Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1996, Qupperneq 26
34
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
Afmæli__________________
s
Asgeir Höskuldsson
Ásgeir Höskuldsson, fyrrv. póst-
varðstjóri, Austurbrún 6, Reykja-
vík, verður áttræöur á morgun.
Starfsferill
Ásgeir fæddist að Hallsstöðum í
Nauteyrarhreppi við Djúp og ólst
þar upp til sjö ára aldurs en fluttist
þá með foreldrum sínum að Tungu í
sömu sveit. Hann kynntist snemma
öOum sveitastörfum þess tíma,
stundaði nám við MA 1933-36 en fór
aftur heim og gerðist ráðsmaður hjá
móður sinni er faðir hans lést.
Hann tók síðan við búskap í Tungu
og bjó þar til 1942 er hann gerðist
kaupamaður og síðan ársmaður,
m.a. á Laugabóli og Kirkjubóli í
Langadal. Hann gerðist síðan ráðs-
maður að Lundi í Lundarreykjadal
hjá Herluf Clausen 1944 en lenti þá í
slysi er íbúðarhúsið að Lundi brann
9.11.1944. Ásgeir flutti þá til Reykja-
víkur og hefur búið þar síðan.
Ásgeir hóf störf hjá Pósti og síma
1945, var póstburðarmaður þar í
nokkra daga, síðan póstafgreiðslu-
maður, var póst- og símstöðvarstjóri
á Keflavíkurflugvelli 1946-47, varð
síðan yfirpóstafgreiðslumaður og
lcks póstvarðstjóri.
Ásgeir sat i hreppsnefnd Nauteyr-
arhrepps 1938-42, sat í stjóm deild-
ar Kaupfélags ísfirðinga í
Nauteyrarhreppi 1940-42,
í stjórn Ungmennafélags-
ins Huld um árabil.
Hann sat í stjórn Póst-
mannafélags íslands
1945-70 og var formaður
þess 1968-70, sat í stjórn
Norræna póstmanna-
ráðsins 1968-70 og var
formaður þess 1969.
Ásgeir starfaði i Fram-
sóknarflokknum 1940-51,
var einn af stofnendum
Þjóðvarnarflokks íslands
og var tvisvar í framboði fyrir
flokkinn í Noröur-ísafjarðarsýslu.
Hann var varaborgarfulltrúi í
Reykjavík 1962-66. Þá var hann for-
maður Öldrunardeildar Póstmanna-
félags íslands 1982-86.
Fjölskylda
Ásgeir kvæntist 21.6. 1941 Ingileif
Guðbjörgu Markúsdóttur, f. 23.4.
1918, d. 8.8.1976, húsmóður. Hún var
dóttir Markúsar Kr. Finnbjörnsson-
ar, útvegsb. á Sæbóli í Aðalvík, og
k.h., Herborgar Árnadóttur frá
Skáladal í Sléttuhreppi.
Synir Ásgeirs og Ingileifar: Hö-
skuldur Borgar Ásgeirsson, f. 3.12.
1941, d. 9.11. 1944; sveinbam er dó í
fæðingu 1943; Ásgeir Ás-
geirsson, f. 14.4. 1951, d.
15.8. 1951.
Kjörsynir Ásgeirs og
Ingileifar eru Ásgeir Ás-
geirsson, f. 1.9. 1951,
starfsmaður við slátur-
hús i Danmörku, kvænt-
ur Ástu Sigríði Hall-
dórsdóttur húsmóður og
sjúkraliða, og eiga þau
þrjú böm, auk þess sem
Ásgeir á dóttur frá því
áður; Höskuldur Borgar
Ásgeirsson, f. 29.3. 1952,
framkvæmdastjóri markaðssviðs ís-
lenskra sjávarafurða, kvæntur Elsu
Þuríði Þórisdóttur húsmóður og
eiga þau þrjú böm, auk þess sem
Höskuldur á son frá því áður.
Systkini Ásgeirs; Jón Kristinn
Höskuldsson, f. 24.3. 1918, d. 1.1.
1996, lengst af leigubílstjóri í Kópa-
vogi, var kvæntur Kristrúnu Magn-
úsdóttur frá Amþórsholti og eru
synir þeirra þrír; Guðmundur Hösk-
uldsson, f. 18.6. 1919, lengst af full-
trúi hjá Samvinnutryggingum,
kvæntur Guðnýju Ásgeirsdóttur
húsmóður og eiga þau fimm börn;
Aðalsteinn Höskuldsson, f. 23.8.
1920, d. 17.4. 1987, starfsmaður hjá
Seðlabankanum, var kvæntur Kar-
ólínu Sigríöi Jónsdóttur úr Hrúta-
firði en slitu samvistum og eru syn-
ir þeirra tveir en seinni kona Aðal-
steins var Björk Friðriksdóttir úr
Reykjavík og eignuðust þau fjögur
börn; Níelssína Steinunn, f. 10.1.
1927, d. 5.1. 1928.
Foreldrar Ásgeirs voru Höskuld-
ur Kristinn Jónsson, f. 24.12.1888, d.
14.7. 1936, b. á Hallsstöðum og í
Tungu, og k.h., Petra Guðmunds-
dóttir, f. 9.6. 1888, d. 7.6. 1958, hús-
freyja og ljósmóðir.
Ætt
Bróðir Höskuldar var Jón, faðir
Höskuldar, forstjóra ÁTVR. Hösk-
uldur var sonur Jóns, b. í Hlíðar-
húsum á Snæfjallaströnd, Egilsson-
ar, sjómanns á Snæfjallaströnd, Þor-
grímssonar. Móðir Höskuldar var
María Kristjánsdóttir, vinnumanns
á Laugalandi.
Petra var dóttir Guðmundar, hús-
manns í Þernuvík, Sveinssonar, og
Petm Guðmundsdóttur, b. í Rima í
Laugardal á Barðaströnd, Ólafsson-
ar.
Ásgeir tekur á móti gestum í safn-
aðarheimili Áskirkju annað kvöld,
föstudaginn 4.10., frá kl. 17-19.
Ásgeir Höskuldsson.
Ólafur Th. Ólafsson
Ólafur Th. Ólafsson, framhalds-
skólakennari og myndlistarmaöur,
Lambhaga 26, Selfossi, er sextugur í
dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Þingholtunum og í Rauð-
arárholtinu og síðan í Hafnarfirði.
Hann lauk prófi frá Flensborgar-
skólanum, stundaði nám í húsamál-
un um skeið, lauk réttindaprófum i
bílamálun, stundaði nám við mál-
unardeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1976-79 og stundaði
síðan réttindanám við KHÍ 1989-90.
Ólafur stundaði bílamálun og
skiltamálun til 1982 en hefur síðan
verið kennari við Fjölbrautaskóla
Suðurlands.
Ólafur var formaður Félags
harmoníkuunnenda á Selfossi og
nágrenni 1991-96.
Fjölskylda
Eiginkona Ólafs er Sigrún Gyða
Sveinbjörnsdóttir, f. 12.5. 1937,
sjúkraliði við Sjúkrahús Suður-
lands á Selfossi og formaður Þroska-
hjálpar á Suðurlandi. Hún er dóttir
Sveinbjöms Ó. KristjánssonEur og
Guðrúnar Sigurðardóttur, fyrrum
bænda í Vesturkoti á Skeiðum.
Böm Ólafs og Sigrúnar Gyðu eru
Elín Vigdís Ólafsdóttir, f. 24.1. 1958,
grunnskólakennari, gift Ólafí Hauki
Matthíassyni og eiga þau þrjá syni;
Hrund Ólafsdóttir, f. 17.1. 1959, bók-
menntafræðingur
framhaldsskólakennari,
gift Sveini Harðarsyni
verkamanni og eiga þau
fjögur börn; Bragi Ólafs-
son, f. 16.12. 1961, kvænt-
ur Sólveigu Guðmunds-
dóttur og eiga þau sex
börn; Ólafur Þór Ólafs-
son, f. 2.7. 1964, iðnverka-
maður; Sigrún Ólafsdótt-
ir, f. 31.8. 1968, leikkona.
Hálfsystur Ólafs, sam-
mæðra, eru Jónína Björg
Gísladóttir, f. 2.9. 1947, þroskaþjálfi;
Bryndis Gísladóttir, f. 5.10. 1950,
hjúkrunarfræðingur; Kristín Ema
Gísladóttir, f. 6.2. 1953, veitingamað-
ur.
Foreldrar Ólafs: Ólafúr Snóksdalín
Ólafsson, f. 11.11. 1904, d.
4.11. 1969, lögregluþjónn í
Reykjavík, og Guðmund-
ína Þuríður Bjömsdóttir,
f. 9.4. 1914, húsmóðir í
Hafnarfirði og Reykjavík.
Ætt
Ólafúr var sonur Ólafs Jó-
hannssonar og Elínar Vig-
dísar Óladóttur sem
lengst af bjuggu í Ólafsey
á Breiðafirði.
Guðmimdína var dóttir Bjöms
Bjömssonar veggfóðrarameistara og
k.h., Jónínu Jensdóttur húsmóður,
sem bjuggu í Reykjavík.
Ólafúr verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Ólafur Th. Ólafsson.
Einar Nikulásson
Einar Nikulásson forstjóri,
Breiðagerði 25, Reykjavík, er sjötug-
ur í dag.
Starfsferill
Einar fæddist í Doktors-
húsinu, Vesturgötu 25 í
Reykjavík, en ólst upp við
Hringbrautina. Hann er raf-
virkjameistari að mennt.
Einar stofnaði eigið fyrir-
tæki árið 1945, E.N. lampa
hf., og hefur rekið það síðan
en það er nú til húsa að
Skeifunni 3B. Hann er
fyrstur manna í Evrópu til
að framleiða flúrlampa og
hefur hannað lampa fyrir
mörg stærstu fyrirtæki landsins. Þá
hefur hann flutt út lampa, m.a. til
Noregs.
Einar var stjórnarmeðlimur í Ex-
marco í Chicago 1975-85 og sat í
stjóm Promatex i Belgíu 1973-80.
Hann stofnaði bátafélagið Snarfara
og sat í stjórn þess í mörg ár.
Íhnar krantist 2.12.1944 Kristínu
Þórarinsdóttur, f. 6.9. 1922, húsmóð-
ur og píanókennara. Hún er dóttir
Þórarins, b., bókara og rithöfundar
af Reykjaætt, Árnasonar, prófasts
Þórarinssonar, og konu Þórarins,
Rósu, húsmóður og kirkjuorganista,
Lárusdóttur, prests á
Breiðabólstað, Hall-
dórssonar, af Hjarðar-
fellsætt.
Börn Einars og Kristín-
ar eru Rósa, f. 17.3.
1945, húsmóðir, gift
Guðmundi Ingimund-
arsyni viðskiptafræð-
ingi og eiga þau þrjú
böm; Ragnar Már, f.
5.9. 1947, framkvæmda-
stjóri í Reykjavík, en
kona hans er Arngunn-
ur Atladóttir og á hann
einn son; Þórhildur, f. 13.11. 1953,
húsmóðir í Reykjavík og á hún
fimm böm; Nikulás, f. 2.3. 1955, raf-
virki í Reykjavík, kvæntur Sigrúnu
Unnsteinsdóttur og eignuðust þau
fjögur börn.
Systkini Einars: Stefán, f. 23.4.
1915, nú látinn, viðskiptafræðingur,
var kvæntur Sigrúnu Bergsteins-
dóttur; Ragnheiður, f. 4.8. 1917, hús-
móðir í Reykjavík, ekkja eftir Magn-
ús Pálsson glerslípunarmann; Hall-
dór, f. 22.6. 1919, rafvirki í Reykja-
vík; Unnur, f. 21.1. 1924, húsmóðir
og píanóleikari í Reykjavík, ekkja
eftir Einar Eyfells vélaverkfræðing;
Halla, f. 17.5. 1931, húsmóðir í
Reykjavík, gift Þórði Þorvarðarsyni
deÚdarstjóra.
Foreldrar Einars: Nikulás Frið-
riksson, f. 29.6. 1887, d. 1947, raf-
magnsumsjónarmaður í Reykjavík,
og k.h., Ragna Stefánsdóttir, f. 6.4.
1889, d. 29.3. 1974, húsmóðir.
Ætt
Nikulás var sonur Friðriks, b. á
Litluhólum í Mýrdal, bróður Er-
lends, afa Erlends EinarssonEU-, for-
stjóra SÍS. Friðrik var sonur Björns
Bergsteinssonar, b. á Dyrhólum,
bróður Þuríðar, langömmu Berg-
steins brunamálastjóra og Ólafs G.
Einarssonar alþm. Móðir Friðriks
var Ólöf Þorsteinsdóttir, b. í Eystri-
Sólheimum, Þorsteinssonar, bróður
Finns, langafa Péturs Guðfinnsson-
ar, framkvæmdastjóra rikissjón-
varpsins, og afa Lárusar, afa Erlends
Lámssonar, forstöðumanns Trygg-
ingaeftirlits ríkisins.
Móðir Nikulásar var Halldóra
Magnúsdóttir, b. í Dyrhólahjáleigu,
Ólafssonar, og Sigríðar Sigurðardótt-
ur, b. á Hrauni, Ámasonar. Móðir
Sigríðar var Halldóra Runólfsdóttir.
Ragna var dóttir Stefáns, héraðs-
læknis i Vík í Mýrdal, Gíslasonar, b.
á Laugum í Flóa, Gunnarssonar.
Móðir Stefáns var Halla, systir Guð-
rúnEir, móður Markúsar, afa HarðEur
Ágústssonar, myndlistarmanns og
fyrrv. skólastjóra, en Markús var
einnig lEmgafi Markúsar ArnEU- Ant-
onssonar borgarstjóra. Þá var Guð-
rún móðir Guðjóns, afa Áma Geirs
Stefánssonar lektors og Unnars Stef-
ánssonar hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, fóður Kristjáns Más,
fréttamanns á Stöð 2. Önnur systir
Höllu var Ingibjörg, langamma Eð-
valds Sigurðssonar, alþingismanns
og formEums Dagsbrúnar. HaOa var
dóttir Jóns, b. i Galtafelli, Bjömsson-
ar, b. í Vorsabæ, Högnasonar, lrm. á
Laugarvatni, Bjömssonar, bróður
Sigríðar, móður Finns Jónssonar
biskups. Móðir Jóns í Galtafelli var
Bryngerður Knútsdóttir, systir Sig-
ríðar, ömmu Tómasar Guðmunds-
sonar skálds og Hannesar þjóðskjala-
varöar og Þorsteins hagstofustjóra
Þorsteinssona.
Móðir Rögnu var Ragnheiður
Guðrún Einarsdóttir, verslunar-
stjóra í Reykjavík, JafetssonEU-, og
Guðrúnar Jónsdóttur.
Einar verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Einar Nikulásson.
DV
Til hamingju
með afmælið
3. október
90 ára
Sigdór Hallsson,
Löngumýri 8, Akureyri.
80 ára
Gunnar P. Óskarsson,
Sólvallagötu 4, Reykjavík.
Einar Oddberg Sigurðsson,
Hrafhistu í Reykjavík.
Þorsteinn Jóhannsson,
Kárastíg 5, Reykjavik.
75 ára
Kristján Guðmundsson,
Skáldsstöðum, Reykhólahreppi.
Einar Nikulásson,
Breiðagerði 25, Reykjavík.
Aðalheiður Jónsdóttir,
Austurbrún 6, Reykjavík.
70 ára
Ólafur G. Hjartarson,
Ásvallagötu 33, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson,
Hlíðargötu 39, Sandgerði.
Eiginkona hans er Sigurbjörg
Guðmundsdóttir.
Þau taka á móti gestum í sam-
komuhúsinu í Sandgerði laugar-
daginn 5.10., kl. 17-20.
60 ára
Hreinn Pétursson,
Brekkugötu 5, Reyðarfirði.
Pétur Þór Ólafsson,
Brekkugötu 7, Vogum.
Elfa Gunnarsdóttir,
Fannarfelli 10, Reykjavík.
Hjördis Guðmundsdóttir,
Hörgslundi 4, Garðabæ.
Jensína Þórarinsdóttir,
Hrauntungu 49, Kópavogi.
50 ára
Sigurbjörg Óskarsdóttir,
Dælengi 14, Selfossi.
Jón Sigurðsson,
Stóra-Lambhaga 1 B, Skil-
mannahreppi.
Linda Elisabet Eymunds-
dóttir,
Hafnarbyggð 51, Vopnafirði.
Valgerður Kristinsdóttir,
Miðengi, Grímsneshreppi.
40 ára
Angantýr Amar Ámason,
Kringlumýri 14, Akureyri.
Kristinn Ingi Gunnarsson,
Brattholti 1, Hafnarfirði.
Einar Sveinsson,
Vatnsendabletti 19, Kópavogi.
Bjami Þór Ólafsson,
Kjarrbergi 1, Hafnarfirði.
Jóhanna Ingimarsdóttir,
Vesturbergi 70, Reykjavík.
Karles Randversson,
Móasíðu 6 B, Akureyri.
Eiginkona hans er Aðalbjörg
Marinósdóttir.
Þau taka á móti gestum í
starfsmannasal KEA í Sunnu-
hlíð föstudaginn 4.10., frá kl.
20-23.30.
Sævar Óskarsson,
Kríuhólum 4, Reykjavik.
Steinunn Guðbrandsdóttir,
Hrismóum 7, Garðabæ.
Ólöf Sigurlín Kristinsdóttir,
Stekkjarhvammi 12, Hafnar-
firði.
Jón Höskuldsson,
Rauðalæk 42, Reykjavík.
Elín Arndís Lámsdóttir,
Lágengi 4, Selfossi.
Ágústa Egilsdóttir,
Svínaskálahlíð 23, Eskifirði.
Ingólfur Proppé,
Vogatungu 4, Kópavogi.
Unnur Þórðardóttir,
Álfholti 24, Hafnarfirði.
Ingi Garðar Björnsson,
Rimasíðu 12, Akureyri.