Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1996, Qupperneq 14
14
PÍMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996
útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjðri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aöstoðarritstjóri: EUAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11,
blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildin 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingan 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjóm: dvritst@centrum.is - Auglýsingan dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverö á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Við stöndumst skilyrðin
Flest ríki Evrópusambandsins eiga í miklum erfiöleik-
um meö að koma fjármálum sínum í þaö horf, að þau
geti tekið þátt í eftirsóknarverðu myntbandalagi Evrópu,
sem á að taka til starfa eftir tvö ár. Hins vegar hefur ut-
angarðsríkið ísland þegar uppfyllt skilyrðin.
Ríkisfjárlög á íslandi hafa verið hallalaus í nokkur ár
og eru vel innan krafna myntbandalagsins, sem gera ráð
fyrir, að hallinn megi ekki vera meiri en 3% af lands-
framleiðslu. Þýzkaland, Bretland og Frakkland eru með-
al ríkjanna, sem enn hafa ekki uppfyllt þetta skilyrði.
Ríkisskuldir íslands hafa farið lítillega lækkandi að
undanfömu og em núna 55% af vergri landsframleiðslu.
Það er rétt innan 60% marka myntbandalagsins og er
raunar betri staða en hjá öllum ríkjum Evrópusam-
bandsins nema Frakklandi, Bretlandi og Luxemborg.
Verðbólga á íslandi er úm 2,5% á ári, í hærri kantin-
um í evrópskum samanburði og á mörkum myntbanda-
lagsins. Það gerir ráð fyrir hámarki, sem sé 1,5% yfir
verðbólgu þeirra þriggja ríkja, sem hana hafa minnsta.
Minnsta verðbólgu hefur Svíþjóð, um 1% á ári.
Langtímavextir á íslandi em um það bil 8%, það er að
segja 5% raunvextir að viðbættri 2,5% verðbólgu. Mynt-
bandalagið gerir ráð fyrir, að langtímavextir séu aðeins
2% yfir vöxtum þriggja lægstu ríkjanna. Sú tala er nú
um 6%, svo að ísland sleppur þar í gegn.
Verðbólgan og langtímavextimir em veikasta hlið ís-
lands í þessum samanburði. Öll ríki Evrópusambands-
ins nema Grikkland uppfylla þessi tvö skilyrði og ísland
er rétt á mörkum þess að standast þau. Engin bólga má
því verða í landinu á uppgangstíma næstu ára.
Síðasta skilyrðið varðar ekki flármál, heldur gengis-
stefnu. Það er, að ríkið hafi í tvö ár verið í gengissam-
starfi Evrópu, sem er aðdragandi myntbandalagsins.
Þetta hefúr ísland ekki gert, af því að Seðlabankinn hef-
ur notað viðskiptavegna gengiskörfu til viðmiðunar.
Ekkert er því til fyrirstöðu, að ísland taki einhliða upp
gengisviðmiðun við gengissamstarf Evrópu í stað geng-
iskörfunnar. Ef það er gert strax, uppfyllir ísland einnig
þetta lokaskilyrði, nákvæmlega þegar myntbandalagið
tekur til starfa að rúmlega tveimur árum liðnum.
Fræðimenn, sem um þessi mál hafa fjállað, em sam-
mála um, að afar hagkvæmt sé fyrir ríki að geta gerzt að-
ili að myntbandalagi Evrópu. Það er í fyrsta lagi beinlín-
is mikilvægt fyrir ríki að koma fjármálum sínum í slíkt
lag, að þau uppfylli skilyrði bandalagsins.
í öðm lagi hefur aðild að myntbandalaginu í för með
sér næsta sjálfvirkt aðhald, sem stuðlar að traustum fjár-
málum, lágri verðbólgu og lágum vöxtum. Talið er víst,
að þátttakan leiði til lægri vaxta en ella þyrftu að vera.
Á því einu gæti ísland sparað milljarða á hverju ári.
Við sjáum líka, að stjómir ríkja Evrópusambandsins
em önnum kafnar við að reyna að koma fjármálum sín-
um inn fyrir ramma myntbandalagsins eða láta líta svo
út, að þau verði komin inn fyrir mörkin í tæka tíð.
Frakkar beita að venju ýmsum sjónhverfingum til þess.
Mikil umræða fer nú fram um það í Evrópu, að Ítalía
muni ekki ná markinu í tæka tíð vegna langvinns aga-
leysis í fjármálum ríkisins. ítali granar af gefiium tilefh-
um, að Þjóðveijar og fleiri vilji ekki hafa sig með tfi þess
að spara myntbandalaginu hjúkrun veiks aðila.
ísland er hins vegar þegar komið inn fyrir mörkin og
þarf ekki að gera mikið annað en að halda í horfinu á
væntanlegum þenslutíma til að komast í klúbbinn.
Jónas Kristjánsson
„...ófáir svikamiðlar færa sér tilvistarótta afkristnaöra borgara í nyt og féfletta þá,“ segir Ármann m.a. í grein
sinni.
Öld gervivísinda
Einu sinni voru
tröll í íslenskum
fjöllum. Nú fara
menn þangað á
vélsleðum og sjá
þau ekki. Nú eru
til geimverur í
staðinn. Tröll eru
ekki nógu hátækni-
leg fyrir nútímann,
tröll okkar tíma
hafa tekið tæknina
i sína þjónustu því
að nútíminn er
tæknilegur. Nútím-
inn er líka
markaðslegur og
því eru til menn
sem græða á
geimverum. Á
hinn bóginn
græddi enginn á
tröllum.
Kjallarínn
Armann Jakobsson
bókmenntafræðingur
nyt og féfletta þá. Aðrir
trúa sjálfir að þeir hafi
dulræna hæfileika og
stimdum hefur þetta
komist í tísku og verður
þá eins konar fullorð-
insleikur.
Spírítisminn var evr-
ópskur en bandaríska
afbrigðiö eru geimver-
ur. Þær eru tröll og and-
ar tæknisamfélagsins
en eiga sameiginlegt
með öndum að hægt er
að græða á þeim, halda
námskeið, framleiða
sjónvarpsflokka með
tæknivæddum trölla-
sögum og efna til al-
heimsþings klikklinga
við hin og þessi fjöll í
von um að geimverur
láti sjá sig.
„Svikamiðillinn og geimverusjá-
andinn eiga sér einn bróður enn,
skottulækninn. Veruleikafirrt nú-
tímasamfélag þolir ekki sjúkdóma
eða elli og á því hagnast skottu-
læknarnir. Kenning þeirra er að öll
veikindi séu þeim að kenna sem
lenda í þeim.“
Spíritismi og
geimverur
Þetta hófst I ár-
daga borgarsamfé-
lags. Á 18. öld laug
maður að nafni
Messmer því að
betri borgurum að
hann gæti læknað
öll mein með segul-
orku. Að baki lá
fikn í skjótfenginn
gróða og þekking á
mannlegri náttúru.
Betri borgarar 18.
aldar voru jafh-
hræddir við að sýkjast og við sem
nú lifúm. Þeir voru hræddir við aö
deyja. Þeir voru hræddir við aö
takast á við tilveruna eins og hún
er.
Spíritisminn sprettur af þessu
og ófáir svikamiðlar færa sér til-
vistarótta afkristnaðra borgara í
Svikamiðillinn og geimverusjá-
andinn eiga sér einn bróður enn,
skottulækninn. Veruleikafirrt nú-
tímasamfélag þolir ekki sjúkdóma
eða elli og á því hagnast skottu-
læknamir. Kenning þeirra er að
öll veikindi séu þeim aö kenna
sem lenda í þeim. Menn eiga ekki
að borða kjöt, þvo sér með sápu
eða hugsa illar hugsanir, þá verða
þeir veikir. Skottulæknirinn reyn-
ir að byggja upp vonir veiklund-
aðra um að þeir geti verið óhultir
og öruggir með því að hegða sér á
tiltekinn hátt.
Skaðlaust?
Er þetta ekki ósköp skaðlaust?
Því miður ekki. Þessi flótti frá
veruleikanum getur brjálað menn
og gert skaðlega umhverfi sínu,
alið á fordómum, t.d. í garð þeirra
sem eru gamlir eða veikir, og leitt
af sér ofsóknaræði. Úr þessum
ranghugmyndum verður hvorki
skynsamleg heimspeki, gagnleg
pólitík né góður skáldskapur því
að allt þetta tekst á við veruleik-
ann sem trú á anda, geimverur og
imdralyf hafnar.
Einkenni nútímaveruleikaflótta
er tæknilegt órðfæri og fullyrð-
ingar um að byggt sé á vísind-
um, andstætt kristni og öðrum
gömlum trúarbrögðum þar sem
mestu skiptir að trúa. í staðinn
þarf að falsa sannanir. Þekkja
má gervivísindi og falskenning-
ar á því að þau leysa allan vanda
en í alvöruvísindum spretta upp
fleiri vandamál en leyst eru.
Gervivísindi eiga svör við öllu,
rétt eins og þegar sá sem segist
hafa lifað sjö sinnum er gagn-
rýndur, þá er viðkvæðið ævin-
lega að gagnrýnandinn sé ung
sál. Gervivísindin hreykja sjálf-
um sér en raunveruleg vísindi
eru hógvær, vita að þau vita ekki
neitt. Gervivísindin játa aftur á
móti aldrei á sig fáfræði nema til
að opinbera enn meiri fáfræði
annarra. Auðmýkt þeirra er jafn-
an hroki í dulbúningi.
Ármann Jakobsson
Skoðanir axmarra
Fréttastofa Sjónvarps
„Staðreyndin er því miður sú að vart örlar á
gagnrýninni fréttamennsku hjá ríkissjónvarpinu.
Þótt þar séu ágætir fréttamenn virðist stefnan vera
sú að ríkissjónvarpið eigi að þjóna ráðamönnum
eins og hver önnur tilkynningaskylda. í saman-
burði við önnur lönd er fréttastofan þannig á báti
með þeim sem helst þjóna yfirvöldum í blindni.
Alltént þekkist ekki í upplýstum nágrannalöndum
okkar að sjónvarpsstöðvar, hvort sem þær eru í
eigu hins opinbera eða ekki, séu fyrst og fremst
vettvangur fyrir mas og langhunda ráðamanna.“
Úr forystugrein Alþbl. 27. nóv.
Agaleysi þjóðfélagsins
„Agaleysi íslendinga er vandamál hvert sem
maður litur í þjóðfélaginu. Það er ekki hægt að bú-
ast við að agi sé meiri í skólunum en annars stað-
ar í þjóðfélaginu. Við errun öll agalaus og það bitn-
ar að sjálfsögðu á námi. Bömin draga dám af því
umhverfi sem þau venjast við heima fyrir.“
Unnur Halldórsdóttir í
Degi-Tímanum 27. nóv.
Starfsumhverfi
i sjávarútvegi
„Það verður að segjast eins og er að launakjör og
starfsumhverfi í sjávarútvegi hefúr ekki verið það
aðlaðandi að fólk hafi flykkst til þess að vinna í
greininni. Ef vinnslan tæknivæðist og framleiðslan
færist í fuilunnin matvæli, þá mun áhugi fyrir
störfum aukast. Þörf fyrir tæknimenntað imgt fólk
mun aukast og þjónustuiðnaður við greinina mun
eflast...Hókus pókus leiðin er óraunhæf, og stjórn-
málamenn sem reyna að telja þjóðinni trú um að
hún sé gerleg eru hættulegir þjóðinni."
Sighvatur Bjamason í Mbl. 26. nóv.