Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Page 30
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996
30 unglingaspjall
sögðu búin að kaupa sér miða á tónleikana á morgun.
- safnar myndum í myndamöppu og á alla geisladiskana
„Hann er svo venjulegur, það er
það sem mér finnst svo æðislegt við
hann. Hann er bara hann sjálfur og
er ekkert að þykjast. Hann er sagð-
ur indæll og jarðbundinn og það er
það sem mér finnst eiga að vera í
persónu," sagði Henný Jóna Adólfs-
dóttir, 13 ára, sem er búin að vera
einlægur aðdáandi Damon Albam í
hljómsveitinni Blur í heilt ár. Blur
heldur tónleika í Laugardalshöll
þann 8. september næstkomandi og
Henný er að sjálfsögðu búin að
kaupa sér miða.
Aðspurð hvort aldursmunurinn
setti ekkert strik í reikninginn, en
Damon er 28 ára gamall, sagðist hún
ekkert á leiðinni í fast samband
með honum. „Ég er ánægð ef ég fæ
að dýrka hann úr fjarlægð. Ég safna
myndum af honum og klippi út allt
sem skrifað er um hann og lími í
sérstaka möppu, kaupi t.d. BIG sem
er breskt blað þar sem oft er skrifað
eitthvað um hann,“ sagði Henný.
Aðspurð sagði hún það myndu taka
heila eilífð að telja þær myndir sem
hún ætti af honum en hún hengir
þær upp hér og þar í herberginu
sínu í óþökk foreldranna sem vilja
mála herbergið. Hún á alla geisla-
diskana sem Blur hefur gefið út en
heldur mest uppá diskinn Park Life
og lagið End of a Century. Besta
vinkona hennar er líka með æði fyr-
ir Blur og þær kaupa alltaf sömu
blöðin til að þær verði ekki öfund-
sjúkar hvor útí aðra.
Aðspurð hvað hún myndi segja
við hann ef hún myndi hitta hann
sagðist hún bara myndu segja
komdu sæll og kynna sig. „Ég
in hliðin
■
1
Lærissneiðarnar hennar
mömmu í uppáhaldi
|
1
;iV-:
■
I
l
■
I
I ■
segir Vilbei
ár hina hliðina
Vilberg Ingi Kristjánsson er
tvitugur maður frá Ólafsvík
sem vann titilinn herra
Vesturland um síðustu
helgi. Vilberg er um þessar
mundir við æfingar í
Reykjavík fyrir aðalkeppn-
ina um titilinn herra ísland
sem fram mun fara föstu-
daginn 13. september. Vil-
berg Ingi sýnir hér á sér
hina hliðina.
Fullt nafn: Vilberg Ingi
Kristjánsson.
Fæðingardagur og ár: 22.
júlí ’76.
Maki: Kristrún Friðriks-
dóttir.
Böm: Engin.
Bifreið: Mitsubishi Colt ’92.
Starf: Pípari.
Laun: Misjöfn.
Áhugamál: Fótbolti.
Hefur þú unnið í happ-
drætti eða lottói? Aldrei.
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera? Að horfa á
bíómyndir.
Hvað finnst þér leiðinleg-
ast að gera? Keyra til
Reykjavíkur.
Uppáhaldsmatur: Læris-
sneiðamar hennar mömmu.
Uppáhaldsdrykkxu': Kók.
Hvaða íþróttamaður
stendur fremstur í dag?
Jón Amar Magnússon.
Hver er fallegasta kona
sem þú hefur séð fyrir
utan maka? Sharon Stone.
Ertu hlynntur eða andvíg-
ur ríkisstjóminni? Andvíg-
Vilberg Ingi Kristjánsson er herra Vesturland.
DV-mynd Pjetur
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta? Sch-
meichel.
Uppáhaldsleikari: Gústi
Geir.
Uppáhaldsleikkona: Meg
Ryan.
Uppáhaldssöngvari: Stebbi
Hilmars.
Uppáhaldsstjómmálamað-
ur: Jón Baldvin.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Simpson.
Uppáhaldssj ónvarpsefhi:
íþróttaþátturinn og enski
boltinn.
Uppáhaldsmatsölustað-
ur/veitingahús: Kentucky.
Hvaða bók langar þig mest
að lesa? Enga sérstaka
Hver útvarpsrásanna finnst
þér best? FM 957.
Uppáhaldsútvarpsmaður:
Enginn.
Hvaða sjónvarpsstöð horfir
þú mest á? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Enginn sérstakur.
Uppáhaldsskemmtistað-
ur/krá: Ingólfskaffi
Uppáhaldsfélag í iþróttum?
Víkingur í Ólafsvík.
Steftiir þú að einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Mennta
mig.
Hvað gerðir þú í sumarfrí-
inu (ætlar þú að gera í sum-
arfríinu)? AUur timinn fór í
fótboltann í sumar.
myndi aldrei hópast að honum og
grenja fyrir framan hann. Ég held
að honum hljóti að finnast það
óþægilegt.” Hún hefur aldrei komist
í návígi við hann en sá hann þó
keyra framhjá í rútu þegar hann
kom síðast til íslands og hélt þá að
það væri bara einhver líkur honum.
Henný sagðist hafa fengið svipað
æði fyrir Stefáni Hilmarssyni áður
en hann víkur nú úr sæti fyrir Dam-
on. Þegar hún var spurð afhverju
hún ætti sér átrúnaðargoð svaraði
hún að bragði: „Strákar á mínum
aldri eru svo bamalegir að maður
þarf að leita útfyrir það.“
-ingo
„Eg safna myndum af honum og klippi út allt sem skrifaö er um hann og lími
í sérstaka möppu," sagöi Henný.
Henný hefur ekki tölu á öllum þeim myndum sem hún á af Damon og hljóm-
sveitinni Blur. DV-myndir Pjetur