Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Síða 31
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996
31
Mynduðu félagsskap í kringum ævafornt austurlenskt spil:
Hittast
reglulega til
ai spila
„Þetta byrjaði allt með því að ég
gaf bróður mínum GO-spil í jólagjöf
fyrir þrettán árum og hann seldi
mér það svo aftur í janúar. Ég og Al-
bert Ólafsson, félagi minn, höfum
spilað það síðan,“ sagði Sigurður
Guðni Haraldsson en hann er einn
af stofnendum íslenska GO-félagsins
á íslandi.
Fæstir vita hvað við er átt með
GO en það er eitt af elstu spilum
heimsins, upprunnið í löndum eins
og Kóreu, Japan og Kína. Spilið er
fyrir tvo og getur tekið frá 10 mínút-
um og upp í 2-3 klst. að spila það.
Það gengur í grófum dráttum út á
það að vinna svæði með þaulskipu-
lögðum og úthugsuðum leikfléttum,
eins konar hemaðarlist. „Það er nú
samt ofureinfalt að læra það, tekur
mann ekki nema 5 mínútur, og það
sem er mest heiliandi við spilið er
að það geta missterkir aðilar spilað
á jöfnum grandvelli. Þegar meistar-
ar era að spila getur það svo tekið
6-8 tíma,“ sagði Sigurður Guðni.
Enn eru ekki nema 8-10 aðilar í
GO-félaginu, allt karlmenn, en til
stendur að „gera skurk" i því og fá
fleiri til að spila. „Við höfum nú
ekki hist oft fram að þessu en ætl-
um að hittast einu sinni í mánuði
og spila tveir og tveir. Ef einn er
stakur fylgist hann bara með en það
getur verið alveg jafngaman. Þá er
maður óháður og sér miklu fleiri
góða leiki. Þá getur verið erfitt að
sitja á sér,“ sagði Sigurður Guðni.
Þó Sigurður hafi spilað í þrettán
ár segist hann eiga langt í land með
að verða meistari. „Það eru til
ákveðnir styrkleikastigar, svona
svipað og er í skákinni, nema þar
era notuð sömu heitin og í karate.
Þú getur orðið dan og þá ertu mjög
góður en áður en þú nærð því ertu
kyu. Byrjandi byrjar í 25 kyu og svo
lækkar hann þar til hann er orðinn
1 kyu. Þaðan fer hann yfir í 1 dan og
hækkar svo upp i 9 dan sem er topp-
urinn,“ sagði Sigurður sem sjálfur
er 7-9 kyu eins og flestir hinna í fé-
laginu. Þeir sem hafa áhuga geta
fengið nánari upplýsingar hjá Sig-
urði á kvöldin í síma 562 1664.
-ingo
„Mig var fariö aö dreyma þetta á næturnar," sagöi Siguröur Guöni sem hér er ásamt félögum sínum aö spila GO. Þeir
kynntust í gegnum spiliö. F.v.: Siguröur, Óli Kr. Ármannsson, Þorbergur Þórsson og Albert Ólafsson.
DV-mynd Pjetur
Þjóðdansafélags Reykjavíkur
Hefjast 16. sept. að Álfabakka 14a. Námskeiðin eru í 12 vikur.
Barnanámkeið 3-5 ára kr. 3.000.-
Barnanámskeið 6-8 ára kr. 4.500.-
Barnanámskeið 9 ára og eldri kr. 5.500.-
Ath. systkinaafsláttur.
Gömlu dansarnir fyrir byrjendur og lengra komna kr. 6.000.-
Stutt námskeið í linudönsum fyrir unglinga og fullorðna. kr. 2.500,-
Opið hús annað hvert miðvikudagskvöld, gömlu dansarnir o.fl.
Þjóðdansar frá ýmsum löndum verða dansaðir á fimmtudagskvöldum.
Allt dansáhugafólk velkomið.
Er þetta ekki tækifærið til að lífga upp á danskunnáttuna?
INNANHÚSS- 10«
ARKITEKTÚR
í frítíma yöar meö bréfaskríftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátt-
töku. Spennandi atvinna eða aöeins til eigin nota.
Námskeiðiö er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýs-
ingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm,
skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir, veggklæðningar,
vefnaöarvara, þar tilheyrir gólfteppi, húsgagnaefni og glugga-
tjöld ásamt hagsýni o.fl.
Ég óska án skuldbindingar aö fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn_________________________________
Heimilisfang_________________________
Akademisk Brevskole A/S
Jyllandsvej 15 • Postboks 234
2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark
VINNUMÁLASKRIFSTOFA
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTISINS
(ATVINNULEYSISTRYGGINGASJÓÐUR OG
ÁBYRGÐASJÓÐUR LAUNA)
er flutt í Hafnarhúsiö V/Tryggvagötu á 3. hæö.
Skrifstofan veröur opnuö þann
11. september 1996.
Nýtt símanúmer veröur 551 2500
og nýr bréfsími 551 2520.
Vegna flutningsins verður skrifstofan
lokuö 9. og 10. september.
Vinnumálaskrifstofa Félagsmálaráðuneytisins
;uní
Upplýsingar og
innritun í síma
587-1616
/-.^OFNK® v
' yUNí &s
Gríptu tækifæríð - þú gætir unnið
þér inn fyrír námskeiðinu
Erum farín að bóka í hin vinsælu módelnámskeið
og tekið verðnr fi/rir-
3ANGA/SVIÐSFRAMKOMA
FRAMKOMA/MANNLEG SAMSKIPTI
' PÓSUR/SNÚNINGAR
* FÖRÐUN/HÁRGREIÐSLA
* NÆRINGARFRÆÐI
' FÍKNIEFNAFRÆÐSLA
* MYNDATAKA - NÝTTi*
Tískusýning í lok námskeiðs
ásamt afh. prófskírteina.
*Teknar verða myndir af öllum þátttakendum og fara
þeir sjálfkrafa á skrá yfir fólk sem Módel 79 vísar á
í auglýsingar og fá þannig peninginn til baka.
Upplýsingar og innritun
í síma 588-8855 og 588-8783 alla virka
daga, milli 13 og 17.