Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 Utlönd Byssumenn ekk- ert hættulegri en golfarar Filippus prins, drottningarmað- ur á Englandi, reitti andstæðinga byssueignar til reiði í gær með því að halda því fram að byssuáhuga- menn væru hreint ekkert hættu- legri en golfleikarar. Drottningarmaður sagði í viðtali við BBC-útvarpið að hann teldi ekki að ný bresk lög sem banna flestar skammbyssur yrðu til þess að draga úr glæpum. „Ég trúi ekki að félagar í skot- klúbbum séu neitt hættulegri en fé- lagar í golfklúbbum eða öðrum,“ sagði prinsinn. „Ég fæ ekki séð að lögin komi i veg fyrir að glæpa- menn nái sér í byssur." Nýju lögin voru samþykkt í kjöl- far fjöldamorðanna í Dunblane í Skotlandi. Reuter Samningaviöræöur hafnar við skæruliöana í Perú sem halda hundruð gísla: Erlendir sendiherrar flytja skilaboö á milli Samningaviðræður fara nú fram milli vinstrisinnaðra skæruliða og fulltrúa stjórnvalda í Perú til að binda enda á gíslatökuna í embættis- bústað japanska sendiherrans í höf- uðborginni Lima. Anthony Vincent, sendiherra Kanada, sagði fréttamönnum fyrir utan sendiherrabústaðinn að hann og þrír aðrir diplómatar, sem skæruliðar hefðu valið sem milligöngumenn í samningaviðræðunum, hefðu flutt samningamanni ríkisstjórnarinnar, Domingo Palermo Cabrejos mennta- málaráðherra, boð frá skæruliðum. „Það verður haldið áfram með morgninum," sagði Vincent í nótt. Skæruliðamir, sem tilheyra sam- tökunum Tupac Amaru byltingar- hreyfingunni (MRTA), sem sækir standa undir nafni! VÍSA EURO og VISA raðgreiðslur BRÆÐURNIR Lágmúla 8 • Sími 533 2800 -fetiframar Umboðsmenn: Reykjavfk: Hagkaup. Byggt& Búið, Kringlunni.Magasín. BYKO. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, HeH'ssand'. Guðm E. Hallgrímsson, Grundarfirði.Versun Einars Stefánssonar, Búðardal. Heimahomið, Stykkishólmi. Vestfiröir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafiröi. Norðurland: Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík. Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúö.Sauöárkróki.KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. KEA Siglufirði. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn. Lóniö, Þórshöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson.Egilsstöðum. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúösfiröi. KASK Höfn. Suðurland: Mosfell, Hellu. Arvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg.Grindavík. Fjarðarkaup, Hafnarfirði. Starfsmenn Rauöa krossins við matar- og vatnsbirgöir sem gíslunum í jap- anska sendiherrabústaönum í Lima í Perú voru fluttar í nótt. Símamynd Reuter hugmyndafræði sína til Kúbu, hafa hótað að drepa mörg hundruð gísla sem þeir hafa á valdi sínu nema stjórnvöld láti allt að 500 félaga þeirra lausa úr fangelsi. Þeir leggja þó mesta áherslu á að leiðtoga þeirra, Victor Polay, sem var handtekinn 1992, verði sleppt. Skæruliðarnir slepptu tíu gíslum lausum í gær en höfðu áður látið mn 80 manns fara, konur og eldra fólk, Skæruliðamir, sem réðust til at- lögu gegn sendiherrabústaðnum á þriðjudagskvöld, hvöttu Alberto Fu- jimori, forseta Perús, til að taka per- sónulega þátt í viðræðum um lausn gíslanna. Meðal þeirra eru utanríkis- ráðherra landsins og landbúnaðar- ráðherra og að minnsta kosti tólf sendiherrar frá Asíu, Evrópu og Am- eríkuríkjum. Yukihiko Ikeda, utanríkisráðherra Japans, hélt áleiðis til Lima í morgun til að aðstoða við að tryggja lausn þeirra 484 gísla sem enn era í sendi- herrabústaðnum. „Staðan er erfið en okkur er mikið í mun að gíslarnir verði látnir lausir heilir á húfi og við munum gera okk- ar besta til að skjót og friðsamleg lausn fmnist,“ sagði Ikeda við frétta- menn. Matur og vatn flutt í sendi- herrabústaðinn Skæruliðarnir sögðu fréttamönn- um í gær að þeir hefðu lagt sprengju- gildrur við innganginn að sendiráð- slóðinni til að verjast hugsanlegri innrás lögreglunnar. Klukkustundu eftir að Vincent sendiherra og öðrum gíslum var sleppt úr prísundinni í gær fóru starfsmenn Rauða krossins inn í bygginguna með mat, vatn og rönt- genmyndavél. Stærstu mannréttin- dasamtök Perús sögðust hafa fengið orðsendingu um að heilsu sumra gíslanna væri stefnt í voða. Perúski kvikmjmdatökumaðminn Juan Victor Sumarriba, sem fékk leyfi skæruliða til að fara inn í bygg- inguna, sagði þegar hann kom út að gíslarnir fengju að ganga um og rabba saman að vild. Spennan jókst til muna síðdegis í gær þegar skæruliðar settu stjórn- völdum úrslitakosti um að þeir mundu drepa utanríkisráðherrann nema Fujimori forseti tæki þátt i samningaviðræðunum. Þeir gerðu þó ekkert úr hótunum sínum þegar fresturinn var liðinn. „Eina lausnin á þessu er pólitísk," sagði Walter Loayza, einn skærulið- anna, og bætti við að þeir vildu fá far- artæki fyrir sig og félaga sína sem yrði sleppt til að fara til svæða upp- reisnarmanna í frumskógum landsins. Talsmenn skæruliðanna sögðu að þeir hefðu ráðist á japanska sendi- herrabústaðinn til að mótmæla af- j skiptum japanskra stjórnvalda af stjórnmálum í Perú. Fujimori forseti er sonur japanskra innflytjenda. í perúska dagblaðinu La Republica í morgun sagði að skæruliðar hefðu komist inn á lóð sendiherrabústaðar- ins um jarðgöng og að bróðir forset- ans væri meðal gíslanna. Það hefur þó ekki fengist staðfest. Árás skæruliðanna er mikið áfall fyrir stjórn Fujimoris, sem hafði lýst yfir sigri í 16 ára stríði sínu við skæruliða, bæði MRTA og maóista- hreyfinguna Skínandi stíg. Reuter FBI handtekur eigin mann fyrir njósnir Bandaríska alríkislögreglan, FBI, handtók í gær einn af mönnum sin- um, Earl Edwin Pitts, sem grunaður er um að hafa selt Rússum leynileg skjöl frá árinu 1987. Er talið að hann hafi fengið um 224 þúsund dollara fyrir skjölin eða um 15 millj- ónir íslenskra króna. Fylgst var með Pitts i 16 mánuði áður en hann var handtekinn. Þeir sem fylgdust með honum þóttust vera rússneskir njósnarar. Þeir nutu einnig aðstoðar fyrram rúss- nesks embættismanns hjá Samein- uöu þjóðunum sem gekk til liðs við FBI. Þetta er annað njósnamálið sem skekur Washington og Moskvu á einum mánuði. í nóvember síðast- liðnum handtók FBI starfsmann bandarisku leyniþjónustunnar, CIA, vegna meintra njósna fyrir Rúss- land. Gransemdir FBI um að allt væri ekki með felldu vöknuðu eftir að ýmsar aðgerðir fóra út um þúfur. Fjármál Pitts vöktu meðal annars grunsemdir. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.