu
prófunum geta líka nýtt sér Fullorð-
insfræðsluna því þar er boðið upp á
fornám á sumrin. Fjamám er annar
kostur sem hentar þeim sem búa úti
á landi eða eiga erfitt með að sækja
skólann að jafnaði. „Nemendur í
prófáföngum þurfa þó að sækja skól-
ann a.m.k. 4 daga í mánuði, að frá-
töldum prófdögum. Fjamámið mið-
ast fyrst og fremst við þá sem hafa
aðgang að alnetinu en fyrir hina
verður stuðst við diskettur fyrir
tölvur, kassettur, faxtæki,
síma og hefðbundnar póst-
samgöngur," sagð Örlygur.
Skólinn býður einnig upp
á grunnám í tölvuvinnslu
og kynningu á notkun al-
netsins. Námskeið fyrir at-
vinnulausa er alltaf vel sótt
og námskeið fyrir ferða-
þjónustu og viðskipti em
svo í boði á helgartímum á
haustönn fyrir starfsfólk og
fyrirtæki í ferðaþjónustu,
svo eitthvað sé nefnt.
Örlygur sagði að skólinn
hefði alltaf verið starfrækt-
ur allt árið, en það eru þrjár
annir á árinu og kennt eftir
áfangakerfi. „Maður er
alltaf að læra um eitthvað
einstakt en það er þó ekki
hægt að skilja það nema
tengja það við einhverjar
heildir. Þegar maður fer að
skilja aðeins heildina fer
maður aftur ofan í einstaka
fólk hluti og út frá þeirri reglu
viö vinnum við,“ sagði Örlygur
að lokum.
-ingo
í stærðfræði
Mikið úrval
reiknivéla
Verð frá:
1.890 kr
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SfMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan:
■ ■
Oll almenn námskeið
um tölvunotkun
ENSKA ER OKKAR MAL
SÉRMENNTAÐIR ENSKIR KENNARAR - LIFANDI NÁMSKEIÐ
Ný námskeið að hefjast, með
áherslu á talmál.
Bæði fyrir byrjendur og lengra
John komna.
Julie
INNRITUN
STENDUR
YFIR
Enskuskólinn
TÚNGÖTU 5 - SÍMI 552 5330, 552 5900
- veitir stigvaxandi afslátt af námskeiðunum
Tölvu- og verkfræðiþjónustan á
Grensásveginum hefur verið með
tölvunámskeið undanfarin tíu ár og
hefur þann skemmtilega sið að
umbuna þeim sem sækja fleiri en
eitt námskeið með því að veita
þeim stigvaxandi afslátt (þó að há-
marki 20%) en að jafnaði sækja
1.600-1.800 manns námskeiðin ár-
lega.
Nú í haust eru í boði öll almenn
námskeið um tölvunotkun, jafnt
fyrir notendur Windows- sem
Macintosh-tölva. Má nefna nám-
skeið eins og Windows ’95, Word,
Excel, Access, Schedule, Cl-
arisWorks, Quark XPress,
Freehand og FileMaker.
Einnig verða í boði námskeið um
forritunarmálið Java og fjöldi al-
netsnámskeiða um notkun Verald-
arvefsins, tölvupósts, fréttahópa
eða sérstök námskeið um vefsíðu-
gerð. Áhersla er einnig lögð á þarf-
ir fyrirtækja og sérfræðinga fyrir
tölvuþekkingu og verða mörg
styttri og lengri námskeið í boði
með áherslu á það. Auk námskeið-
anna veitir fyrirtækið óháða ráð-
gjöf á tölvusviði og býður fyrirtækj-
um og stofnunum jafnframt svo-
kallaða heildarfræðslu fyrir starfs-
fólkið sem er á mun hagstæðara
verði en almenn námskeið.
Fréttabréfi fyrirtækisins, Tölvu-
vísi, er dreift til 20 þúsund aðila 3-4
sinnum á ári en þar er að finna
upplýsingar um námskeið og þjón-
ustu fyrirtækisins auk fróð-
leiksmola um tölvur. Efni hans er á
slóðinni http: //www.tv.is. á ver-
aldarvefnum. -ingo
Námudebetkort, ekkert árgjald í 3 ár
Skipulagsbók
NÁMU-reikningslán
NÁMU-styrkir
Einkaklúbburinn: Ókeypis aðild
Gjaldeyriskaup án þóknunar
Fjármálaráðgjöf
LÍN-þjónusta
iÁMAN - N ámsmannaþjónusta
Landsbanka íslands
~w.
N-A-NI-A-N