Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Page 39
LlV LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 47 fólk Lindsey Duncan, sem hafi leikið móðurina. Kynnti teiknimyndir Þegar Gunnar var að byrja í skól- anum aftur síðasta haust var hann kallaður i prufu fyrir Disney-klúbb- inn en það er barnaþáttur með teiknimyndum sem sýndur er á sunnudagsmorgnum á ITV. Hann var svo einn af fimm krökkum sem kynntu ýmsar Disney-teiknimyndir í þættinum síðasta vetur. Þættirnir voru látnir gerast í fínum æskulýðs- klúbb, sem ungur maður rak, og voru krakkakynnarnir fjórir látnir tengja myndirnar saman, taka við- töl við frægar stjörnur og svo fram- vegis. „Þetta voru ekkert sérstaklega vandaðir þættir," segir Gunnar og Björg bætir við að þetta hafi ekki verið krefjandi en Gunnar mótmæl- ir því og segir að það hafi verið krefjandi í þeim skilningi að það hafi verið unnið hratt. Sex þættir hafi verið unnir á tveimur dögum. „Svo er þetta bara búið í bili,“ segir hann og mamma hans bætir við: „Guði sé lof.“ Steinullarbíllinn auglýsir Einangrum öll hús, ný sem gömul, meö steinull frá Sauöárkróki. Ullinni er blásið á sinn staö hvort sem er í holrúm, útveggi, þök, innveggi (hljóöeinangrun) eða ofan á loftplötur. Getum komist aö stööum sem erfitt er aö komast aö. Ókeypis skoöun - Gerum tilboö JÓN ÞÓRÐARSON Sími 587-9194, bílas. 853-3892, fax 587-9164 Fer í fleiri prufur Á næstu vikum fer Gunnar í nokkrar prufur í Bretlandi og kem- ur þá í ljós hvert framhald verður á leikaraferli hans. Hann hefur náttúrlega talsverða reynslu, meðal annars úr sjónvarpsauglýsingum því að hann hefur sést öðru hvoru í Cheerios-auglýsingu á MTV og hver veit nema framhald verði á slíkri vinnu. Sjálfur segir hann að sig dreymi um að leika á sviði enda sé það sérstök stemning. „í sjónvarpi eða kvikmyndum þarf maður ekkert endilega að kunna allan textann utan að. Maður þarf bara að vita hvað maður á að gera. Það er jafnerfið vinna en tals- verður munur á milli,“ segir hann. Mamma hans bætir við að í leikhúsi sé beint samband við áhorfendur og meiri heild í því sem leikarinn geri. Sýndir hér Islendingar mega búast við að sjá hann á skjánum á næsta ári þegar þættimir um Skrattann skólastjóra verða teknir til sýningar hér. Einnig er búið að kaupa hingað þáttaröð númer tvö um Just Willi- am. Gunnar leikur í fyrsta þættin- um í þeirri röð. Leiklistin tekur greinilega hug og hjarta unga mannsins og hann við- urkennir að það sé erfitt bæði lík- amlega og andlega að stunda skól- ann og leika samtímis í kvikmynd- um og sjónvarpsþáttum. Björg segir að honum gangi ágætlega að takast á við það. Honum gangi vel í skólan- um enda sé það ákveðinn þrýsting- ur, hann viti að hann verði að standa sig vel til að geta fengið leyfi þar. -GHS Úr Benjamín dúfu í Skrattann skólastjóra í ársbyrjun 1995 var Gunnar ný- kominn heim úr tökum á Benjamín dúfú. Hann var rétt búinn að slappa af í jólafríinu þegar óskað var eftir honum í prufuleik fyrir þættina Demon Headmaster eða Skrattinn skólastjóri, eins og Björg kallar þættina, á vegum BBC. Hann fór í fyrsta prufuleikinn og taldi að sér hefði gengið illa. Hann var svo kall- aður aftur í prufu og ákvað þá að gera sitt besta til að fá hlutverkið. Hann fékk svo eitt af aðalhlutverk- unum í þessum þrillerþáttum en þeir urðu geysivinsælir í Bretlandi. „Skólastjórinn vondi dáleiðir alla krakkana en getur ekki dáleitt fimm krakka og Gunnar er einn af þeim. Markmið hans er að ná völd- um í öllum heiminum og hann ætl- ar að notfæra sér skólann til að byrja meö,“ útskýrir Gunnar sögu- þráðinn. Gunnar Cauthery, einn af aðalleikurunum f kvikmyndinni Benjamín dúfu, hefur leikiö í fjölda sjónvarpsþátta í Bretlandi frá þvf myndin var tekin upp. Gunnar er þó hrifnastur af Benjamín dúfu, telur þá mynd vera þaö besta sem hann hafi gert og trúir því aö dúfan eigi eftir aö hefja sig til flugs þó aö hún hafi aöeins fengiö 10 þúsund áhorfendur hér á landi. DV-mynd BG Fyrsta þáttaröðin af Demon Head- master fékk svo mikið áhorf hjá BBC að önnur sería var strax gerð og vonir standa til að þriðja serían verði tekin upp næsta sumar. Gunn- ar segir að þættimir hafi komist í úrslit í keppni um besta barnasjón- varpsþáttinn í heiminum í fyrra, Le Prix Jeunesse. „Ég er í sjöunda himni með það,“ segir Gunnar. Hlutverkið í sjónvarpsþáttunum um skólastjórann gerði það að verk- um að Gunnar missti eina önn úr skóla því að það er erfitt að halda áfram með lærdóminn samhliða því að leika í mynd. Björg segir að BBC sjái krökkunum fyrir kennara og þau verði að læra tvo tíma á dag en það sé samt ekki það sama og að vera í skóla. „Þegar BBC kom aftur að máli við okkur og bað um hann aftur í 40 daga fyrir þáttaröð númer tvö þá sögðum við nei. Okkur þótti það of langur tími en vildum ekki stoppa þetta því að hann er hluti af þessu teymi. Sagan er svo mikið um krakkana og skólastjórann að ef ein- um er kippt úr þá er grundvellinum kippt undan þáttunum þannig að við sögðum að þeir gætu fengið hann í 20 daga. Höfundurinn varð hvort sem var aö skrifa nýja bók og varð þetta til þess að sagan þróaðist i ákveðna átt því aö Gunnar var ekki með allan tímann," segir Björg. Gunnar leikur bara í fyrstu BL4.SIÐ ÍHÓLF 0G 2 585-43152 GOLF Gunnar hefur leikiö í fjölda sjónvarpsþátta, meöal annars i framleiöslu bresku sjónvarpsstöövarinnar BBC. Búiö er aö kaupa þættina og veröa þeir teknir til sýninga í íslensku sjónvarpi á næsta ári. Þá fá íslenskir áhorfendur að sjá þennan dreng sem hefur leikið frá barnæsku og vinkaöi til áhorfenda þegar hann renndi sér niöur rennibraut sem smákrakki. DV-mynd BG um í Benjamín dúfu. Það var nú meira ævintýrið því að þá kom i ljós að það átti ekki aö taka það upp í ágúst heldur september, október og nóvember, einmitt meðan skól- inn er,“ segir Björg. Þau þurftu því að ná í skólastjórann, sem var í gönguferð í Norðymbralandi, fjarri sima, til að fá frí fyrir Gunnar. Leyf- ið kom svo fyrir rest úr símaklefa í Norðymbralandi og Gunnar lék eitt aðalhlutverkið í myndinni. Síðar fékk myndin svo verðlaun fyrir besta leikinn á erlendri kvikmynda- hátíð. „Benjamín dúfa er það besta sem ég hef gert. Þar var rétt fólk á rétt- um tíma á réttum stað. Gísli Snær var góður og hugmyndaríkur leik- stjóri. Við vissum alltaf hvar við höfðum hann. Það var mjög gott að vinna með honum og hinum strák- unum,“ segir Gunnar og bætir við að sagan sé frábær. „Við vorum eig- inlega að upplifa söguna meðan ver- ið var að taka myndina. Mér finnst synd hvað fátt fólk hefur séð mynd- ina,“ segir hann. „Ég hef á tilfínn- ingunni að það sé ennþá líf í Benja- mín dúfu,“ segir hann. „Myndin höfðar ekki síður til fullorðinna en barna. Hún hefur ekki fengið nóga aðsókn þó að hún sé alveg frábær,“ segir Björg en að- eins um 10.000 áhorfendur sáu Benjamin dúfu á íslandi. tveimur þáttunum og síðasta þætt- inum í þáttaröð númer tvö, í þáttim- um þar á milli liggur hann í dauða- dái á spítala. Rústa heilt hús í ágúst 1995 varð Gunnar svo fenginn til að koma í prufuleik vegna þáttaraðar númer tvö á Just William og lék hann í einum þætti. Just William-þáttaröðin gengur út á það að hástéttarmóðir fer með þrjá syni sína, tvíbura og eldri son, sem Gunnar lék, í sumarleyfi. Hún hafði farið um allt á mótorhjóli og haldið ræður um að hjálpa fátækum krökkum. Aðalpersónan William hittir syni hennar, heldur að þeir séu munaðarleysingjar og reynir að vera góður við þá. „Við fáum að leggja heilt hús í rúst, rífa snókerborð, brjóta vasa, háma í okkur mat. Það var mjög gaman,“ segir Gunnar og bætir við að í þáttunum hafi leikið þekktir breskir leikarar, til dæmis Joan Simms úr Áfram-myndunum og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.