Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 28. AGUST 1996
skólar og námskQið
31
Jógakennari og ráðgjafi með námskeið á eigin vegum:
Fyrir afvegaleidda unglinga
og meðvirka aðstandendur
- notar m.a. hugleiðslu, slökun og jógastöður til að losa um spennu
„Ég er með tvenns konar nám-
skeið, annað kalla ég batajóga og
hitt er svokallað meðvirkninám-
skeið. Batajóga er fyrir ungt fólk í
tólf spora samtökum, þ.e. fólk sem
er hætt einhverjum óheilbrigðum
lífsháttum eins og áfengisdrykkju
eða fíkniefnaneyslu og er í bata,“
sagði Ragnheiður Óladóttir, jóga-
kennari og ráðgjafí, í samtali við
DV. Ragnheiður starfaði áður sem
fjölskylduráðgjafi bæði hjá SÁÁ og
Tindum en hefur nú þróað sín eigin
námskeið þar sem hún notar bæði
jóga og byggir á sinni eigin reynslu
af meðvirkni við alkóhólisma. Bata-
jógað kennir hún í Sjálfefli i Kópa-
vogi.
„Námskeiðið í batajóga er mjög
vinsælt, það hefur verið alveg fullt
hjá mér. Þetta er flest fólk á cddrin-
um 16-25 ára. Svo er ég með með-
virkninámskeið sem ég blanda jóga
inn í líka. Meðvirkni er ákveðið
vandamál sem oft tengist öðru
vandamáli. Það er fyrir aðstandend-
ur alkóhólista, geðsjúkra, fatlaðra
og annarra sem lenda í ákveðinni
stöðu sem þeir þurfa að vinna sig út
úr. Oft láta þessir aðstandendur
vandamálið stjóma sínu lifi.
Ég reyni bæði að fræða fólk um
hvað meðvirkni er, hvemig hægt sé
að komast út úr henni og um heil-
brigða lífshætti. Ég nota hugleiðslu,
slökun og jógastöður til að losa um
spennu sem oft er þessu samfara. Ég
er með umræðuhópa í gangi, við
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
/ Viltu margfalda lestrarhraðann og afköst í námi?
/ Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð?
V Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju?
Ef svar þitt er jákvætt skaltu skrá þig strax á næsta
hraðlestramámskeið.
Skráning er í síma 564-2100.
I-TRA.ÐI.JESTTSAFtSKÖIJLrSIN
Ragnheiður segir námskeiöin miöast viö aö maöur tengist sjálfum sér betur
og ráöi betur viö aö takast á viö lífiö.
geram ákveðnar samskiptaæfingar
og svo fer fram ákveðin tilfinninga-
vinna með jóga. Allt miðast þetta
við að maður tengist sjálfum sér
betur og ráði betur við aö takast á
við þessar breytingar," sagði Ragn-
heiður.
„Það er líka fyrirbyggjandi að
vinna með þetta allt saman. Ef mað-
ur vinnur með sína meðvirkni lend-
ir maður ekki í því að styðja ein-
hvem í svona rugli. Þar sem fjöl-
skyldur hafa unnið með þessi mál
er t.d. gripið strax inn í ef einhver
byrjar í einhverri ofneyslu.“
Aðspurð sagði hún mikla þörf
vera fyrir námskeið sem þessi. „Ég
finn mjög miklar breytingar hjá
þeim sem sækja námskeiðin. Fólk
sem grunar að eitthvað sé að kemur
og lærir að nota nýjar aðferðir við
að lifa lifinu. Það birtir til hjá því og
það sér hvað hægt er að lifa
skemmtilegu lífi þrátt fyrir allt.“
Námskeiðin hjá Ragnheiði eru
tvisvar í viku í hálfan mánuð,
þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20.
-ingo
Ung kona á námskeiði í batajóga segir sögu sína:
Var komin á botninn
- ólöglegt brask fjármagnaði daglega eiturlyfjaneyslu
„Maður fór of langt í sambandi
við vín og fikniefhi og gekk á sig. Ég
neytti áfengis reglulega í u.þ.b. þrjú
ár og eiturlyfja síðasta árið. Ég var
komin út í daglega neyslu eiturlyija
þegar ég fór i meðferð og þaðan fór
ég beint á batajóganámskeiðið. Ég
hef verið að vinna mikið með sjálfa
mig síðan og það hefur gefið mér
ofsalega rnikið," sagði 24 ára gömul
kona sem sækir nú námskeið í bata-
jóga hjá Ragnheiði Óladóttur, jóga-
kennara í Sjálfefli í Kópavogi. Hún
samþykkti að segja okkur sögu sína
gegn nafnleynd og við skulum því
kalla hana írisi.
íris var að vinna i Los Angeles í
Bandaríkjunum um tíma og hafði
þar mikinn áhuga á list því sjálf
hafði hún verið mikið í myndlist hér
heima. „Maður umgekkst mikið af
listafólki og var alltaf að fara upp i
Hollywood-hæðirnar ásamt ein-
hverjum rosa kvikmyndastjömum
með kók og freyðivínið með í fór.
Þetta var því rosalega flott neysla í
fyrstu en svo sökk maður dýpra og
dýpra og var mjög fljótur að leiðast
inn í miður góðan félagsskap. Inn í
þetta blandaðist alls kyns brask þeg-
ar farnar vom ólöglegar leiðir til að
fjármagna kaupin. Ég kom heim rétt
fyrir jólin í fyma og hafði þá náð
botninum. Ég fór í meðferð i febrúar
og þaðan beint á námskeiðið," sagði
íris.
Hún telur nauðsynlegt að fylgja
meðferðinni eftir með slíku nám-
skeiði því annars næðist batinn
miklu síður. „Þegar farið er að
vinna með jóga líka fer maður
miklu lengra og dýpra inn í sjálfan
sig og mun betri árangur næst með
persónuna sjálfa. Þetta hefur gefið
mér ofsalega mikið. Ég er orðin
miklu sjálfstæðari og hef unnið mik-
ið með mínar tilfinningar, jafnt
gamlar tilfmningar sem nýjar. Þetta
hefur gefiö mér innri ró,“ sagði íris
sem sagðist hafa frétt af námskeið-
inu í gegnum vinkonu sína.
Aðspurð sagðist hún auðvitað ráð-
leggja þeim krökkum sem hún þekk-
ti og væru í sömu aðstöðu að fara á
slíkt námskeið en hún sagði jafh-
framt að fólk yrði að gera það fyrir
sjálft sig. „Þegar maður er kominn
út á ystu nöf fer maður fyrst að
breyta til. Ég fann minn botn og var
ákveðin í að ná mér á strik. Ég held
að hver og einn verði að finna sinn
botn, hversu djúpur sem hann er.“
Hún segist vera búin að kúpla sig út
úr þeim félagsskap sem hún var í
hér á landi og sagðist aðspurð alveg
geta hugsað sér að vinna við eitt-
hvað þessu tengt í framtíðinni því
það væri bæði gefandi fyrir hana
sjálfa og aðra. -ingo
Langar þig í mest spennandi
skólann í bænum?
Langar þig að vita hvar látnir vinir þínir og vandamenn hugs-
anlega og líklegast eru nú og hversu öruggt meint samband
við þá og þessa undarlegu heima er með aðstoð miðla?
Langar þig að vita hvað eru afturgöngur, lflcamningar, álfar,
huldufólk, fjarskynjun, fyrirboðar, berdreymi, svifjógar,
ærsladraugar eða bara hvers vegna skilaboð koma að handan?
Og langar þig að setjast í skemmtilegan og svo sannarlega
spennandi skóla í glaðværum og jákvæðum hópi nemenda
eitt kvöld í viku eða einn laugardags eftirmiðdag í viku,
- þar sem farið er ítalega í máli og myndum sem og í námsefni
yfir allt sem lýtur að framhaldslífi okkar jarðarbúa eins og
mest og best er vitað um það á hnettinum nú fyrir hófleg
skólagjöld? Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur
og hundruðum ánægðra nemenda sl. fjögur misseri.
Tveir byrjunarbekkir hefja brátt nám í Sálarrannsóknum
1 nú á haustönn 96. - Skráning stendur yfir. - Hringdu
og fáðu allar nánari upplýsignar um mest spennandi
skólann sem í boði er nú. - Yfir skráningardagana er
svarað í síma Sálarrannsóknarskólans alla daga vikunnar
kl. 14.00 til 19.00.
- mest spennandi skólinn í bænum -
Sálarrannsóknarskólinn
M- \ Vegmúla 2 • Sími 561 9015 & 588 6050
^ Almenn skyndihjálp
Námskeiðið er opið öllum 15 ára og eldri.
Markmiðið er að þátttakendur verði hæfir til að
veita fyrstu hjálp á slysstað. Fjallað er um
grundvallarreglur í skyndihjálp; endurlífgun,
meðvitundarleysi, lost, blæðingu, sár, beinbrot,
brunasár, rafmagnsslys, kal, ofkælingu, ofhitun,
bráða sjúkdóma, aðskotahluti í hálsi, sálræna
skyndihjálp, umbúðir og flutning slasaðra.
Grunnnámskeiðið er lágmark 16 kennslustundir.
^ Slys á börnum
Námskeiðið er öllum opið. Vakin er athygli á
þeim slysum sem algengast er að börn lendi í og
hvaða fyrstu hjálp skuli veita. Einnig er fjallað um
hvernig megi hugsanlega koma í veg fyrir slík
slys. Námskeiðið er 8 kennslustundir.
(Námskeiðin stytta biðtímá atvinnulausra)
Einnig:
4 Móttaka þyrlu á slysstað
4 Sálræn skyndihjálp
4 Starfslok
4 Námskeið fyrir nýbúa á íslandi
4 Námskeið fyrir barnfóstrur
4 Upprifjunarnámskeið í
jhj^Pp Skráning á námskeiðin er hjá Rauða kross
dcildum eða hjá aðalskrifstoíu RKÍ í
síma: 562 6722
+
RAUÐI KROSS ISLANDS