Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
skólar og námskeið
27
Námsráðgjöf
„Starfið þarf
að veita fólki
lífsánægju,
bæði til þess
að það geti af-
kastað meiru
og til að þaö
tolli í starfi,"
segir Ásta
Kristrún Ragn-
arsdóttir, for-
stööumaöur
Námsráðgjafar
Háskóla ís-
lands.
DV-mynd JAK
veitir 4 þúsund viðtöl á ári:
A
Anægja í starfi er
enginn munaður
„Ánægja í starfl ætti ekki að vera
munaður, það eru vísindalegar
sannanir fyrir því að ef fólk er ekki
ánægt í vinnunni er það mjög lík-
legt til þess að detta út úr starfi eða
námi. Þetta er grunntónninn í allri
náms- og starfsráðgjöf. Starfið þarf
að veita fólki lífsánægju, bæði til
þess að það geti afkastað meiru og
til að það tolli i starfi. Ef fólk fer á
skjön við áhugann og veðjar ein-
göngu á há laun er það samt sem
áður líklegt til að detta út úr starfi,“
sagði Ásta Kristrún Ragnarsdóttir,
forstöðumaður Námsráðgjafar Há-
skóla íslands, í samtali við DV. Alls
eru fimm námsráðgjafar starfandi
við HÍ, þótt þeir séu ekki allir í fullu
starfi, sem svo fá liðsauka frá nem-
endum sem eru að læra námsráð-
gjöf i félagsvísindadeild.
„Til okkar leitar fólk á öllum
aldri, ýmist þeir sem huga á nám
við HÍ, þeir sem eru í námi við há-
skólann, þeir sem eru að leita eftir
endurmenntun eða símenntun eða
fólk sem er að hreyta um starfs-
grein. Við byrjum á því að spyija
hvað viðkomandi hafi gert fram til
þessa og hvar áherslur hans liggja.
Svo förum við út í að spyrja hvað
viðkomandi finnist liggja best við
honum í námi, t.d. í hugvísindum
eða raunvísindum. I þessum viðtöl-
um reynum við að finna út hvaða
svið viðkomandi getur fundið sig
innan og geta veitt honum ánægju,“
sagði Ásta.
Fyrirbyggja brottfall
„Við aðstoðum einnig háskóla-
stúdenta á meðan á námi stendur og
veitum þeim alls kyns ráðgjöf, t.d.
við að breyta sínum námsvenjum.
Við leiðbeinum þeim jafnframt um
hvernig ná megi betri árangri og
erum með leiðsögn um kvíðastjórn-
im og sálffæðilega ráðgjöf.“
Aðspurð sagði hún helstu vanda-
málin felast í því að fólk hefði ekki
aðgang að upplýsingum. „Það eru
t.d. ekki fyrir hendi upplýsingar um
á hvaða mið skal stefnt ef þú vilt t.d.
tryggja að það fari bæði saman
áhugi, hæfni og atvinnuhorfur. Við
reynum að leita að upplýsingum
fyrir fólkið um leið og við tölum við
það eða þá að við vísum þvi á aðila
sem getur veitt nánari upplýsing-
ar.“
Ásta sagöist vera með mjög stór-
an og breiðan hóp skjólstæðinga þar
sem námsráðgjöf háskólans hafi
þjónað öllum þeim sem eru í náms-
hugleiðingum á þeim forsendum að
hugsanlega séu þeir væntanlegir há-
skólanemar. „Við teljum okkur vera
að vinna fyrirbyggjandi starf því
það eiga ekki allir erindi í háskól-
ann og hann hentar ekki öllum.
Með því að gefa fólki góða ráðgjöf
stemmum við stigu við ákveðnu
brottfalli úr háskólanum," sagði
Ásta.
4000 viðtöl á ári
„Við veitum 4 þúsund viðtöl á
ári. U.þ.b. 40% þeirra eru viðtöl við
háskólastúdenta i námi og þar er
meirihlutinn að biðja um námsað-
stoö. Til að anna eftirspurn byrjuð-
um við í fýrra að reyna að mæta
stærri hópum með því að veita hóp-
ráðgjöf. Þá erum við með 10 manna
hópa sem við ræðum í byrjun við á
breiðum grundvelli og veitum síðan
einstaklingsráðgjöf í kjölfarið. Þá
náum við að þjóna fleirum en oft
hafa verið biðlistar hjá okkur.
Einnig hjóðum við upp á opinn tima
þar sem hver og einn getur gengið
inn en fólk þarf þá e.t.v. að bíða. Við
erum að vona að hægt verði að setja
upp eins konar ráðgjafamiðstöð í
framtíðinni sem væri einhvers kon-
ar samvinnuverkefni allra skólanna
þannig að háskólinn þurfi ekki að
axla alla þá byrði,“ sagði Ásta að
lokum.
-ingo
f SJÚKRALIÐANÁM Fjölbrautaskólinn Breiðholti \
“1B" FJÖLBRAUTASKÓLINN BREIÐHOLTl Bóklegt og verklegt nám til sjúkraliðaprófs
V FB þegar þú velur verknám )
f TRÉSMÍÐI Fjölbrautaskólinn Breiðholti
% “"fiSW* FJÖLBRAUTASKÓLINN BREIÐHOLT1 Grunndeild undirstöðuatriði í trésmíði Húsasmíði grunn- og framhaldsdeildir Húsasmíði fyrir nema á samningi
L FB þegar þú velur verknám )
PRÓFANÁM - ÖLDUNGADEILD
Grunnskólastig - íslenska, stærðfræði, danska og enska.
Grunnnám: samsvarar 8. og 9. bekk.
Ætlað þeim sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða vilja upprifjun frá grunni.
Fornám: samsvarar 10. bekk.
Ætlað þeim sem ekki hafa náð tilskyldum árangri í 10. bekk eða vilja rifja upp.
Undirbúningur fyrir nám á framhaldsskólastigi.
Framhaldsskólastig - menntakjarni
Fyrstu þrír áfangar kjarnagreina auk sérgreina á sjúkraliðabraut.
Innritun í PRÓFNÁM fer fram í Miðbæjarskólanum,
Fríkirkjuvegi 1, 29. og 30. ágúst kl. 16.30 - 19.30
FRÍSTUNDANÁM
Fjölbreytt tungumálanám og bóknám.
M.a. íslenska fyrir útlendinga, Norðurlandamál, enska, franska, þýska, hollenska, spænska,
ítalska, arabíska, japanska, kínverska, rússneska, gríska og portúgalska.
Ritlist, trúarbragðasaga og listasaga.
Verklegar greinar og myndlistarnámskeið.
M.a. teikning, vatnslitamálun, módelteikning, bókband, fatasaumur, skrautskrift, glerskurður,
postulínsmálun, tréskreytilist.
Aðstoðarkennsla í stærðfræði fyrir nemendur
í grunn- og framhaldsskóla.
Kennsla fyrir börn í Norðurlandamálum, þýsku og leiklist.
Sérkennsla í lestri og skrift.
Innritun í FRÍSTUNDANÁM fer fram í Midbæjarskólanum,
Fríkirkjuvegi 1, 12. og 13. september kl. 16.30 - 19.30.
Kennt verður í Miðbæjarskóla og í nýju húsnæði okkar í Mjódd, á efri hæð skiptistöðvar SVR.
Skólagjöld miðast við kennslustundafjölda og er haldið í lágmarki.
AceR
- glæsileg, öflug og metnaöarfull
Komdu og kynntu þér
Acer Aspire margmiðlunartölvuna
í Heimilistækjum, í Sætúni 8.
Acer Aspire hlaut nýverið 1. verðlaun
í flokki heimilistölva hjá hinu virta
tölvutímariti PC Magazine:
• Nýstárlegt og fallegt útlit
• Uppsetning á hvers manns færi
• Hönnuð með þægindi og réttar
vinnustellingar í huga
TÆKNI-OG TÖLVUDEILO
SÆTÚNI 8 SlMI 5691500
Að auki er hún aflmikil og gædd öllum þeim
tæknilegu kostum sem margmiðlunartölva
nútímans þarf að vera búin.
Heimilistæki hf