Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Page 28
Veðrið á morgun:
Léttir
til syöra
Á morgun er búist við norð-
ankalda og éljum á norðan-
verðu landinu en syðra léttir
til. Frost verður 1-7 stig.
Veðrið í dag er á bls. 36.
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum ailan
sólarhringinn.
550 5555
FOSTUDAGUR 15. NOVEMBER 1996
Biðlaun kennara:
40 manns
eiga rétt á
80 milljónum
Helgarblað DV:
Ég var
* spilafikill
Áfengissýki, fangelsi, tónlist og
spilafíkn. Rokkarinn Rúnar Þór Pét-
ursson hefur kynnst þessu öllu af
eigin raun og tapaði 1,4 milljónum
króna í spilakössum á tveimur
árum. Hann greinir frá reynslu
sinni í helgarviðtali DV á morgun.
Ólafur B. Schram, formaður HSÍ,
hefur farið sem lífvörður ríkrar
konu í mikla ævintýraferð um Afr-
íku, talað við Ingvar E. Sigurðsson
: w* leikara og Heiðar snyrtir Jónsson
sýnir slaufurnar sínar auk þess sem
fjallað er um Jósafat Amgrimsson,
athafnamann á írlandi. -GHS
Nýr lífeyrissjóður:
Síst lakari en
gamli sjóðurinn
- segir Ögmundur
„Þeir sem eru í lifeyrissjóði opin-
berra starfsmanna geta verið þar
áfram með óskert réttindi. Þeir sem
hefia störf hjá ríkinu eftir 1. janúar
næstkomandi fara i þennan nýja líf-
eyrissjóð. Hann er byggður upp á
sama grundvelli og lífeyrissjóðimir
innan SAL, sem þýðir að hann er
stigasjóður en miðar ekki við eftir-
mannsregluna svokölluðu. Réttind-
in í nýja sjóðnum eru sambærileg
að verðmætum og i gamla kerfmu,“
sagði Ögmundur Jónasson, alþingis-
maður og formaður BSRB, um hinn
nýja lifeyrissjóð.
Hann sagði að til þess að standa
straum af kostnaði við skuldbind-
ingar sjóðsins þurfl að greiða sam-
tals 15,5 prósent af öllum launum í
sjóðinn. Vinnuveitandinn greiðir
11,5 prósent en launþeginn 4 pró-
sent. Með þessu sé ekki verið að
auka greiðslur ríkisins inn í lífeyr-
issjóðskerfið. -S.dór
„Það er ljóst að dómurinn mun
fara fyrir Hæstarétt en að óbreyttu
mun hann hafa mikið fordæmis-
gildi. Um 20 manns sem höfðu leitað
til okkar eru á skrá en gera má ráð
fyrir að helmingi fleiri hafi hætt
störfum," segir Valgeir Gestson,
skrifstofustjóri Kennarasambands
íslands, um þann biðlaunarétt sem
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
tveimur kennurum í gær vegna
flutnings grunnskólans til sveitarfé-
laganna.
Valgeir segir að flestir þeirra
kennara sem hættu störfum hafi
haft rétt til ársbiðlauna. Samkvæmt
því má ætla að dómsniðurstaðan
þýði um 80 milljóna króna útgjöld
fyrir ríkissjóð. -rt
Tvöftúdur
I. vinningur
Vertu viðbúínín) vinningi
Mikill sjógangur var á Isafirði og víðar um Vestfirði á háflóðinu í gærmorgun. Skemmdir urðu víða á vegum og skol-
aðist jarðvegsfylling m.a. undan nýju malbiki á Skutulsfjarðarbrautinni á ísafirði. Þessi mynd var tekin upp úr klukk-
an tíu um morguninn og sýnir vegvísi sem stendur við Skutulsfjarðarbrautina og er að öllu jöfnu á þurru landi.
DV-mynd Hörður
ANSANS AÐ
EIGA ENGAN
VARAFORMANN
FJÖLSKYLDUNNI!
Súðavíkurhreppur í hart vegna hlutabréfakaupa:
Krafa upp á 60 millj-
ónir í innheimtu hjá
lögfræðingi
- áratugur síðan Tog hf. keypti af hreppnum
„Það var fundur með lögmannin-
um og honum falið að vinna í mál-
inu. Við höfum ekki tekið ákvörð-
un um að fara í málaferli heldur
snýst málið um ákveðin samskipti
við stjórn Frosta hf.,“ segir Sigríð-
ur Hrönn Elíasdóttir, oddviti Súða-
víkurhrepps, í samtali við DV.
Hreppsnefnd Súðavíkurhrepps
samþykkti á fundi sínum í fyrra-
dag að fela lögfræðingi hreppsins
að innheimta kröfu á hendur
nokkrum eigenda Frosta hf. upp á
60 milljónir króna. Krafan er til-
komin vegna kaupa núverandi
eigenda Frosta hf. á hlutabréfum
hreppsins í fyrirtækinu. Súðavik-
urhreppur hefur ráðið Andra
Ámason lögmann til að annast
innheimtu þessa fjár og var
ákveðið að gefa Togi hf. þriggja
vikna frest til að greiða skuld
sína ásamt vöxtum og dráttar-
vöxtum. Viðskiptin áttu sér stað
árið 1987 þegar nokkrir einstak-
lingar undir merkjum Togs hf.
keyptu hlut hreppsins í Frosta
fyrir 70 milljónir króna. Málið fór
fýrir dómstóla þar sem krafist
var riftunar kaupanna á þeim for-
sendum m.a. að einn eigenda
Togs hf. er Auðunn Karlsson sem
á þeim tíma sem kaupin fóru
fram var jafnframt oddviti
hreppsins og var talið að kaup-
endur hefðu því verið beggja meg-
in borösins. Hæstiréttur sýknaði
þá Togsmenn og kaupin héldu
því.
Allar götur síðan kaupin áttu
sér stað hefur Tog hf. aðeins
greitt einu sinni af skuldinni við
hreppinn en lokagreiðsla átti að
fara fram árið 1995.
Samkvæmt heimildum DV hef-
ur sveitarstjómin miklar áhyggj-
ur af rekstri þessa langstærsta fyr-
irtækis Súðvíkinga þar sem ýmsar
blikur eru á lofti í rekstri þess.
Innheimtuaðgerð hreppsins snýst
því um að bjarga því sem bjargað
verður áður en það er of seint.
Stjórnarformaður Frosta hf. er
Auðunn Karlsson og hefur hann
setið sem slíkur frá því Tog hf.
keypti sinn hlut. Frosti hf. er að
stærstum hluta í eigu Súðavíkur-
hrepps en Tog er næststærsti
hluthafinn í Frosta. Að auki eru
eigendur Togs hluthafar I Frosta
sem einstaklingar og hafa þannig
meirihluta í stjóm fyrirtækisins.
-rt/-SÁ
Akranes:
Pallbíll fékk
á sig brotsjó
„Mennirnir vora að vinna um
borð í skipi og þegar þeir komu upp
á bryggju aftur hafði sjór skollið á
bílnum og velt honum á hliðina,"
segir Sólberg Björnsson, verkstjóri
hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ell-
erts hf. á Akranesi, um þann atburð
se'm varð í gærmorgun þegar Mazda-
biífeið vinnufélaga hans fékk á sig
sjó á bryggjunni á Akranesi.
Bifreiðin, sem er pallbíll,
skemmdist nokkuð á toppi og hlið.
Sólberg segir það vekja nokkra
undrun manna að sjór skyldi ganga
yfir garðinn í ekki verra veðri. -rt
Á Ijósastaur
Ökumaður var fluttur með
sjúkrabíl til Reykjavíkur eftir að
hann ók bíl sínum á ljósastaur á
Tjarnargötu í Keflavík um klukkan
2 í nótt. Við skoðun á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur reyndust meiðsl
mannsins minniháttar.
Maðurinn er grunaður um ölvun
við akstur. Bíllinn skemmdist mik-
ið og varð að draga hann í burtu
með kranabíl. -RR
Ísaíjörður:
Götur skemmdar
Skemmdir urðu á tveimur götum
á Isafirði, Skutulsfjarðarbraut og
Pollgötu, eftir að sjór flæddi yfir
þær í hvassviðrinu í gær. Viðgerðir
á götunum standa yfir og verður
haldið áfram í dag. -RR
OPEL
Vel buinn
Opel Astra
Station kr.
1.299.000.-1
Bílheimar ehf.
Sœvarhöföa 2a Sími: 525 90001
KIN
c ^