Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1996, Blaðsíða 36
44
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1996
Vísindamennirnir höfðu alltaf
rétt fyrir sér.
Það fór sem
hlaupið átti
að taka
„Þetta er hálfgerður hátíðis-
dagur verkfræðinga og vísinda-
manna í þeim skilningi að í raun
eyðilagði hlaupið það sem það
átti að eyðileggja.“
Stefán Benediktsson þjóð-
garðsvörður, í DV.
Ekki einu sinni
kjallaratröppur
„Hvað þýðir að vera að safna
fyrir einhverjum loftkastala sem
hvergi sér stað, engin teikning,
enginn grunnur, ekki einu sinni
kjallaratröppur?“
Pétur Gunnarsson rithöfundur,
ÍDV.
Ummæli
Pólitíski
umskiptingurinn
„Sjálfstæðisflokkurinn er orð-
inn að pólitískum umskiptingi."
Sighvatur Björgvinsson, í
Alþýðublaðinu.
Kvóti án laga
„Þeir eru að ákveða kvóta á
Flæmska hattinum áður en lög
eru samþykkt um kvóta. Mikill
er sjálfsbirgingshátturinn."
Snorri Snorrason útgerðar-
maður, um skertan rækju-
kvóta, í DV.
Rússíbanar og
parísarhiól
Rússíbanar verða afltaf stærri
og stærri og brautimar lengri og
lengri. Nýlega bárust þær fréttir
að stærsti rússíbani í heimi hefði
verið smíðaður í Japan. Varlega
ber að taka tölum um hraða því
það hefur komið í ljós að flestir
ýkja þegar hraðinn er auglýstur.
Áður en rússíbaninn i Japan kom
til sögunnar var stærsti rússíban-
inn Ameríski örninn sem er í
skemmtigarði í Illinois í Banda-
ríkjunum. Fallhæð hans er 44,92
metrar og mældur hefur verið
mestur 106 km hraði. Lengsti rús-
síbani í heimi er Skepnan sem er
í Ohio í Bandaríkjunum. Öll
brautin er 2,2 kílómetrar og þar af
eru 250 metrar inni í jarðgöngum.
Blessuð veröldin
Parísarhjól
Stóru, lóðréttu hjólin í
skemmtigörðum hafa á íslensku
verið nefnd parísarhjól en það er
afbökun úr Ferrishjól, kennt við
hönnuð fyrsta hjóls þessarar gerð-
ar, George W. Ferris, sem reisti
það árið 1893 í Chicago og var
kostnaðurinn 385 þúsund dollar-
ar. Það var 76 metrar í þvermál,
240 metrar í ummál, 1087 tonn að
þyngd og flutti 36 körfur sem tóku
60 manns í sæti, svo farþegar gátu
alls verið 2160. Árið 1904 var hjól-
ið flutt til St. Louis en selt fljót-
lega til niðurrifs fyrir 1800 doll-
ara.
1. og 2. farrými
Þróunin hélt áfram. Árið 1897
var parísarhjól sett upp á sýningu
í London. Það var 86,5 metrar í
þvermál með 10 körfur á 1. far-
rými og 30 á 2. farrými. Stærsta
parísarhjól sem nú er í notkun er
Pétur risi í Japan. Það er 85 metr-
ar í þvermál og tekur 384 farþega.
Snjókoma norðan-
og vestanlands
Skammt vestur af Vestfjörðum er
985 mb lægð sem hreyfist suðaustur
og grynnist. Yfir Vestur- Grænlandi
er 1032 mb hæð á austurleið.
Veðrið í dag
í dag er gert ráð fyrir norðan-
kalda eða stinningskalda með dálít-
illi snjókomu eða éljum norðan- og
vestanlands fram eftir degi. Síðdeg-
is lægir og styttir upp. Veður fer
kólnandi og því vægt frost víðast
hvar.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
suðaustankaldi og rigning fram á
nótt en síðan norðankaldi og dálítil
él. Þegar líður á morgundaginn
styttir upp og léttir til. Hiti verður
1-4 stig í kvöld en vægt frost á
morgun.
Sólarlag í Reykjavík: 16.39
Sólarupprás á morgun: 09.47
Síðdegisflóð f Reykjavik: 18.27
Árdegisflóð á morgun: 06.48
Veðrið hl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri skýjað 2
Akurnes skýjað -4
Bergstaðir skýjað 1
Bolungarvík rigning og súld 4
Egilsstaðir léttskýjað -0.3
Keflavíkurflugv. úrkoma í grennd 4
Kirkjubkl. snjókoma -1
Raufarhöfn skýjað -2
Reykjavík rigning 3
Stórhöfði slydduél 2
Helsinki skúr 4
Kaupmannah. léttskýjað 7
Ósló snjóél á sið. kls. -1
Stokkhólmur léttskýjaó 1
Þórshöfn snjók. á síö. kls. -0.6
Amsteráam rigning og súld 7
Barcelona skýjað 18
Chicago heiðskirt -4
Frankfurt alskýjað 8
Glasgow léttskýjað 3
Hamborg þokumóða 4
London rigning 6
Los Angeles skýjað 17
Madrid þokumóöa 15
Malaga léttskýjað 20
Mallorca hálfskýjað 20
París rigning 8
Róm skýjað 17
Valencia hálfskýjað 20
New York skýjað 6
Nuuk skýjað -6
Vin skýjað 10
Washington léttskýjað 2
Winnipeg alskýjað -10
Viktor B. Kjartansson varaþingmaður:
Tek stundum í píanóið til að ergja fjölskylduna
vera þingmaðm- er mjög lifandi
starf og maður er inni í hringiðunni
á hveijum tíma og fylgist vel með
því sem er að gerast og hefur hönd-
ina svolítið á púlsinum í þjóðfélag-
inu.“
Viktor á nokkur áhugamál fyrir
utan tölvunarmálin og stjómmálin:
„Það er útivera og gönguferðir og ég
reyni að fara út í náttúruna yfír
sumarmánuðina með fjölskyldunni.
Þá er ég nýbyrjaður að fikta við
skotveiðina og hef mjög gaman af
því. íþróttirnar eru líka ofarlega og
þá helst karfan. Ég æfi körfu einu
sinni i viku með 1. flokki i Njarð-
vík.“
Viktor var 6 ár í Tónlistarskólan-
um í Keflavík að læra á trompet og
píanó og kannski ekki skrýtið þar
sem hann kemur úr mikilli tónlist-
arfjölskyldu. Bræður Viktors eru
Magnús, tónlistarmaður með meiru,
og Finnbogi, sem einnig er í tónlist-
inni, og Kjartan Már sem er skóla-
stjóri Tónlistarskólans í Keflavík.
„Ég spila mjög lítið á hljóðfæri í dag
en gríp kannski aðeins í píanóið til
að ergja fjölskylduna af og til,“
sagði Viktor hlæjandi.
Eiginkona Viktors er Ása Hrund
Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræðing-
ur og eiga þau tvö börn, Sigurjón
Frey, 2 ára, og Alexíu Rós, eins árs.
-ÆMK
Fyrirliggjandi tölur Myndgátan hér aö ofan lýsir orðasambandi.
DV, Suðurnesjum:
Viktor B. Kjartansson varaþing-
maður, sem nú situr á Alþingi fyrir
Reykjaneskjördæir.í, hefur lagt fram
fyrirspurn fyrir samgönguráðherra
varðandi Internet Pósts og síma.
Viktor telur ekki rétt að stofnun
eins og Póstur og sími vindi sér í
skyndingu inn á samkeppnismark-
að þar sem mörg smá einkafyrir-
tæki hafa verið að eyða fjármunum
í mörg ár til að hasla sér völl.
Viktor er fyrsti varaþingmaður
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í ReyKja-
neskjördæmi. Hann er 29 ára gamall
og er yngsti sitjandi þingmaðurinn
og sá fyrsti undir 30 ára aldri sem
sest hefur á Alþingi um nokkum
Maður dagsins
tíma. Hann útskrifaðist frá Háskóla
íslands í tölvunarfræði 1990 og hef-
ur rekið sitt eigið fyrirtæki síðan.
„Tölvunarfræðin er alveg geysilega
spennandi fag og má segja að maður
gæti eytt öllum deginum í að fylgj-
ast með því nýjasta sem er að ger-
ast.“
Þrátt fyrir ungan aldur hóf Vikt-
or snemma afskipti af stjómmálum
og var í forystu Vöku, félags lýðræð-
issinnaðra stúdenta, í háskólapóli-
Viktor B. Kjartansson.
tíkinni. Þegar Viktor var í Fjöl-
brautaskóla Suöumesja var hann
formaður Félags ungra sjálfstæðis-
manna í Keflavík og síðan tók hann
þátt í að stofna nýtt félag þegar
sveitarfélögin þrjú, Keflavík, Njarð-
vík og Hafnir, sameinuðust í eitt,
Reykjanesbæ, og var Viktor fyrsti
formaður þess félags. Þá sat Viktor
sem varabæjarfulltrúi í Keflavík
sinn fyrsta bæjarstjórnarfund að-
eins 23 ára gamall árið 1990. Hann
gaf síðan kost á sér til Alþingis
sama ár og eftir kosningar var hann
3. varaþingmaður en komst aldrei
inn á Álþingi á kjörtímabilinu: „Að
DV
Sigrún Sói Ólafsdóttir leikur eina
hlutverkið í leikritinu.
Gefin fyrir drama
þessi dama
í Höfðaborginni í Hafnarhús-
ir.’i hefur undanfamar vikur
venð sýndur einleikurinn Gefm
fyrir drama þessi dama eftir Me-
gas og hafa viðtökur verið góðar.
Verkið fjallar um sex kon-
ur/stúlkur sem auðveldlega má
þekkja úr ýmsum afkimum sam-
félags okkar íslendinga. Sumar
má hitta í strætó, einhverjar á
mölinni eða í sveitinni og aðrar
á virðulegum kontómm eða bör-
um stórborgarinnar. Þetta eru
konur sem ýmist hafa kross að
bera eða djöful að draga, konur
sem allir þekkja, úr öllum áttum,
túlkaðar af einni leikkonu.
Leikhús
Sú sem túlkar persónurnar er
Sigrún Sól Ólafsdóttir. Stutt er
síðan hún vakti athygli i ein-
leiknum Ég var beðin að koma
sem sýndur var í Kaffileikhús-
inu. Leikstjóri er Kolbrún Hall-
dórsdóttir. Höfundinn, Megas,
þekkja fiestir íslendingar. Hann
er þekktastur sem tónlistarmað-
ur en hefur einnig ort ljóð og
meöal annars þýtt leikrit. Gefin
fyrir drama þessi dama er fyrsta
frumsamda leikritið hans.
Næsta sýning er annað kvöld.
Bridge
Fjölmargir frægir spilarar komu
til spilamennsku á Rhódos, þótt þeir
væru ekki endilega í sterkustu
sveitunum. Einn hinna frægu spil-
ara á mótinu var George Rosen-
kranz sem spilaði fyrir heimaland
sitt, Mexíkó. Þeim gekk heldur illa á
mótinu, Mexíkó spilaði í sama riðli
og íslendingar og endaði þar í 33.
sæti af 36 þjóðum. En að sjálfsögðu
fékk Rosenkranz tækifæri til að láta
ljós sitt skína af og til. Hann og
spilafélagi hans, Miguel Reygadas,
náðu til dæmis skemmtilegri
slemmu á 4-3 samlegu á þessi spil í
AV í 25. umferð. Andstæðingarnir
voru Venesúelar og sagnir gengu
þannig, suður gjafari og enginn á
hættu:
é ÁD743
V 842
♦ 8743
* D
* 965
* ÁD106
f ÁDG
* 1083
f
■f
*
Suður
pass
pass
pass
p/h
Vestur
1 f
3 v
5 *
Norður
1 f
pass
pass
Austur
2 f
4 f
6 f
Tígulopnun Rosenkranz lofaði
alla jafna tígullit og fjórir tíglar
austurs var fimm ása spurning með
tígulsamþykktan tromplit (RKCB).
Fimm laufa svarið sýndi tvo af
fimm ásum og lofaði jafnframt
trompdrottningu og þá lét Reygadas
vaða í slemmuna. Útspil norðurs
var tromp og úr því trompin lágu 4-
2, spilaði Rosenkranz öllum tromp-
unum. Næst lagði hann niður
laufásinn og var ánægður þegar
drottningin kom siglandi frá norðri.
Hann tók þá fjóra slagi á lauflitinn,
síðan tvisvar hjarta og endaði
heima. Hann spilaði síðan spaða að
kóngnum sem var betri leið heldur
en að treysta á hagstæða legu í
hjartanu. Norður sparaði honum
ómakið með því að fara upp með ás
og tryggði þar með vörninni einn
slag. ísak Öm Sigurðsson