Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
9
Utlönd
Jackson kvænist
á laun í Ástralíu
Bandaríski söngvarinn Michael
Jackson kvæntist í gær hjúkrunar-
konunni Debbie Rowe sem ber bam
hans undir belti. Hjónavígslan fór
fram í svítu á lúxushóteli í Sydney í
Ástralíu og voru nokkrir vinir
söngvarans og hjúkrunarkonunnar
viðstaddir.
„Brúðurin var í hvítu. Ég veit
ekki hvort það var brúðarkjóll. Ég
veit ekki hvemig Michael var
klæddur,“ sagði talsmaður Jacksons
við fréttamenn.
Brúðkaupið fór fram aðeins tíu
dögum eftir að Jackson tilkynnti að
Rowe, sem hjúkraði honum þegar
hann var haldinn sjaldgæfum húð-
sjúkdómi, myndi ala honum barn
snemma á næsta ári. Jackson vísaði
á bug orðrómi um að Rowe hefði
gengist undir gervifrjóvgun og að
hann hefði greitt henni háifa millj-
ón dollara fyrir að ganga með bam
hans.
Þetta er í annað sinn sem
Jackson kvænist á laun. í janúar
síðastliðnum sótti Lisa Marie
Presley um skilnað frá honum eftir
20 mánaða hjónaband en þau gengu
upp að altarinu í Dóminíska lýð-
veldinu. Stuttu fyrir þá hjónavígslu
hafði Jackson verið sakaður um
kynferðislega misnotkun á ungum
dreng.
Rowe skildi við fyrrverandi eigin-
mann sinn fyrir átta ámm og býr í
úthverfi Los Angeles. Sagt er að
hún hafi hitt Jackson fyrir 15 árum
þegar hún starfaði hjá lækni sem
meðhöndlaði hann vegna húðsjúk-
dóms. Hjónakornin munu eyða
hveitibrauðsdögunum í Ástraliu en
þar verður Jackson við tónleikahald
út nóvember.
Reuter
Björk viö komuna á MTV- verölaunahátíöina f London f gærkvöld en þar af-
henti hún George Michael, sem kjörinn var besti söngvarinn, verölaun. Sjálf
var Björk tilnefnd sem besta söngkonan en heiðurinn hlaut Alanis Moris-
sette. Símamynd Reuter
Litlu mátti muna yfir Englandi:
250 metrar milli véla
Stuttar fréttir
Enginn misskilningur
Indverskur embættismaður
sagði í gær að hljóðritanir á sam-
tölum flugmanna og flugumferð-
arstjóra fyrir árekstur tveggja
flugvéla yfir Indlandi sýndu að
báðir flugmennimir hefðu skilið
gefin fyrirmæli.
Landnemar mótmæla
ísraelskir landnemar ætla að
efha til mótmæla vegna fyrirhug-
aðst brottflutnings ísraelskra her-
manna frá Hebron.
Ferðamanna saknad
Sex Tékka og Slóvaka og átján
egypskra skipveija er saknað eft-
ir að skemmtisiglingabát hvolfdi
á Níl í Egyptalandi.
Njjósnari látinn laus
Svíinn Stig Bergling, sem
njósnaði fyrir Sovétríkin, verður
látinn laus í júlí næstkomandi.
Haxm hefur þá afplánað helming
af 23 ára fangelsisdómi.
Brenndi sig til bana
24 ára Indverji lést í gær eftir
að hafa kveikt í sér til að mót-
mæla því að Miss World fegurð-
arsamkeppnin skuli haldin á Ind-
landi.
Mega beita ofbeldi
Hæstiréttur í ísrael felldi i gær
úr gildi bráðabirgðareglugerð
sem bannaði leyniþjónustunni að
beita ofbeldi.
Ónæmar fyrir alnæmi
Læknar frá Kenýa og Kanada
tilkynntu í gær að þeir hefðu
fundið hóp vændiskvenna í Na-
íróbí sem virtist ónærnur fyrir
HTV-veirunni sem orsakar al-
næmi. Hópur Kákasusbúa virðist
einnig ónæmur fyrir smiti.
Reuter
Aðeins 250 metrar skildu að tvær
farþegaþotur yfir suðurhluta Eng-
lands síðastliðinn þriðjudag þegar
flugumferðarstjóri áttaði sig á hvað
var að gerast og skipaði flugmanni
annarrar þeirra að hækka flugið taf-
arlaust. Þar með kom hann í veg
fyrir hugsanlegan árekstur.
Þoturnar sem í hlut áttu voru Bo-
eing B-737 frá hollenska flugfélaginu
KLM og McDonnell Douglas MD-80
frá SAS, að þvi er stéttarfélag bre-
skra flugumferðarstjóra skýrði frá í
gær.
Atburðurinn átti sér staö þegar
vélamar tvær voru að bíða eftir því
að geta lent á Heathrow-flugvelli við
London. Þetta gerðist um miðjan
dag á þriðjudag, aðeins nokkrum
klukkustundum eftir árekstur sádi-
arabísku farþegaþotunnar og flutn-
ingavélarinnar frá Kasakstan yfir
Indlandi þar sem um 350 létu lífiö.
Að sögn embættismanns voru
skráð aðeins fimm jafn alvarleg at-
vik á síðasta ári í Bretlandi.
Flugumferðarstjórafélagið skýrði
frá því að KLM-þotan, sem var að
koma frá Amsterdam, hefði fengið
leyfi til að lækka flugið úr 16.000 fet-
um í 15.000 en hún hefði farið niður í
14.100 fet, svo til sömu hæð og SAS
vélin var í, en hún var að koma frá
Árósum. Málið er í rannsókn.Reuter
3'0‘3'Bl
j unnið y£&~***"
tesr —
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. nóvember 1996 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 24. útdráttur
1. flokki 1990 - 21. útdráttur
2. flokki 1990 - 20. útdráttur
2. flokki 1991 - 18. útdráttur
3. flokki 1992 - 13. útdráttur
2. flokki 1993 - 9. útdráttur
2. flokki 1994 - 6. útdráttur
3. flokki 1994 - 5. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
föstudaginn 15. nóvember.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi
í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum
og verðbréfafyrirtækjum.
C&] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
I 1 HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI 569 6900
ef þú greiöir áskriftina
beingreiöslum
Þeir seni tjreiöa áskriftina meö beingreiöslum fá 5°/o afslátt af áskriftarverði
miðað viö þá sem greiöá meö gíróseðli. Þú græðir jiví einn og hálfan
sjónvarpsdag í hverjum mánuöi og sparar |iér auk þess ferö í bankann.
Allar nánari upplýsingar um beingreiöslu færðu bjá viðskiptabanka þínum
eöa áskriftardeild Stöövar 2, (sími 515 600CQ - ( grænt númer 800 6161 )
18 Philips 29” sjónvarpstæki Heimiiistækihf
i vcrðlaun til jóla fyrir þá seni greiöa áskriftina með beingreiðslu
í beingreiðslu cr áskriftargjaldið niillifært beint af reiknimji þínu í banka/sparisjóði.