Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Page 12
28
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 JLIV
Ferðamála-, Stjórntækni- og Tölvuskóli íslands:
Hagnýtt nám
og markvisst
skólar og námskeið
Er æskilegt að færa námfúst barn upp um bekk(i)?
Þarf að meta hvert
barn fyrir sig
- Herdís Egilsdóttir, kennari og rithöfundur, segir frá sinni reynslu
„Ef einhver á að hlaupa yfir bekk
af því að hann er duglegur að laera
verður hann að standa upp úr hnefa
og hafa kjark. Það er ekkert sniðugt
að vera meðhöndlaður sem litla
barnið lengi, það fylgir því viss
vernd ef maður er heppinn með
skólafélaga en maður þroskast
seinna við það,“ sagði Herdís Egils-
dóttir, rithöfundur og kennari í
ísakskóla.
Herdís var sjálf á undan í skóla
og hefur ákveðnar skoðanir á því
hvort það sé æskilegt. „Auðvitað
munar um hvert ár sem viðkom-
andi er yngri en hinir. Ég varð 17
ára stúdent svo ég var þremur árum
á undan í skóla. Þegar ég útskrifað-
ist 17 ára gömul og skólasystkin
mín voru 19-21 var ég algjör ferm-
ingarstelpa við hliðina á þeim. Þau
voru að leggja línurnar fyrir fram-
tíðina, trúlofa sig og annað, en ég
var enn bara barn.“
Bæði lítil og kjarklaus
„Þetta er alltaf persónuleg spum-
ing, hvemig barnið er til líkama og
sálar og hvemig skólinn getur tekið
á móti þeim sem getur meira. Ég tel
mig að mörgu leyti hafa tapað á því
að vera ekki með jafnöldrum á þess-
um aldri. Ég er ekkert aö harma
það, ég flýtti fyrir mér á annan hátt,
en tilfmninga- og félagsþroskinn
var ekki sá sami og ég fór því á mis
við ýmislegt annað sem ég hefði get-
að lært samhliða náminu, þ.e. því
sem snýr að félagslegu hliðinni. Þar
stóð ég þeim ekkert jafnfætis fýrr en
síðar,“ sagði Herdís.
Hún sagðist hafa verið bæði lítil
og kjarklaus og því verið meðhönd-
luð sem litla barnið þótt hún hafi
verið dugleg að læra og staðið skóla-
systkinum sínum jafnfætis á því
sviði. „Ég held að þeir sem á annað
borð geta hlaupið yfir bekk verði
aldrei í vandræðum með að fylgja
hinum eftir í námi. Maður er hins
vegar meira en bara nemandi, mað-
ur er líka manneskja. Á þessum
aldri einblínir maður bara á námið
en það er ekki allt. Nemandi er ekki
nema brot af manneskjunni, það má
ekki gleymast," sagði Herdís.
Kaefð eða svelt
Á hinn bóginn sagði hún að ef
börn sem væru á undan væru
samt látin fylgja sínum jafnöldrum
væri sú hætta fyrir hendi að þau
yrðu annað hvort kæfð eða svelt í
bekknum. „Það er með því versta
sem fyrir nokkurt barn kemur.
Það fer gífurlega mikið eftir kenn-
aranum og aðstæðum. Það þarf
bæði lagni og ansi mikinn skilning
hjá kennara til að barnið missi
ekki áhugann og finnist skólinn
leiðinlegur. Sjálf hef ég það mottó
sem foreldri og kennari að þegar
barn vill læra, hversu gamalt eða
ungt sem það er, þá er það ná-
kvæmlega rétti tíminn til að
kenna því. Ekki fyrr og alls ekki
seinna."
Hún sagðist alveg telja tímabært
að kenna 5 ára börnum hvað sem
er, þau hefðu þá lengri tíma til að
leika sér í náminu. „Það mætti
gjarnan halda á lofti ummælum
eins spekingsins sem var spurður
hvers vegna kenna ætti litlum
börnum sem e.t.v. þyrftu ekki á
því að halda. Hann sagði: Ef þú ert
seinfær og ætlar langt er betra að
leggja fyrr af stað.“
-ingo
„Við erum að bjóða nýtt nám í
markaðsfræðum og ferðaráðgjöf
sem hefst núna í haust. Það er í
raun hugsað sem framhald fyrir þá
sem eru að vinna við ferðaþjónustu
eða hafa hug á slíku. Þetta er það
fyrsta sinnar tegundar á íslandi,"
sagði Friðjón Sæmundsson, skóla-
stjóri Ferðamálaskóla íslands,
Stjómtækniskóla íslands og Tölvu-
skóla íslands sem allir eru í sama
húsnæði.
Ferðamálaskólinn er alþjóðlegur
skóli og að sögn Friðjóns fyrsti skól-
inn sem veitir nemendum sínum al-
þjóðleg réttindi í ferðamálum. Hann
hefur verið starfandi sl. 6 ár.
„Þeir aðilar sem koma til með að
kenna markaðsfræðina og ferðaráð-
gjöfina starfa allir í ferðageiranum.
Þeir taka m.a. fyrir stefnumótun,
markaðsfræði, auglýsingar, sölu-
tækni, áætlanagerðir og stofnanir í
ferðaþjónustunni," sagði Friðjón.
Hann sagði að nemendumir réðu
sig svo yfirleitt til starfa á ferða-
skrifstofunum eða við ferðaþjón-
ustu hér á landi almennt. „Það er
engin spurning að það er þörf á
námi sem þessu. Það þurfa allir að
markaðssetja sig og þarna læra þeir
hvernig þeir eiga að standa að hlut-
unum til að koma sjálfum sér á
framfæri."
Stjórntækniskólinn
I Stjórntækniskólanum er hægt
að nema markaðsfræði, sölu- og
rekstrartækni. Markaðsfræðin er
ætluð fólki með góða, almenna
menntun, starfsreynslu í viðskipta-
lífinu eða þeim sem hafa áhuga á
að bæta við sig þekkingu og fá inn-
sýn í heim markaðsfræðinnar.
Markmið námsins er að þátttak-
endur tileinki sér markaðshugsun í
íslensku viðskiptalífi og nái þannig
betri árangri í viðskiptum. Námið
er í formi fyrirlestra og verkefna-
vinnu og tekin eru próf í einstök-
um greinum.
í sölutækni er farið yfir hugtakið
sala, söluferlið, þarfagreiningu,
lokum sölu, mismunandi sölukynn-
ingar, sölusiðferði auk fleiri þátta
er tengjast sölu. Leitast er við að
ná sem mestri beinni þátttöku og
„Hraðlestur er það að lesa veru-
lega hraöar en fólk almennt gerir og
reynslan sýnir að þátttakendur
rúmlega fjórfalda lestrarhraða sinn
að jafnaði, oftast með verulega
bættri eftirtekt," sagði Ólafur Hauk-
ur Johnson, skólastjóri Hraðlestrar-
skólans.
Hann segir þátttakendur ekki ein-
göngu læra að lesa hratt á nám-
skeiðinu heldur séu þeim einnig
kennd ýmis tæknileg atriði við lest-
ur mismunandi lesefnis sem auka
leshraðann. „Við erum eingöngu að
tala um lestur í hljóði. Hinn mikli
árangur næst með verulegum breyt-
ingum á lestraraðferðum og aukinni
einbeitingu. Einnig vex ánægjan við
lesturinn verulega því það fæst
miklu meiri ánægja út úr því að
lesa heila bók á einni kvöldstund en
er í þeim efnum m.a. stuðst við
myndbandatæknina. Námskeiðið
nýtist öllum þeim sem fást við sölu,
hvort heldur er á fyrirtækjamark-
aði, neytendamarkaði eða við sölu
á þjónustu.
Námið í rekstrartækni er ætlað
þeim sem stunda sjálfstæðan at-
vinnurekstur, eru stjórnendur fyr-
irtækja eða þeim sem hafa hug á
stofnun fyrirtækis. Námið er mark-
visst og hagnýtt, alls 150 stundir.
Markmið þess er m.a. að gera
menn hæfari til að takast á við
vandamál í rekstri fyrirtækja og
tileinka sér nýjar aðferðir við úr-
lausn þeirra.
Tölvuskólinn
Námið í Tölvuskólanum skiptist
í skrifstofutækni, bókhald og tölvu-
og hugbúnaðarþjálfun. Markmið
skrifstofutækninnar er að þjálfa
nemendur til starfa á skrifstofum
og er áhersla lögð á tölvugreinar og
bókfærslu. Námið er mjög hagnýtt
og byggist að verulegu leyti á verk-
legum æfingum. Það eykur sam-
keppnishæfni nemenda og býr þá
undir krefjandi störf á vinnumark-
aði.
Bókhaldsnámið miðar að því að
nemendur læri helstu hugtök og
undirstöðuþætti í bókhaldi, geti
fært bókhald í dagbækur og á
tölvu. Námið er markvisst og mik-
ið af verkefnum. Nemendur læra
uppgjör með reikningsjöfnuði, skil
á virðisaukaskatti og útprentun
helstu þátta úr tölvubókhaldinu.
Tölvuþjálfunin miðast við að
þjálfa nemendur í tölvunotkun
þannig að þeir geti nýtt sér kosti
tölvunnar að námi loknu. Námið
nýtist jafnt þeim sem nota tölvur
daglega í starfi og öörum sem vilja
nýta heimilistölvuna betur. Enga
grunnkunnáttu þarf fyrir þetta
nám.
Kennslan á hugbúnaði er bæði
hugsuð fyrir fyrirtæki og einstakl-
inga. í boði er kennsla á Power Po-
int, Access gagnagrunn, Word f.
Windows, Word framh., Excel,
Excel framh., Excel fjölvar, Visual
Basic og Quark XPress.
-ingo
að vera í nokkrar vikur með sömu
bókina," sagði Ólafur.
Námskeiðin standa yflrleitt í 6
vikur en kennt er einu sinni í viku.
Þátttakendur þurfa síöan aö æfa sig
heima í eina klukkustimd á dag. Ól-
afur segir leshraða íslendinga mjög
misjafnan en að meðalleshraði sé
150-180 orö á mínútu. „í lok nám-
skeiðanna eykst leshraðinn að jafn-
aði í rúm 600 orð á mínútu, með jafn
góðri eða betri eftirtekt."
Þátttakendur eru á aldrinum
15-75 ára, þó mest frá 18-25 ára og
oftast skólafólk sem vill auka afköst
í námi. Stjómendur í þjóðfélaginu
hafa líka sótt námskeiðin og ýmis
fyrirtæki og stofnanir hafa beðið
um sérstök námskeið fyrir starfs-
menn sína.
GARNHUSIÐ
Aöalstrœti 7 - Sími 561-8235
Haustnámskeiðin eru að hefjast
Kennt verður:
• Almennt prjón
•Tcekniprjón
• Myndprjón
• Munsturprjón
Kennslustaður:
Verslunin Garnhúsið
Aöalstrœti 7
Kennt er þriðjudags- og fimmtudagskvöld kl. 19.30 - 22.30
og stendur nómskeiðiö yfir í 7 vikur.
• Föndurprjón
• Brúðuprjón
• Frógangur
ATH. Pantanir óskast staðfestar.
innritunfVersluninni Garnhúsið.
Tónmenntaskóli Reykjavíkur hefur
kennslu í september. Nemendur sem
eiga umsóknir nú þegar í skólanum
komi til innritunar þriöjudaginn
3. september, sbr. heimsent bréf.
Skólinn getur enn bætt viö örfáum
nemendum í forskóladeild sem hér
segir:
Forskóli I, börn fædd 1990 (6 ára)
Forskóli II, börn fædd 1989 (7 ára)
Forskóli III, börn fædd 1988 (8 ára)
Auk þess getur skólinn bætt viö nemendum
á ýmsum aldri á eftirtalin hljóöfæri:
Tréblásturshljóöfærin
blokkflautu, óbó og fagott.
Málmblásturshljóöfærin trompet (kornett),
básúnu, horn og barýtonhorn.
Auk pess nemendur á ásláttarhljóöfæri
(slagverk), kontrabassa og harmoníku.
Skrifstofan er opin aö Lindargötu 51 frá
kl. 9-16. Síminn er 562 8477.
SKÓLASTJÓRI
Hraðlestrarskólinn:
Flestir fjórfalda
lestrarhraðann
-mgo