Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 Fréttir Rofaði til í lífi Súðavíkurhjóna með fæðingu „jólabarns“ á föstudag: Hlakka til þegar Iffið verður eftlilegt á ný - gleði og ótti bærast með okkur - segja Berglind Kristjánsdóttir og Hafsteinn Númason Þetta er yndisleg tilfmning, en blendin, maður veit varla hvort maður á að hlæja eða gráta,“ segja hjónin Berglind Kristjánsdóttir og Hafsteinn Númason, en þeim fædd- ist dóttir sl. föstudagsmorgun þeg- ar klukkuna vantaöi 17 mínútur í sjö. Stofan hjá þeim Berglind og Haf- steini var full af blómum þegar DV heimsótti þau í gær á heimili þeirra í Mosfellsbæ. Hamingjuósk- ir hafa streymt til þeirra frá bæði vinum, vandamönnum og vanda- lausum frá því að litla dóttirin fæddist, en þau hafa mátt ganga í gegnum erfiðari lifsreynslu og þyngri sorg en halda mætti að hægt væri að leggja á fólk, síðan þau misstu þrjú börn sín í Súða- víkurhamförunum. Hafsteinn Númason segir í samtali við DV að hann hafi fram til þessa átt erfitt með að sjá og handfjatla ýmislegt sem tengist börnum, svo sem barnaföt, bleiur og þess háttar, en nú, eftir að litla dóttirin er fædd, hafi hann orðið að gera það og það fylgi því ein- kennilega blendin til- finning harms og sakn- aðar, en jafnframt gleði og til- hlökkunar og Berglind bætir við að tilfinningin sé ótrúleg að halda á litlu barni í faðminum aftur eft- ir þennan tíma. „Það er bæði gleði og ótti sem bærist innra með manni, en mað- ur er varla kominn niður á jörð- ina og farinn að trúa því að þetta sé raunveruleiki,“ segir Haf- steinn. DV spurði þau hvort þau óttuðust að þau mundu ofvernda barnið eftir þær ógnir sem yfir þau hjónin hafa dunið. Þau segja að þetta hafl þau rætt sín í milli og velt fyrir sér. Hafsteinn Númason með nýfædda dóttur sína. Þau hjónin, hann og Berglind misstu öll börn sín í snjóflóðinu í Súðavík og hafa átt erfiða tíma. Það er því stúlkan verði Ijós í sortanum. „Við erum meðvituð um þetta og munum gæta okkar,“ segir Haf- steinn. Þau hjónin höfðu ekki í gær ákveðið hvað dóttir þeirra skyldi heita, en að litla jólabamið þeirra skyldi skírt í fyrrum sóknar- kirkju Berglindar, Dómkirkj- unni í Reykjavík, eftir áramót- Tíminn sem liðinn er frá hamforunum í Súðavík hefur verið þeim Berglind og Haf- steini erfiður og ýmis eftirmál hamfaranna eru enn óútkljáð. Berglind segir þetta hafa verið sér mjög erfiðan tíma og kveðst hlakka til þegar hægt verður að leggja fortíðina að baki og tilveran kemst í eðli- legt horf og fjölskyldan öðlast eðlilegt næði til að lifa eigin lífi. „Ég hlakka tU þess þegar málin komast í lag og lífið verður eðlUegt á ný. Við vUj- um líka þakka vináttu, sam- hug og stuðning sem fólk hefur veitt okkur og hlýhug í okkar garð. Það er okkur mikils virði,“ segir Berglind Kristj- Kristjánsdóttir, ánsdóttir. viðbúið að litla -SÁ DV-mynd GVA Álver á Grundartanga: Hreinsibúnaður uppfyllir ströng- ustu kröfur - segir iðnaðarráðherra „Varðandi ótta íbúa Kjósar- hrepps um mengun frá álveri sem hugsanlega verður byggt á Grundartanga vU ég 'taka fram að það hefur þegar farið fram umhverfismat á svæðinu. Sam- kvæmt því uppfyllir sá hreinsi- búnaður sem þama verður not- aður aUar ströngustu kröfur sem við gerum í þessum efnum. Það er ekki búið að taka ákvörðun um það að álverið risi nákvæmlega á þessum stað þótt búið sér að undirrita fjár- festingarsamning, raforku- samning og lóðasamning um byggingu álvers á Grundar- tanga. Þeir samningar eru mik- Uvægir fyrir okkur því um leið erum við að fá tryggingu fyrir því að tveir þriðju hlutar þess kostnaðar sem Landsvirkjun leggur út i tU undirbúnings þessum framkvæmdum ffam til 1. mars á næsta ári verði greiddir af Colombia fyrirtæk- inu,“ sagði Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra vegna mót- mæla íbúa Kjósarhrepps við byggingu álvers á Grund- artanga. Hann bendir á varðandi stað- setningu álvers á Grundartanga að þar sé þegar fyrir stóriðjufyr- irtæki. Á meðan menn geti hald- ið mengim innan þeirra marka sem við krefjumst sé ákjósanlegt að byggja upp fyrirtæki í skyldri starfsemi nærri hvert öðru en dreifa þeim ekki um landið. „Það þarf að meta staðarkosti á einstökum svæðum með tUliti til þess hvaða atvinnustarfsemi við teljum heppilegt að þar fari fram,“ sagði Finnur Ingólfsson. -S.dór Frosti hf: Landsbankinn fylgist með „Ég vil leyfa jólunum og áramót- unum að líða í friði. Síðan veröur gerð skýr krafa um að trúnaði verði aflétt,“ segir Heiðar Guðbrandsson, hreppsnefhdarmaður í Súðavík, um fund sem haldinn var í hrepps- nefndinni í fyrradag. Á fundinum, sem stóð í 6 klukkustundir, voru málefni Frosta hf. rædd en stjómar- menn fyrirtækisins hafa ekki enn greitt að fullu 60 mUljóna króna hlutafé sem þeir lofuðu fyrir áratug. Heiðar vUdi ekki upplýsa hvað fram hefði fariö á fundinum en sam- kvæmt heimUdum DV bárust hrepps- nefndinni skilaboð Landsbankans, viðskiptabanka Frosta, sem fylgist grannt með framvindu mála. Bank- inn leggur tU að skoðaðir verði möguleikar á að Frosti sameinist öðr- um fyrirtækjum og aukið hlutafé fá- ist inn í fyrirtækið. Frosti skuldaði samkvæmt ársreikningi 1995 langt á annan mUljarð króna. -SÁ Alþingi: Styrkur til almenn- ingsbóka- safna Menntamálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp tU laga um almenningsbókasöfh sem felur meðal annars í sér að ríkissjóður leggi fram 20 mUljón- ir króna á næstu 5 árum til að styrkja bókasöfnin. Markmiðið er að almenningsbókasöfn geti boðið þjónustu sem styðst við nútíma upplýsingatækni. Einnig er greitt fyrir tengingu almenn- ingsbókasafna við upplýsinga- net. Fénu má því verja til kaupa á tölvum og kosta safnverði á námskeið og gefa út fræðsluefni fyrir almenning. -S.dór Stuttar fréttir Jólakvíði Biskup íslands mælist til þess að prestar biðji fyrir þeim sem kvíða jólunum í sérstakri helgi- stund á sunnudaginn kemur. Flugleiðir og Sout- hwest Flugleiðir og Soutwest Airli- nes í Bandaríkjunum eru komin i samstarf um tengiflug milli áfangastaða í Bandaríkjunum og Evrópu um Baltimore. 200 miiyóna sparnaður Bændur gætu sparað allt að 200 milljónir með þvi að kaupa innfluttan áburð í stað innlends, að sögn Alþýöublaðsins. Kaupfé- lag Ámesinga er að sögn blaðs- ins að undirbúa stórfelldan inn- flutning áburðar. 3 bækur á mann Rúmlega helmingur lands- manna ætlar að kaupa 3-5 bæk- ur fyrir jólin, Sórðungur ætlar enga bók að kaupa og um 30% bíða með að kaupa þar til þeir hafa fundið hvar verðið er lægst, samkvæmt könnun Hagvangs. Sjónvarpið sagði frá. Lestrarerfiðleikar Fleiri böm eiga erfitt með lest- ur á Vestfjörðum en á höfúð- borgarsvæðinu, samkvæmt nið- urstöðum rannsóknar íslensks háskólanema í Ósló. Sjónvarpið segir frá. Uppsagnir afturkallaðar Uppsagnir hjá Fiskiðjusam- lagi Húsavíkur, sem taka áttu gildi 22. desember, hafa verið aft- urkallaðar vegna nýrrar laga- túlkunar sem felst í dómi um lokun hjá Fiskiðjunni Skagfirð- ingi. Dagur Tíminn segir frá. 80 sagt upp Öllum starfsmönnum Sjóla- stöðvarinnar hefur verið sagt upp, eða 80 manns, vegna hráefn- isskorts. Uppsagnimar taka gildi 27. desember. Morgunblaðið sagði frá. -SÁ Þú getur svaraB þessari spurningu meö því að hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Já§5 Neí 2 j rödd FOLKSINS 904 1600 Er rétt að skera niður vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu? sigurinn í sjö ár Stærsti Átta leikir vora í NBA í nótt og urðu úrslit þessi: Cleveland-New Jersey .......99-81 Orlando-Indiana............95-102 Detroit-New York...........112-78 Milwaukee-LA Lakers.......105-111 Denver-Sacramento ..........95-79 Phoenix-Washington........114-107 Portland-Seattle..........102-106 Golden State-Minnesota .... 123-96 Detroit sýndi allar sínar bestu hliðar þegar liðið tók New York í kennslustund. Þetta var um leið stærsti sigur liðsins í sjö ár. Linds- ey Hunter gerði 28 stig fyrir Detroit en John Starks skoraði 15 stig fyrir Knicks. Shaquille O’Neal gerði 41 stig fyrir Lakers í Milwaukee en Glenn Robinson skoraði einu stigi meira fyrir Milwaukee. Lakers vann þama sinn sjötta leik í síðustu 7 leikjum. Indiana vann Orlando í tvífram- lengdum leik. Reggie Miller gerði 34 stig fyrir Indina. Orlando var 11 stigum yfir í hálfleik. Sam Perkins skoraði 25 stig og Shawn Kemp 22 í sigri Seattle á Portland. Isaiah Rider skoraði 23 stig fyrir Portland. Cleveland hefur unnið 21 af síðustu 23 viðureignum gegn New Jersey. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.