Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Síða 26
34 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 DeLonghi S ELDAVELAR VANDAÐAR - ODYRAR DeLonghí gerð CX-60676 Keramik-helluborð m/3 hraðhellum og 1 halogenhellu. Fjölvirkur ofn með yfir- og undirhita, grilli, blástursgrilli og 4 blásturs- stillingum. Sjálfhreinsun í ofni. Mál: BxDxH = 60x60x85 cm. Vérð kr. 96.880,- stgr. wwMmmmmmmm. w' yí .s C, ~ , « i DeLonghÍ gerð CX-60476 Fjórar hellur, þ.a. 3 hraðhellur. Fjölvirkur ofn með yfir- og undirhita, grilli, blástursgrilli og 4 blásturs- stillingum. Sjálfhreinsun í ofni. Mál: BxDxH = 60x60x85 cm. Verð kr. 65.990,- stgr. .., Æ Æ Éi DeLonghi gerð CX-50456 Helluborð m/4 hraðhellum. Ofn m/yfir- og undirhita, grilli og grillteini. 60 mín. hringjari. Mál: BxDxH = 50x60x85 cm. Verð kr. 49.990,- stgr. Ath.: Við bjóðum einnig fullkomið úrval af innbyggingarofnum, helluborðum, borðofnum, örbylgjuofnum og eldhúsviftum. GÓÐIR SKILMÁLAR ÆBm dUh mmm | FRÍ HEIMSENDING IIJL TRAUST ÞJONUSTA HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420 Auglýsendur, athugið! Síðasta blað fyrir jól kemur út mánudaginn 23. desember. Skil á stærri auglýsingum í það blað er kl. 14 föstudaginn 20. desember. Fyrsta blað eftir jól kemur út föstudaginn 27. desember. Skil á stærri auglýsingum í það blað er kl. 12 á hádegi mánudaginn 23. desember. Skil á stærri auglýsingum, sem birtast eiga laugardaginn 28. desember, er kl. 14 föstudaginn 27. desember. Síðasta blað á árinu kemur út mánudaginn 30. desember. Skil á stærri auglýsingum í það blað er kl. 14 föstudaginn 27. desember. Fyrsta blað eftir áramót kemur út 2. janúar. Skil á stærri auglýsingum í það blað er kl. 14 mánudaginn 30. janúar. auglýsingadeild Fverholti 11 - sími 550 5000 Fréttir Stúlkurnar í níunda bekk eru hér með smíðisgripi sína. Með þeim er Ingibergur skólastjóri og Pröstur Líndal smíða kennari. Höfðaskóli á Skagaströnd: Skólinn er hjarta sveitarfélagsins - segir Ingibergur Guðmundsson skólastjóri Steinþór Arason, nemandi í 9. bekk, við sauma. DV-myndir PÖK DV, Skagaströnd: „Færsla skólans frá ríkinu ti sveitarfélagsins hefur gengið nokk- uð vel. Það hafa ekki orðið neinir stærri erfiðleikar í tengslum við þessa breytingu, aðeins eðlileg frá- vik,“ segir Ingibergur Guðmunds- son, skólastjóri í Höfðaskóla á Skagaströnd. Hann segir að með yf- irtöku sveitarfélaganna á skólanum sé viðbúið að skólum verði steypt saman. Hann varar þó við að þar geti verið um viðkvæmt mál að ræða. „Skólinn er oftar en ekki hjarta síns sveitarfélags. Það er því mjög viðkvæmt mál ef steypa á saman skólum og menn verða að fara mjög varlega í öllum slíkum ákvörðun- um,“ segir hann. Ingibergur segir að hvað varði Skagaströnd og Blönduós sé samein- ing vart raunhæf þar sem það þyrftu að vera tvær þekkjardeildir fyrir hvern árgang. „Það myndi ekkert sparast við það og akstur á milli staðanna yrði dýr. Þá yrði mjög erfitt að ferðast á milli vegna þess hversu erfitt veður- far er hér. Það er því ekki sjáanleg- ur ávinningur af samruna," segir Ingiþergur. Miklar framkvæmdir eru við skólann og er nýtt íþróttahús að rísa en með því fær skólinn þrjár nýjar kennslustofur á næsta ári. Það þýðir að sögn Ingiþergs að hægt verður að einsetja skólann. Hann segir að varðandi skólastarfið sé áhersla lögð á að kenna börnunum að bera virðingu hvert fyrir öðru sem og kennurum. Þá sé mikil áhersla á umgengni og innrætingu jafnréttis. „Ég legg áherslu á gagnkvæma virðingu kennara og starfsfólks og að nemendur sýni góða umgengni. Þá leggjum við áherslu á jafnréttis- þáttinn og ég get nefnt sem dæmi að drengir og stúlkur læra jöfnum höndum smíðar og hannyrðir," seg- ir Ingibergur. -rt Svona Ijúga karlar að konum Lygar karla eru verri en kvenna, segir þekktur sálfræðingur. Barnið sem fæddist tvisvar Móðirin var tilbúin að gera hvað sem var til að bjarga litlu stúikunni sinni. Ólympíuþrautin Takið ykkur stöðu, viðbúin! Kannið þekkingu ykkar. t Sjö Ijúffengir réttir ■ ' til heilsubótar Heilsusamlegt fæði getur verið öflugt iæknislyf. En heilbrigðar matarvenjur eru annað og meira en rósakál og hveitiklíð. Fjallið logar! Baráttan við skógarelda krefst bæði þekkingar og hugrekkis en stundum nægir það ekki. Hér segir frá þess konar atviki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.