Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Blaðsíða 18
18
gHMHI
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
OLNBOGABÖRN
VERÐLAUNASAGA
og aðrar úrvals sögur
Nýjar óbirtar sögur
Kransi
Konungur kattanna
Jólagjöf heilagrar Maríu
Hlautfyrstu verðlaun í aiþjóðlegri
samkcppni.
Endurútgefnar sögur
Dóttir Satans
Hús ekkjunnar
Ast og náttúra
Himnabrúður
Blóð, sviti og tár
Lestu og njótlu írásagnargleði
H ra fn 11 i ld a r Va I garðsd ótl u r.
loiagjofin .
til Ísíendinga
eriendís .
• .
• -ciskriftað*
daglegum fréttum *
frá íslandi
Faxfréttir úr fjölmiðlum eru fréttir frá
íslandi og færa lesandanum á stuttu og
aðgengilegu formi þær fréttir sem eru
efst á baugi hverju sinni. Faxfréttir koma
út 5 daga vikunnar á tveim síðum,
mánudaga til föstudaga, kl. 13 að
íslenskum tíma.
Fréttir___________________________________________________dv
20 þúsund krónur sem urðu að 1,2 milljónum hjá íslandsbanka:
Samþykkjendur
blankóvíxla
eru varnarlausir
- eina leiðin er að höfða endurkröfumál, segir forstöðumaður Bankaeftirlitsins
Kona sem skrifaði upp á óútfyllt-
an tryggingarvíxil fyrir ættingja
sinn vegna yfirdráttarheimildar í
íslandsbanka og stóð í þeirri mein-
ingu að hún ábyrgðist aðeins 20 þús-
und krónur var hins vegar dæmd til
að greiða íslandsbanka 1.174.816
krónur vegna úttekta ættingjans og
um 250 þúsund krónur að auki í
málskostnað. Stöð 2 greindi frá
þessu máli i síðustu viku.
Þórður Ólafsson, forstöðumaður
bankaeftirlits Seðlabankans, segir
að í lögum uin víxla sé gert ráð fyr-
ir því að sé víxill ekki fylltur út að
öllu leyti megi handhafi víxilsins
fylla hann út en skuldarinn/útgef-
andi víxilsins beri sönnunarbyrðina
telji hann að víxillinn sé ekki fyllt-
ur út eins og um var samið. Þrautin
geti hins vegar reynst þyngri að
sanna að svo sé þar sem víxillinn sé
mjög formbundið skjal og litlum
vörnum hægt að koma við til að
sanna að allt of há upphæð hafi ver-
ið færð á hann.
„Það er talið upp í lögum um
meðferð einkamála hvaða varnir
komast að i víxilmáli og þar er um
að ræða fá efnisatriði heldur forms-
atriði, þannig að það er mjög erfitt
að verjast víxilkröfu, jafnvel þótt
hún sé svona til komin, eins og sagt
er að þessi umrædda krafa sé,“ seg-
ir Þórður Ólafsson. I raun sé eina
færa leiðin fyrir þá sem í þessu
lenda að höfða endurkröfumál.
Þórður segir að fyrir nokkrum
árum hafi óútfylltir tryggingarvíxl-
ar verið mun algengari en nú er í
viðskiptum einstaklinga og lána-
stofnana. Bankaeftirlitið hafi um
árabil gert athugasemdir við lána-
stofnanir um notkun blankóvíxla
sem greiðslutrygginga.
Samkvæmt heimildum DV hyggst
konan höfða endurkröfumál á hend-
ur íslandsbanka til greiðslu á upp-
hæðinni sem umfram er það sem
hún taldi sig ábyrgjast í upphafi.
Hvorki konan sjálf né lögmaður
hennar, Gústaf Þór Tryggvason
hæstaréttarlögmaður, vildu stað-
festa þetta í gær. Konan er eftir-
launaþegi og fyrrverandi starfsmað-
ur víxladeildar Útvegsbanka íslands
og íslandsbanka. Hún segir í sam-
tali við DV að enginn af yfirmönn-
um bankans hafi nokkru sinni haft
samband við sig vegna málsins.
-SÁ
íslandsbanki og tryggingavíxillinn:
Samningaleiðin var alltaf opin
- segir Sigurveig Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi íslandsbanka
„Það var ekki að okkar ósk að
þetta mál fór fyrir dómstóla og ís-
landsbanki hefur alla tíð boðist til
að fara samningaleiðina á öllum
stigum málsins en því alltaf verið
hafnað alfarið," segir Sigurveig
Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi ís-
landsbanka.
Nýlega féll hæstaréttardómur í
máli íslandsbanka gegn konu sem
hafði skrifað upp á óútfylltan trygg-
ingavíxil fyrir ættingja sinn vegna
20 þúsund króna yfirdráttarheimild-
ar á hlaupareikningi. Samkvæmt
dómnum var konunni gert að greiða
á þriðju milljón króna vegna þessar-
ar skuldbindingar en sagt hefur ver-
ið frá málinu í DV og á Stöð 2.
Sigurveig segir að ábyrgðarskuld-
bindingar af því tagi sem hér um
ræðir hafi verið afhumdar hjá ís-
landsbanka fyrir nokkrum árum.
Ábyrgðaraðilar ábyrgist nú há-
marksfjárhæð sem skilgreind sé í
sérstakri yfirlýsingu sem síðan sé
endurnýjuð reglulega á tveggja ára
fresti. Aðspurð um viðbrögð bank-
ans ef svo fari að höfðað verði end-
urkröfumál á hendur bankanum
segir Sigurveig að af hálfu bankans
sé samningaleiðin opin eins og
áður.
-SÁ
Húsmæðurnar með gott verðskyn
Aðalbjörg Jónsdóttir afgreiöslukona afgreiöir einn viöskiptavina sinna.
Verslunin Valberg á Ólafsfirði:
DV-mynd ÞOK
FAX
Þverholt 11. Sími 550 5000. Fax 550 5999.
Netfang: faxfrettir@ff.is
DV, Ólafsfirði:
„Þetta er mismikill bamingur en
eftir að gengið var til samstarfs und-
ir merkinu „Þín verslun" standa
vonir til að það verði lyftistöng í
baráttunni. Við erum auðvitað í
ákveðinni samkeppni við útibú
KEA á staðnum en aðalsamkeppnis-
aðilinn eru stórverslanir annars
staðar á landinu," segir Aðalbjörg
Jónsdóttir, afgreiðslukona í Val-
bergi, annarri tveggja matvöru-
verslana á Óafsfirði.
Aðalbjörg, sem starfað hefur í
versluninni í tæp 14 ár, segir að við-
skiptavinir fylgist grannt með verð-
lagi og ígrundi innkaup sín vel.
„Húsmæður hér eru mjög meðvit-
aðar um verð og fylgjast vel með á
því sviði," segir Aðalbjörg.