Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1996, Blaðsíða 8
MANUDAGUR 11. NÓVEMBER 1996
F.h. Byggingadeiidar borgarverkfræöings er óskaö eftir
tilboöum í lokafrágang viöbyggingar viö Grandaskóla.
Um er að ræöa frágang innanhúss á 2.000 m2 viðbyggingu sem er
frágengin aö utan.
Helstu verkþættir: Tréverk, málun, raflagnir, múrverk, pípulagnir og
dúklagnir.
Verkinu á að vera lokið 20. júlí 1997.
Útboösgögn fást á skrifstofu vorri gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Opnun tilboða: fimmtud. 28. nóvember 1996 kl. 14.00 á sama staö.
bgd 148/6
F.h. Húsnæöisnefndar Reykjavíkur er óskað eftir tilboöum í:
1. Útihuröir
2. Handrið úr galv. stáli
3. Steyptar svalaeiningar í 102 íbúðir í Álfaborgum/Dísaborgum í
Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá og meö miðvikud. 13. nóv. nk.
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu pr. verkþátt.
Opnun tilboða: miövikud. 27. nóvember 1996 kl. 11.00 á sama stað.
hnr 149/6
F.h. Húsnæðisnefndar Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í:
1. Múrverk
2. Flísalögn
3. Málningar og sandspartl
í 102 íbúðir í Álfaborgum/Dísaborgum í Reykjavík.
Útboösgögn fást á skrifstofu vorri frá og meö miðvikud. 13. nóv. nk.
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu pr. verkþátt.
Opnun tilboöa: þriöjud. 3. desember 1996 kl. 11.00 á sama stað.
hnr 150/6
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. sjálfseignarstofnunar
Skógarbæjar, óskar eftir tilboöum í uppsetningu á brunaviðvörun-
arkerfi fyrir hjúkrunarheimiliö Skógarbæ að Árskógum 2,
Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá og meö þriöjud. 12. nóv. nk.
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Opnun tilboða: fimmtud. 28. nóvember 1996 kl. 11.00 á sama staö.
bgd 151/6
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sfmi 552 58 00 - Fax 562 26 16
••903« 5670 •#
Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn.
DV
Utlönd
DV
Boutros-Ghali hvetur til tafarlausra aögeröa í Saír:
Þúsundir deyja á
hverri klukkustund
Boutros Boutros-Ghali, aðal-
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hvatti þjóðir heims í
gær til að grípa þegar í taumana
til aö bjarga lífl sveltandi flótta-
manna í Saír og sagði að þúsundir
dæju drottni sínum á hverri
klukkustund.
„Samfélag þjóðanna verður að
taka til hendinni þegar í stað,“
sagði Boutros-Ghali í París, þar
sem hann kom við á leið sinni á
matvælaráðstefnu SÞ í Róm.
Þótt þjóðaleiötogar hafi alla
helgina ítrekað hver á fætur öör-
um að eitthvað þurfi að gera var
ekki að sjá að verkin yrðu látin
tala.
Þegar skyggja tók í gær lentu
tvær sprengikúlur í borginni
Goma i Saír sem uppreisnarmenn
hafa á valdi sínu. Þykir það til
marks um að vel vopnaðar sveitir
Hútúmanna frá Rúanda, sem hafa
barist við hlið stjórnarhers Saírs,
hafi ekki gefið upp alla von um að
ná bænum á sitt vald. Ekki var vit-
að um manntjón.
í gærkvöld bárust þær fréttir að
uppreisnarmennirnir hefðu fallist
á að opna flutningaleiðir til að
hægt yrði að ná til einnar milijón-
ar flóttamanna frá Rúanda og
Búrúndí sem komast hvergi vegna
bardaganna í austurhluta Saírs.
Fyrstu hópar á vegum SÞ munu
fara inn á svæðið í dag til að meta
þörfina á aðstoð.
Öryggisráð SÞ samþykkti að
koma á laggimar alþjóðlegri hjálp-
arsveit en gaf Boutros-Ghali ellefu
daga frest til að leggja fram hug-
myndir um hvernig hjálparstarfið
eigi að fara fram.
„Þeir verða allir dauðir áður en
SÞ ákveður hvað eigi að gera,“
sagði háttsettur starfsmaður SÞ í
Búrúndí, sem vildi ekki láta nafns
síns getið.
Emma Bonino, sem fer með
mannúðarmál í framkvæmda-
stjóm Evrópusambandsins, vand-
aði fulltrúum Öryggisráðsins ekki
kveðjurnar í gær þegar hún sakaði
þá um hneykslanlegt tómlæti.
„Ég furða mig á því hvemig þeir
geta sofið. Hvernig skýra þeir
gjörðir sínar fyrir eiginkonum sín-
um, fyrir börnunum sínum?“
sagði Bonino áður en hún lagði af
stað til Saírs.
Hjálparstofhanir segja að koma
verði hungruðum og þyrstum
flóttamönnum til hjálpar hvar sem
þeir halda sig.
Reuter
Algjört neyöarástand ríkir meöal einnar milljónar flóttamanna í austurhluta Safrs á meöan rfki heims reyna aö
koma sér saman um aögeröir til aö koma matvælaaöstoö til þeirra. Símamynd Reuter
Castro Kúbu- Stuttax fréttir
leiðtogi ræðst
að Banda-
ifl rf "s ii ~i rrrir
VII,
I
{+1+1
Ekta leður
Rústrautt eða vínrautt
3000 m2 sýningarsalur
189.000 kr
Opið virka daga 9-18
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 14-16
L
TM - HUSGOGN
Síöumúla 30 - sími 568 6822
ríkjastjórn
Fidel Castro Kúbuforseti veittist
harkalega að Bandaríkjunum í
ræðu sinni við upphaf leiðtogafund-
ar 19 ríkja Rómönsku Ameríku, auk
Spánar og Portúgals, fyrir afskipta-
semi þeirra og fyrir að eyðileggja
menningu landanna. Castro var
langharðorðastur allra leiðtoganna
sem til máls tóku á fundinum sem
haldinn er í bænum Vina del Mar í
Chile. Fundinum er ætlað að styrkja
lýðræðið í þessum heimshluta.
Fidel Castro er eini leiðtoginn á
fundinum sem ekki er þjóðkjörinn,
ef Jóhann Karl Spánarkonungur er
undanskilinn. Reuter
Nýr herforingi
Nýr yfirmaður hers Bosníu-
Serba sór embættiseiðinn í gær
eftir aö Ratko Mladic, sem hefur
verið ákærðm- fyrir stríðsglæpi,
var rekinn um helgina.
Efast um kenninguna
Fulltrúar ættingja þeirra sem
fórust með TWA farþegaþotu und-
an New York í sumar hafa uppi
efasemdir um kenningu um að
bandaríski sjóherinn hafi skotið
þotuna niður af misgáningi.
Undirbýr ákærur
Bráðabirgðastjómin í Pakistan
er að undirbúa ákærur á hendur
Benazir Bhutto, brottreknum for-
sætisráðherra, og eiginmanni
hennar fyrir margvíslegar sakir.
Reuter
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar
Greiðsla húsaleigubóta
Hafnarfjarðarbær hefur ákveðið að greiða húsaleigubætur
fyrir árið 1997, í samræmi við lög nr. 100/1994.
Húsaleigubætur eru áætlaðar tekju- og eignalitlu fólki, sem leigir
á almennum markaði.
Húsaleigubætur koma til greiðslu frá og með næsta mánuði eftir að réttur til
bóta hefur verið staðreyndur.
Skilyrði fýrir húsaleigubótum er m.a.
að umsækjandi hafi lögheimili í Hafnarfirði
að umsækjandi hafi þinglýstan húsaleigusamning til a.m.k. sex mánaða.
að umsækjandi leigi ibúð, en ekki einstaklingsherbergi.
að leiguhúsnæðið sé ekki í eigu bæjar eða ríkis.
Tekið er á móti umsóknum hjá Félagsmálastofnun Hafnarflarðar,
Strandgötu 8-10. Upplýsingabæklingur og umsóknareyðublöð liggja
þar frammi. Umsóknarfrestur er til IS. hvers mánaðar. J