Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Page 20
20
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
29
Iþróttir
Iþróttir
Shaq bestur
Shaquille O’Neal, tröllið hjá
Los Angeles Lakers, var í gær út-
nefndur besti leikmaðurinn í
NBA-deildinni í síðustu viku.
Shaq lék geysilega vel með
Lakersliðinu. íþremur leikjum
skoraði hann að meðaltali 31,3
stig í leik, tók 11 fráköst, varði
5.3 skot og átti 4,3 stoðsendingar.
Hardaway aftur frá
Arnfernee Hardaway, aðal-
stjarnan í liði Orlando, er aftur
kominn á sjúkralistann. Hann
hefur verið meira og minna frá í
vetur og hefur aðeins leikið 5
leiki með Orlando á tímabilinu.
Hardaway kom aftur inn í lið Or-
lando í síðustu viku eftir að hafa
verið lengi frá og á þriðjudags-
kvöldið tóku meiðslin sig í
hnénu upp aftur. Læknar Or-
lando vilja að kappinn fái meiri
hvíld og svo getur farið að hann
leiki ekkert næsta mánuðinn.
Þrenna hjá
Guerreros
Spánn vann Möltu, 3-0, í leik
liðanna í undankeppni heims-
meistarakeppninnar í knatt-
spyrnu í gærkvöld.
Guerrero skoraði öll mörk
Spánverja sem eru nú efstir i 6.
riðli með 13 stig. Júgóslavar
koma næstir með 12 stig.
Svíi til Derby?
Jim Smith, framkvæmdastjóri
Derby County hefur mikinn hug
á að fá Marino Ramberg, 23 ára
gamlan Svia, til liðs við félagið.
Ramberg leikur með Degerfors í
sænsku úrvalsdeildinni og var í
mótslok kjörinn besti ungi leik-
maðurinn í deildinni. Ramberg
er eftirsóttur því Inter Milan á
Ítalíu og IFKGautaborg í Sví-
þjóð hafa bæði áhuga á að fá
þennan efnilega framherja í sín-
ar raðir.
Newcastle býður
í Kinkladze
Newcastle United hefur boðið
Manchester City 400 milljónir
króna og Lee Clark í í skiptum
fyrir Georgíumanninn léttleik-
andi, Georgi Kinkladze. City
reyndi á dögunum að fá Clark í
sínar raðir og bauð þá 100 millj-
ónir í leikmanninn.
Bredemeier rekinn
Horst Bredemeier, fyrrum
landsliðsþjálfari Þjóðverja í
handknattleik, var í gær rekinn
úr starfi þjálfara hjá þýska 2.
deildar liðinu HSV Dússeldorf.
Dússeldorf tapaði um síðustu
helgi fyrir íslendingaliðinu
Wuppertal og þaö mun hafa átt
sinn þátt í að Bredemeier var
látinn taka poka sinn.
Norðmenn
sigursælir
Norskir skíðagöngumenn
voru sigursælir í heimsbikar-
keppninni I gær. Keppt var í
karla- og kvennaflokki í Þýska-
landi í gær. 1 karlaflokki, þar
sem gengnir voru 30 km með
hefðbundnu sniði, unnu Norð-
menn fjórfaldan sigur. Gullkálf-
urinn Björn Dæhlie fyrstur í
mark, Erling Jevne varð í öðru
sæti, Sture Sivertsen varð þriðji
og Vegárd Ulvang varð í fjórða
sæti. í fimmta sætinu kom svo
Finninn Mika Myllylá.
I kvennaflokki, þar sem
gengnir voru 10 km með hefð-
bundnu sniði, unnu norsku
stúlkumar þrefaldan sigur. Tru-
de Dyberthal varð hlutskörpust,
Bente Martinsen varð í öðru
sæti og Anite Moen-Guidon hcifn-
aði í þriðja sæti. -GH
„ Metnaðarmál að mínir menn
bæti sig sem handboltamenn1'
- segir Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari Fram í handknattleik sem komið hefur liða mest á óvart í vetur
Lið Fram hefur vakiö mikla athygli í vetur í 1.
deild karla í handknattleik og gengi liðsins, undir
stjórn Guömundar Þ. Guðmundssonar þjálfara, hef-
ur verið betra en flestir áttu von á.
í byrjun íslandsmóts var lið Fram í efsta sæti
deildarinnar, nokkuð sem stuðningsmenn Fram
hafa ekki vanist mörg undanfarin ár.
Guðmundur virðist vera að gera mjög góða hluti
með lið Fram sem er í uppbyggingu undir öruggri
forystu hans. Fyrir nokkrum árum tók Guðmund-
ur við liði Aftureldingar sem þá lék í 2. deild. Guð-
mundur kom liðinu upp í 1. deild og hjá Fram hef-
ur hann endurtekið leikinn. Eftir 3 ár í 2. deild
kom hann Fram í þá fyrstu fyrir yfirstandandi
tímabil og liðið er til alls líklegt í vetur á meðal
þeirra bestu.
„Stutt í botninn og toppinn"
„Ég held að við getum vel við unað eins og stað-
an er í dag. Við gætum verið ofar og við gætum
líka verið neöar í deildinni. Þess ber þó að geta að
deildin er mjög jöfn. Það er stutt í botninn en
kannski ekki mjög langt í toppinn heldur. Við ger-
um okkur grein fyrir þessu,“ sagði Guðmundur í
samtali við DV í gærkvöld.
- Framliðið er að margra mati það lið sem
komið hefur mest á óvart. Ert þú sammála því?
„Já, það kann að vera. Við erum að koma upp úr
2. deild og renndum blint í sjóinn varðandi okkar
stöðu. Það er alltaf erfitt fyrir lið að koma úr 2.
deild og erfitt að ráða í framhaldið."
- í byrjun unnuð þið sigra á lakari liðum
deildarinnar, ef þannig er hægt að taka til
orða. Þeir sigrar hafa væntanlega verið gott
innlegg í ykkar vinnu og framhaldið?
„20 æfingaleikir fyrir keppnistímabilið"
„Já, það er rétt. Við komum mjög vel undirbún-
ir, lékum 20 æfingaleiki og fórum í æfingaferð til
Þýskalands sem ég held að hafi haft mikið að segja
í byrjun mótsins sem var mjög góð hjá okkur. Lið-
ið hefur verið að leika slaka leiki inni á milli en
við höfum líka sýnt að við getum unnið hvaða lið
sem er í deildinni.”
- Eftirminnileg er viðureign Fram og FH þar
sem þið unnuð 19 marka sigur.
„Sá leikur er auðvitað eftirminnilegur. FH-ingar
áttu auðvitað erfiðan dag gegn okkur og við nýtt-
um okkur vel hve illa þeir voru að leika.“
- Hverjir eru burðir Framliðsins i dag. Hver
eru raunhæf markmið?
„Legg mjög mikla vinnu í þjálfunina"
„Öll liðin stefna auðvitað að því að komast í úr-
slitakeppnina. Við erum þar á meðal. Annars tök-
um við hvem leik fyrir í einu, i deild og bikar. Við
hugsum ekkert lengra. Við erum með liðið í mótun
hvað varðar vörn og sókn. Markmið okkar er skýrt
en við erum ekki að tjá okkur um það út á við.“
- Þú ert almennt talinn mjög metnaðarfullur
og vel skipulagður þjálfari. Það fer því væntan-
lega mikill tími hjá þér í starfið fyrir utan sjálf-
ar æfingarnar og leikina?
„Já, ég legg mjög mikla vinnu í þetta. Fyrir utan
að skipuleggja æfingar og búa liðið undir leiki þarf
að horfa á andstæðingana á myndbandi og eins á
okkar leik. Síðan hef ég alltaf gert mjög mikið að
því að horfa á handbolta, fyrri keppnir á meðal
þeirra bestu, stórkeppnir sem landsliðið hefur tek-
ið þátt í i gegnum tiðina.
Ég tel mjög mikilvægt fyrir þjálfara að horfa
mjög mikið á handbolta eins og hann gerist bestur
i heiminum og fylgjast vel með þróuninni. Síðan
verður maður að haga æfingunum í samræmi við
það sem er að gerast í dag.
Mér finnst mjög gaman að starfa hjá félögum
sem eru í uppbyggingu. Það er gaman að sjá félög
vaxa og dafha. Ég hef alla tíð haft mikinn metnað
fyrir hönd þeirra leikmanna sem ég þjálfa. Ég legg
mjög mikið upp úr því að þeir leikmenn sem ég
þjálfa bæti sig sem handboltamenn."
- Að öðru. Frammistaða landsliðsins í imd-
ankeppni HM var góð, sammála því?
„Já, þetta var mjög gott hjá þeim að komast til
Japans. Það var í raun og veru mjög erfitt dæmi að
þurfa að vinna Dani tvo leiki í röð.
Að mínu mati lék íslenska liðið hárrétta vörn í
leikjunum og sóknarleikurinn gekk upp. Það er
hins vegar alveg ljóst að ef við ætliun að eignast
landslið á meðal þeirra allra fremstu þarf liðið
meiri tíma og fleiri æfingar.“
- Telur þú væntingamar of miklar fyrir HM
í Japan?
„Menn verða auðvitað að halda sig á jörðinni.
Mér fmnst liðið eiga framtíðina fyrir sér en menn
verða að stilla öllum væntingum í hóf.
íslendingar hafa oft verið fljótir upp i skýin ef
vel gengur og núna verða allir að halda sig á jörð-
inni. Raunhæft markmið er að verða á meðal 8
efstu þjóða í heiminum.
Það kann að verða erfitt að ná því markmiði í
Japan en í næstu heimsmeistarakeppni þar á eftir
ætti það að verða mjög raunhæft markmið."
„Metnaðarmál að ná sem lengst og fá
tækifæri til að þjálfa landsliðið"
- Ert þú ánægður með núverandi lands-
liðsþjálfara?
„Já, það er ég. Að mínu mati er lands-
liðið í góðum höndum og hefur reynd-
ar verið það undanfarin ár.“
- Stefnir þú að þvi að verða
landsliðsþjálfari?
„Það er ekki markmið í sjálfu,
sér hjá mér. Hitt er þó ljóst að það
hlýtur aö vera metnaðarmál hjá ;
hveijum þjálfara að ná sem lengst
og fá tækifæri til að þjálfa landslið-
ið.
Það myndu örugglega fáir slá
hendinni á móti slíku tækifæri ef það byðist. Ég hef
hins vegar ekki velt þessum hlutum fyrir mér.“
Stangaveiði á flugu eitt helsta áhuga-
máliö og að veiða á eigin fiugur
- Áhugamálin?
„Handboltinn er númer eitt en stangaveiði með
flugu er númer tvö ásamt almennum
ferðalögum um ísland.
Fluguhnýtingar
eru ofarlega á
blaði hjá mér.
Það er mikil
andleg slök-
un fólgin
í því að
hnýta
flug-
Bovain stigahæstur
allra í úrvalsdeildinni
- Guöjón Skúlason og Helgi J. Guðfinnsson skora mest íslensku leikmannanna
Þegar 11 umferðum er lokið í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik er
Blikinn Andre Bovain stigahæstur í
deildinni. Bovain hefm- skoraö 386
stig í 11 leikjum sem þýðir að hann
skorar að jafhaði 35 stig í hverjum
leik.
íhópi 12 stigahæstu leikmanna
eru aðeins tveir íslenskir leikmenn,
Keflvíkingurinn Guðjón Skúlason
og Grindvíkingurinn Helgi Jónas
Guðfinnsson en bandarísku leik-
mennimir í defldinni raða sér í
efstu sætin eins og vera ber. 12
stigahæstu leikmennimir era:
Andre Bovain, Breiðabliki......386
Tito Baker, ÍR . . . .
Fred Williams, Þór
. 319
.298
Damon Johnson, Keflavik .........293
Shawn Smith, Haukum .............263
Jeflrey Johnson, Tindastól.......239
Herman Myers, Grindavík..........231
Guðjón Skúlason, Keflavík........224
Jónatan Bow, KR..................214
Helgi J. Guðfmnsson, Grindavík . . 212
Ronald Bayless, Akranesi ........205
-GH
Nafn íþróttamanns
1______________________________
2______________________________
3 _____________________________
4 _____________________________
5 _____________________________
Nafn:-----------
Heimilisfang: _
Benedikt Guömundsson er
hættur að þjálfa
úrvalsdeildarlið KR i
Benedikt er hættur
að þjálfa KR-inga
Benedikt Guðmundsson, sem þjálfað hefur úrvalsdeiidarlið KR-inga í körfuknatt-
leik undanfarið ár, er hættur að þjálfa liðið.
Benedikt, sem var yngsti þjálfarinn í úrvalsdeildinni, tflkynnti stjórnarmönnum í
körfuknattleiksdefld þessa ákvörðun sína í gær. Benedikt hættir í mikiUi sátt við KR-
inga, leikmenn og stjóm en ástæða þess að að hann fór fram á að samningi hans og
KR yrði rift var af persónupegum toga runnin.
Benedikt er tvímælalaust einn efnilegasti þjálfari landsins í körfuknattleik. Það hef-
ur hann sýnt á þeim stutta tíma sem hann hefur stjómað málum hjá KR. Undir hans
stjóm hefur liðið vaxið með hverri raun og þeir era margir sem telja KR eitt sterkasta
lið úrvalsdeildarinnar í dag. Það er töluvert áfaU fyrir KR-inga að sjá á eftir Benedikt
en hann mun ekki vera hættur sem þjálfari heldur ætlar hann að taka sér frí frá þjálf-
un um óákveðinn tíma. -SK
Stórsigur Massenheim
Patrekur Jóhannesson stóð sig vel
með Essen í gærkvöld gegn Nettel-
stedt og skoraöi 6 mörk.
Kristján Arason og
lærisveinar hans í
Wallau Massenheim
unnu stóran sigur á
toppliði Lemgo í þýska
handboltanum i gær-
kvöld.
Lokatölur urðu
30-25 og var þetta
fyrsta tap Lemgo í
deildinni. Leikur lið-
anna var endurtekinn
vegna kæra Lemgo eft-
ir að Massenheim sigr-
aði í leik liðanna á
dögunum. Volle skor-
aði 8 mörk fyrir
Massenheim. Risarnir
í Lemgo, Baumgartner
og Zerbe skoruðu að-
eins 2 mörk hvor.
Patti í stuði
Patrekur Jóhannes-
son lék mjög vel og
skoraði 6 mörk fyrir
Essen sem vann
heimasigur á Nettel-
stedt, 27-25. Alexander
Tutschkin var marka-
hæstur með 9 mörk
hjá Essen.
Róbert Sighvatsson *
skoraði 3 mörk af lín-
unni þegar Schutt-
erwald tapaði naum-
lega á heimavelli fyrir
Kiel, 26-27.
Lemgo er enn efst í
deildinni með 22 stig.
Massenheim,
Niederwurzbach og
Kiel koma næst með
17 stig.
-SK
Nýr styrkleikalisti FIFA:
Brassarnir eru bestir
■
- ^sland feílur um eitt sæti og er númer 60
Aðeins eitt stig til United
Manchester United náöi aðeins
jafntefli í gærkvöld gegn Sheffield
Wednesday í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspymu.
Ítalinn Carbone náði forystunni
fyrir heimamenn á 57. mínútu
leiksins en Peter Scholes náði að
jafna metin fyrir United fjórum
mínútum síðar.
Staða United breyttist ekki og
liðið er enn í sjötta sæti með 28
stig. Enn vantar því herslumun-
inn hjá United til að blanda sér í
toppbaráttuna fyrir alvöru.
-SK
►___Sími:
Sendio td:
....... íþróttamaður ársins
DV - Þverholti 11
....... 105 Reykjavik
m a
á
■ \y
Pánasoiie fSSjj/J^jjjja Mi ElECTé$& í Mluhúsnu
Heimsmeistarar Brasilíumanna er
enn efstir á styrkleikalista Alþjóða
knattspyrnusambandsins sem gefinn
var út í gær. Brassamir hafa verið á
toppnum allt þetta ár . Þeir hafa aðeins
tapað einum leik í ár og engin teikn
era á lofti að þeir ætli að láta forystunja
af hendi. Evrópumeistarar Þjóðverja
koma næstir og Frakkar era í þriðja
sætinu.
fslendingar era í 60. sæti ásamt
Sameinuðu arabísku furstadæmunuiþ
og hafa falliö um eitt sæti síðan
nóvember.
Tuttugu efstu þjóðimar á listanum
eru þessar:
1. Brasilía ..................68,38
2. Þýskaland .................64,46
3. Frakkland .................61,37
4. Kólumbía...................61,34
5. Tékkland...................61,11
6. Danmörk....................60.67
7. Rússland ..................60,51
8. Spánn .....................60,21
9. Hofland ...................59,59
10. Ítalía ...................58,68
11. Mexikó................... 56,92
12. England...................56,42
13. Portúgal..................56,13
14. Noregur...................55,71
15. Búlgaría.................55,64
16'. Rúmenia ................55,57
17. Svíþjóð..................55,50
18. Bandaríkin...............54,78
19. S-Afríka.................54,32
20. Zambía...................53,76
60. ísland ..................37,04
Suður-Afrikumenn taka stærsta
stökkið upp á við á listanum og verða
verðlaunaðir sérstaklega fyrir það á
hátíð sem FIFA heldur í Portúgal þann
20. janúar á næsta ári. S-Afríka var í
ársbyrjun númer 40 á listanum og
hefur því fært sig upp um 21 sæti. -GH
Dani til Akraness
„Við ætlum að kíkja á þennan þjálfara og hann kemur til okkar á fóstudaginn. Við viljum sjá hvaða hugmynd-
ir hann er með,“ sagði Örn Gunnarsson, stjórnarmaður hjá Knattspymufélagi Akraness, í samtali við DV i gær-
kvöld.
Þessi danski þjálfari var aðstoðarmaður hjá Bo Johannson þegar hann þjálfaði danska liðið Silkeborg. „Það er
alls ekki búið að ráða þennan þjálfara,“ sagði Öm enn fremur. „Það er ekkert ákveðið í þjálfaramálunum enn
þá og við erum að leita fyrir okkur erlendis,“ sagði Gunnar Sigurðsson, formaður Knattspymufélags Akraness,
i samtali við DV í gærkvöld.
-SK/-DVÓ
Iþróttir eru einnig á bls. 30
t