Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 JLlV
30
Qkólar og námskeið
Námskeið í matreiðslu grænmetisrátta, upplagt fyrir:
Vinahjón, vinnufélaga
eða saumaklúbba
- hægt að velja um mexíkóska, indverska eða blandaða rátti
„Fólk getur tekið sig saman, ým-
ist vinahjón, vinnufélagar eða
saumaklúbbar og beðið um kvöld-
námskeið hjá mér eitthvert kvöld
vikunnar sem hentar hópnum. Ég
miða við að hafa ekki færri en átta
í hóp og úr þessu verða oft hin
skemmtilegustu kvöld,“ sagði Stein-
unn Bergsteinsdóttir, eigandi veit-
ingastaðarins Vænt og grænt í
Veltusundi, sem hefur boðið upp á
matreiðslunámskeið síðan í fyrra
þar sem eingöngu eru matreiddir
grænmetisréttir.
Námskeið Steinunnar eru að því
leytinu til frábrugðin öðrum að fólk-
ið velur sjálft hvaða kvöld það vill
koma, en hvert námskeið tekur
u.þ.b. 3 klst. Hægt er að velja á milli
námskeiðs í matreiðslu mexikóskra
rétta, indverskra rétta eða bland-
aðra rétta sem eru mismunandi
grænmetisréttir sem ekki falla í
neinn ákveðinn hóp. Steinunn sagði
að yfirleitt væru námskeiðin frá
18-21 því það væri svolítið seint að
borða eftir klukkan níu á kvöldin.
„Ég byrja yfirleitt á því að kenna
fólki að búa til brauð og súpu því
mér fmnst brauðgerð sérstaklega
veQast fyrir fólki. Síðan elda ég
nokkra mismunandi rétti og gef
uppskriftir að þeim, yfirleitt um
Námskeiö Steinunnar eru aö því leytinu til frábrugöin öörum aö fólkiö velur sjálft hvaöa kvöld þaö vill koma, en hvert
námskeiö tekur u.þ.b. 3 klst. DV-mynd JAK
átta uppskriftir. Þetta er því sýni-
kennsla og námskeiðið kostar 2.500
krónur fyrir manninn," sagði Stein-
unn.
í lok hvers námskeiðs eru réttim-
ir snæddir og segir hún fólk oft
hreinlega koma til að eiga skemmti-
lega kvöldstund í góðra vina hópi,
læra nýjar matreiðsluaðferðir og
snæða saman áður en haldið er eitt-
hvað annað.
Steinunn býður einnig upp á sérs-
takt kartöflunámskeið þar sem ein-
göngu er eldað úr kartöflum og með-
lætanámskeið fyrir jólin þar sem
hún kennir fólki að gera skemmti-
legt meðlæti úr grænmeti með
jólasteikinni. „Það verða margir
leiðir á því að vera alltaf með brún-
aðar kartöflur og rauðkál svo ég
legg áherslu á nýtt og skemmtilegt
meðlæti úr grænmeti. Sjálf er ég
ekki fanatísk á að fólk eigi ekki að
borða kjöt en mér finnst fólk i aukn-
um mæli hafa áhuga á því að
minnka hjá sér kjötneyslu og vera
opnara fyrir svona eldamennsku.
Aðspurð sagði hún það ekki vera
dýrt að vera grænmetisæta því fólk
borðaði hvort sem er grænmeti með
flestum kjötréttum svo það bættist
þá bara við kjötinnkaupin. Þeir sem
hafa áhuga á námskeiðunum henn-
ar Steinunnar geta hringt í síma
551-5543.
-ingo
Námskeið um fornbókmenntirnar njóta gífurlegra vinsælda:
Farið á söguslóðir og rifjaðir upp atburðir
„Ég tek fyrir eina sögu í einu og
gef nemendum mínum kost á að
ferðast um á söguslóðir. Það er gríð-
arlega mikil þátttaka í flestum þess-
ara námskeiða," sagði Jón Böðvars-
son sem orðinn er nánast frægur
fyrir námskeið sín á vegum Tóm-
stundaskólans og Endurmenntunar-
stofnunar HÍ þar sem hann tekur
fyrir sögur úr fombókmenntunum.
Jón er íslenskufræðingur að
mennt með fornbókmenntir sem
kjörsvið og fjallaði um Biskupasög-
ur í kandidatsritgerð sinni. Hann
var jafnframt íslenskukennari við
MH í rúm 20 ár og skólameistari í
Keflavík ásamt því að starfa lengi
sem leiðsögumaður. Hann hefur
verið með námskeiðin sl. 10 ár og
yfirleitt em rúmlega 200 nemendur
á hverju þeirra.
„Hvert námskeið tekur 10 kvöld
og kostar 8.800 krónur. Kennt er í 2
klst. á kvöldi einu sinni í viku. Yfir-
leitt ferðumst við um söguslóðir á
miðju námskeiði, þetta em oftast
nær dagsferðir eða tveggja daga
ferðir um helgar," sagði Jón. Hann
tekur alltaf nýjar og nýjar sögur fyr-
ir, allar úr fombókmenntunum, og
hefur ekki endurtekið neitt nám-
skeið nema Njálu sem hann hefur
tekið fyrir tvisvar sinnum. „I haust
verð ég með sögur frá Grænlandi og
Vínlandi. Þá er tekið allt sem er í
fomrihmum um þessi lönd, aðal-
lega Egils saga rauða og Grænlend-
ingasaga. Fólk sem hefur áhuga á
Þátttakendur í Grettlunámskeiöi á ferö um söguslóöir Grettis sögu. Hér er
hópurinn aö skoöa minnismerkiö aö Bjargi. DV-myndir Tryggvi
FJÖLBRAUTASKÓLINN
BREIÐHOLTI
V.
r
FJÖLBRAUTASKÓLINN
BREIÐHOLTI
V
VIÐSKIPTANÁM
Fjölbrautaskólinn Breiðholti
Verslunarpróf:
skrifstofubraut - verslunarbraut
ritarabraut
stúdentspróf - 4 brautir
FB þegar þú velur verknám
MATREIÐSLUNÁM
Fjölbrautaskólinn Breiðholti
Grunnnám matreiðslu og framreiðslu
(samsvarar 1. ári í Hótel- og veitingaskóla
íslands, veitir sjókokkapróf)
Matartæknir - 3 ára nám
(störf í mötuneytum heilbrigðisst.)
FB þegar þú velur verknám
því getur fengið yfirlit yfir námsefn-
ið hjá Tómstundaskólanum og End-
urmenntunarstofnun HÍ.“
Alls hafa námskeiðin verið 14
talsins og á þeim hefur hann farið
yfir rúmlega 20 sögur þvi stundum
tekur hann tvær eða þrjár sögur á
námskeiði. „Það hafa yfir hundrað
manns sótt fleiri en tíu þessara
námskeiða. Þetta er því nokkuð
fastur hópur en svo bætist alltaf
eitthvað við. Ég hvet til umræðu í
tímanum og tek við fyrirspumum,
menn eru ekkert skyldugir til að
vera á sama máli og ég. Oft koma
upp önnur sjónarmið og þá finnst
mér sjálfsagt að hlýða á það. Menn
eiga það til að skiptast í flokka eftir
afstöðu og það finnst mér bara
ágætt,“ sagði Jón.
Aðspurður sagðist hann ekki sjá
mikinn mun á aðsókn eftir því
hvaða saga væri tekin fyrir. „Ég hef
minnst haft 198 nemendur og það
var þegar ég tók Egilssögu fyrir en
svo var ég með 246 nemendur í Lax-
dælu.
Ferðimar em svo punkturinn
yfir i-ið en í þær fara þó ekki alltaf
allir nemendumir. „Hins vegar em
aðrir sem taka með sér aðstandend-
ur og svo em þessar ferðir opnar
öllum, þó öll leiðsögn miðist náttúr-
lega við að þeir hafi verið á nám-
skeiðinu. Ég rifja að allmiklu leyti
upp námskeiðið þegar komið er á
staðinn því fólk á miklu auðveldara
með að setja sér fyrir sjónir atburð-
ina þegar það er á söguslóð. Flestir
atburðir eru staðsettir og sviðsettir
á ákveðnum stöðum. Sem dæmi má
nefna að í Laxdælu gerast atburðir
við laugina og þó hún sé ekki leng-
ur ofan jarðar er leitt úr henni vatn
í sundlaug. Þar getur maður staðið í
brekkunni og rifiað upp atburðina á
meðan menn hafa sviðið fyrir aug-
um sér,“ sagði Jón.
Hann hindur sig ekkert við ísland
heldur býður æinnig upp á lengri
ferðir á söguslóðir þegar farið er
yfir efni sem gerist í útlöndum.
Hann hefur t.d. farið til Færeyja,
Orkneyja, Noregs og meðfram
Eystrasaltsströndinni. „í júní vom
síðan famar tvær ferðir eftir píla-
grímaslóðunum íslensku til Róma-
borgar. Þá fóm 40-50 manns í hvora
ferð.“ Aðspurður hver væri hans
uppáhaldssaga svaraði hann að
bragði. „Sú saga sem ég er að fara
yfir hverju sinni. Enda vel ég bara
þær sögur sem mér finnast áhuga-
verðar." -ingo
Gítarskóli íslands
„Við kennum byrjendum gít-
arhljómfræði, heiti strengja og
; nótna, fingraæfingar, áslátt og
| síðan að spila einíold lög undir
söng, rokk, popp eða bara það
sem fólk hefur áhuga á. Einnig
er kennd tónfræði,“ sagði Torfi
Ólafsson, tónmenntakennari
!hjá Gítarskóla íslands (GÍS), en
þar er boðið upp á fjölbreytt
Ítónlistamám fyrir alla aldurs-
hópa.
Innritun í GtS hefst þann 2.
september næstkomandi á milli
kl. 19 og 21 en kennslan hefst
mánudaginn 16. september.
Bridgeskólinn:
Frumskilyrði að
fólk skemmti sér
| „Það er fólk á öllum aldri og
Iaf báðum kynjum sem sækir
skólann og það er ekki nauð-
synlegt að hafa með sér spilafé-
laga. Á byrjendanámskeiðinu
er ekki gert ráð fyrir neinni
fyrirframkunnáttu og heima-
vinna er sáralítU. Bridge er
leikur og það er fmmskUyrði
að menn skemmti sér við spUa-
borðið, við það miðast kennsl-
an,“ sagði Guðmundur Páll
Arnarsson, forstöðumaður
Bridgeskólans.
Tvö námskeið verða í boði á
: haustönn, byrjenda- og fram-
haldsnámskeið. Bæði standa
þau yfir í 10 kvöld, einu sinni í
s viku frá kl. 20-23. Byrjenda-
!! námskeiðið er á þriðjudags-
kvöldum og hefst 17. september
en framhaldsnámskeiðið á
fimmtudagskvöldum og hefst
19. september. Vönduð náms-
gögn fylgja báðum námskeið-
um.
Bridgeskólinn mun, í sam-
vinnu við Bridgesamband ís-
lands, Bridgefélag Reykjavíkur
og ferðaskrifstofuna Samvinnu-
i ferðir/Landsýn, bjóða upp á
Iókeypis kynningarnámskeið
fyrir 12-15 ára unglinga þann
3.-5. september miUi kl. 16 og
19. „Ef vel tekst til verður stofn-
uð sérstök unglingadeild innan
BSÍ sem mun skipuleggja mót
og fræðslu fyrir þennan van-
rækta aldursflokk," sagði Guð-
mundur en bridgeáhugi er að
hans sögn óvíða meiri en hér á
landi.
Skákskóli íslands
Ný námskeið í Skákskóla ís-
lands hefjast þann 9. september
nk. Kennt verður í byrjenda-
flokkum, almennum flokkum,
framhaldsflokkum og stúlkna-
flokki.
Námskeiöin standa í sex vik-
ur, einu sinni í viku og í 2 klst.
í senn. (Byrjendanámskeiðin
eru þó einungis 1!4 klst. í senn.)
Hvert námskeið kostar kr. 6.000
nema byrjendanámskeiðið sem
kostar kr. 4.000. Innritun fer
| fram í síma 568 9141 virka daga
: frá kl. 10-13.
Kanadísk djass-
söngkona
„Við erum að fá tU okkar
i fræga kanadiska djasssöngkonu
1 sem kemur tU með að kenna
| hjá okkur og hjá Tónlistarskóla
FÍH í aUan vetur. Hún heitir
j Tena Palmer og tilheyrir
4 djasskvartett í Kanada sem hef-
4 ur verið margverðlaunaður þar
í landi og einnig í Noregi og
y víðar,“ sagði Esther Helga Guð-
mundsdóttir, skólastjóri Söngs-
miðjunnar á Laugaveginum.
Tena Palmer kemur tU með
I að kenna bæði hópum og ein-
j staklingum og getur fólk látið
skrá sig í tímana hjá henni í
Söngsmiðjunni.