Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 28. AGUST 1996
skóiar og námskeið
21
Verkmenntaskólinn á Akureyri:
Mesta framboðið
á fjarkennslu
NAMSKEIÐ HAUSTIÐ ’96
Bútasaumur - föndur
1. Teppi (byrjendur)
2. Skurðartækni, framhald
3. Veggteppi
4. Dúkkur
5. Jóladúkar
6. Jólasveinar
7. Jólateppi
„Við erum sá framhaldsskóli á
landinu sem er með mesta fram-
boðið á fjarkennslu eða rúmlega 20
greinar og 46 áfanga. Nemendur
okkar eru því ekki endilega á ís-
landi og kennararnir ekki endilega
kennarar við skólann. Þeir geta
verið hvar sem er hafi þeir aðgang
að tölvu og því sem fylgir sam-
handi tölva á milli,“ sagði Haukur
Ágústsson, umsjónarmaður fjar-
kennslu Verkmenntaskólans á
Akueyri, VMA.
Haukur segir fjarkennsluna
njóta vaxandi vinsælda þeirra sem
ekki hafa aðstæður til þess að
sækja nám með hefðbundnum
hætti. Námið stendur í um þrjá
mánuði á hverri önn, eins og nám í
almennum framhaldsskólum, og
eru tekin próf í lokin sambærileg
þeim sem lögð eru fyrir nemendur
í almennum framhaldsskóladeild-
um.
„Nemendurnir eru flestir á aldr-
inum 25-45 ára en aldurssviðið nær
þó allt frá fólki innan við tvítugt og
upp í sjötugt. Konur eru u.þ.b. 45%
nemendanna en karlar 55% sem er
öfugt við kynskiptinguna í öld-
Björgunarskóli Lands-
bjargar og Slysavarna-
félagsins:
Námskeið
í ferða-
mennsku
vinsælast
,Við héldum 226 námskeið í
fyrra með rúmlega 3.500 þátttak-
enduni. Björgunarskólinn er rek-
inn sem farandskóli og skólastarf-
ið byggist að mestu upp á nám-
skeiðshaldi fyrir björgunar- og
slysavarnafólk og almenning,"
sagði Markús Einarsson hjá
Björgunarskóla Landsbjargar og
Slysavarnafélags íslands.
Skólinn er nú að hefja sitt
þriðja starfsár en eins og hjá flest-
um öðrum skólum er starfsárið
frá september og fram i júní á
næsta ári. „Má þar m.a. nefna
námskeið um flutning slasaðra,
ofkælingu, stjómun björgunarað-
gerða á sjó og fjögur námskeið
þar sem sérstaklega verður fjallað
um slysavamir. Sum námskeiðin
eru eingöngu ætluð björgun-
arsveitarmönnum og/eöa slysa-
vamafólki en önnur eru almenns
eðlis,“ sagði Markús.
Á meðal námskeiða, sem eink-
um eru ætluð almenningi, má
nefiia ferðamennsku, veðurfræði,
rötun og skyndihjálp. „Ferða-
mennskunámskeiðið og rötunin
eru vinsælust. Þar er fólki m.a.
kennt að nota GPS staðsetningar-
tæki, hvemig það á að búa sig i
ferðalagið og hvað gott er að hafa
í nesti,“ sagði Markús. Auk ann-
arra nýjunga í starfsemi Björgun-
arskólans má nefna ráðstefiiu um
fjallabjörgun sem skólinn stendur
firir í haust. Þar fá þátttakendur
tækifæri til þess að ræða hvað
eina sem viðkemur efninu og
prófa björgunarbúnað.
-ingo
ungadeild þar sem konur eru í
miklum meirihluta," sagði Haukur.
Hann segir flesta nemendurna
ánægða með þann möguleika sem
fjarkennslan hefur opnað og hann
segir þá sérstaklega ánægða með
þá skilaskyldu sem felist í skipu-
lagi námsins því hún veiti þeim að-
hald.
-ingo
VIRKA
Mörkinni 3, sími 568-7477
viö Suöurlandsbraut
Bókaðu þig á fj ármálanámskeið
Búnaðarbankans!
Það er hægt að ná miklum árangri í að lækka útgjöldin
án þess að neita sér um alla ánægjulega hluti, ef fólk lætur
skynsemina ráða í fjármálunum.
Búnaðarbankinn mun standa fyrir röð af námskeiðum um
fjármál fyrir alla aldurshópa. Þátttakendur fá vandaðar fjár-
málahandbækur sem hafa verið samdar sérstaklega fyrir
hvern aldurshóp.
HfclMU.ISI.fm
FjármM hámHisim
Fjármál ungafólksins
Nýtt námskeið sem er sérstaklega
ætlað fólki á aldrinum 16 - 26 ára.
Tekið er á flestum þáttum fjármála
sem geta komið upp hjá ungu fólki I
námi og starfi.
Verö 1000 kr. Innifalin er
Fjármálahandbók fyrir ungt fólk og
veitingar.
Fjármál heimilisins
Þar er fjallað um ýmis atriði sem tengj-
ast heimilisrekstri. Hvernig spara má í
útgjöldum, lánamöguleika, ávöxtunarleið-
ir, heimilisbókhald, áætlanagerð, skatta-
mál, húsnæöislán, kaup á íbúö o.fl.
Verö 2000 kr. (3000 kr. fyrir hjón).
Innifalin er vegleg fjármálahandbók og
veltingar.
Næstu námskeiö:
Miövikudag 11. sept. Fjármál unglinga kl. 15 -18
Miövikudag 11. sept. Fjármál unga fólksins kl. 18 - 22
Fimmtudag 12. sept. Fjármál unga fólkslns kl. 18 - 22
Miövikudag 18. sept. Fjármál helmilisins kl. 18 - 22
Flmmtudag 19. sept. Fjármál ungllnga kl. 15 -18
Mánudag 23. sept. Fjármál heimillsins kl. 18 - 22
Miövikudag 25. sept. Fjármál helmilisins kl. 18 - 22
Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráning eru í síma 525 6343.
Fjármál unglinga
Fjármálanámskeiðið er fyrir unglinga á
aldrinum 12 -15 ára. Þar er leiöbeint
um hvernig hægt er að láta peningana
endast betur, hvað hlutirnir kosta og
ýmislegt varöandi fjármál sem ungling-
ar hafa áhuga á að vita. Þátttakendur
fá vandaða fjármálahandbók.
Ath! Ekkert þátttökugjald. Veltingar.
BÚNAÐARBANKINN
-traustur banki!
YDDA F100.14/SÍA