Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1996, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
11
DV
Fréttir
Óskar Magnússon, fyrrverandi skólastjóri á Eyrarbakka:
Kennslubækur
í dönsku
hrútleiðinlegar
Nýlega lét Óskar Magnússon,
skólastjóri á Eyrarbakka, af störfum
eftir 45 ár við kennslu, þar af eftir
29 ár sem skólastjóri. Fyrir utan
kennslustörf á Stokkseyri í sex ár
hefur Óskar alltaf stundað kennslu
á Eyrarbakka.
DV ræddi aðeins við Óskar af
þessu tilefni og spurði hann hvað
honum fyndist helst hafa breyst á
þessum tíma. „Það er svo ótalmargt,
það hefur bæði aukist námsefnið og
orðið fjölbreyttara. Fræðslulögin frá
1946 voru varla komin til fram-
kvæmda þegar ég byrjaði en þau
voru mikið stökk frá því sem áður
var.“
Óskar hefur kennt öllum aldurs-
hópum en síðustu árin hefur hann
helst verið að kenna unglingum frá
12 ára og upp úr dönsku.
Nú flnnst krökkum oft lítið gam-
an í dönsku, hefur þú fundið fyrir
því?
„Nei, ég held ekki, enda komu
þeir vel út úr samræmdu prófúnum.
Þetta fer allt eftir þvi hvernig
danskan er meðhöndluð. Auk þess
fórum við með 9. og 10. bekk í viku-
ferð til vinabæjar Eyrarbakka í
Danmörku eftir prófin í vor, svona
Óskar Magnússon, fyrrverandi
skolastjori á Eyrarbakka, sem nú
hefur hætt kennslu eftir 45 ára starf.
DV-mynd K.Ein.
til að skerpa á dönskunni. Þeim
gekk nokkuð vel og fengu góð með-
mæli frá dönsku kennurunum. Hins
vegar notuðu krakkamir ensku sín
á milli enda stóðu þeir þá frekar
jafnfætis."
Óskar er ekki sammála þeim
röddum sem segja að hætta eigi
dönskukennslu á íslandi. „Meðan
við þykjumst vera í norrænu sam-
starfl er þetta nauðsynlegt, auk þess
sem Danir standa okkur næst á
margan hátt. Skólakerfið þeirra hef-
ur staðið okkur galopið svo það
væri mikil della að hætta við dönsk-
una. Það þarf að gera þetta
skemmtilegt, bækurnar sem hafa
verið gefnar út eru hrútleiðinlegar
og t.d. nýjustu bækurnar sem eru
kenndar em skrifaðar með hliðsjón
af kennslu fyrir nýbúa í Danmörku.
Margt af því er tóm tjara, þetta eru
upplýsingar um bæjarfélög sem þeir
búa í eða eitthvað slíkt. Þetta er
hundleiðinleg tugga megnið af þvi.
Efnið fyrir krakkana þarf að vera
áhugavert og skemmtilegt, ég notaði
mjög mikið danskar smásögur og
það er e.t.v. það besta."
Hafa krakkarnir breyst mikið
þessi ár sem þú hefur verið að
kenna?
„Nei, það held ég ekki, þetta er
svipað fólk, bara öðruvísi klætt og
ekki eru þeir óþægari." Óskar lítur
til þessa tíma með hlýjum hug, eða
eins og hann segir þá hefði hann
ekki hangið í þessu annars. -ggá
Akureyri:
Hættulegur hraðakstur í Gilinu
DV| Akureyri:
Aðalfundur Gilfélagsins á Akur-
eyri ályktaði um umferðarmál í
Gilinu og lýsti fundurinn þeirri
skoðun sinni að hávaði, hraðakst-
ur og hætta sem gangandi vegfar-
endum er búin í Gilinu sé meiri en
við verði unað. Fundurinn beindi
því til bæjarstjórnar að úrbætur
verði gerðar áður en slys verða í
götunni.
Þá ályktaði fundurinn vegna „ger-
breyttrar túlkunar Félagsheimila-
sjóðs á reglum um ferðastyrki vegna
menningarstarfsemi á Akureyri“
sem hefði grafið undan starfsemi
Listasumars og annarri skyldri
starfsemi í bænum. Fundurinn lýsti
furðu sinni og andúð á afstöðu Fé-
lagsheimilasjóðs til listastarfsemi á
vegum félagsins sem m.a. kemur
fram í þvi að ekki hafa fengist styrk-
ir vegna ferðalaga listamanna til
Akureyrar. Fundurinn skoraði á
stjóm Félagsheimilasjóðs að endur-
skoða þessa afstöðu sína. -gk
Nemendur og kennarar komu saman á Plötunni fyrir framan skólann þar sem afhjúpaöur var skjöldur meö áletrun
um skólann, gjöf frá fjörutíu ára afmælisstúdentum 1996. Dr. Finnbogi Guömundsson flutti stutta ræöu um Svein-
björn Egilsson, fyrsta rektor skólans, og kór skólans söng. DV-mynd Pjetur
150 ára afmæli MR
í fyrradag, þriðjudag, voru liðin
150 ár frá því að Lærði skólinn, nú
Menntaskólinn í Reykjavík, var
settur í fyrsta sinn. Um nýja skóla-
húsið og skólann sagði svo í blaðinu
Reykjavíkurpóstinum haustið 1846:
„Islands einasti skóli, sem seinast
var á Bessastöðum, var nú algjör-
lega fluttur til Reykjavíkur í haust,
þar sem skólahúsið nýja var albúið.
Það má fullyrða, að hið nýja skóla-
hús er það veglegasta, sem skólinn
hér nokkurn tíma hefur eignast,
enda hefir verið mjög til þess vand-
að, og ekki sparað fé, er því ekki
furða þó mikið hafi geingið í sölurn-
ar, en því fé má kalla vel varið, því
hvörjum íslendingi mun þykja það
miklu varða, að landsins einasti
skóli sé vel úr garði gjörður. 1 skól-
anum eru nú 60 lærisveinar, sem
skipað er í 3 bekki, þeir eru á fæði
hjá innbúum í Reykjavík, en hafa
allir svefnstofu og daglegt aðsetur í
skólanum."
Vígsla skólans fór fram með há-
tíðlegum hætti 1. október 1846. Þar
flutti Helgi G. Thordersen, biskup
landsins, vígsluræðu og gerði að
umtalsefni hvers vegna góður skóli
væri áríðandi hverju landi. Þá tal-
aði Sveinbjöm rektor Egilsson og
ræddi hvað heimtað væri af kennur-
um og lærisveinum og hvernig þeir
gætu leyst sem best af hendi ætlun-
arverk sín. Loks las Helgi Hálfdan-
arson, skólasveinn, skólabænina frá
Bessastöðum. Auk kennara og
skólasveina var Hoppe stiftamtmað-
ur viðstaddur athöfnina og fleiri
embættismenn, sem búsettir voru í
bænum og nágrenni hans. Um
kvöldið hélt Hoppe embættismönn-
um skólans og öðrum veislu í „kon-
ungsgarði“, þ.e. stiftamtmannsbú-
staðnum við Lækjartorg.
Göngu- og hlaupagreining
Hugsar þú um heilsuna?
Hvernig stígur þú í fótinn?
Tilboðsverð á göngu- og hlaupagreiningu
aðeins 99 kr.
Tilboðið gildir til 15.10.1996
F-l eilsuvenð
Krókhálsi 5,110 Reykjavík
Sími 567-7270
staðgreiðslu-
og greiðslukortaafslóttur ottt mlll/
og stighœkkandi
^ ^ Smáauglyslngar
birtingarafsláttur
550 5000
Reykvíkingar!
Reglulegum fundi
Borgarstjórnar Reykjavíkur
sem haldinn verður í dag,
fimmtudag kl. 17:00, verður
útvarpað á Aðalstöðinni FM 90.9.
Skrifstofa
borgarstjóra
' ' .. - ■■
Hagstœð kjör
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50% afsláttur
af annarri auglýsingunni