Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 JjV
Ég vaknaði um hálfáttaleytið
þennan mánudagsmorgunn, 2.
september, ásamt Sjöfn, minni eig-
inkonu. Við höfum í tímans rás
hannað okkar eigið kerfi sem ger-
ir það að verkum að við vöknum
alltaf nákvæmlega á sama tíma.
Gildir þá einu hvort heimsálfur
skilja okkur að. Eftir að hafa blað-
að í The Observer, Lögbirtinga-
blaðinu og Draumaráðningabók-
inni fengum við okkur staðgóðan
morgunverð sem samanstóð af
ávöxtum, hrökkbrauði, osti og
hreinum appelsínusafa.
Ég ætlaði að byrja í eróbikktím-
um hjá Ágústu og Hrafni þennan
morgun en mundi þá að önnur
sjónlinsa mín var týnd og tröllum
gefin. Enn frestast eróbikkið. Dæt-
urnar tvær voru ræstar með lúðra-
blæstri og fánahyllingu við þokka-
legan fögnuð. Sú yngri fór til dag-
mömmu klukkan níu en hin eldri
minni í vinnuna og þaðan drifum
við okkur niður á Laugaveg og
keyptum linsur.
Ég er GSM-eigandi sem þýðir
það að ég er að biðja um að vera
ónáðaður allan daginn. Og það
gekk mjög vel. Ég talaði við Ás-
mund í Japis, Elinu Reynis, Sigga
Gröndal, Ásgeir Sigurvinsson,
Guðrúnu Katrínu (ekki konuna
hans Ólafs Ragnars!!) og margt
annað ágætisfólk á meðan ég
keyrði um hina fogru höfuðborg
okkar. Mest talaði ég þó á gatna-
mótum þannig að menn gætu ör-
ugglega séð mig með símann. Það
þykir víða smart (held ég).
Ég velti því fyrir mér á milli
símtala hvort ég ætti að kaupa
sjónvarpsstöð, en eftir að hafa tal-
að við Bjama Vestmann hjá þjón-
ustusíma bankanna komst ég að
raun um að það þyrfti að bíða betri
tíma. Einnig tók ég dramatíska
Jón Olafsson gleymdi ekki aö bursta í sér tennurnar þennan morguninn
þegar hann vaknaöi.
Dagur í lífi Jóns Olafssonar tónlistarmanns:
aðsókn og til þess er nú leikurinn
einu sinni gerður. Einn þeirra
hafði við mig samband því að nú á
að fara að kynna sýninguna i
framhaldsskólunum. Til þess að
hægt sé að skjótast til framhalds-
skólanema í frímínútun þarf að
vera til undirspil án söngs. Ég lét
gera geisladisk með því efni. Við
Emilíana Torrini hittumst í þrjá
tíma og hlustuðum á tónlist og
veltum fyrir okkur væntanlegum
upptökum á geisladisk hennar.
Fór með eldri dótturina á skóla-
setningu, keypti skóladót, náði í þá
yngri til dagmömmu, náði í kon-
una í vinnuna, borðaði, vaskaði
upp, tattóveraði fólkið i næsta húsi
og sendi nokkur föx. Fór ekkert í
Pacman þennan daginn. Samt
gekk ég tiltölulega afslappaður til
náða um miðnætti. Varð ekki and-
vaka.
Gleymdi að minnast á að ég
Lét bíða að kaupa sjénvarpsstöð
þurfti að leggja það á sig að vera
með pabba allan daginn. Laust fyr-
ir klukkan tíu ókum við konu
ákvörðun í sambandi við Stone
Free, en það er sýning sem ég spila
í inni í Borgarleikhúsi og gengur
von úr viti. Ákvað að skipta út 1-2
lögum og setja nýtt gamalt efni inn
í staðinn. Það verður æft fljótlega.
Strákamir í Leikfélagi íslands
eru sárþjáðir af „promoveirunni"
ógurlegu, en það skilar sér í góðri
burstaði tennurnar og allt svoleið-
is þennan morgun. Bless.
-ingo
Finnur þú fimm breytingar? 375
Hvaöa hljóö var þetta, Edwin?
Nafn:___________________________
Heimili:------------------------
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sjötugustu og
þriðju getraun reyndust vera:
Ólöf Sandra Leifsdóttir 2. Páll Illugason
Keilusíðu 10H Álfheimum 44
603 Akureyri 104 Reykjavík
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þinu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, að
verðmæti kr. 7.100, frá Bræðmnum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bókin
Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 375
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík