Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Side 15
14
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
27
Iþróttir
Iþróttir
Fjórtánda met
Gunnars í ár
Gunnar Steinþórsson, sund-
maður úr Aftureldingu, setti enn
eitt sveinametið í sundi á Pizza-
bæjamóti Aftureldingar í fyrra-
kvöld. Gunnar synti 100 m fjór-
sund á 1:10,63 mín. Þetta er 14.
sveinametið sem Gunnar setur á
þessu ári og enginn vafl leikur á
að þama er á ferðinni sundmað-
ur sem á eftir að láta mikið að
sér kveða en hann er 12 ára.
Stalla Hú í
Strandgötunni
Haukar ætla að skapa góða og
mikla stemningu í Evrópuleikn-
um gegn Creteil á morgun. Eyja-
bandið Stalla Hú mun mæta á
leikinn og ætlar rífa upp fjörið
hjá áhorfendum.
Magnús til
Siglufjarðar
Magnús Jónsson, sem þjálfaði
Framara í 1. deildinni i knatt-
spymu mestallt sumarið 1995,
hefur verið ráðinn þjálfari 4.
deildarliös KS á Siglufirði.
-ÞÁ/VS
Jói stóri sigr-
aði Jóa litla
Jóhannes B. Jóhannesson (Jói
stóri) vann Jóhannes R. Jóhann-
esson (Jóa litla) í úrslitaleik á
opnu snókermóti um síðustu
helgi, 4-1. Mótiö var sett upp til
undirbúnings fyrir Jóhannes R.
en hann og Kristján Helgason
hefia keppni á heimsmeistara-
mótinu á Nýja-Sjálandi í dag.
-VS
Herrakvöld hjá HK
Herrakvöld knattspymudeild-
ar HKverður í Hákoni digra í
Digranesi á laugardagskvöldið
og hefst kl. 19.30. Skari skrípó
skemmtir og leynigestur mætir á
svæðið.
IR (33) (82) 94
Grind.(41) (82) 100
10-9, 17-14, 23-20, 26-27, 29-31, 31-37,
(33-41), 40-47, 47-52, 59-63, 63-68,
71-75, 79-82, (82-82), 86-86, 88-89,
90-94, 92-98, 94-100.
Stig ÍR: Tito Baker 42, Eggert
Garðarsson 13, Atli Bjöm Þorbjöms-
son 13, Eiríkur Önundarson 8, Gísli
Hallsson 8, Guðni Einarsson 5, Daði
Sigurþórsson 3, Máms Amarson 2.
Stig Grindavíkur: Hermann
Myers 37, Pétur Guömundsson 16,
Helgi Jónas Guðfinnsson 11, Páll Vil-
bergsson 10, Unndór Sigurðsson 9,
Jón Kr. Gíslason 8, Marel Guðlaugs-
son 7, Bergur Hinriksson 2.
3ja stiga körfur: lR 6, Grindavík 6.
Vítanýting: ÍR 27/19, Grindavík
21/14.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og
Jón Bender, góöir.
Áhorfendur: Um 300.
Maður leiksins: Tito Baker, ÍR.
Loksins vann
Grindavík í
Seljaskólanum
„Þetta var erfiður leikur enda
átti ég von á því. lR var á toppn-
um og þetta var hörkuleikur. ÍR-
ingar em með fríska stráka og
mjög góðan útlending en á hinn
bóginn hefðum við mátt spila
betur. Að visu misstum við lyk-
ilmenn i villuvandræði en í
þeirra stað komu menn sem
leystu verkefhið mjög vel. Ég er
mjög ánægður, enda er þetta
fyrsti útisigur okkar á ÍR-ingum
síðan þeir komu aftur í deild-
ina,“ sagði Friörik Ingi Rúnars-
son, þjálfari Grindavíkur, eftir
sigur á ÍR í framlengdum leik í
Seljaskóla í gærkvöld.
Grindavík hafði undirtökin í
heildina en ÍR-ingar voru samt
aldrei langt undan. Þetta var
baráttuleikur en mikið um mis-
tök, sérstaklega hjá ÍR-ingum.
Tito Baker jafhaði með 3ja stiga
körfu þegar hálf minúta var eftir
og tryggði ÍR-ingmn framleng-
ingu en i henni vora Grindvík-
ingar sterkari.
Tito Baker hjá ÍR og Hermann
Myers hjá Grindavík vora yfir-
burðamenn á vellinum. Þá lék
Jón Kr. Gíslason Myers vel uppi.
-PS
Keflavík (67) 125
Breiöabfík (33) 79
2-2, 13-2, 30-15, 34-24, 61-24, (67-33),
78-33, 87-50, 103-66, 119-71, 125-79.
Stig Keflavlkur: Kristinn Frið-
riksson 27, Damon Johnson 24, Gimn-
ar Einarsson 21, Guðjón Skúlason 19,
Albert Óskarsson 12, Kristján Guð-
laugsson 10, Þorsteinn Húnfjörð 6,
Halldór Karlsson 4, Elentínus Mar-
geirsson 2.
Stig Breiðabliks: Andre Bovain
34, Erlingur Erlingsson 19, Pálmi Sig-
urgeirsson 8, Einar Hannesson .6,
Kristinn Kristjánsson 4, Agnar Olsen
4, Rúnar Sævarsson 2, Ingi Þór Harð-
arson 2.
Fráköst: Keflavík 49, Breiðab. 35.
3ja stiga körfur: Keflavík 29/11,
Breiðablik 22/7.
Vítanýting: Keflavík 17/14,
Breiðablik 19/12.
Dómarar: Kristján Möller, góður,
Rögnvaldur Hreiðarsson, sæmilegur.
Áhorfendur: Um 150.
Maður leiksins: Kristinn Frið-
riksson, Keflavfk.
27 stig í röð
DV, Suðurnesjum:
Keflvíkingar léku sér að Blik-
um í gærkvöld, eins og vænta
mátti, og til marks um yfirburð-
ina skoruðu heimamenn 27 stig í
röð í fyrri hálfleiknum.
-ÆMK
Tindastóll (37) 72
Akranes (32)73
2-4, 12-11, 19-19, 33-25, (37-32), 43-49,
51-53, 57-58, 63-62, 67-71, 72-71, 72-73.
Stig Tindastóls: Sigurvin Pálsson
22, Jeffrey Johnson 18, Lárus Dagur
Pálsson 10, Cesaro Piccini 8, Amar
Kárason 6, Ómar Sigtryggsson 5,
Halldór Halldórsson 3.
Stig ÍA: Ronald Bayless 33, Har-
aldur Leifsson 121, Dagur Þórisson 8,
Alexander Ermolinski 7, Brynjar
Karl Sigurðsson 7, Elvar Þórólfsson 4,
Brynjar Sigurðsson 2.
3ja stiga körfur: Tindastóll 9, ÍA 3.
Vítanýting: Tindast. 18/15, ÍA 10/6.
Dómarar: Einar Emarsson og Jón
Halldór Eðvaldsson.
Áhorfendur: 330.
Maður ieiksins: Ronald Bayless,
ÍA.
Enn eins stigs
tap Tindastóls
DV Sauðárkróki:
Enn einu sinni sátu Tinda-
stólsmenn eftir með sárt ennið
þegar þeir töpuðu í gærkvöld
sínum þriðja heimaleik í vetur
með einu stigi. Að þessu sinni
dönsuðu Skagamenn stríðsdans i
Síkinu að loknum jöfnum og
spennandi leik.
Mikil barátta var í leiknum og
þrátt fyrir tapið börðust Tinda-
stólsmenn vel. Þeir nýttu sér
hins vegar ekki góða stöðu und-
ir lokin og Alexander Ermol-
inski, þjálfari Skagamanna,
tryggði þeim sigurinn á síðustu
sekúndunni. -ÞÁ
ISRVALSDEILdlli
Kristinn Friðriksson var i ess-
inu sinu á upphafsmínútunum með
Keflavík gegn Blikum í gærkvöld.
Kristinn skoraði þá 5 þriggja stiga
körfur og 21 stig á fyrstu 16 mínútum
leiksins.
Keflvíkingar skoruðu svo grimmt
gegn Blikunum að þegar hálf önnur
mínúta var eftir var ritari leiksins
búinn með plássið á leikskýrslunni
og þurfti að fá aðra.
Þorsteinn Húnfjörð, einn af
ungu strákunum í Keflavík, fékk að
spila talsvert í gærkvöld. Þar er efni-
legur piitur á ferð og ekki skemmir
hæðin fyrir en hann er 1,98 m á hæð.
Grindvíkingar hittu Ula úr víta-
skotunum tU aö byrja með gegn ÍR.
Af fyrstu átta skotunum fór aðeins
eitt ofan i.
ÍR-Íngar tefla fram komungu liði i
vetur. Þeirra elstu menn í leiknum
viö Grindavík em 24 ára og meðalald-
ur leUonanna er 21,9 ár.
Hjá Grindavflt em 8 leikmenn af
tíu 24 ára og yngri en Jón Kr. Gísla-
son sér tU þess að meðalaldurlnn nær
því að vera 23 ár.
Terry Upshaw, þjálfari SkaUa-
grims, var líflegur eins og áður á
bekknum. Nú mætti hann tU leiks í
nýjum jakkafotum, gráum að lit.
Gord Woord, nýi trinn hjá Skalla-
grimi, kom tU landsins í nótt og verð-
ur með Uðinu gegn Haukum á sunnu-
dagskvöldið.
Aðeins 256 áhorfendur sáu leik-
inn í Borgamesi í gærkvöld og jafn
fáir hafa ekki verið á úrvalsdeUdar-
leik þar i manna minnum. Stemnmg-
in var hins vegar frábær hjá þeim
sem mættu.
Sigurvin Pálsson fór á kostum
með Tindastóli gegn ÍA i gærkvöld og
skoraði sex 3ja stiga körfur i leikn-
um. Áhangendur liðsins voru óá-
nægðir með að Sigurvin lék ekkert
með á lokaminútunum og töldu að
ekki hefði verið ónýtt að láta hann
taka síöasta skot Tindastóls.
Staðan:
Haukar 6 5 1 495-480 10
Keflavik 7 5 2 699-595 10
Njarðvík 6 5 1 541-475 10
Grindavík 7 5 2 658-620 10
ÍR 7 5 2 636-572 10
KR 7 4 3 636-567 8
Akranes 7 4 3 507-528 8
Skallagr. 7 3 4 563-632 6
KFÍ 6 2 4 440-488 4
Tindastóll 7 2 5 555-564 4
Þór, A. 6 0 6 472-533 0
Breiðablik 7 0 7 518-666 0
Leik Þórs og Hauka var frestaö vegna ófærðar og hann hefúr veriö
settur á klukkan 20 í kvöld.
KFÍ og Njarðvík eiga að leika á
Isaflrði á sama tíma.
Leik KR og KFÍ í 8. umferðinni á sunnudag hefur verið flýtt og verður hann kl. 16. Aðrir leikir em Kefla-
vík-Þór, Akranes-ÍR, Njarðvík-
Tindastóll, Breiðablik-Grindavík og
Haukar-Skaliagrímur.
Mikil ólga innan Ólympíunefndar íslands og óánægja með formanninn, Júlíus Hafstein, og vinnubrögð hans:
„Nefndin er illa rekin og
skuldirnar eru hrikalegar"
- Flugleiðir lokuðu fyrir viðskiptin. Hluti keppenda á ÓL í Atlanta ekki enn fengið greidda styrki að fullu
Fjármál Ólympíunefndar íslands
era í miklum ólestri, samkvæmt ör-
uggum heimildum sem DV hefúr afl-
að sér. Nefndin skuldaði hátt í 10
milljónir króna á síðasta aðalfundi
og skuldar aö miklu leyti enn.
Nefndin skuldar íþróttafólki, sem
tók þátt á síðustu Ólympíuleikum í
Atlanta, enn fjármuni svo nemur
hundruðum þúsunda króna í formi
styrkja. Þá er ótalinn 2ja milljóna
króna yfirdráttur í viðskiptabanka
nefhdarinnar.
Flugleiöir hótuöu aö senda
skuldina til lögfræöinga
Eins og áður sagði er stærstur
hluti skulda Óí við Flugleiðir.
DV hefur undir höndum bréf frá
Gunnari Mogensen, innheimtustjóra
Flugleiöa, dagsett þann 11. septem-
ber sl. Þar tilkynnir Gunnar þeim
Júlíusi Hafstein, formanni Óí, og
Torfa Tómassyni, gjaldkera Óí, um
lokun á frekari viðskipti Flugleiða
við Óí. Orðrétt segir í bréfinu:
„Ég vil hér með vekja athygli
ykkar á ad ég hef lokað fyrir látia-
viðskipti við Ólympíunefndina frá
og með deginum i dag að telja
vegna skuldastöðu Ólympíunefnd-
arinnar við Flugleiðir hf. sem er
óviðunandi en gjaldfallin skuld
nemur i dag kr. 6.740,362,00,
stœrsti hlutinn vixill sem var á
gjalddaga 29. janúar 1996. Um
nœstu mánaðamót neyðumst við
til að senda skuld þessa i inn-
heimtu hafi greiðsla ekki átt sér
stað á gjaldföllnum reikningum
samanber meðfylgjandi yfirlit. “
Fastar mánaöartekjur eru um
100 þúsund krónur
Samkvæmt heimildum DV hefur
Óí nú greitt 1 milljón upp í þessa
skuld og á að greiða aðra milljón í
dag, 15. nóvember.
Mánaöarlega á nefhdin síðan í
framhaldinu að greiða 500 þúsund
krónur þar til skuldin er upp greidd.
Þess má geta að einu fostu tekjur
nefndarinnar á mánuði eru um 100
þúsund krónur af lottói.
„Aðeins heyrt um slæma
stööu úti í bæ“
„Hjá formanni og gjaldkera
Ólympíunefndarinnar hafa fjármál-
in alltaf verið í stakasta lagi. Þeir
hafa aldrei greint frá neinu óeðlilegu
við stöðuna í fjármálunum.
Við höfum síðan verið að heyra
hitt og þetta úti í bæ, eins og til
dæmis um þessa lokun hjá Flugleið-
um á viðskipti við nefndina.
Við höfum orðið aö finna út úr því
sjálfir hver skuldin raunverulega
er,“ sagði fulltrúi í Ólympiunefhd ís-
lands við DV.
„Skuld viö íþróttafólk nemur
hundruðum þúsunda"
Þrátt fyrir að liðnir séu þrír og
hálfur mánuður frá því Ólympíuleik-
unum í Atlanta lauk hefur Ólympíu-
nefndin ekki enn staðið við greiðsl-
ur til íþróttamanna sem lofað var í
formi styrkja.
„Það er ekki enn búið að ganga frá
þessum málum. Það er hins vegar
verið að vinna í þessu. í dag er skuld
nefhdarinnar við sundfólk sem
keppti á leikunum 3-400 þúsund,"
sagði Sævar Stefánsson, formaður
Sundsambands íslands, í samtali við
DV.
„Sjálfsagt á eitthvað af öðru
íþróttafólki sem keppti á leikunum
líka eftir að fá greitt frá nefndinni.
Annars era þetta ekkert miklir pen-
ingar og ég held að sundfólkið þjáist
ekkert út af þessu.“
- Þetta er kannski ekki spurning
um upphæðir heldur að Ólympíu-
nefhd íslands standi í skilum?
„Já, það er alveg rétt,“ sagði Sæv-
ar.
Fulltrúinn í Ólympiunefnd sem
DV ræddi við sagði um skuld Óí við
hluta af íslensku þátttakendunum á
ÓL:
„Óí skuldar íþróttamönnum enn
peninga. Þar erum við að tala um
hundruð þúsunda króna. Fyrirtækin
era búin að standa skil á þessum
peningum en þeir hafa ekki skilað
sér frá nefndinni til íþróttafólksins.
Vitaskuld er þetta óviðunandi."
Þrír nefndir til sögunnar
sem hugsanlegir arftakar
DV hefur öraggar heimildir fyrir
því að nú sé unniö að því að finna
nýtt formannsefni fyrir nefndina en
núverandi formaður er Júlíus Haf-
stein.
„Það hefur gætt mikillar óánægju
með hans störf, svo vægt sé til orða
tekið. Ég tel að i dag séu meira en
50% líkur á því að mótframboð komi
fram gegn Júlíusi á aðalfundi Ól-
ympíunefndarinnar í janúar á næsta
ári, ef hann nær þá kjöri í nefhd-
ina,“ sagði fulltrúinn og bætti við:
„Allir sem ég hef rætt við um mál-
efhi Ólympíunefndarinnar era sam-
málá um að gefa þurfi Júlíusi Haf-
stein frí frá nefndinni.
Ég hef heyrt þrjá menn nefhda
sem hugsanlega arftaka. Það eru
þeir Benedikt Geirsson sparisjóðs-
stjóri, Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, og Ari Bergmann Einarsson,
núverandi ritari nefndarinnar.
Ég tel það af hinu góða að þessi
mál nefndarinnar séu rædd opinber-
lega, einfaldlega vegna þess að það
stefnir í svo mikið óefni. Formaður-
inn hefúr verið friðarspillir innan
hreyfingarinnar.
Það hefur ekki mátt halda sérsam-
bandsþing, þá hefur hann verið
mættur og reynt að hafa áhrif á gang
mála.
Hann hefur ítrekað reynt að fá
menn sér hliðholla í framboð gegn
sitjandi formönnum. Július beitti
sér af alefli gegn kjöri Áma Þ. Áma-
sonar hjá Fimleikasambandinu og
hann reyndi að fá menn til að bjóða
sig fram gegn Helga S. Haraldssyni
hjá Frjálsíþróttasambandinu. Júlíus
hringdi í fólk innan fimleikanna,
fólk sem hann hafði aldrei talaö við
áður og studdi Áma.
Þetta endaði með því að fólkið
klagaði hann til íþróttasambands ís-
lands. Ákveðnir aðilar í minnihluta
innan Fimleikasambandsins fóra
fram á það við Júlíus að hann yrði
þingforseti á ársþingi sambandsins
en þingfulltrúar höfnuðu honum og
annar maður var fenginn til
starfans.
Það er alls ekki verkefni formanns
Óí að stuðla að ófriði innan íþrótta-
hreyfingarinnar. Það er alls ekki
hans hlutverk.“
„Allt var ööruvísi hjá Gísla
Halldórssyni"
Fulltrúinn í Ólympíunefndinni
Nýtt boð frá Villa
í Stan Collymore
Búist er við nýju tilboði frá
enska knattspymufélaginu Ast-
on Vflla í Stan Collymore hjá
Liverpool á næstu dögum. Liver-
pool hafnaði 420 milljóna króna
boði á dögunum en Villa mun
bjóða 600 mifljónir um leið og
búið er að ganga frá sölunni á
Savo Milosevic til Perugia á ítal-
íu. Henni seinkaði þegar Peragia
neitað að greiða 450 milljónir
eins og fyrst var rætt um og nú
er ljóst að Villa fær 300 milljónir
fyrir Júgóslavann. -VS
Haukar-Creteil í Borgakeppni Evrópu í handknattleik á morgun:
„Fullt hús og mikil stemning
eykur möguleika okkar”
- segir Gústaf Bjarnason, fyrirliði Haukanna, um leikinn
Haukar mæta franska liðinu Creteil í síðari
leik liðanna í Borgakeppni Evrópu í hand
knattleik í íþróttahúsinu við Strandgötu
klukkan 16.30 á morgun.
Haukar þurfa að vinna upp sex marka
tap en þeir biðu lægri hlut í Frakklandi
um síðustu helgi, 24-18. Þessi munur er
ekki ófyristíganlegur fyrir Haukana
enda margsannað að miklar sveiflur
geta átt sér staö í Evrópuleikjum á
milli heima- og útileikja. Stuðningur
áhorfenda getur skipt Haukana sköpum
og hjálpað þeim verulega til að brúa þetta
bil.
„Það er góður hugur í okkur eftir sigur
inn gegn Aftureldingu og við lítum svo á að
möguleikamir á að komast áffarn séu
ágætir. Það þarf auðvitað margt að hjálp-
ast að til þess að okkur takist það. Við verðum
að mæta mjög grimmir til leiks, koma með
sterka vöm og góða markvörslu og nýta
lA hraðaupphlaupin í botn. Þá má ekki
gleyma aðalvopninu sem eru áhofendur.
Fullt hús og mikil stemning ætti að
kveikja verulega í okkur og auka mögu-
leikana til muna,” sagði Gústaf Bjarna-
son, fyrirliði Hauka, við DV í gær.
í franska liðinu, sein leikur skemmtileg-
an og léttleikandi handknattleik, að
sögn Gústafs, eru þrír franskir landsliðs-
menn. Þekktastur þeirra er línumaðurinn
Guérie Kervadec sem lék stórt hlutverk
með franska landsliðinu þegar það varð
heimsmeistari á íslandi árið 1995.
-GH
Gústaf Bjarnason
Skallagrímur (36) 86
KR (36) 80
12-6, 17-14, 28-23, 34-28, (36-36), 43-46, 52-61,
65-68, 72-72, 77-75, 77-78, 80-80, 86-80.
Stig Skallagríms: Tómas Holton 19, Bragi
Magnússon 17, Wayne Mulgrave 15, Grétar
Guðlaugsson 13, Sigmar Egilsson 10, Curtis
Raymond 10, Þórður Helgason 2.
Stig KR: David Edwards 24, Jónatan Bow 23,
Hermann Hauksson 13, Ingvar Ormarsson 8,
Hinrik Gunnarsson 6, Óskar Kristjánsson 2,
Atli Einarsson 2, Birgir Mikaelsson 2.
Fráköst: Skallagrimur 29, KR 30.
3ja stiga körfúr: Skallagrímur 8, KR 6.
Vítanýting: Skallagrímur 14/13, KR 13/10.
Dómarar: Sigmundur Herbertsson og Björg-
vin Rúnarsson, þoldu varla spennuna.
Áhorfendur: 256.
Maður leiksins: Tómas Holton, Skalla-
grími.
„Frábær vörn"
DV, Borgarnesi:
„Það er gott að gamla baráttan skuli
vera komin aftur og okkur hefur tekist að
spila síðustu þrjá leikina ágætlega. Við
náðum frábærri vöm og áhorfendur
klikkuðu ekki þótt þeir væra óvenjufáir,"
sagði Tómas Holton við DV eftir góðan
sigur Skallagrims á KR í gærkvöld.
Þetta var hörkuleikur og þrælskemmti-
legur fyrir áhorfendur og mikil spenna
allan tímann. í lokin buðu liðin upp á
mikla skotkeppni en fimm 3ja stiga körf-
ur voru skoraðar á síðustu tveimur min-
útunum.
Leikur KR byggðist of mikið á tveimur
mönnum, Edwards og Bow, sem eiga að
klára allt en góðir menn eins og Hinrik,
Hermann og Ingvar féllu í skuggann. Bow
fór á kostum í fyrri hálfleik og gerði þá 19
stig. Hjá Skallagrími var liðsheildin mun
sterkari með Tómas og Braga sem bestu
menn og þá átti Mulgrave sinn besta leik
með Borgnesingum. Grétar barðist eins
og ljón og Sigmar kom sterkur inn.
-EP
Ceballos meiddur
Cedric Cebaflos, hinn snjalli
framherji LA Lakers í NBA-
körfuboltanum, meiddist á hné í
leik gegn San Antonio í fyrrinótt
og gæti þurft að hvíla nokkuð
lengi.
Emerson í burtu
Brasilíski knattspymumaður-
inn Emerson er enn ekki kom-
inn til Middlesbrough í Englandi
eftir að hafa farið heim í vikufrí
vegna andláts frænku sinnar.
Haft hefur verið eftir honum i
heimalandinu að hann ætli ekki
aftur til Englands.
Orðinn of gamall?
Lennart Johansson, forseti
Knattspyrnusambands Evrópu,
sagði í gær að Joao Havelange,
forseti Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, væri orðinn of gamall
til að skilja að honum bæri að
vikja úr stöðu sinni.
Atlanta á sléttu
Bill Payne, forseti skipulags-
nefndar Ólympíuleikanna í Atl-
anta síðasta sumar, sagði í gær
að leikamir væru komnir á
núllið, fjárhagslega, og myndu
líklega skila smáræðis hagnaði.
Heildarkostnaður við leikana
var 112 milljarðar króna.
Blomqvist til Milan
AC Milan á Ítalíu hefur keypt
sænska knattspymumanninn
Jesper Blomqvist frá Gautaborg.
Kaupverð hefur ekki verið gefið
upp.
-GH/VS
5
BIKARKEPPNIN
skotlanp
1*91 HOttANP
sagði við DV að það væra ólíkir tím-
ar nú eöa þegar Gísli Halldórsson
var formaður Óí:
„Þegar Gísli var formaður var víst
allt slétt og fellt, öll fjármálin á
hreinu og ekkert baktjaldamakk. Þá
fóra um 10% af veltunni í rekstur
nefndarinnar. Hitt fór til sérsam-
bandanna og íþróttafólksins. Nú fara
50-60% af veltunni til sömu hluta.
Og styrkimir til íþróttamanna hafa
lækkað stórlega.
Á sínum tíma gaf Gísli Halldórs-
son mikla peninga í formi ríkis-
skuldabréfa í sérstakan Ólympíu-
sjóð. Þessir peningar hafa hlaðið á
sig vöxtum og nú eru I sjóðnum um
16 milljónir króna. Júlíus hefur
ítrekað reynt að taka þennan sjóð
inn í reksturinn til að sýna betri af-
komu nefhdarinnar.
Þessum ítrekuðu tilraunum Júlí-
usar hefur sem betur fer alltaf verið
hafnað. Ég tel mjög brýnt að skipta
um formann hjá Ólympíunefnd - því
fyrr því betra fyrir íþróttahreyfing-
una. Nefndin er illa rekin og skuld-
irnar eru hrikalegar," sagði fulltrú-
inn í Ólympíunefhdinni.
Ekki náöist í Július Hafstein, for-
mann Óí, í gær. Hann er í 10 daga
ferð í Mexíkó og sitúr þar ráðstefnu
á vegum Alþjóða ólympiunefndar-
innar ásamt Ara Bergmann Einars-
Syni' -SK
Forkeppni karla:
Bresi - Snæfell.........58-101
Grindavik b - Valur.....84-105
Golfkl. Grindavíkur - ÍS . . . 87-56
ÍR b - Stjaman..........75-105
Stórsigur 2. deildar liðs GG á 1. deild-
ar liöi Stúdenta vekur athygli.
Urvalsdeild:
Celtic - Rangers............O-l
Brian Laudrup skoraði sigurmarkið
á 8. mínútu eftir mikil vamarmistök
hjá Celtic. Bæði liðin klúðruðu víta-
spymu í leiknum. Stuart Kerr, mark-
vörður Celtic, varöi frá Paul
Gascoigne og 5 mínútum fyrir leiks-
lok varði Andy Goram, markvörður
Rangers, vítaspymu frá Pierre van
Hooydonk.
Rangers, sem hefur orðið meistari
átta ár í röð, náði þriggja stiga for-
ystu á Celtic 1 deildinni með sigr-
Urvalsdeild:
PSV Eindhoven - Sparta .... 2-1
PSV er efst með 36 stig, Feyenoord er
með 35 og Ajax 27.
Bikar, 8-liða úrslit:
Napoli - Lazio ..............1-0
Þetta var fyrri leikur liðanna. Agli-
etti skoraði sigurmarkið strax á 2.
mínútu.
slenskir keppendur viö setningarathöfn Ólympíuleikanna í Atlanta. Hluti
þeirra hefur ekki enn fengiö greidda aö fullu styrki frá Ólympíunefnd
Islands þrátt fyrir aö þrír og hálfur mánuöur sé liöinn síöan leikunum lauk
í Bandarikjunum. Símamynd Reuter