Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Síða 27
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
Fréttir
35
CHRYSLER CIRRUS (STRATUS)
Til sölu CHRYSLER CIRRUS, árg. 1996, ekinn aðeins 1.600 km,
2,5 L - LXI - 24 ventla - 160 hestöfl - 4 dyra - sjálfskiptur
Einn með öllu ásamt:
hraöastillingu, þokuljósum
að framan, leðuráklæði, 15"
krómuðum álfelgum,
geislaspilara, loftkælingu
og þjófavörn.
llpplýsingar í síma
565-6096
Slökkviliö Dalvíkur gagnrýnt vegna frammistööu viö slökkvistarf við Vallakirkju:
Opinber rannsókn mjög var-
hugaverð fyrir samfélagið
- slökkviliðið gerði sitt besta
„Við leituðum eftir því við menn
hjá Brunamálastofnun aö þeir
kæmu hingað og rannsökuðu þetta
mál sem þeir gerðu. Ég vil meina
eftir þá úttekt og samkvæmt minni
eigin skoðun á málinu að margt
sem sagt er um frammistöðu
slökkviliðsins hafi ekki verið á rök-
um reist og slökkviliðið hafi staðið
eins vel að verki og kostur er við
þessar aðstæður," segir Rögnvaldm-
Skíði Finnbjömsson, bæjarstjóri á
Dalvík, um þann kvitt sem verið
hefur uppi um að slökkvilið Dalvík-
ur hafi ekki staðið nógu vel að verki
þegar Vallakirkja í Svarfaðardal
brann í nóvember og stórskemmdist
eða jafnvel eyðilagðist. Því hefur
verið haldið fram að skaðinn hafi
orðið svo mikill sem raun bar vitni
vegna seinagangs slökkviliðsins við
að komast á staðinn og vegna lélegs
tækjabúnaðar og skipulagsleysis.
Málið hefur verið rætt innan bæjar-
ráðs Dalvíkur en þó óformlega og án
afgreiðslu.
Rögnvaldur Skíði segir að ekki
hafi liðið óeðlilega langur timi
þangað til slökkviliðið komst á stað-
inn og það sé skoðun sín og Bruna-
málastofnunar að þar hafi verið
unnið eins gott starf og hægt var við
erfiðar aðstæður. Alltaf megi finna
eitthvað sem fari úrskeiðis en á það
beri að líta að slökkviliðsmennimir
séu ekki 100 prósent atvinnumenn.
segir bæjarstjórinn á Dalvík
„Vissulega fer alltaf eitthvað úr-
skeiðis. Við emm með slökkvilið
þar sem menn em skyldugir til að
starfa. Þetta em að vísu ekki 100
prósent fagmenn en það er þó ekk-
ert sem réttlætir þær ásakanir sem
fram hafa komið. Það varð þarna
óhapp þegar dæla virkaði ekki þar
sem sía var biluð og töfin var
nokkrar minútur,“ segir Rögnvald-
ur Skíði.
Hann segir varasamt fyrir
slökkviliðið og samfélagið í heild að
halda áfram með málið og hefja op-
inbera rannsókn.
„Þetta er voöalega viðkvæmt mál
hjá þeim sem eiga hlut að máli.
Þarna kviknaði í út frá efnum sem
valda sjálfsíkveikju og ekki mega
vera saman. Það eru einhverjir sem
segjast vilja opinbera rannsókn en
ég tel slíkt mjög varhugavert. Ef
slökkviliðsmenn lenda í yfírheyrsl-
um þá getur það haft mjög slæm
áhrif á starf þeirra. Þá er það ekki
gott fyrir samfélagið að draga alla í
yfirheyrslur,“ segir Rögnvaldur
Skíði. -rt
„Öryggi barna - okkar ábyrgð“:
Hvetur til oflugra forvarna
til að fækka slysum
Árlega veitir átakið Öryggi
bama - okkar ábyrgð viðurkenn-
ingar vegna framúrskarandi fram-
lags til slysavama bama. Tilgang-
urinn með veitingu viðurkenning-
anna er að hvetja til þess að vel-
ferð og vemd bama sé virt og
stuðla að öraggu umhverfí þeirra.
í framkvæmdastjóm átaksins sitja
fulltrúar frá Rauða krossi íslands,
Landlæknisembættinu, Foreldra-
samtökunum, Neytendasamtökun-
um og Umferðarráði.
Slys á bömum á Islandi em hlut-
fallslega algengari hér á landi en í
nágrannalöndum okkar og segja
má að slysin séu stórt heilbrigðis-
vandamál. Kostnaður vegna slysa
og afleiðinga þeirra er gífurlegur.
Fjölmörg samtök og stofnanir
starfa markvisst að slysavömum
bama og að því að fækka slysum.
Reynt er að ná til foreldra með ým-
iss konar fræðslu, myndböndum
og bæklingum.
En betur má ef duga skal, segir í
bréfi frá framkvæmdanefnd átaks-
ins en hún hefur það að markmiði
að fækka slysum á börnum hér á
landi. Skorað er á stjómvöld að
gera það sem í þeirra valdi stendur
til þess að auka varnir gegn þess-
um slysum því það hafi sýnt sig að
með öflugum forvömum sé hægt
að draga verulega úr fjölda slysa
og koma þannig i veg fyrir örkuml
og þjáningu þeirra bama sem
slasast.
-sv
Trausti Ólafsson hefur starfaö hjá sama fyrirtækinu í 51 ár. Hér er hann að
skera niöur saltfisk sem síöan fer í neytendapakkningar. DV-mynd ÞÖK
Síðustu ár hefur skátahreyfing'm selt sígrcen
eðaltré, í hæsta gœðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
<*■ 10 ára ábyrgð Eldtraust
10 stærðir, 90 - 370 cm n. Þarfekki að vökva
í*. Stálfótur fylgir **. íslenskar leiðbeiningar
Ekkert barr að ryksuga n Traustur söluaðili
»- Truflar ekki stofublómin r* Skynsamleg fjárfesting
BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA
*
Gefðu íslenskan
jakka í jólagjöf
Verðið kemur á óvart
Rétt ver3 16.900.
Margir litir og stœrðir
Fríar Póstkröfur
ffCápusalan
Ótrúleqt KápuúrvallgSnorrabrQut 56 5 562 4362
Hefur
starfað í
rúma hálfa
öld hjá
sama fyrir-
tækinu
DV, Hauganesi:
„Ég byrjaði að vinna hjá þessu
fyrirtæki þegar ég var 17 ára. Ég
hef í gegnum tíðina ekki unnið
annað, nema hvað ég hef róið trillu
minni að sumrinu," segir Trausti
Ólafsson, 68 ára starfsmaður
Trausta ehf. á Hauganesi.
Trausti starfar við saltfisk-
vinnslu hjá fyrirtækinu og lætur
ekki deigan síga. Hann segir gott
að starfa fýrir eigendur Trausta
enda séu þeir frændur sínir.
„Ég hef kunnað ágætlega við
þetta. Ætli megi ekki segja að þetta
séu sæmilegir húsbændur." -rt
Reykvíkingar!
Reglulegum fundum
Borgarstjórnar Reykjavíkur er
útvarpað á Aðalstöðinni, FM
90,0, á fimmtudögum.
Skrilstofa
borgarstjóra
i