Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Side 13
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
menning
Leitin að
fjarskanum
Það er ekki algengt að menn gefl
út á bók nákvæmar lýsingar á því
hvemig þeir hafa eytt ævinni í að
leita að tilgangi lífsins.
Satt að segja man ég ekki
til þess að hafa lesið
slíka bók eftir íslenskan
höfund fyrr en nú. Höf-
undurinn er Isak Harð-
arson og bókin ber
nafnið Þú sem ert á
himnum ... þú ert hér
og hefur undirtitilinn
játningasaga. Þar rek-
ur ísak leit sína að
Guði allt frá barns-
aldri og fram á þenn-
an dag. Leit sem oft
bar hann afvega en
bar þó árangur að lok-
um. Eða hvað? Af fágætri hrein-
skilni og einlægni segir hann frá
því hvemig hann fann Guð og týndi
honum aftur. Fann og týndi og fann.
Hér er ekki gerð nokkur tilraun til
Bókmenntir
Friðrika Benónýs
að halda því fram að með því að öðl-
ast fullvissu um tilveru Guðs verði
menn hamingjusamir um aldur og
ævi eða að þar með hverfi öll vanda-
mál. Langt frá því. Og vantrúaður
lesandi veltir því fyrir sér hvort það
sé þess virði að missa jarðneska ást
og hlýju fyrir alltumvefjandi kær-
leika foðurins á himnum. Og finnst
hann skynja, í gegnum allar lofræð-
urnar um Guð, djúpan sársauka og
einmanaleika. Sagan kennir okkur
að vísu að allir heilagir menn hafi
þurft að afneita hinu veraldlega og
holdlega til að öðlast samneyti við
Hinn æðsta en litlum sög-
um fer af því hvort það
veitti þeim hina lang-
þráðu hamingju.
Þú sem ert á himnum
... þú ert hér er engin
venjuleg ævisaga, þótt
höfundur stikli á þvi sem
hefur hent hann um dag-
ana. Þetta er lofgjörð,
játning, uppgjör, varnar-
rit, allt í senn og minnir á
köflum á Harmsögu ævi
minnar eftir Jöhannes
Birkiland, þótt áherslurnar
hér séu aðrar. Bókin er
prýðilega skrifuð, stíllinn
léttur og glettinn og fólk og atburð-
ir ljóslifandi, einkum framan af, en
heldur verða hástemmdar lýsin-
gamar á gæsku Guðs og hinar eilífu
Biblíutilvitnanir í seinni hlutanum
þreytandi til lengdar: „Ó, lifandi lif!
Hvílíkan fognuð og frið hefur þú
gefið mér, lifandi Guð! Jesús er lif-
andi! Jesús er Drottinn! Jesús elsk-
ar mig!“ (bls. 186). Er ekki hægt að
vitna um kraftbirtingu guðdómsins
á lágstemmdari nótum?
Hvað sem því líður verður hinu
ekki neitað að ísak Harðarson hefur
hér brotið blað í íslenskri bók-
menntasögu og gluggagægisárátta
lesanda fær hér nýjan glugga að
skyggnast inn um.
ísak Harðarson.
Þú sem ert á himnum ... þú ert
hér.
Forlagið 1996.
Guirnar Ormslev, Jazz í 30 ár
Einhver besti saxófónleikari
landsins á sínum tíma var tvímæla-
laust Gunnar Ormslev. Hann fluttist
hingað frá Danmörku 18 ára að
aldri árið 1946. Faðir hans var
danskur en íslenskur var hann í
móðurætt. Gunnar lést árið 1981 og
er enn saknað af þeim sem unna
góðri djasstónlist og góðri tónlist yf-
irleitt, því að
hann lék alls
konar tónlist
aðra eins og
gengur hjá mús-
íköntum hér á
norðurhjaran-
um. Sá sem
þetta ritar
kynntist Gunn-
ari er við lékum
saman í dans-
hljómsveit vet-
urinn 1978. Það
var um það leyti
sem honum var
boðið að koma
til Kaupmanna-
hafhar sem ein-
leikari með
Radioens Big
Band í verkinu
„Pink Tenor“.
Það verk er á hljómdiskinum Jazz í
30 ár ásamt 27 öðrum verkum og
hafa 6 þeirra ekki birst fyrr en nú.
Gunnar var einstakt ljúfmenni og
sjentilmaður, spaugsamur upp á
þægilegan danskan máta og nokkuð
kaldhæðinn líka eins og sannur ís-
lendingur. Fyrst og fremst var hann
hljóðfæraleikari á heimsmæli-
kvarða og leitt að hann skyldi falla
frá áður en honum auðnaðist að
hljóðrita meira af músik. Veit ég að
hugur hans stóð til að gera plötu
með strengjasveit og kannski hefði
orðið úr því, þótt hann virtist stund-
um hlédrægur um of miðað við alla
hæfileikana.
Á þessum tveimur geislaplötum
má heyra stíl Gunnars þróast og
einnig upptökutæknina. Þótt hún sé
ekki upp á márga fiska í elstu lög-
unum er gaman að heyra kraftinn í
ungu djassleikurunum fyrir hart-
nær hálfri öld. Þetta er músíksagn-
fræði. Píanóleikarinn Kristján
Magnússon á heiður skilinn fyrir
„skrásetningu" heimilda, en hann
virðist oft hafa haft segulbandið
meðferðis og náð furðugóðum upp-
tökum við aðstæður sem trúlega
hafa ekki alltaf verið með besta
móti.
Gunnar lék ekki oft á flautu, en
hér er eitt áður
óbirt lag með
honum, „All of
Me“, þar sem
hann notar þver-
flautuna á
konsert í Austur-
bæjarbíói með
flnu trommu-
lausu tríói Jóns
Páls. Margar aðr-
ar ágætar hljóm-
sveitir koma
einnig við sögu,
svo sem hin
fræga Hljómsveit
Björns R. Einars-
sonar, Jazzmiðl-
ar, Musica Qu-
adro og auðvitað
ýmsar hljóm-
sveitir sem báru
nafn Gunnars
Ormslevs. Lagið „Little White Lies“
er létt og bráðskemmtilegt, tekið
upp af Moskvuútvarpinu þegar
Gunnar og félagar voru kosnir besta
djasshljómsveitin á Heimsmóti lýð-
ræðissinnaðrar æsku. Tónlistin
spannar léttan djass, þyngri og
meiri útsetningar á borð við verk
Djassplötur
Ingvi Þór Kormáksson
Gunnar Reynis Sveinssonar og fyrr-
nefnt danskt verk og svo eru með
ýmis djassdjömm, sem halda athygl-
inni misvel en alltaf virðist Gunnar
hafa komið með eitthvað sem skipti
máli. En vitanlega er valið þannig í
útgáfuna.
13
• 2xB0 uiaira magnari
• Síafíænf FN/MW/LH úfvarp með 30 minnum
• Þriggja disha geislaspilari með 30 minnum
• Tónjafnari með 6 forsfillingum
• Tímasfillari og veHjari
• Innsfunga fqrir hegrnaföt og hljóúnema
• TvöfalfDolbg segulöand
• FuilHomin fiarsfíjring
AKAI n 300
• 2x70 ujaffa magnari
• Sfafrænf FM/MW/LW úfvarp með 30 minnum
• Þriggja disha geislaspilari með 30 minnum
• Tónjafnari með G forsfillingum
• Tímasfillari og vehjari
• Innsfunga fqrir hegrnafól og tiljóðnema
• Tvöfalf Dolbg segulband m. síspilun
• Fullhomin fjarsfpring
• Surround hlióöherfi
AKAI Txsoa
AKAI TXG13
Sjónvarpsmiðstöðin
UmboJsmenn um land aOtVESTUHUIID: Hljómsýn. Akianesl. Kauplélag tonliliigi. Iiignisi. GIhsirIIÍi. Helfissandi tuiii Hallgiínssin. Giundailndi VESTFIRDIR: gaHnil Jónasai fc. PaHeksliiOi. Póllini. Isaliiii.HOflDURLAHII: If Sieingiímsljaióai. Kólmavik U V-Hiinvetninga.
Hnislanga. II Húnvelninga. Blónduósi Skagfiiúingabiið. SaoiáMi. IIA Daliik. Hljómvei, AJoneyri. Oiyggi. Húsavík. Dil. Haufaihðln.AUSTUHLANO: II Héiaúsbúa. Egilsstöiiun. II Vopnliiúlnga. Vupnalirði. If Héraðsbúa. Seylisfiiði. II Fáskiúðsljarðar. Fáskrúðsfirði. IASK. Djúpavugi.
IASK. Hiln Homaliiði. SOflURLARH: II Amesinga .flvulsvelli. UasfelL Hellu. Oiveik. Sollissi. Hadióiás. Sellossi. II Amesinga. Sellossi. Hás. talákshiln. Hiimnes. Vestmannaeyjum. REYKJARES: Haltoig. Biindevik. Rallagnavinnust Sig. Ingvaissonn. Gaili. Rafmælti. Hafnaifiiði.
Heimabíó hljómræhi
• 2 x BS lUðffð magnari fgrir framháfðlarð: GS uiöff fgrir miðjuhátðlðrð og 65 uiött fijrir Surround háfðlðrð
• S háfðlðrar - Dolhg Prologic herfi
• Sfðfrænf FM/MW/LW ötvarp með 30 minnum
• Þriggja disha geislaspilari meö 30 minnum
• Random Plag og fleira
«Innstunga fgrir heqrnatöl og hljöðnemð
• Tvöfalt Dolbg segulband með sTspilun
«Tönjafnari meö G forstillingum
• Tímasfillari og vehjari
• Fullhomin fjarstíjring
DOLBY SURROUINID j
P R O • L O G I C
Hf. 64.900 Sfflf.
Frábær hljómgæöi
Hr. 34.900 sfgr.
Áskrifendur fá 20%
aukaafslátt af
aW milH hirryn'
Smáauglýsingar
smáauglýsingum DV
ZÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ.
j
550 5000