Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1996, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1996 Fréttir Jón Baldvin Hannibalsson hættur sem formaður Alþýðuflokksins: Kominn í land eftir stormasamt úthald - ráði mínu um arftakann var misjafnlega tekið en því var tekið, segir Jón Baldvin sýndi sig á viðreisnarárunum. „Með það lögðum við upp í ríkis- stjórninni 1991-1995 en það hefur tvennt gerst: Annars vegar það að reynslan af samstjóm og samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn sýndi að ekki var allt sem sýndist. Þeir vora ekki bara framsóknar- menn í landbúnaðarmálum. Þeir eyðilögðu GATT-samninginn með mjög harkalegum hætti og tóku ekk- ert tillit til sjónarmiða neytenda. Þeir hafa lengi verið opnir í báða enda hvað varðar fiskveiðistjórnun- ina en á landsfundi sínum núna þá tóku þeir af skarið með að þeir væra kvótaflokkurinn. Það sem kom okkur mest á óvart var að í Evrópumálum, þar sem snertiflöturinn hefði átt að vera hvað nánastur, kom á daginn að sjálfstæðisforystan er þjóðlegir íhaldsmenn og tala í utanríkismál- um svipaðri röddu og Hjörleifur Guttormsson." -SÁ „Mér líður eins og þeim skipstjóra sem kominn er í land eftir langt og stormasamt úthald,“ sagði Jón Bald- vin Hannibalsson, fráfarandi for- maður Alþýðuflokksins, í samtaliö viö DV í gærkvöldi. Jón Baldvin sagði að sér litist vel á nýkjöma forystu flokksins. Hann hefði brugðiö á það óvenjulega ráö að mæla með eftirmanni sínum í for- mannssætið, sem var misjafnlega tekið, „en því var tekið,“ sagði hann. Jón Baldvin fékk vilja sínum framgengt hvað varðaði formanninn en ekki hvað varðaði varaformanns sætið en í það mælti hann með Guð mundi Áma Stefánssyni til áfram haldandi setu. Það gekk ekki eftir, „Það sem mér gekk til var að ég vildi tryggja að út úr þessu flokksþingi kæmi samhent forystusveit og vísaði til vondrar reynslu af átökum um menn þegar ekki væri um málefnaá- greining að ræða. Það varð hins veg- ar mikil sátt um þessa forystubreyt- ingu og ég held að þetta skilji ekki eftir nein sár,“ segir Jón Baldvin. Konur á flokksþinginu sameinuð- ust um framboð Ástu B. Þorsteins- dóttur í varaformannssætið og Jón Baldvin segir að kvennabyltingin hafi verið kapall sem gekk ófyrirséö upp á flokksþinginu en væri ágæt skilaboð. Konur séu nú sterkari en áður í forystu flokksins og kona sé varaformaður, ritari, gjaldkeri, for- maður þingflokks, varaformaður þingflokks og konur séu í meiri- hluta í framkvæmdastjórn. Þá hafi ungt fólk mjög styrkt stöðu sína. Flokksþingið beindi ákveðnar en oft áður spjótum sínum að Sjálf- stæðisflokknum. Jón Baldvin segir það vissulega raunina en misskiln- ingur sé að það sé einhvers konar ákvörðun þessa þings heldur endur- spegli það fremur þróun sem átt hef- ur sér stað. Snertifletir Alþýöu- flokks og Sjálfstæöisflokks í sög- unni hafi verið utanríkismál, utan- ríkisviðskipti, fríverslun og kerfis- breytingar í fijálsræðisátt, eins og Jón Baldvin Hannibalsson, fráfarandi formaöur Alþýöuflokksins, óskar eftir- manni sínum, Sighvati Björgvinssyni, til hamingju. DV-mynd GVA Innihaldiö i stórum potti, sem notaöur er viö aö sjóöa sultu, var oröiö aö brunarústum þegar slökkviliöiö kom í fyrirtækiö Búbót á Skemmuvegi 24 skömmu fyrir hádegiö í gær. Maöur í næsta húsi tilkynnti um mikinn reyk sem lagöi frá húsinu. i Ijós kom aö gleymst haföi aö slökkva á pottinum. Skemmdir uröu einhverjar af völdum reyks. DV-mynd S Trilla sökk: Stór f ríholt í bryggu Fimm tonna trilla, Elín ÍS 194, sökk í höfninni í Ólafsvík aðfaranótt sunnudagsins. Aö sögn lögreglunnar benti allt til að trillan hefði nánast verið komin undir stórt fríholt á fjör- unni þar sem hún lá næst trébryggj- unni og síðan lagst á hliðina og sokk- orsökin ið þegar hækkaði í aftur á aðfallinu. Þegar að var komið í gærmorgun var trillan sokkin og var lokið við að hífa hana upp og dæla úr henni upp úr hádegi. Henni var síðan komið á land í gærkvöldi. Ljóst er aö fjón varð mikið á bátnum. -Ótt Þó getur svarað þessari spurningu með því aö hringja t stma 9041600. 39,90 kr. mínútan Já M Nel 2> j rödd FOLKSINS 904 1600 Á Sjávarútvegsháskóli Sameinuðu þjóðanna að vera á Akureyri? Undarleg skilyrði við opnun lyfjabúðar Hagkaups: Sættum okkur ekki viö svona meðferð - segir Óskar Magnússon forstjóri Hagkaup opnaði lyfjaverslun í verslun sinni í Skeifunni fyrir helgi og era aðstandendur verslunarinn- ar mjög jákvæðir á viötökumar þrátt fyrir að ýmislegt hafi gengiö á við undibúninginn. Óskar Magnús- son, forstjóri Hagkaups, sagöi í sam- tali við DV að vinnan við opnun búðarinnar hefði verið töluvert á móti straumi. „Það voru búin til ný skilyrði á hverjum degi af hálfu yfirvalda, skilyrði sem við teljum aö eigi sér enga stoð i raunveruleikanum og ekki sé heimild fyrir. Þetta voru alls konar uppátæki, eitt í dag og annað á morgun. Það sem fór einna mest fyrir brjóstið á okkur vora þessi sérkennilegheit að starfsfólk lyfja- búðar sé öðruvísi en annað starfs- fólk. Lyfjaeftirlitið vildi t.d. ekki leyfa að starfsfólkið í lyfjabúðinni drykki kaffi með þeim sem vinna annars staðar í búðinni, þetta er auðvitað mjög furðulegt sjónarmið. Því þurftum við að setja upp sér- staka kaffistofu fyrir þá sex einstak- linga sem vinna í apótekinu og sér- stakt klósett fyrir þá líka. Þá þarf líka að geyma skrúbbana, sem not- aðir era í apótekinu, í sérstökmn skáp og alls ekki hjá hinum skrúbb- unum sem við eigum.“ „Þetta gekk á endanum með því að hlýða því sem fyrir okkur var lagt þó við séum þeirrar skoöunar að það hafi verið óheimilt aö setja okk- ur þessi skilyrði. Við sáum fram á að ef við færum ekki eftir þessu þá myndum við sennilega ekki opna fyrr en eftir eitt eða tvö ár en næst þegar við sækjum um apótek, eins og hugmyndin er, þá munum við ekki sætta okkur við svona meö- höndlun." „Við teljum okkur vera að bjóða ódýrastu lyfin og munum flytja beint inn um leið og viö náum þeirri stærð sem til þarf, viö erum ekki komnir í það ennþá. Það fer allt eftir því hvemig viötökumar verða en hingað til hafa þær verið hreint frábærar, það hefur verið hreint kjaftfullt frá því það var opn- að.“ Óskar sagði lyfjabúðina bjóöa upp á allt það sem fengist í öðrum lyfjaverslunum nema hliðarvörum- ar, enda fengjust þær í Hagkaupi hvort sem væri. „Þetta er ódýrari gerð af venjulegu apóteki," sagöi Óskar að lokum -ggá Kartöfluverð: Verðhækkun spáð í vikunni Kílóverðið á kartöflum var komið allt niður í 5 krónur strax fyrir helgi á höfuðborgarsvæðinu og hélst þannig í nokkrum verslunum um helgina. Jóhannes Jónsson í Bónusi sagöi að erfitt yrði að spá um framhaldið, verðið hefði haldist 5 krónur á kíló- ið í gær og framhaldið væri óút- reiknanlegt. „En ég hef nú trú á að verðið hækki í vikunni enda var þetta orðið svolítið öfgakennt," sagði Jóhannes í samtali viö DV. Óskar Magnússon, forstjóri Hag- kaups, sagði að ekki yrði gott að segja um framhaldið en það væri ljóst að Hagkaup myndi ekki heyja verðstríð í neinum vitleysisgangi. „Við munum auövitað reyna að fylgja markaðnum en ekki út í neina endaleysu eins og allir sjá að þetta er orðið. Menn era jafnvel famir að gefa kartöflumar. Við tök- um ekki þátt i svoleiðis leikfimi," sagði Óskar. -ggá Stuttar fréttir Norðurlandaráðsþing Norðurlandaráðsþing hefst í Kaupmannahöfh í dag og er hald- ið undir nýju skipulagi sem bygg- ist á því að þingiö starfar sam- kvæmt flokkspólitískum línum. Þinginu lýkur á miðvikudag. Hafa bótarétt Örn Pálsson, framkvæmda- stjóri Landssambands smábáta- eigenda, segir útgerðarmenn eiga rétt á bótum samkvæmt ákvæð- um stjómarskrárinnar sé þeim gert ómögulegt að stunda veiðar vegna skertra veiðiheimilda. RÚV segir frá. Messugæði Hagvangur er að gera könnun á gæðum kirkjuþjónustunnar í Stóra-Núpsprestakalli fyrir sókn- arprestinn þar. Kannaö er m.a. hvort fólki finnist messuvíniö vont og hvort því þyki slæmt þeg- ar organistinn spilar feilnótur. RÚV segir frá. Colin og Sigrún lent Álftahjónin Colin og Sigrún era lent í Skotlandi eftir að hafa flogið yfir hafiö frá íslandi. Gervihnattasendir er á fuglunum og hefur verið fylgst með fór þeirra til vetrardvalarstaðar þeirra. RÚV segir frá. Guðmundur Árni ofan á Össur Skarphéðinsson alþing- ismaöur telur Guömund Árna Stefánsson ótvíræðan sigurveg- ara flokksþingsins um helgina og hafa fengið pólitíska uppreisn og komið sterkur út úr formanns- kjörinu. Stöð 2 segir frá. Jón Baldvin tii Kína Jón Baldvin Hannibalsson er á leið til Kína þar sem hann mun halda fyrirlestra við háskóla þar í landi. Hann kveðst ekki munu gefa kost á sér í næstu alþingis- kosningum. Prestskosning Hluti safnaðarbarna í Lang- holtssókn vill að almenn prests- kosning meðal sóknarbama skuli fara fram og telur að það muni efla söfnuðinn. Líklegt er hins vegar að kjörmenn muni velja söfnuðinum nýjan prest. Stöð 2 sagöi frá. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.